Morgunblaðið - 26.07.1986, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986
Feneyjar:
Margt að varast
fyrir ferðamenn
Feneyjum, AP.
LÖGREGLAN í Feneyjum hóf á föstudag að sekta ferðamenn er
höguðu sér ósæmilega, eftir því sem skilgreint er í nýsettum lögum
þar.
Þeir sem snæddu brauð og
drukku bjór á Markúsartorgi, eða
gengu um skyrtulausir eða jafnvel
í sundfötum, voru sektaðir um 600
krónur íslenskar (20.000. lírur), að
því er talsmaður yfirvalda sagði.
Að vísu mun lögreglan láta sér
nægja að vara flesta við í byijun,
en borgarstjóri Feneyja, Nereo Lar-
oni, sagði fyrr í vikunni að nauðsyn-
legt hefði verið að setja þessi lög
og að þeim yrði framfylgt, því borg-
arbúar vildu ekki láta ganga illa
um sögufræga staði. Samkvæmt
lögunum er einnig bannað að synda
í síkjunum og leil'.a háværa tónlist
á götum úti.
Vinstrisinnaður stjómmálaflokk-
ur efndi til mótmæla gegn lögunum
seint á fimmtudagskvöld á tröppum
aðaljámbrautastöðvarinnar í Fen-
eyjum. Tröppumar hafa verið
kallaðar „Hótelið undir bemm
himni", þar sem ungir ferðamenn
hafa oft látið þar fyrir berast um
nætur og hefur iögreglan ekki enn
gripið til aðgerða gegn þeim hundr-
uðum sem komið hafa sér fyrir í
svefnpokum sínum þar, eftir að lög-
in vom sett.
Suður-Afríka:
••
Oldungur í heimsreisu
Kanadískir flugævintýramenn eru sem stendur í hnattreisu á DC-3 flugvél í tilefni þess að í vetur
voru liðin 50 ár frá því flugvélin flaug fyrsta sinni. Flugvélin er væntanleg til íslands allra næstu
daga. Myndin var tekin í Osló í vikunni.
Howe ætlar að halda
áfram sáttatilraunum
- þrátt fyrir harðorð ummæli Kaunda í hans garð
Botswana, AP.
Rubert Murdoch
Hörð deila um
blöð Murdochs
London, AP.
BREZKA stjómin hyggst grípa til
aðgerða til að fá stjórair 15 bæjar-
félaga, þar sem Verkamannaflokk-
urinn er í meirihluta, til þess að
aflétta banni, sem þau hafa lagt
við því, að blöð Rubert Murdochs
liggi frammi í opinberum bókasöfn-
um þeirra.
í bréfí, sem Timothy Luce menning-
armálaráðherra hefur sent þessum
bæjarstjómum, segir að þetta bann
sé ólöglegt, en það var sett eftir að
fyrirtæki Murdochs rak 5.500 prent-
ara í janúar sl. vegna deilna út af
tölvutækni.
Síðan hafa þessi 15 bæjarfélög neit-
að að hafa blöð Murdochs á bókasöfn-
um sínum, en þessi blöð em London
Times, Sunday Times, Sun og viku-
blaðið News of the World.
Kröfur um að starfsemi RAF
verði nú stöðvuð fyrir fullt og allt
hafa vaknað í kjölfar sprengingar-
innar í gær. Rauða herdeildin hefur
gert árásir á vestur-þýskar og
bandarískar herstöðvar og iðnfyrir-
tæki í tæpa tvo áratugi.
Sprengjan, sem sprakk í bfla-
stæði á svæði Domier-fyrirtækisins
með þeim afleiðingum að framhlið-
ar tveggja stjómarbygginga fyrir-
tækisins skemmdust, var um 30 kg
að þyngd.
