Morgunblaðið - 26.07.1986, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986
11
Hreyfanleg
sviðsmynd
________Leiklist
Jóhanna Kristjónsdóttir
Stúdentaleikhúsið sýnir í Fé-
lagsstofnun stúdenta
De konuner med kista og hent-
er meg! eftir Magnús Pálsson.
Leikmynd og búningar: Krist-
inn Harðarson.
Lýsing: Hringur Hafsteinsson.
Sýningarstjóri: Tindur Haf-
stcinsson.
Hvíslarar: Þóra lngimarsdóttir
og Svanhildur Óskarsdóttir.
Leikstjóri: Magnús Pálsson.
A tama kyndugt verk á ferð-
inni. Hópi persóna er stillt upp á
sviðið í einkar tilþrifamiklum bún-
ingum og gervum og síðan er
mælt á eins konar skandinavisku
framan af, stundum ensku og
dulítið á íslenzku. Samhengi fæst
ekki f textann, enda er það greini-
lega ekki ætlunin, því að hver
talar ofan í annan, allir saman
eða í kross. Auk þess er „rödd
Hamsuns" á seguibandi stöku
sinnum og skilst heldur ekki orð
af því. Stúlkan sem gengur um
salinn og mælir á íslenzku flytur
samhengislausan texta að mestu;
þó má draga þá ályktun af tali
hennar að hún eigi við hjóna-
bandsörðugleika að stríða.
Magnús Pálsson er þekktari
sem myndlistarmaður en texta-
höfundur og annað virðist vaka
fyrir honum en skapa merkilegan
ódauðlegan texta. Honum er
raunar í mun að textinn sé sem
allra mest rugl og hvergi fáist
botn í nokkum skapaðan hlut.
Þetta er því mjög fjarri því að
vera leiksýning, uppákoma er nær
sanni, eins konar hreyfanleg
sviðsmjmd. í sjálfu sér ekki frá-
leit hugmynd og hefðu leikaramir
ívið meiri tök á framsögninni, svo
að hið óskiljanlega verði dálítið
áheyrilegra (!) væri það til bóta.
bandsleysi og þýðingarleysi orða.
Það er allt mögulegt til í dæminu.
En hvað sem því líðun þetta gæti
líka verið tilraun til að skemmta
sér.
Það skal tekið fram að þetta
er skrifað eftir aðra sýningu.
Úr sýningu Stúdentaleikhússins
Tveir leikarar vom í þakklátum
„hlutverkum", þau Áslaug
Thorlacius og Jón Stefán Krist-
jánsson, og skiluðu þeim skemmti-
lega. Allir leikaramir virtust
skemmta sér prýðilega. Margir
áhorfenda gerðu það líka.
Búningar Kristins G. Harðar-
sonar og umbúnaður uppákomu
þessarar vora skemmtilegir og
báru vott um fjöragt ímyndunar-
afl. Tilgangurinn? Það mætti
sjálfsagt velta vöngum yfir hon-
um. Koma með kenningar um að
hér sé á ferðinni tilraun með að
færa mjmdlistina og leiklistina
hvora nær annarri. Eða að hér
sé ádeila á merkingarleysi, sam-
Bræðumir allir samankomnir í Skálmöld.
betra að gera. Þeir lifa tómlegu lífi
og það er eymdarlegur tónn í öðram
Miller-bróðurnum þegar hann segir:
„Við höldum bara áfram þangað til
við náumst og verðum hengdir."
Bræðumir standa sig alíír vel í
hlutverkum sínum. Ef eitthvað er
era þeir helst til indælir og elskuleg-
ir bófar. I þeirra augum er banka-
rán, sem þeir fremja auðvitað
aðeins í Norðurríkjunum, eðlilegasti
hluti í heimi. Þeir era ennþá í stríði.
Walter Hill er fantagóður þegar
kemur að því að leikstýra hasarat-
riðum og hann beitir af mikilli snilld
þeirri mjög svo ofnotuðu aðferð að
sýna þau hægt. í myndinni era at-
riði sem ekki eru við hæfí bama.
Bræður leika bræður í
vestra um Jesse James
SJónvarp
Amaldur Indriðason
Skálmöld (The Long Riders).
Sýnd í sjónvarpinu laugardaginn
26. júlí.
Stjörnugjöf ★ ★ ‘A
Leikstjóri: Walter HiU.
Handrit: Bill Bryden, Steven
Phillip Smith, Stacy Keach og
James Keach.
Kvikmyndataka: Ric Waite.
Tónlist: Ry Cooder.
Helstu hlutverk: James og Stacy
Keach, David, Keith og Robert
Carradine og Dennis og Randy
Quaid.
Þýðandi: Björn Baldursson. 105
mín. Bandarísk.
Vestrinn hefur ekki átt upp á
pallborðið hjá kvikmyndagerðar-
mönnum eða kvikmyndahúsagest-
um í lengri tíma. Einstaka
ofurhugar hafa reynt að vekja
áhuga fólks á honum aftur (Sil-
verado, Pale Rider) en því hefur
ekkert verið fylgt eftir þótt nefndar
myndir hafí orðið vinsælar. Svo
virðist sem hetjur vestursins eigi
sér ekki viðreisnar von. Hertoginn
er allur og Rambó er tekinn við og
mundu sumir segja að það væra
slæm bítti.
Einn af örfáum vestram, sem
gerður hefur verið undanfarin ár,
er Skálmöld (The Long Riders) en
hann verður á dagskrá sjónvarpsins
í kvöld. Leikstjóri er Walter Hill (48
hrs.) og hann víkur í fáu frá gömlu,
góðu vestrunum frá því hér áður
fyrr nema hvað blóðbaðið er stund-
um talsvert og sýnt hægt og ítar-
lega með stæl.
