Morgunblaðið - 25.06.1986, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 25.06.1986, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNl 1986 Sund er íþrótt góð Hvað gera böm á sumrin? Það er sjálfsagt jafn margt og misjafnt og börnin eru mörg. Um daginn lögðum við leið okkar í Vesturbæjarsundlaugina í Reykjavík. Þar safnast saman á hverjum morgni hópur af bömum sem em að læra að synda. „Kreppa, rétta . . .blása bólur .. láta sig renna . . .kreppa," gellur við í kennaranum. Kennari bam- anna heitir Theodóra Emilsdóttir. Hún hefur kennt sund í 25 ár. Héma er hún í sumar frá því snemma á morgnana og fram yfir hádegi að kenna börnum sund. — Hvað em mörg böm í sund- inu hjá þér? Þau em um fimmtán í hverjum hópi. Ætli þau séu ekki nálægt 130 í júní og svo koma aðrir hópar íjúlí. — Á hvaða aldri em börnin? Flest em á aldrinum 7—8 ára en svo em alltaf innanum bæði eldri og yngri börn. — Hvernig líkar þér við starfíð? Það er gaman að kenna þessum börnum. Vesturbæjarlaugin er eiginlega byggð sem kennslulaug og ég kann vel við þetta starf. Ég hef verið svo heppin í sumar að það hefur vérið lítil sól. — Hvað meinarðu með þessu? Þegar það er sólarlaust þá er miklu meiri ró yfír bömunum og ekki eins mikið um að vera í lauginni að öðm leyti. Við þökkum Theodóru fyrir spjallið, en ekki er víst að allir séu henni sammála um ágæti sólar- leysis. Hópurinn sem er í sundi unir sér vel úti í iauginni. Þau -em ýmist með eða án kúts og korks eftir því hvað þau eiga að gera hverju sinni. Ein úr hópnum er Dagný Björk Siguijónsdóttir. Dagný Björk er 7 ára og hvað skyldíhenni fínnast um sundið? Það er gaman í sundinu. Ég hef mætt í alla tímana. — Hvað gerirðu annað en að fara í sund? Oft leik ég mér úti við hina krakkana í götunni. Stundum er ég inni hjá mömmu. Afi minn gaf mér svo mikið dót um daginn. Það er gaman að leika með það. — Ferðu eitthvað í frí í sumar, kannski í sveit? Nei, ég á enga sveit. Ef til vill fömm við til Akureyrar. — Nú lýkur sundnámskeiðinu í þessari viku, heldurðu að þú hald- . ið áfram að fara í sund? ' A • JSStm' •Sfe* ' ' " ^ - - Jón Davíð með sundgleraugu. Dagný Björk vandar sig. Ég ætla að reyna að fá afa minn til að fara með mér í sund seinna í sumar. Um leið og við kveðjum Dagnýju snúum við okkur að Jóni Davíð Ásgeirssyni sem er 6 ára. Hann er eini strákurinn í þessum hóp í sundinu, en það er sjaldnast svo ójafnt skipt í hópana. Jóni fannst eins og flestum krökkunum gaman í sundinu. — Hvað gerir þú annars á daginn? Ég leik mér bara. — Við hvað leikurðu þér? Við emm í fótbolta. — Horfím á fótboltann í sjón- varpinu. Já, mér finnst gaman að því. Þar með er Jón farinn að huga að heimferð eins og flestir aðrir sem vom með honum í sundinu. Það em greinilega margir sem vilja nýta sé allar þessar fínu laugar sem til em í borginni og víða um land. Af þeim Qölda einum sem sækir sundnámskeið í Vesturbæjarlauginni má ráða að það er hátt hlutfall bama í þessum yngsta aldurshóp sem nota suma- rið til Sundiðkana. Og segja má að því sumri sé vel varið sem fer í að læra að synda. Myndagátan 6 Sara Björg Ólafsdóttir var ein af þeim sem höfðu rétt svör við myndagátunni á síðustu Bama- síðu. Rétt svar var auðvitað glerbrot af gosflösku. Sara á heima á Sel- tjarnarnesinu, en mörg bréf bámst víðs vegar af landinu. Það er gaman að fá bréf frá ykkur. Segið mér ef það er eitthvað sérstakt sem þið viljið fá á Barnasíðuna. Hérna fáið þið svo enn eina mynd að reyna ykkur við. Svör sendist sem fyrst. Heimilisfangið er: Barnasíðan, Morgunblaðinu, Aðalstræti 6, 101 Reykjavik. Hláturinn lengir lífið Hildur Guðjónsdóttir er ein af þeim sem sent hafa Barnasíð- unni bréf. Hún stakk uppá að á síðunni væm brandarar og sendi þrjá með bréfínu. Þessi árstími er greinilega í uppáhaldi hjá Hildi því flugur og fleira því um líkt er henni hugleikið: Þjónn, það er fluga í súpunni. Jæja, þú verður að ná henni uppúr, ég er ósyndur. Þjónn, það er fluga að busla í sósunni. Já, hún byrjar ekki í salatinu fyrr en í næstu viku. Þjónn, það er kónguló í súpunni. Kónguló? Það eru 30 krónur aukalega. Við þökkum Hildi fyrir skemmt- unina. F egrun Þegar ég var að opna bréfin með svörunum við mynda- gátunni þá var þar á meðal eitt frá Ingibjörgu Sveinsdóttur í Grindavík. Ingibjörg er ekki ánægð með að einhver hafi hent gosflöskunni frá sér á víðávangi. Hún vill minna á að öllu þvílíku á að henda í ruslið. Og hún vill benda á fcgrunarvikurnar sem haldnar hafa verið, t.d. í Reykja- vík. Ingibjörg sendi Barnasíðunni kvæði eftir sjálfa sig. Það heitir Fegrun. Fegrun eréitt sem maðurgetureinn rusl í körfu rusl hérogþar rusl og fegrun alls staðar. Alltafskalhenda í ruslakörfumar eneittskalábenda aðþúogég við gerum ekki allt sem gera skal. Séð yfir hópinn sem var á þessu námskeiði. Á bakkanum er Theodóra Emilsdóttir sundkennari. Kapphlaup RS 51e- L [7± LznJ l lAj m Hver er fyrstur með sitt rusl í fötuna? Abréfinu hennar Ingibjargar, sem getið er um annars staðar á síðunni, má glöggt sjá börnin hugsa um umhverfið. í sutnar má gera ráð fyrir að flestir ferðist eitthvert. Náttúmverndar- ráð hefur gefíð út reglur sem kallaðar eru Liigmál ferðamanns- ins. Fyrstu tvær reglurnar eru svona: 1) Göngum ávallt frá áningar- stað eins og við viljum koma að honum. 2) Hendum ekki rusli á víðavangi. Ef allir krakkar sam- einast um að fara eftir þessum tveim reglum þá má búast við að smám saman eignumst við hreint og fagurt land. Hérna er smá- þraut. Þessir fjórir krakkar ætla að henda ruslinu sínu í ruslaföt- una sem er á miðri myndinni. Hvert þeirra skyldi verða fyrst?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.