Morgunblaðið - 26.07.1986, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986
5
Vegagerðin fjarlægir skilti fyrir
ferðamenn við Hvammstanga:
Kæra sveitarsljór-
ans send Vegagerð
til umsagnar
VEGAGERÐIN hefur fjarlægt
skilti sem sveitastjórnin á
Hvammstanga hafði komið fyrir
við þjóðveginn í grennd við
bæinn. Þau gáfu til kynna með
alþjóðlegum táknum að tjald-
stæði, sundlaug og matsala væru
á næsta leiti. „Ég héit að mark-
mið Vegagerðarinnar væri að
þjónusta þá sem ferðast á þjóð-
vegunum. Okkur gekk ekki
annað til en að vísa mönnum á
ferðamannaþjónustu hér í bæn-
um,“ sagði Þórður Skúlason,
sveitarstjóri á Hvammstanga.
Málið var umsvifalaust kært til
sýslumannsins á Blönduósi að sögn
Þórðar. „Við gerum athugasemd
við að skiltin séu fjarlægð, og jafn-
framt að reglur kveði á um að
lögreglan megi ein framkvæma
slíkt eignamám. Krefjumst við
þess að skiltin verði sett upp aft-
ur. Nýlega var mér síðan tilkynnt
að sýslumaður hefði sent Vega-
gerðinni kæruna til umsagnar. Þó
ég sé ekki löglærður fæ ég ekki
skilið hvers vegna sakbomingur
fær kæm á sig til umsagnar."
Þórður sagði að íbúar á
Hvammstanga hefðu gert átak til
að bæta aðstöðu ferðamanna á
staðnum. í vor var tekið í notkun
þar hótel, með gistingu og veit-
ingastað. Tjaldstæði var einnig
útbúið og komið þar fýrir snyrtiað-
stöðu. Þá hefur sundlaugin verið
endurbætt. „Við hefðum gjaman
viljað veita vegfarendum upplýs-
ingar. Mér fínnst það skrýtið að
ekki megi auglýsa tjaldstæði og
annað við þjóðvegina. Mér skildist
á þeim mönnum hjá Vegagerðinni
sem tóku skiltin niður að einu
merkingarnar sem þeir leyfðu
væm um sundlaugar, en það merki
var einnig fjarlægt."
Morgunblaðið reyndi árangurs-
laust að ná tali af forsvarsmönnum
Vegagerðarinnar á Sauðárkróki í
gær.
Skiltið umdeilda við Hvammstanga.
Morgunblaðið/Danfel Karlsson.
L.
Guðmundur bæjarstjóri bregður fánanum á loft og bUarnir leggja af stað.
Morgunblaðið/Einar Falur.
i-::: .y,., ■ '
Allir komu i mark en sunur voru örlítið seinni en aðrir.
Kassabílarall í Firðinum
HIÐ árlega kassabílarall hafn-
firskra barna var haldið
siðdegis í gær í bezta veðri.
Guðmundur Ámi Stefánsson
bæjarstjóri ræsti bílana á Linn-
etsstíg með þar til gerðum fána.
Gengi ökuþóranna var misjafnt
í keppninni. Sumir óku rakleitt í
markið en kðrir misstu fljótlega
stjórn á fararskjótum sínum og
óku beint í áhorfendaskarann.
Enginn meiddist sem betur fer.
Mikið fjölmenni fylgdist með
keppninni.
Daihatsuumboðið s. 685870 — 681733