Morgunblaðið - 26.07.1986, Blaðsíða 19
h r
19
;iwr nm »<• ímr>Afifl.'nnA t nia/ rwiTOJinM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986
Baðherbergi eru klædd marmara í hólf og gólf. Á öllum snyrtingum
er hárþurrka og hitarör fyrir handklæði.
Konráð Guðmundsson hótelstjóri á Hótel Sögu. Morgunblaðið/Bjarni
Skeljavík, samkomustaðurinn við Hólmavík. Undirbúningur er í full-
um gangi.
Hólmavik:
Bítlavina-
félagið á
Skeljavík-
urhátíð
Hólmavík.
Um verslunarmannahelgina
1.—4. ágúst verður haldin stór
og mikil útisamkoma í Skeljavík
við Hólmavík. Fréttaritari ræddi
við einn af aðalhvatamönnum
Skeljavíkurhátíðar, Magnús
Magnússon oddvita Hólmavíkur-
hrepps. Hann sagði að byrjað
hefði verið á framkvæmdum á
hátiðarsvæðinu um miðjan júní
og hefðu mjög margar dagstund-
ir farið í vinnu. Þeir sem þar
ynnu allt í sjálfboðavinnu væru
félagar úr hinum ýmsu félögum
á Hólmavík. Hagnaður yrði síðar
notaður til framkvæmda við fé-
lagsheimilisbyggingu.
Magnús gat þess að stefnt yrði
að stöðugri skemmtan alla daga
Skeljavíkurhátíðar. Þá skemmti-
krafta sem fyrsta bæri að telja
væri Bítlavinafélagið. Þeir væru
tvímælalaust ein af vinsælustu
hljómsveitum landsins, enda mjög
hressir skemmtikraftar og að auki
er lag frá þeim í fyrsta sæti vin-
sældalista rásar 2, sagði Magnús.
Einnig væri þetta einstakt tækifæri
til að hlusta á Bítlavinafélagið, því
það ætlaði að hætta að spila í
haust. Hljómsveitin „Sko“, vinsæl
hljómsveit á Vestfjörðum, spilar
jafnframt á hátíðinni. „Aðrir
skemmtikraftar eru ekki af verri
endanum, sagði Magnús. „Gunnar
Þórðarson skemmtir. Ómar Ragn-
arsson kemur fljúgandi að sunnan
og skemmtir einn daginn. Bjössi
bolla mun síðan koma og skemmta
smáfólkinu. Leikhópurinn Veit
mamma hvað ég vil?.mun vera með
uppákomur á hátíðinni."
Margt fleira verður gert. Kveikt
verður á varðeldi. Leikir verða alla
dagana og stöðugt logar í stóru
grilli. Hestaleiga verður og báta-
ferðir.
Magnús gat þess að stefnt yrði
að því að fá um 4.000 til 5.000
manns á hátíðina. Aðstaða væri
mjög góð til að tjalda og yrðu tjald-
staeðin afmörkuð þannig að allir
gætu tjaldað á sama stað með
sínum jafnöldrum.
„Hví ekki að breyta til og fara á
nýjan stað um verslunarmanna-
helgina og sjá stórbrotna fegurð
Strandasýslu. Skeljavíkurhátíð er
hátíð fyrir alla,“ sagði Magnús
Magnússon að lokum.
Baldur Rafn
Alls eru fundarsalimir fjórir, en
hægt er að skipta þeim upp í sjö
sali. Þeir eru með nýtískubúnaði til
ráðstefnuhalds og í tengslum við þá
eru sérstök tækniherbergi auk skrif-
stofu. Auk þess er hægt að setja
upp 16 mm kvikmyndasýningarvél,
skuggamyndavélar, sýningartjöld og
flettitöflur í hvaða sal hótelsins sem
er. Sama máli gegnir um túlkunar-
kerfí og hvers kyns ráðstefnuþjón-
ustu aðra sem óskað er eftir. Eftir
stækkunina getur hótelið tekið allt
upp í 380 manns í gistingu, 550
manna veislur og 950 manna mót-
tökur.
