Morgunblaðið - 26.07.1986, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.07.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986 21 Sovéskt dagblað: Sakar Amnesty um hlutdrægni Moskvu, AP. SOVÉSKA dagblaðið Sovietskaya Rossiya hefur ásakað mannrétt- indasamtökin Amnesty International um , að hafa náin tengsl við leyniþjónustur Vesturveldanna og þjóna hagsmunum þeirra. „Enda þótt samtökin þykist út á við vera hlutlaus, þá var og er andúð á Sovétríkjunum kjarninn í starfi Amnesty", segir í blaðinu. Ennfremur heldur blaðið því fram, að Amnesty-menn hafi beinlínis „búið til“ svonefnda „samviskufanga" ( kommúnistaríkjunum, fólk, sem aldrei hafi verið til. Auk þess væri Amnesty stutt fjárhagslega af ríkisstjómum Bretlands og Bandaríkjanna. Dagblaðið nefndi engar sannanir fyrir ásökunum sínum, en sagði, að útvarpsstöðvamar Radio Free Europe og Radio Liberty flyttu skýrslur Amn- esty. Sendingar þessara stöðva em truflaðar af sovéskum stjómvöldum. Kornuppskera í Sovétríkjunum: Lakari horfur í kjölfar þurrka London, AP. VEGNA þrálátrar þurrkatíðar í Sovétríkjunum að undanförnu, eru nú horfur á, að kornupp- skera þar verði mun lakari en vonast hafði verið til, að sögn Alþjóða hveitiráðsins (IWC). Irskir hryðju- verkamenn handteknir Belfast, AP. FREGNIR um handtöku fjögurra meðlima írska þjóðfrelsishersins (INLA), í París á miðvikudag, hafa vakið fögnuð á Norður-írlandi. Sagt var í París, að mennimir fjór- ir hétu Harold B. Flynn, George McCann, John Gormley og Harry Brown og hefðu þeir verið vopnaðir skammbyssum, er þeir voru hand- teknir. Flynn sem flúði úr fangelsi á N-írlandi fyrir 10 árum, er sagður hafa verið mjög hátt settur innan INLA, marxísks anga írska lýðveldis- hersins og er að sögn mikil ánægja með að loksins skuli hafa tekist að hafa hendur í hári hans. París hefur lengi verið álitin bækistöð írska þjóð- frelsishersins og er talið að samstarf sé á milli hans og frönsku borgar- skæmliðanna „Action Directe". Yfir- völd í London og Belfast sögðust ekki hafa fengið staðfestingu á hverjir hin- ir handteknu em og töldu of snemmt að fullyrða hvort farið yrði fram á framsal mannanna. í skýrslu, sem IWC birti á þriðju- dag, kemur ennfremur fram, að heimsmarkaðshlutdeild Banda- ríkjanna í hveitiútflutningi hefur minnkað mikið á undanfömum árum. Samkvæmt júlíspá IWC verður heildarkomuppskera Sovétríkjanna 175 milljónir tonna á þessu ári, en spá ráðsins frá þvi í síðasta mánuði hljóðaði upp á 185 milljónir tonna. Komuppskera Sovétríkjanna var 190 milljónir tonna á síðasta ári. Eins og í síðasta mánuði spáir IWC, að kominnflutningur Sovét- manna á þessu ári verði 35 milljónir tonna, fjórum- milljónum meiri en í fyrra. í skýrslu IWC er ekki vikið einu orði að getgátum vestrænna aðila um að komuppskera í Sovétríkjun- um kunni að hafa orðið víðtækri mengun að bráð eftir kjarnorku- slysið í Chemobyl í Úkraínu í apríl. Engar upplýsingar benda til að slíkt tjón hafi átt sér stað og hefur heimsmarkaðsverð á komi haldið áfram að falla. IWC segist vera að endurskoða spár sínar um komuppskemna í heiminum í ljósi breyttra forsendna. Spáin hljóðar nú upp á 820 milljón- ir tonna, miðað við 817 milljónir tonna í síðsta mánuði. Heildampp- skeran í fyrra var 835 milljónir tonna og hefur aldrei verið meiri. Garri Kasparov var frisklegur og glað- legur á fundi með fréttamönnum i Park Lane Hotel i London í gær, en þar hefst einvigi hans og Anatolys