Karl-Heinz Förster, talsmaður
saksóknara í Karlsrahe, sagði að
GEOFFREY Howe utanríkisráð-
herra Bretlands kvaðst í gær
ekki ætla hætta Suður-Afríku
ferð sinni og sáttatilraunum
þrátt fyrir harðorð ummæli for-
seta Zambíu, Kenneth Kaunda í
sinn garð. Howe viðhafði þessi
ummæli þegar hann kom til Gab-
orone í Botswana I gær.
Kaunda hélt mikinn reiðilestur
yfir Howe þegar breski utanríkis-
ráðherrann kom til Lúsaka í fyrra-
dag, og sakaði Breta og Bandaríkja-
menn um að standa að samsæri til
að koma í veg fyrir að
Suður-Afríkustjóm verði beitt við-
skiptaþvingunum. Howe sagði að
einkaviðræður þeirra hefðu hins
vegar farið fram í vinsemd, og hefði
Kaunda fallist á að taka þátt í við-
ræðum, sem stuðla ættu að því að
koma á sambandi milli stjómar
hvíta minnihlutans og leiðtoga
blökkumanna.
Um 8.400 blökkumenn hafa ver-
ið handteknir í Suður-Afríku frá
því að neyðarástandslög vom sett
í landinu 12. júní sl. að sögn sam-
herskáir stuðningsmenn Rauðu her-
deildarinnar væra grunaðir um
tilræðið.
Karl Heinz Beckurts, einn
fremsti kjameðlisfræðingur Vest-
ur-Þjóðveija, var myrtur 9. júlí og
á fímmtudag spmngu tvær sprengj-
ur leysitæknirannsóknarstofu
Fraunhofer-stofnunarinnar í Aach-
en._
Árásir Rauðu herdeildarinnar
undanfarið hafa beinst að fyrirtækj-
um á sviði hátækni, sem ýmist hafa
unnið að hemaðarverkefnum eða
era í þann mund að gera samninga
taka menntamanna, sem fylgst
hafa með athöfnum stjómarinnar
undanfamar vikur. Hér er um að
ræða fleiri handtökur, en á öllu
tímabilinu ágúst 1985 til mars 1986
þegar neyðarástandslög vora í gildi
Suður-Afríku.
WASHINGTON, AP.
Bandaríkjastjórn lýsti á
fimmtudag yfir andstöðu sinni
við allar tilraunir, sem fram
kynnu að koma í Ástralíu, til
þess að láta viðskiptadeilu spilla
fyrir áframhaldandi herstöðvum
Bandaríkjamanna þar í landi.
Tilefni þessa voru aðvaranir frá
áströlskum stjórnmá.aleiðtogum
þess efnis, að stuðningur þeirra
við herstöðvarnar myndi fara
um aðild að geimvamaáætlun
Bandaríkj amanna.
Beckurts sat í stjómamefnd
Fraunhofer-stofnunarinnar jafn-
fram því, sem hann var yfirmaður
rannsóknardeildar Siemens-fyrir-
tækisins. Hann hafði átt í viðræðum
við embættismenn stjómarinnar í
Bonn um aðild að geimvamaáætl-
uninni. Mjög líklegt er talið að
Domier fyrirtækið taki þátt í rann-
sóknum á sviði geimvama.
Lögregla leitaði sprengju á svæði
Domier-fyrirtækisins í allan gær-
dag vegna þess að í bréfi, sem
fannst í grennd við tilræðisstaðinn
sagði að fleiri en einni sprengju
hefði verið komið fyrir.
Alexander Prechtel, annar tals-
Að sögn Larrys Speakes frétta-
fulltrúa hvíta hússins telur Ronald
Reagan Bandaríkjaforseti hugsan-
legt að gripið verði til einhvers
konar refsiaðgerða gegn Suður-
Afrkíku, þótt efnahagsþvinganir
væra ekki til umræðu. Speakes
minnkandi, ef Bandaríkjaþing
samþykkir löggjöf um að greiða
niður hveiti til Sovétríkjanna og
Kína.