Myndin segir sögu einhverra
frægustu útlaga villta vestursins,
Jesse James og bófagengis hans.
Gengið samanstendur af James-,
Younger- og Miller-bræðram en það
sem er hvað sérkennilegast við
Skálmöld er bræðrahópurinn sem
Hill sankaði að sér til að fara með
hlutverkin í myndinni. Stacy og
James Keach leika James-bræður,
Carradine-bræðumir David, Keith
og Robert leika Younger-bræðurna
og Dennis og Randy Quaid leika
Miller-bræður.
Myndin hefst skömmu eftir borg-
arastríð. Jesse og hans menn era
frá Suðurríkjunum, ræna banka,
lestir og póstvagna og halda svo
heim í faðm kvenna sinna því flest-
ir era þeir ósköp venjulegir fjöl-
skyldumenn. Þeir hata Norðurríkja-
menn, verandi fyrram hermenn, en
þeim hefur ekki tekist að laga sig
að friðartímum. Þeir hafa engin
markmið í lífinu önnur en að ræna
og rapla eins mikið og þeir geta
bara af því að þeir hafa ekkert
Auglýsingar
22480
Afgreiðsla
83033
FflSTEIGnASMA
UITAITIG 15,
196090,96065.
Opið í dag 1-3
ENGJASEL. 2ja herb. íb. 55 fm.
Þvottah. á hæðinni. Verð 1650
þús.
LANGHOLTSVEGUR. 2ja herb.
íb. 45 fm. Laus. Verð 950 þús.
GAUKSHÓLAR. 2ja herb. íb. 60
fm. Þvottah. á hæðinni. Verð
1,7 millj.
KRUMMAHÓLAR. 2ja herb. íb.
55 fm á 5. hæð. Frábært út-
sýni. Nýstandsett. Verð 1,7
millj.
KRÍUHÓLAR. 2ja herb. íb. 65
fm. Verð 1650-1700 þús.
SKEGGJAGATA. 2ja herb. íb.
55 fm. Verð 1650 þús.
LAUGARNESVEGUR. Ein-
staklíb. Verð 850 þús.
HVERFISGATA. 3ja herb. 65 fm
góð íb. Verð 1,6 millj.
ASPARFELL. 3ja herb. íb. 90
fm. S-svalir. Verð 2,1 millj.
KÁRSNESBRAUT. 3ja herb. íb.
80 fm. Sérinng. Verð 2,1 millj.
VANTAR - VANTAR. Vantar
3ja herb. íb. fyrir góðan kaup-
anda í Ofanleiti, Miðleiti eða
Fossvogi. Góðar greiðslur fyrir
rétta eign.
Skoðum og verðmetum
samdægurs
Bergur Oliversson hdl.,
Gunnar Gunnarsson,
HEIMASÍMI: 77410.
SIMAR 21150-21370
SOLUSTJ LARUS Þ VALOIMARS,
LOGM JOH ÞORÐARSON HDL
Til sýnis og sölu auk fjölda annarra eigna:
Við Funafold á úrvalsstað
Glœsilegt raðhús í smíðum á „einni og hálfri" hæð. 4 rúmgóð svefn-
herb. Innanveggjamál íb. um 170 fm. Bflskúr fyrir tvo bíla. Sólsvalir
um 12 m langar. Allur frágangur utanhúss fylgir. Fokheld að innan.
Húni sf. byggir. Auðveld kaup t.d. fyrir þann sem á skuldiitla 4ra-5
herb. íb.
Raðhús við Ásgarð
Steinhús. Tvær hæðir með 4ra herb. íb. um 96 fm. í kjallara er þvhús
og geymsla. Skipti æsklleg á góðri þriggja herb. íb.
Nokkrar ódýrar íbúðir
í borginni og Hafnarfirði. Útborgun frá kr. 700 þús.
Helst í borginni
óskast til kaups einbhús eða gott raðhús. Skipti möguleg á úrvalsíb.
með sérinng. og sérþvhúsi. á 2. hæð á einum vinsælasta stað Vestur-
borgarinnar.
Helst í nágrenni Menntaskóaians
við Sund. Óskast til kaups 3ja herb. íb. Góð íb. í risi kemur til greina.
Árbæjarhverfi — Ártúnsholt — Selás
Einbhús eða raðhús af meðalstærö óskast til kaups. T.d. við Melbæ
eða Hraunbæ. Skipti möguleg á 5 herb. mjög góðri íb. við Hraunbæ.
Viðskiptin á árinu 1986
Úr meðaltali seldra eigna það sem af er árinu:
Útborgun 94,2% af nafnverði eða 76,2% af raunvirði.
Á fyrstu 30 dögum samningstímans greiddu kaupendur í peningum
36,5% af nafnverði eða 27,8% af raunvirði.
Afhending var að meðaltali 80 dögum eftir undirr. kaupsamn.
Útborgun greidd að meðaltali á 345 dögum alls.
Hlutfall raunvirðis miðað við fasteignamat var að meðaltali 115.7%.
Hlutfall raunviröis af brunabótamati var aö meðaltali 80,4%.
Miðað er við hækkun lánskjaravísitölu 15% á ári og vexti 5% af verð-
tryggðum skuldum.
Óvenjumargir
fjársterkir kaupendur hafa leitað til okkar um útvegun á húsnæði sem
þarf að losna í sumar eöa haust. Miklar útborganlr fyrir réttar eign-
ir. Ýmiss konar elgnaskipti möguleg.
Viðskiptum hjá okkur fylgja ALMENNA
raðgjof og traustar upplýsingar. -----------------
Opiðídaglaugardag kl. 11-15. F A ST E I
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
GNASALAN