Morgunblaðið - 26.07.1986, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986
15
Strindberg
í Hlaðvarp-
anum
„Hin sterkari“ eftir August
Strindberg er sýnd á vegum Al-
þýðuleikhússins í myndlistarsal
Hlaðvarpans þessa dagana. Upp-
selt var á fyrstu tvær sýningarn-
ar en þriðja og fjórða sýning
verða nú uni helgina; iaugardag
og sunnudag kl. 16.00.
Leikendur eru þær Margrét Áka-
dóttir , Anna Sigríður Einarsdóttir
og Elfa Gísladóttir, en leikstjóri er
Inga Bjamason.
Sýningin hefst með tónleikum
þar sem ungir hjóðfæraleikarar
koma frarn og á fyrstu tveim sýn-
ingunum lék Kolbeinn Bjamason
flautuleikari verk eftir C.P.E. Bach
og Leif Þórarinsson. Þessa helgi
mun ungur gítarleikari, Kristinn
Amason, sem getið hefur sér gott
orð erlendis, leika verk eftir J.S.
Bach, spánska gítarmeistarann Lu-
is Milan og Hans Wemer Henze.
Á undan og eftir sýningum verð-
ur borið fram kaffi og kökur og er
það innifalið í miðaverðinu. „Hin
sterkari“ verður sýnd þrisvar í viku
í sumar, á fimmtudagskvöldum,
laugardögum og sunnudögum.
(-f réttatilkynning)
Nýlist í Nor-
ræna húsinu
NÝLISTASAFNH) sýnir kvik-
myndina „The World of Gilbert
& Georg“ í fundarsal Norræna
hússins í Reykjavík kl. 21 á
mánudagskvöld 28. júlí.
í myndinni birtast brot úr verkum
þessara tveggja listamanna sem
hafa unnið saman í hartnær tvo
áratugi. í fréttatilkynningu frá að-
standendum sýningarinnar segir að
verk þeirra hafí verið sýnd á flestum
stærri alþjóðlegum sýningum
síðustu ára og hafí þau jaftian vak-
ið mikla athygli. Verkin séu í vissum
skilningi afar bresk, þau feli í sér
háð og aðdáun á breskum þjóðar-
einkennum, en þau séu fyrst og
fremst afar ljóðræn.
Draumarúlla
3 egg
U/2 dl sykur
5 matsk. kartöflumjöl
1 matsk. kakó
1 tsk. lyftiduft
Deigið sett í form eða á smjör-
pappír á plötu, bakað í 6—8 mín.
við 250°C og hvolft á sykri
stráðan pappír.
Kremið
150 g smjör
4 matsk. flórsykur
2 eggjarauður
1 tsk. vanillusykur
Smjör og sykur þeytt vel sam-
an, eggjarauðum bætt í ásamt
vanillusykri. Kreminu smurt á
kökuna og hún rúlluð saman.
Kökuna má setja í frysti.
Rúlluterta með sultu
3 egg
IV2 dl sykur
2 dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
Egg og sykur þeytt vel saman,
þurrefnum blandað saman við,
deigið sett í smurt form eða á
smjörpappír á plötu, bakað í 6—8
mín. við 250°C. Kökunni hvolft
á sykri stráðan pappír, sultu
smurt á og kökunni rúllað sam-
an.
Margrét Árnadóttir og Anna Sigríður Einarsdóttir.
Bandarískar skop-
myndir á sýningn
SKOPMYNDIR úr bandaríska
tímaritinu „The New Yorker
Magazine“ eru tU sýnis mánu-
daga tU föstudaga kl. 8.30 tU
17.30 i sýningarsal Menningar-
stofnunar Bandaríkjanna á
Neshaga 16.
Þetta er í fyrsta skipti sem frum-
myndir úr einkasafni Bandaríkja-
mannsins Jimmy Heinemans eru
sýndar utan Bandaríkjanna. Mynd-
imar era eftir 23 teiknara, sem
hafa teiknað í tímaritið, frá því að
það kom fyrst út 1925.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Það var mikið um dýrðir í gærkvöldi þegar
EVRÓPA opnaði.
Við þökkum þeim fjölmörgu sem iögðu
leið sína í Borgartúnið og fögnuðu opnun-
inni með okkur. í kvöld skemmtir hoil-
enska tríóið Sensation, sem tróð í fyrsta
skipti upp hér á landi í gærkvöldi. Strák-
arnir í Rikshaw verða aftur á svæðinu og
halda áfram þar sem frá var horfið í gær.
Milli kl. 22.00 og 23.00 sýnum við splunku-
nýjan „Chart attack", top 30 úr Music Box
á videoskjánum. Sem sagt: annar í opnun
í EVRÓPU í kvöld og þú ættir ekki að láta
þig vanta.