Morgunblaðið - 26.07.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.07.1986, Blaðsíða 1
48 SIÐUR STOFNAÐ 1913 165. tbl. 72. árg. LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Þrettán hindúar myrtir í Punjab Amritsar, AP. GRÍMUKLÆDDIR byssumenn skutu til bana 13 hindúa í Punjab í gær og særðu sjö til viðbótar, suma lífshættulega. Sátu byssu- mennimir fyrir hópferðabíl, sem fór um þjóðveg á afskekktum stað. Þetta er grimmilegasta hryðju- verkið í Punjab til þessa. Talið er víst, að síkar hafi staðið að baki ódæðinu. Samkvæmt frásögn lögreglunnar skildu byssumennimir að hindúa og síka á meðal farþeganna, skipuðu svo konum og bömum í hópi hindúanna að hafa sig á brott og hófu síðan skothríð á karlmennina, sem eftir stóðu. Síðan síkar hófu baráttu fyrir auk- inni sjálfstjóm Punjabs, hafa þeir hvað eftir annað framið fjöldamorð á hindúum þar á svipaðan hátt. Þannig skutu þeir 11 hindúa til bana í árás 21. maí sl. og hinn 12. september 1984 myrtu þeir 8 manns. Á skyndifundi stjómar Punjabs í gær vom þessi síðustu fjöldamorð harðlega fordæmd. „Þau em svívirði- legt brot gagnvart öllu mannkyni," sagði í yfirlýsingunni. Fíllinn Friðrik er allur BJART VEÐUR SYÐRA k u * iu| «»wiu/ wL. K. M ag. Austlaeg eða norðaustlæg átt verður um helgina og bjart veður sunnan- og vestanlands, að sögn Veðurstofunnar og hiti 10—15 gráður. Á Norður- og Austurlandi má búast við skýjuðu veðri og sums staðar súld við ströndina Norð-Austanlands. Þar verður hitinn á bilinu 8—12 stig. Nýi heiti potturinn i Laugardalslauginni hefur notið mikilla vinsælda, ekki síst á góðviðrisdögum, eins og spáð er um helgina sunnanlands og vestan. Kaupmannahöfn, AP. FÍLLINN Friðrik, sem undan- farin ár hefur mátt þola stöðuga ásókn sjö kvenfíla í dýragarðinum í Kaupmanna- höfn, lést í gær af völdum hjartaáfalls. Fríðrik var sextán ára og þrjú tonn að þyngd. Þurftu starfsmenn dýragarðs- ins að beita aflmiklum krana til að fjarlægja hræið. Að sögn starfsmanna var Frið- rik fremur lítill bógur og friðsam- ur með afbrigðum. í hvert skipti er hann hugðist fara á fjörumar við einhverja fílkúna, fylltust kyn- systur hennar afbrýðisemi og Iögðu til atlögu gegn Friðrik. Loks varð álagið honum um megn og þrátt fyrir tilraunir dýralækna tókst ekki að bjarga lífi hans. íhuguð em nú kaup á nýjum fíl sem tekur Friðrik fram hvað varðar hreysti og andlegt atgervi. Shamir hyggst feta í fótspor Peresar George Bush í 10 daga ferð til Miðausturlanda Jerúsaiem, AP. YITZHAK _ Shamir, utanríkis- ráðherra Israels og leiðtogi Likud-bandalagsins, reyndi í gær að gera lítið úr mikilvægi Brundtland missir fylffi Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Monrunbladsins. * Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunbladsins. SKOÐANAKÖNNUN, sem birt var í Noregi í gær, er mikið áfall fyrir Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra. Samkvæmt könnuninni hef- ur Verkamannaflokkurinn nú fylgi 37,5% kjósenda, en hafði 43% í síðustu könnun, er gerð var áður en flokkurinn tók við stjómartaumum. Hægri flokkurinn og Framfara- flokkurinn hafa nú samanlagt jafn mikið fylgi og kratar. Jafnframt kom í ljós, að Káre Willoch, leiðtogi hægri manna, nýtur langtum meira per- sónufylgis en Brundtland. Forsætisráðherrann dregur í efa, að könnunin sýni raunverulegan vilja kjósenda, en segir þó, að staðan á þingi, þar sem Verkamannaflokkur- inn er í minnihluta, valdi miklum erfiðleikum. Brundtland hefur verið gagnrýnd af eigin flokkssystkinum fyrir að vera einráð og hlusta ekki á skoðanir flokksstjómar og verkalýðshreyfing- arinnar, er hún tekur ákvarðanir. Aksel Kloster, sem á sæti í stjórn flokksins, krafðist þess í gær, að Brundtland léti af flokksformennsku og stakk upp á Rune Gerhardsen, hagfræðing norska Alþýðusambands- ins, sem nýjum formanni. Gerhardsen er sonur Einars Gerhardsen, sem um langt árabil var leiðtogi Verkamanna- flokksins og forsætisráðherra. fundar Shimons Peres, forsæt- isráðherra, með Hassan Mar- okkókonungi. Shamir kvaðst þó mundu reyna að feta í fótspor Peresar eftir að hann tekur við starfi forsætisráðherra í haust og stuðla að viðræðum og að- gerðum er leitt gætu til þess að friður yrði saminn í millum Israela og araba. Shamir gagnrýndi þá leynd sem hvílt hefði yfir Marokkófundinum. Þykir það til marks um að stjórn- arflokkana hafi greint á um tilhögun fundarins. Peres skýrir stjóm sinni á morgun frá viðræð- unum, en í gær gaf hann Shamir skýrslu um viðræðumar við Hass- an. George Bush, varaforseti Bandaríkjanna, heldur í dag í 10 daga ferð um Miðausturlönd og er Israel fyrsti viðkomustaður hans. Ferðin var ákveðin í fram- haldi af fundi Hassans og Peresar. Israelsk blöð skýra frá því í gær að samið hefði verið um samstarf ýmiss konar á fundinum og væru t.d. ísraelskir áveitusérfræðingar senn á fömm til Marokkó í þessu sambandi. Um 2.000 shítar bmtu sér leið inn í sendiráð Marokkó í Beirút í gær. Unnu þeir margs konar skemmdarverk á skjölum og inn- viðum. Þeir kveiktu í húsinu, sem er fjögurra hæða, en eldurinn var fljótt slökktur. Loks brenndu þeir myndir af Hassan konungi í mót- mælaskyni við fund þeirra Peres- ar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.