Karpovs um heimsmeistaratitilinn í skák á mánudag- inn kemur. Áskorandinn, Anatoly Karpov, sem jafnframt er fyrrver- andi heimsmeistari í skák, situr hér við skákborðið, sem hann og Kasparov eiga að tefla við í einvígi sinu. Mynd þessi var tekin af Karpov við upphaf fréttamannafund- ar hans í Park Lane Hotel i gær. Heimsmeistaraeinvígið í skák hefst í London á mánudaginn: „Má ekkivera of viss um sigurinn“ - sagði Garri Kasparov á fréttamannafundi í gær „ÉG MÁ ekki vera of viss um sigur, en ég mun vissulega gera mitt bezta til þess að sigra aftur,“ sagði heimsmeistarinn í skák, Garri Kasparov, í London í gær. Ekki mætti gleyma þvi, að „Karpov er nyög sterkur líka,“ bætti hann síðar við. Heimsmeistarinn og áskorand- inn, Anatoly Karpov, héldu báðir fundi en þó sitt í hvoru lagi með fréttamönnum í gær . Voru fund- imir haldnir í Park Lane Hotel, þar sem einvígi skákgarpanna á að heíjast á mánudag. Það verður fyrsta viðureign þeirra utan Sov- étríkjanna og það verður jafn- framt í fyrsta sinn, sem tveir sovézkir skákmeistarar tefla um heimsmeistaratitilinn í skák utan heimalands síns. Þeir Kasparov og Karpov gerðu báðir iítið úr persónulegum ágreiningi sín í milli, sem stundum hefur þó verið gert mikið úr. Karpov sagði, að metingur væri eðlilegur milli tveggja beztu skákmeistara heims, en bætti því síðan við, að þegar ágreiningur kæmi upp á milli þeirra, þá væri hann „aðeins tímabundinn". Kasparov var afdráttarlausari og viðurkenndi, að „persónulegur metingur milli okkar nær út fyrir skákborðið." Hann kæmi bæði fram í skákum þeirra sem lífstíl þeirra. „Við erum jafnvel mjög ólíkir í útliti," sagði Kasparov. Enda þótt báðir skákmeistar- amir tali ensku, þá svöruðu þeir spumingum fréttamanna að mestu leyti með aðstoð túlka. Fyrstu 12 skákimar í einvíginu verða tefldar í London og þær sem eftir verða í Leningrad. Sá sem fyrstur verður til þess að ná 12’/2 vinningi, verður sigurvegari ein- vígisins. Alls verða tefldar 24 skákir, en einvíginu gæti lokið fyrr, ef annar keppandi nær 12'A vinningi áður. Verðlaunaféð fyrir þann hluta einvígisins, sem fram fer í Lon- don, nemur 300.000 pundum (yfir 18 millj. ísl. kr.) og hafa báðir keppendur lýst því yfir, að því verði varið til styrktar fórn- arlömbum kjamorkuslyssins í Chernobyl í Sovétríkjunum 26. apríl sl. Sjá grein Margeirs Péturs- sonar stórmeistara um væntanlegt einvígi á bls. 35. GENGI GJALDMIÐLA London, AP. BANDARÍKJADOLLAR hækkaði í gær gagnvart flestum helztu gjald- miðlum heims nema kanadiska dollarnum. Var þessi þróun m.a. rakin til hagtalna, sem kunngerðar voru í Bandaríkjunum nú í vikunni og reyndust hagstæðari en búizt hafði verið við. Einnig var á kreiki óstaðfestur orðrómur um, að hinn nýi fjármálaráðherra Japans, Miic- hi Miyazawa, væri þvi fylgjandi, að gengi jensins yrði á bilinu 160- 170 gagnvart Bandaríkjadollar og að dollarinn færi helzt ekki niður fyrir 160 jen. í gær kostaði sterlingspundið 1,4840 dollara (1,4910), en annars var gengi dollarans þannig, að fyrir hann fengust 2,1525 vestur-þýzk mörk (2,1362), 1,7340 svissneskir frankar (1,7235), 6,9545 franskir frankar (6,8925), 2,4230 hollenzk gyllini (2,4065), 1.477,50 ítalskar lírur (1.464,00), 1,3870 kanadískir dollarar (1,38875) og 158,10 jen (156,55). Þú svalar lestrarþörf dagsins asídum Moegans! TRYGGIÐ ORYGGI YKKAR HJÁLMAR, ANDLITSHLÍFAR OG HLÍFÐARGLERAUGU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.