Morgunblaðið - 26.07.1986, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.07.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986 23 Lenging orlofs í Japan: Ríkisstjórnin gengur á undan með fordæmi sínu Tókýó. AP. JAPANSSTJÓRN hefur aflýst sex reglulegum ríkisstjórnar- fundum í sumar til þess að gera embættismönnum kleift að vera öðrum japönskum vinnusjúkling- um fyrirmynd í því að taka sér oriof, að því er Masaharu Got- oda, ráðuneytisstjóri í forsætis- ráðuneytinu, sagði í gær. „Við viljum, að stjómin gangi á undan og taki sér frí, svo að jap- anskur almenningur fáist til að taka sér lengra orlof í sumar en venja hefur verið til,“ sagði Gotoda á fundi með fréttamönnum. Skýrslur, sem atvinnumálaráðu- neytið hefur látið taka saman, sýna, að japanskir launþegar eiga lengri vinnuviku en tíðkast í Bandaríkjun- um, Vestur-Þýskalandi og Frakk- landi. Áætlanir stjómarinnar um að auka innlenda eftirspum eftir vöm og þjónustu í því skyni að draga úr útflutningsþörfinni án þess að skaða efnahag landsins, kveða m.a. á um lengingu árlegs orlofs um 10 daga á næsta áratug. Launþegar fengju þannig rýmri tíma til að verja fé sínu í tómstunda- iðju. Ríkisstjómin kemur venjulega saman tvisvar í viku í hálfa klukku- stund í senn, en Gotoda sagði, að í næstu viku mundu Yasuhiro Naka- sone og 20 samráðherrar hans aðeins hittast einu sinni í viku. Sú skipan á að haldast út ágústmánuð. Bandaríkin: Hassan formælt Shíita-múslimar mótmæla fyrir utan sendiráð Marokkó í Vestur- Beirút, eftir að frést hafði um fund Hassans og Peresar í Mar- okkó. Ritstj óri frá Panama leitar pólitísks hælis Washington, AP. RITSTJÓRI og útgefandi óháða dagblaðsins La Prensa í Panama sagði á Bandaríkjaþingi í gær að hann hefði leitað hælis í Bandaríkjunum vegna þess að hann hefði komist að því að Pan- amastjóm hefði ætlað að láta „Walker njósnamálið“ Dæmdur í 35 ára fangelsi San Francisco, AP. JERRY Whitworth, fyrrum fjarskiptasérfræðingur í flota Banda- rikjamanna, á yfir höfði sér 35 ára fangelsisdóm fyrir njósnir í þágu Sovétmanna, að sögn ákæranda í máli hans. Whitworth er siðasti meðlimur Walker-njósnahringsins svonefnda sem dreginn er fyrir dóm. Yfirvöld í Bandaríkjunum telja Walker-málið hið alvarlegasta sinnar tegundar frá lokum síðari heimsstyijaldarinnar. John Leh- man, flotamálaráðherra, telur líklegt að Sovétmenn geti enn hler- að ýmis ijarskipti Bandaríkjaflota í krafti þeirra upplýsinga sem njósnahringurinn seldi þeim. Leh- man áætlar að það muni kosta um fjóra milljarða íslenskra króna að bæta skaðann. Héraðsdómstóllinn í San Franc- isco hefur fundið Whitworth sekan um njósnir og skattsvik en dómur hefur enn ekki verið kveðinn upp. Talið er að Walker-njósnahringur- inn hafi þegið rúma 12 milljarða króna frá Sovétmönnum í skiptum fyrir hernaðarleyndarmál. John Walker sagði fyrir réttinum að Whitworth hefði útvegað sér mjög mikilvæg skjöl varðandi fjar- skipti pg fleira á árunum 1976 til 1983. í október á síðasta ári játaði Walker að hafa njósnað fyrir Sov- íranar biðja SÞ um aðstoð Nicosia, AP. ÍRANAR hafa farið fram á að Sameinuðu þjóðirnar fjalli sér- staklega um loftárás íraka á írönsku borgina Sanandaj, en þar létu 20 óbreyttir borgarar lífið. í bréfi utanríkisráðherra írans Ali Akbar til framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna segir að íran- ar hafi hingað til virt samkomulag stríðsaðiljanna tveggja um að gera ekki árásir á skotmörk, þar sem hætta er á að óbreyttir borgarar láti lífið eða særist. írakar hafi ekki hlítt þessu samkomulagi, og því væri æskilegt að Sameinuðu þjóðimar hefðu afskipti af málinu. étríkin í 17 ár og mun hann hljóta lífstíðardóm. Bróðir hans, Arthur Walker, hefur þegar verið dæmdur í