Morgunblaðið - 26.07.1986, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.07.1986, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGÁRDÁGUR 26. JÚLÍ 1986 29 Hreindýr: Virðist vera handahófskennt hvernig kvótinn er ákveðinn - segir Sólmundur Einarsson líffræð- ingur „Á þessu ári verður ekki við- höfð nokkur talning á hrein- dýrum,“ sagði Sólmundur Einarsson líffræðingur í sam- tali við Morgunblaðið, en hann á sæti í hreindýranefnd Skot- veiðifélags Islands. „Menntamálaráðuneytið ber því við að ekki séu nógir pen- ingar til staðar. Þetta er fráieit röksemd. Andvirði þessara 700 hreindýra sem er úthlutað á þessu ári er um tíu og hálf milljón krona, ef við miðum við að hreindýrakjöt seljist á 500 krónur hvert kíló í heildsöiu og að meðalfallþungi dýra sé 30 kíló. Áætlaður kostnaður við talningu er aftur á móti 80.000 krónur. Skotveiðifélagið hefur boðið menntamálaráðuneytinu að það muni standa undir þeim kostnaði ef það fengi hluta veiðikvótans sem það mundi síðan selja og nota tekjurnar til talningar og rannsókna á hreindýrastofninum. Þessu hefur hinsvegar ráðuneytið synjað og valið þann kostinn að sleppa talningu. Talning fer fram úr flugvélum en best er að hafa jafnframt taln- ingu á jörðu niðri. Það hefur verið talið reglulega frá því að veiðar hófust aftur eftir friðun 1962, þó að áður hafi komið fyrir að ekki hafi verið talið. Mest hafa talist um 4.000 dýr en kvótinn hefur venð rokkandi á bilinu 500-1.100. í fyrra var einungis talið á hluta af svæðinu en samt veittur fullur kvóti. Þetta virðist vera svolítið handahófskennt hvemig kvótinn er ákveðinn. Til dæmis hafa oft heyrst raddir frá bændum um að þeir hafi séð hreindýr þar sem ekki var talið og. ráðuneytið þá oftast tekið tillit til þess að ein- hveiju leyti og stækkað kvótann sem því nemur. Eftirlit með hreindýrastofnin- um er því miður alls ekki nægjan- legt. Auk þess að talning sé ekki framkvæmd má nefna að eftirlit er ekkert með því hvort að þau dýr sem eru veidd séu kálfar, kvígur eða tarfar né heldur í hvaða ástandi þau eru. Eftirlit með veiðmönnum er heldur ekk- ert, þetta byggist mest á munnmælum manna á milli. Að okkar mati á að skikka veiðimenn til að taka ákveðin sýni, til dæm- is kjálka dýranna, svo hægt sé að meta ásigkomulag þeirra, kyn, aldur og annað útfrá því. Einnig þyrfti að taka úrtök og athuga spikþykkt dýranna. Síðan ætti útfrá þeim niðurstöðum sem fengjust úr þessum rannsóknum, að meta hversu mikið af törfum, kvígum, og kálfum yrði úthlutað í veiðikvótanum hveiju sinni. Skotveiðifélagið hefur undan- farin ár haft nefnd starfandi sem samið hefur heildartillögur að nýjum lögum í þessum efnum. Þar er ekki gert ráð fyrir því að hrepp- um sé úthlutað tilteknum fjölda dýra heldur væri ákveðinn, eftir rannsóknir, dýrafjöldi sem fella mætti og gætu síðan einstaklingar keypt veiðileyfi af ráðuneytinu og fengið að fella dýr undir yfirum- sjón dýraeftirlitsmanns. Þetta myndi, auk þess að koma í veg fyrir þá spillingu sem því miður viðgengst á þessu sviði eins og stendur, leysa ýmis vandamál sem stundum koma upp. Það kemur til að mynda oft illa niður á bú- anda að dýr sem dveljast á hans landi stóran