Morgunblaðið - 26.07.1986, Síða 18

Morgunblaðið - 26.07.1986, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986 „Nýja byg-gingin jafn glæsileg og sú gamla var fyrir 25 árum“ — segir Konráð Guðmundsson, hótel- stjóri á Hótel Sögu Einn af hinum nýju fundarsölum hótelsins. Morífunblaðið/Árni Sæberg „NYJA byggingin er jafn glæsileg' nú og gamla byggingin var fyrir 25 árum þegar opnað var fyrst,“ sagði Konráð Guðmundsson, hótel- stjóri Hótels Sögu i Reykjavík, í samtali við Morgunblaðið. Á næsta ári verða 25 ár síðan Hótel Saga hóf starfsemi sína og að undan- förnu hefur verið byggt við hótelið og það stækkað um heiming. Hluti nýbyggingarinnar hefur verið tekinn í notkun, en áætlað er að framkvæmdum Ijúki í mars á næsta ári. Nýbyggingin verður alls 9.500 fermetrar á sjö hæðum og hótelið þá samtals um 19.000 fermetrar að stærð. Herbergi verða 219 alls — 106 í gömlu byggingunni og 113 í þeirri nýju. Lokið er við innréttingu fimm hæða nýju álmunnar og búið að taka 56 herbergi í notkun þar auk fundar- og ráðstefnuaðstöðu á annarri hæð hússins. Þar er einnig matsalur, sem notaður er nú undir morgunverð í stað Grillsins áður. Þá hefur gestamóttöku á fýrstu hæð hótelsins verið breytt og verið er að innrétta 300 fermetra garðskála þar í tengibyggingu auk bars og aðstöðu fyrir léttar veitingar. Nýlega var gerður samningur við Helga Gísla- son, myndhöggvara, um gerð lista- verks þar. Auk þess hafa verið keypt listaverk eftir ýmsa íslenska lista- menn og verða t.d. grafíkmyndir á öllum herbergjum. Reiknað er með að nýbygging Hótels Sögu muni kosta alls um 600 milljónir króna þegar henni verður fulllokið. Búnaðarfélag íslands og Stéttarsamband bænda eiga hótelið en ekkert fé hefur komið frá bænd- um í nýbygginguna umfram arð af þeirri gömlu, að sögn Konráðs. Framkvæmdimar eru íjármagnaðar með innlendum og erlendum lánum og eigin fé. Erlendu lánin eru í doll- urum, jenum og svissneskum 'frönk- um. Konráð sagði að þar sem töluverður hluti af tekjum hótelsins væri í dollurum, minnkaði áhætta dollaralánsins til muna. En verra væri það með jenin þessa dagana. 300 fm garðskáli og hver hæð í sínum lit „Garðskálinn kemur til með að verða mjög bjartur og huggulegur. Ég er búinn að kaupa blóm fyrir 400.000 krónur, létt húsgögn og marmara- borð, en gólfið er einmitt lagt marmara og gert er ráð fyrir gos- brunnum þama líka,“ sagði Konráð. I norðurhluta fyrstu hæðarinnar hefur verið komið fyrir anddyri og þar fyrir innan er minjagripa- og ullarvöruverslun, banki og ferða- skrifstofa. Á 4., 5. og 6. hæð í tengibyggingunni er gert ráð fyrir þremur svítum og á hverri hæð í tengibyggingunni verða setustofur. Hver hæð hefur sinn sérstaka lit, sem undirstrika á sama tón á göngum, í gólfteppum, húsgögnum og gluggatjöldum. T.d. er 4. hæðin búin bláum lit, 5. hæðin rauðum, 6. hæðin verður búin grænum lit og 7. hæðin ryðrauðum lit. Konráð sagði að við skipulagningu herbergja hefði verið lögð áhersla á rúmgóð, vel búin herbergi og vand- aðar innréttingar. Öll herbergin í nýju álmunni verða búin snyrtiher- bergjum lögðum marmara í hólf og gólf, baðkari, sjálfvirkum hitastilli, hitarörum fyrir handklæði og hár- þurrkum. Þá verða í hveiju herbergi beinn sími, útvarp, sjónvarp, ísskáp- ur og fatapressa. Á hverju kvöldi verða sýndar kvikmyndir um mynd- bandakerfi hússins og nokkur nýju herbergjanna verða búin gufubaði. Sérstök áhersla er lögð á herbergi sem henta mönnum í viðskiptaerind- um og þjónustu við þá því hægt er að leigja tvö samliggjandi herbergi þar sem opna má í milli. Annsið má nota sem svefnherbergi, en hitt sem skrifstofu og til smásýninga og funda. Þurfi menn að halda fjöl- mennari fundi, eru fundarsalir af ýmsum stærðum til reiðu. Hótelið lætur í té margs konar skrifstofu- þjónustu, ritvél og aðstoð við vélritun og þýðingar, telex- og telefaxþjón- ustu. Jafnframt þessu verða sérstök herbergi sem leigð eru sem skrifstof- ur að degi til. Hótel Saga býður einnig upp á samtengd herbergi, sem henta fjölskyldum, annað fyrir böm- in og hitt fyrir hjónin. Hreyfihamlað fólk á kost á herbergjum, sem eru sérstaklega hönnuð með tilliti til þarfa þess. Aukin aðstaða til fundahalda Stækkun hótelsins er m.a. við það miðuð að gera hótelið að vel búnu ráðstefnuhóteli. Ráðstefnusalir geta rúmað allt að 300 ráðstefnugesti. Gestamóttakan hefur verið fær< og henni breytt til muna og þar inn af er nú verið að innrétta 300 fermetra garðskála þar sen verða á boðstólum léttar veitinj Hótelið lítur svona út.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.