Morgunblaðið - 26.07.1986, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986
Útbreiðsla alnæmisveirunnar á íslandi
tekur sífellt á sig alþjóðlegri mynd:
Blóðþegi smitast
af veirunni eft-
ir skurðaðgerð
KOMIÐ hefur í ljós að einn íslendingur hefur smitast af alnæmis-
veirunni í gegnum blóð sem honum var gefið við skurðaðgerð hér
á landi. Maðurinn ber þess þó engin merki að vera með alnæmi eða
forstig þess. Blóðið sem hann fékk við aðgerðina kom úr Blóð-
bankanum og hafði verið gefið árið 1983 af manni úr áhættuhópi,
sem sýktur var af veirunni.
Eins og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu nýlega fannst í Blóðbankan-
um í vor rúmlega ársgamalt sýni,
sem kom jákvætt út úr mótefna-
mælingu alnæmisveirunnar. Við
athugun síðustu vikur hefur komið
á daginn að viðkomandi blóðgjafi
hafði gefið blóð tvisvar áður, árin
1983 og 1984. Talið er þó fullsann-
að að blóð úr manninum hafi
einungis verið notað einu sinni, eða
í umræddri skurðaðgerð.
í fréttatilkynningu frá Sam-
starfsnefnd Landspítala og Borg-
arspítala um vamir gegn alnæmi,
sem Qölmiðlum barst í gær, segir
meðal annars: „Dreifing alnæmis-
veirunnar með blóðgjöfum er vel
þekkt um allan heim. Sú sorgiega
staðrejmd, að íslendingur hafi nú
orðið fyrir smiti á þennan hátt,
minnir óþyrmilega á, að útbreiðsla
alnæmis hérlendis er ekkert frá-
brugðin því sem gerist annars
staðar á Vesturlöndum, og að smit
hefur verið hérlendis lengur en
Hefði þurft
lagabreytingu
- segir Sverrir Hermanns-
son menntamálaráðherra
„ÉG GAT ekki veitt Skotveiðifé-
lagi íslands þessi 10% af veiði-
kvótanum sem það fór fram á.
Til þess hefði þurft lagabreyt-
ingu, að mati lögfræðinga þeirra
sem ég hef borið þetta mál und-
ir,“ sagði Sverrir Hermannson
„Annars hef ég áhuga á því að
athuga margt betur sem þeir, Skot-
veiðifélagsmennimir, hafa lagt til,
til dæmis í sambandi við eignar-
og veiðiheimildir.
Um lagatillögur þær sem hrein-
dýranefndin, á vegum menntamála-
ráðuneytisins, lagði fram er ég ekki
tilbúinn til þess að taka afstöðu til.
Fyrst þarf ég að hitta og ráðfæra
mig við bændur og búalið fyrir
austan sem hafa hagsmuna þama
að gæta.“ Sjá nánar á bls. 29.
margan grunar, sennilega frá
1981.“
Sérfræðingar telja ókleift að
komast fyllilega hjá því að sýkt
blóð berist inn í blóðbanka, þrátt
fyrir að blóð sé nú almennt skimað
með tilliti til alnæmissýkingar.
Ástæðan er einkum sú að raunsókn-
araðferðin við að kanna alnæmis-
sýkingu blóðs felst í því að mæla
mótefni gegn veirunni. Það tekur
líkamann nokkum tíma að mynda
mótefni og því getur blóð verið sýkt
án þess að koma jákvætt út úr
mótefnamælingu, sé skammt liðið
frá smiti.
Af þessari ástæðu hafa læknar
víða um heim rætt nauðsyn þess
að draga úr því að sjúklingum sé
gefið blóð úr ókunnugum við skurð-
aðgerðir, og reyna þess í stað að
nýta blóð sjúklingsins. Tveir mögu-
leikar em til þess. Annar er sá að
sjúklingurinn safni upp blóðbirgð-
um í nokkra daga áður en hann
gengst undir aðgerð, og hefur sú
aferð verið notuð í nokkrum mæli
lengi, einkum af ótta við lifrar-
bólgusýkingu. Hin aðferðin er að
koma blóði sem blæðir úr sjúklingi
við aðgerð aftur í líkamann. Þessi
háttur hefur lengi verið hafður á í
Sovétríkjunum.
Hollendingar
halda forystunni
HOLLENDINGAR halda ennþá
forystu sinni á Evrópumóti yngri
spilara í brids, sem nú er að ljúka
í Budapest. Eftir 16 umferðir af
18 hefur hollenska sveitin fengið
303 stig. ísland er í 13. sæti með
219 stig.
íslenska sveitin vann sinn
stærsta sigur á mótinu til þessa í
15. umferð gegn Vestur-Þjóðverj-
um, 19-11. En í 16. umferð beið
ísland lægri hlut gegn Bretum,
8-22. Bretar eru mikið að sækja í
sig veðrið á mótinu, eru komnir í
3.-4. sæti ásamt ítölum með 284
stig. Frakkar skipa annað sætið
með 286 stig. Pólverjar eru §órðu
í röðinni, hafa 280 stig og Danir
eru komnir á fulla ferð eftir slaka
byijun, hafa 272 stig og eru í sjötta
sæti. Þeir hafa unnið hvem leikinn
á fætur öðrum i síðustu umferðum
og rótburstuðu meðal annars Norð-
menn og Svía.
Síðustu tvær umferðirnar verða
spilaðar í dag, en þá eiga íslending-
ar að keppa við Frakka og Svía.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Nýráðinn bæjarstjóri Selfoss, Karl Björnsson, á Svarfhólavelli.