Konráð sagði að síðan ráðstefnu-
salirnir hefðu verið teknir í notkun
í maí sl. hefðu 16 ráðstefnur verið
haldnar og lofaði það góðu um fram-
haldið. „Lítið hefur verið um ráð-
stefnur í júlí eins og alltaf en töluvert
hefur verið bókað í ágúst og septem-
ber. Síðan gerum við ekki ráð fyrir
að hrotan bytji fyrir alvöru fyrr en
í febrúar í funda- og ráðstefnuhöld-
um.“
Á annað hundrað millj-
ónir í gjaldeyri
Miðað við verðlag í dag er gert
ráð fyrir að hótelið muni skila á
annað hundrað milljónum króna í
gjaldeyri á ári hveiju eftir að fram-
kvæmdum er lokið, en nú skilar það
60-65 milljónum. „Tímabilið maí til
september 1986 stefnir í 85% nýt-
ingu og er það sú allra besta nýting
sem við höfum náð til þessa. Aftur
á móti eftir að þau 57 herbergi verða
komin í gagnið á næsta ári, sem nú
er unnið við, teljum við okkur ekki
geta náð svo góðri nýtingu nema
yfír sumarmánuðina. Við þurfum að
ná 50-55% ársnýtingu til að geta
staðið í skilum við lánardrottna okk-
ar, en til að skila arði viljum við ná
a.m.k. 70% ársnýtingu og reiknum
með að það takmark náist innan
þriggja ára því stækkun hótelsins
er meiri en ferðamannaspár gefa til
kynna næstu þijú árin. Því viljum
við leggja rækt við ráðstefnuhaldið
til að bæta nýtinguna yfir vetrar-
mánuðina. Á grundvelli afar já-
kvæðra umsagna erlendra ráð-
stefnugesta okkar nú í sumar, held
ég að við höfum náð þeim árangri
sem til var stofnað.“
Hótelmarkaður á höfuð-
borgarsvæðinu mettur
Konráð sagðist álíta að hótel-
markaður á höfuðborgarsvæðinu
væri orðinn mettur með þessari ný-
byggingu Hótels Sögu nú, en hlúa
þyrfti að hótelþjónustu úti á lands-
byggðinni. „Ég tel að a.m.k. á næstu
þremur árum megi hótelrekstur í
Reykjavík ekki við fleiri hótelum.
Þau myndu aðeins hafa í för með
sér niðurboð á þjónustu gagnvart
erlendum ferðamönnum eins og
gerðist fyrir nokkrum árum og þá
ekki að vænta að hótelin geti sýnt
arðbæran rekstur utan
háannatímans. Vetrarverðið verður
að hækka meira og teljum við það
mögulegt með þessari góðu þjónustu
sem við höfum skapað hér. Árlega
hefur þjónusta hér lækkað um 40-
45% 1. október, en við megum eng-
an veginn við því að lækka verðið
svona mikið."
Embættismenn beiti sér fyr-
ir ráðstefnuhaldi hér á landi
Konráð sagði að sérstök áhersla
yrði lögð á næstunni á sölu- og
markaðsmál. „Verið er að athuga
hvort ekki sé hægt að bjóða upp á
sérstök vildarkjör fyrri hluta vikunn-
ar, t.d. frá mánudegi til fimmtudags,
í staðinn fyrir að geta ekki annað
eftirspurn um helgar. Síðan yrði það
mjög æskilegt að þeir opinberu full-
trúar okkar, sem sæti eiga í hinum
ýmsu alþjóðlegu ráðum og nefndum,
myndu beita sér fyrir þv{ að fá ráð-
stefnur og fundi hingað til lands í
meira mæli en gert hefur verið til
þessa."
B00 fm heilsuræktaraðstaða
I maí á næsta ári verður opnuð í
kjallara nýbyggingarinnar 300 fer-
metra heilsuræktaraðstaða með
þrektækjum, tveimur heitum pott-
um, nuddi og gufubaði og þeir gestir
sem fara vilja í sund fá gefna miða
í Sundlaug Vesturbæjar. Næsta
haust verður byijað á framkvæmd-
um við 200 fermetra sal, sem á að
koma í framhaldi af Grillinu á 8.
hæð. Þar er ætlunin að hafa bar,
léttar veitingar og þægileg húsgögn
þar sem fólk getur verið í róleg-
heitunum. Konráð sagði að salurinn
kynni að létta á Grillinu, en stækkun
hótelsins þýddi í raun aukna aðsókn
að Grillinu, sem það mætti ekki við.
IJm sl. helgi var opnað fyrir matsölu
á annarri hæð tengibyggingarinnar
til að létta einnig á Grillinu og verð-
ur sú þjónusta fyrir hendi á föstu-
dögum og laugardögum framvegis.
JI
Skeifan 3h
Simi 82670
GERNI JET TURBO
HREINSITÆKI
Hreinsun verður leikur einn
GERNI JET, ný gerð af háþrýstihreinsitæki með Turbo spiss.
Mjög handhæg - létt og afkastamikil.
Aðeins 18 kg á þyngd og með allt að 120 BAR þrýsting.
Ýmsir fylgihlutir, t.d. fyrir sandblástur.
Þú sparar tíma, fé og fyrirhöfn með GERNI JET.