hluta ársins færa sig um set á veiðitíma. Þetta vekur oft upp úlfúð milli hreppa." „Þetta er ekkert stórhættulegt, stofninn er ekki í útrýmingar- hættu þó að talning fari ekki fram í ár þó að auðvitað væri æskilegt að vita meira um stofninn," sagði Skarphéðinn Þórisson líffræðing- ur í samtali við Morgunblaðið. Skarphéðinn hefur unnið viða- miklar rannsóknir á hreindýrum á Náttúrufræðstofnun íslands. „Þetta fer líka mikið eftir því hvemig kvótinn skiptist niður á svæði. Á sumum fjörðunum mátti að ósekju bæta við kvótann. Þar hefur dýrum fjölgað mikið á und- anfömum ámm og valda sum- staðar spjöllum á gróðri. Það leiðir síðan til andúðar á dýmnum. Annars em allmargir lausir enadar í þessum málum og ákveð- in atriði sem bráðnauðsynlegt væri að athuga betur. Núna er einungis talið á aðalsvæðinu, norð-vestur af Vatnajökli skammt frá Snæfelli, en þar hefur dýmn- um fækkað mikið á undanförnum ámm. Þau hafa fært sig í norður og austur á firðina. Eftir því sem dýmnum fækkar í nánd við Snæ- fell vitum við minna um ástand stofnsins í heild. Þarna er nú um þriðjungur stofnsins og fer fækk- andi. Það hefur bara einu sinni verið framkvæmd heildartalning á öllu svæðinu, en það var árið 1980. Þá fundum við 17-1800 dýr á fjörðunum, utan aðalsvæðisins, sem var mun meira en við höfðum búist við. Ég var búinn að giska á um 1.000 dýr og var það talinn all glæfraleg spá á sínum tíma. Ég held að engin nauðsyn sé á heildartalningu árlega, ef fjár- muni vantar er hægt að skipu- leggja talninguna þannig, að eitt árið mundum við telja á aðalsvæð- inu, síðan í til dæmis Norðfjarðar- og Helgustaðahreppi og loks þriðja árið á svæði sem við þekkj- um lítið til á. Einnig ætti að skikka menn til að skila inn upplýsingum um þau dýr er þeir skjóta til að við gætum metið stofnin aðeins betur, en þá verðum við líka gera okkur grein fyrir því, að ef við viljum fá inn upplýsingar þá verðum við að hafa einhvem til að vinna úr þeim og það kostar peninga. Svo mætti líka athuga breytingar í þá átt, að í kvótanum verði tilgreint hversu mikið megi skjóta af hvoru kyni og kálfum. Nú er bara til- greindur fjöldi dýra og hefur það leitt til þess að á sumum stöðum hafa tarfar á stundum nánast horfið. Þeir eru auðvitað stærstir og gefa mest af sér og þvi fysi- legra að veiða þá.“ Hreindýr á beit í Eskifirði. Ekkert hættulegl að taln- ingu sé sleppt á þessu ári - segir Skarphéðinn Þórisson líffræðingur Dagana 27. júlí til 3. ágúst mun Viðey verða vettvangur lýðveldisstofnunar skáta. Mynduð verður þjóðstjórn og þing, einnig verður starf- ræktur banki, pósthús og sjúkrahús og ekki má gleyma vegabréfinu sem gefið verður út á hvern einstakling. Þetta lýðveldi hefur einnig sitt skjald- armerki, lög og þjóðsöng. Við hvetjum foreldra skáta og gamla skáta til að koma og kynnast skátalýðveldinu og rifja upp gömlu góðu tímana, með því að gista í fjölskyldu- búðum. Ferðir verða daglega út í eyju frá Sundahöfn. Nánari upplýsingar er að fá í síma 621390. . —-fý-Jdit í _ _i._v.t__.__________\ -V'_________________________V ; -----------------------------------] 'V ; r T~‘í' V '/'*/Y\ • - *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.