ævilangt fangelsi. myrða sig. Ritstjórinn, Roberto Eisenmann, bar vitni fyrir þingnefndum um utanríkismál og sagði að hótunin við líf sitt hefði verið þáttur í ráða- bruggi herstjómarinnar í Panama til að þagga niður í eina stóra óháða fjölmiðlinum í landinu. Hann kvað stjómina hafa hafið herferð sína gegn hinu sex ára gamla blaði 1981 og hefðu verið gerðar vopnaðar árásir á blaða- menn, fréttastjóra, dálkahöfunda og Ijósmyndara blaðsins. Þeim hefðu einnig borist hótanir og gerð- ar hefðu verið líkamsárásir á þá. „Herinn í Panama er orðinn ger- spilltur vegna þess að öll völd em í hans höndum," sagði Eisenmann. „Og herfylki em orðin að bófaflokk- um.“ Hann sagði að hann hefði verið sakaður um að bmgga launráð gegn stjóminni, landráð, svik og eiturlyíjasmygl. Eisenmann dvaldi eitt ár á styrk í Harvard við að nema blaðamennsku. Hann kom síðast til Panama í apríl, en hann sagði að blaðamenn La Prensa hefðu flett ofan af því að gera ætti við hann banatilræði, þegar hann ætlaði að snúa aftur heim í maí. Eisenmann hélt því ennfremur fram að F-8 herflokkurinn hefði myrt Hugo Spadafora, aðstoðar- heilbrigðismálaráðherra, eftir að hann sakaði leiðtoga Panama, Manuel A. Noriega hershöfðingja, um að vera konung eiturlyfjavið- skipta í Panama og löndunum í kring. Lík Spadaforas fannst lim- lest og höfðinu styttra skammt innan við landamæri Costa Rica að Panama. Brúðkaup Andrews og Söru: Kostnað- ur skatt- borgara um6,9 milljónir London, AP. KOSTNAÐUR skattborgara í Bretlandi vegna brúðkaups Andrew Bretaprins og Söru Ferguson nemur um 6,9 millj- ónum tslenskra króna. Þetta kom fram í skriflegri yfír- lýsingu Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta, í breska þinginu sl. fimmtudag. Um er að ræða kostnað vegna götuskreyt- inga, öryggisvörslu, bráðabirgða- salema fyrir mannfjöldann o.fl. Thatcher sagði að talan gæti hækkað eitthvað. Konungsfjöl- skyldan mun greiða hluta útgjald- anna m.a. fyrir prentun og blómaskreytingar í Westminster Abbey. ERLENT Noregur: Akveða heildarþorsk- kvóta fyrir Svalbarðamið Ósló. Frá fréttarítara Morgunblaðsins. SAMTÖK sjómanna og útgerðar- manna eru ánægð með ákvörðun norskra stjóravalda um heildar- kvóta fyrir þorskveiðar á miðunum í kringum Svalbarða. Norsk-sovéska fiskveiðinefndin hefur komið sér saman um heildar- kvóta fyrir veiðiskip þriðja aðila á þessu svæði, en ljóst var, að um ofveiði hefði orðið að ræða, ef ekki hefði komið til veiðitakmarkana. Umtalsverðar veiðar þriðja aðila á Svalbarðasvæðinu, einkum skipa frá Evrópubandalagslöndunum, hefur farið mjög fyrir bijóstið á norskum sjómönnum. (fljJPDND TYPAR nýlousnógömlumvondo TYPAR® jarövegsdúkur frá Du Pont er níösterkur jarðvegsdúkur ofinn úr polypropylene. Hann er léttur og mjög meðfærilegur. TYPAR® jarðvegsdúkur leysir alls konar jarðvatns- vandamál. TYPAR® er notaður í ríkum mæli í stærri verk- um svo sem í vegagerð, hafnargerð og stíflugerð. TYPAR® jarðvegsdúkur er ódýr lausn á jarðvatns- vandamálum við ræsalagnir við hús- byggingar, lóðaframkvæmdir, íþrótta- svæði o.s.frv. TYPAR® jarðvegsdúkur dregur úr kostnaði við jarð- vegsskipti og gerir þau jafnvel óþörf og stuðlar að því, að annars ónýtanlegan jarðveg megi nota. Dúkurinn kemur sér- staklega vel að notum í ódýrri vegagerð, hann dregur úr aurbleytu í vegum þar sem dúkurinn aðskilur malarburðarlagið og vatnsmettað moldar- eða leirbland- aðan jarðveg. Notkun dúksins dregur úr kostnaði við vegi, „sem ekkert mega kosta“, en leggja verður, svo sem að sveitabýlum, sumarbústöðum o.s.frv. TYPAR® er fáanlegur í mörgum gerðum, sem hver hentar til sinna ákveðnu nota. ® TYPAR skrásett vörumerki Du Pont Siðumúla32 Sími 38000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.