Nýr bæjarstjóri á Self ossi:
Fyrsta embættísverkið þátttaka
í bæjarstjórnarmótinu
Sclfoasi
NYRAÐINN bæjarstjóri á Sel-
fossi, Karl Björnsson, mun
formlega hefja störf nk. mánu-
dag, 28. júlí.
Fyrsta opinbera athöfnin
sem hinn nýi bæjarstjóri tók
þátt í var Bæjarstjómarkeppn-
in í golfi fimmtudaginn 24. júll.
Þá hafði hann nýtekið við lykl-
um að skrifstofum bæjarins úr
hendi Helga Helgasonar bæjar-
ritara. Sig. Jóns.
Mikil óánægja er meðal lög*-
reglumanna með mörg atriði
— segir Sæmundur Guðmundsson lögregluvar ðstj óri í Kópavogi
AÐ ÖLLUM líkindum mun alls-
herjaratkvæðagreiðsla lögreglu-
manna um nýgerðan sérkjara-
samning fara fram í næstu viku.
Að sögn Sæmundar Guðmunds-
sonar stjórnarmanns í Landsam-
bandi lögreglumanna er stefnt
að því að dreifa atkvæðaseðlum
næstkomandi mánudag og miða
skilafrest við föstudag í sömu
Selur seldur sem refafóður
Stykkishólmi.
SELVEIÐAR hafa löngum verið
mikill þáttur í eyjabúskap við
Breiðafjörð enda sérstök hlunn-
indi að eiga selalátur eins og
það var kallað. Skinnið var verð-
mætt og verkað af fagmönnum
þeirrar tíðar.
Eyjamar hafa síðustu árín farið
í eyði hver af annari og selnum
hefur Qölgað. Skinnin hafa verið
verðlítil svo að það tekur þvf ekki,
að bestu manna yfirsýn, að verka
þau. Kjötið, sem áður var nýtt til
manneldis, hefur í seinni tíð verið
sjaldgæfara með hverju árínu á
matborðum og f búðum verður
maður lítið var við það þó að sel-
kjöt þyki dýrindisfæða og holl.
Sellýsi var einnig mikið notað.
Undanfarið hefur mikið verið
rætt um selinn og honum talið
ýmislegt til foráttu. Ormur í fiski
veldur mörgum áhyggjum. Talið
er að seiurinn sé þar sökudólgurinn
og telja menn að fækka þurfi sel
svo hægt verði að veiða ormalaus-
an fisk. Þá er það ekki lítið sem
selurinn þarf sér til viðurværis og
kemur það einnig niður á fiskinum.
Hann þykir því enginn aufúsugest-
ur í net. Núorðið er hins vegar
farið að nota sellgöt í refafóður
og við það hefur selveiði aukist.
Árni
Morgunblaðið/Ámi.
Föngulegir selir á bryggjunni í Stykkishólmi sem fara áttu
í refafóður
viku. Talning fer þó ekki fram
fyrr en síðari hluta þarnæstu
viku, þegar fullvíst má telja að
aUir seðlar séu komnir til skila.
Þessa dagana standa yfir fundir
víða um land um sérkjarasamning
lögreglumanna. Einar Bjamason
formaður landsambandsins og fleiri
í viðræðunefninni sem stóðu að
samningunum, hafa lagt land undir
fót í því skyni að kynna samninginn
lögreglumönnum á landsbyggðinni.
Ennfremur eru tíðir og fjölsóttir
fundir á vegum lögreglufélaganna.
Að sögn Sæmundar Guðmunds-
sonar eru skoðanir manna skiptar
um samninginn og margir mjög
óánægðir með hann. Sæmundur
sagði að það væri margt semm
menn hefðu út á samninginn að
setja. Nefndi hann meðal annars
afsal verkfallsréttarins, en einnig
og ekki síður afnám hálftímagreiðsl-
unnar svokölluðu. Hingað til hafa
lögreglumenn fengið hálfa klukku-
stund greidda aukalega í ferða-
kostnað ■ ef þeir vinna yfirvinnu. í
samningnum er gert ráð fyrir að
þessi greiðsla lækki í sem svarar
stundaifyórðungsgreiðslu. Að sögn
Sæmundar eru lögreglumenn sem
vinna mikla yfirvinnu óánægðir með
þessa breytingu, þar sem þeir telja
sig missa af umtalsverðum tekjum.
Þá sagði Sæmundur að ýmsir
eldri lögreglumenn söknuðu þess að
ekkert hefði miðað í því baráttu-
máli lögreglumanna að lækka eftir-
launaaldurinn. Að sögn hans höfðu
ýmsir bundið vonir við að einhver
áfangi næðist í því máli nú, en á
þetta mál er ekki minnst f samn-
ingnum. Loks sagði Sæmundur að
í ljós væri að koma að hin beina
launahækkun sem lögreglumenn fá
samkvæmt samningnum væri í
rauninni ekki nægilega mikil, ef
haft væri í huga þær hækkanir sem
ýmsar aðrar stéttir þjóðfélagsins
hefðu náð fram undanfarið: „Hækk-
unin átti að vera lagfæring á kjörum
okkar með tilliti til þess hversu mik-
ið við höfum dregist aftur úr, en í
raun eru aðrar stéttir að fá svipaður
hækkanir," sagði Sæmundur Guð-
mundsson.
Sundlaug
Vesturbæj-
ar lokuð
um tíma
SUNDLAUG Vesturbæjar verð-
ur lokuð frá og með mánudegin-
um 28. júlí. Lokunin er vegna
viðgerða og endurbóta á sund-
lauginni, en gert er ráð fyrir að
hægt verði að opna aftur eftir
2—3 vikur.