Bamard Kalb, talsmaður Banda-
ríkjastjómar, sagði að herstöðvam-
ar tvær, sem Bandaríkjamenn og
Ástralíumenn reka í sameiningu,
væra nauðsynlegur þáttur í þeirri
viðleitni að koma í veg fyrir kjam-
orkustríð og til þess að tryggja
inaður saksóknara, sagði að fjórum
mínútum fyrir sprenginguna hefði
maður hringt í skrifstofu Domier
til að vara við.
{ bréfi hryðjuverkamannanna
sagði: „Við nefrmm okkur eftir fé-
laga, sem lést í sprengjuárás á þing
jafnaðarmanna í Líma í Perú,“ að
því er haft er eftir Prechtel.
Lögreglan í Perú hefur ekki nafn-
greint konuna, sem beið bana er
hún ætlaði að gera árás á þingið
fyrir mánuði.
Á bréfínu var rauð stjama. Merki
Rauðu herdeildarinnar er rauð
stjama með vélbyssu fyrir miðju.
Yfírvöld telja að hér hafí stuðnings-
menn Rauðu herdeildarinnar verið
að verki vegna þess að merkin vora
frábragðin hvert öðra.
sagði að til greina kæmi að neita
suður-afrískum flugvélum um lend-
ingarleyfí í Bandaríkjunum. Sumir
fréttaskýrendur telja að hér sé um
einhvers konar stefnubreytingu að
ræða af hálfu Reagans, en forsetinn
sætti harðri gagnrýni bæði demó-
krata og repúblikana fyrir ræðu
sína sl. þriðjudag um stefnu stjóm-
arinnar gagnvart Suður-Afríku.
eftirlit með vígbúnaði.
Samkvæmt lagaframvarpi sem
Robert Dole, formaður þingflokks
repúblikana í öldungadeild Banda-
ríkjaþings hefur gerzt talsmaður
fyrir og samþykkt var í deildinni
nú í vikunni, geta seljendur koms
til Sovétríkjanna og Kína gert kröfu
um framleiðslustyrki nú, en þeir
hafa ekki átt kost á því áður.
Markmiðið með þessari fyrir-
huguðu löggjöf er að greiða fyrir
sölu á bandarísku hveiti, en í
landinu era nú til óseld 51,7 milljón-
ir tonna af því. Ekki er unnt að
gera sér vonir um að selja meira
en 26 milljónir tonna af þessum
birgðum á þessu fjárhagsári, sem
lýkur 30. september nk., nema nið-
urgreiðslur komi til.
I Ástralíu er því haldið fram, að
þetta muni hafa í för með sér óheið-
arlega samkeppni gagnvart kom-
sölu þarlendra manna til Sovétríkj-
anna og Kína. Hún nýtur ekiri
neinna ríkisstyrkja, en nam í fyrra
500 milljónum dollara.
Mozambique:
Skærulið-
ar felldir
Maputo, Mozambique, AP.
Stjómarhermenn I Mozambique
segjast hafa fellt 72 skæruliða i
miðhluta landsins í júlímánuði.
Skæruliðamir beijast gegn marx-
istastjóm Samora Machel forseta og
segja stjómvöld í Mozambique að þeir
njóti stuðnings yfirvalda í Suður-
Afríku, þrátt fyrir að ríkisstjómir land-
anna hafí komið sér saman um frið.
Suður-Afríkumenn neita þessum ásök-
unum.
V estur-Þýskaland:
Hryðjuverk gegu her-
gagnaframleiðanda
Friedrichshafen, AP.
VESTUR-ÞÝSK yfirvöld sögðu að stuðningsmenn hryðjuverkasam-
takanna Rauða herdeildin (RAF) lægju undir grun um að hafa sprengt
sprengju við Domier flug- og hergagnaverksmiðjumar í Friedrichs-
hafen. Þetta er þriðja árásin af þessu tagi á þremur vikum.
Astralía—Bandaríkin:
Niðurgreiðslur Bandaríkjanna
á hveiti spilla sambúðinni