Morgunblaðið - 26.07.1986, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986
Filippseyjar:
Fulltrúar stjórnar-
innar og skæruliða
hittast í fyrsta sinn
Manila, AP.
TALSMAÐUR forsetahallar-
innar í Manila á Filippseyjum
staðfesti í gær, að fulltrúar
Frakkland:
Baskar
varpa
sprengju
Bayonne, Frakklandi, AP.
SPRENGJU var varpað úr bif-
reið að dómshúsi i borginni
Bayonne í héraði baska í Frakk-
landi snemma í gær. Menn i
bifreiðinni hófu vélbyssu-
skothríð eftir að sprengjan
sprakk og særðist einn lögreglu-
þjónn. Dómshúsið skemmdist
litið.
Lögreglan kvað þijár sprengju
hafa fundist á bílastæði skammt frá
dómshúsinu eftir tilræðið.
Ónafngreindur maður hringdi í
nokkrar fréttastofur eftir spreng-
inguna og lýsti ábyrgð á verknaðin-
um á hendur hreyfingar baska, sem
nefnist Iparretarrak.
Lögreglan setti upp vegatálma í
héraðinu og leitaði meðal grunaðra
stuðningsmanna aðskilnaðarhreyf-
ingar baska.
stjórnarinnar og skæruliða
kommúnista hefðu átt samn-
ingaviðræður í fyrsta skipti,
fyrr í vikunni, en vildi ekki
skýra frá umræðuefni fund-
arins.
Satur Ocampo, helsti samn-
ingsmaður skæruliðanna, gagn-
rýndi á fímmtudag ræðu Juan
Ponce Enrile, vamarmálaráð-
herra Filippseyja, þar sem Enrile
deildi hart á skæruliðanna og
sagði þá reyna að tefja um fyrir
samningaviðræðum, með það fyr-
ir augum að steypa stjóm
Corazon Aquino af stóli. Sagði
Ocampo að Enrile væri með þess-
um orðum að reyna að koma í
veg fyrir að samningar tækjust
á milli skæraliða kommúnista og
ríkisstjórnarinnar.
Ocampo vildi ekki tjá sig um
efni fundarins við Dioko, fulltrúa
stjómarinnar, en sagði viðræð-
umar hafa verið óformlegar.
AP/Símamynd
Gífurlegir skógareldar geysa í hæðunum upp af frönsku rívierunni og hefur orðið að flytja brott fleiri
þúsund ferðamanna og íbúa af svæðinu. Myndin var tekin nærri Contes, sem er 20 km frá Nizza. Þar
stóðu eldtungur hátt i loft upp.
Rívieran: /
2.000 yfirgefa heim-
ili sín vegna kjarrelda
Nizza, AP.
EINN maður lést og fleiri
hlutu brunasár og reykeitrun
í miklum kjarreldum, sem
geisuðu á um 3.000 hektara
svæði á Ríveríunni í gær. Um
Paul Volcker varar
við efnahagskreppu
Wnahinrrtnn AP ^ ^ ™ •
Washington, AP.
PAUL Volcker, bankastjóri
bandaríska seðlabankans, hefur
skorað á Japan og Vestur-
Evrópu að leggja meira af mörk-
um til þess að halda efnahags-
Líbanon:
Fleiri sýrlenskir
hermenn til Beirut
Beirut, AP.
UM það bil 150 sýrlenskir her-
menn komu til Beirut á fimmtu-
daginn að sögn dagblaðsins An
Nahar. Segir blaðið, að þeir eigi
að aðstoða líbanska stjómar-
hermenn við að ná yfirráðum
yfir nokkmm úthverfum, þar
sem Amal-herflokkar hafa haft
völdin.
Úthverfín hafa lengi verið bæki-
stöðvar Amal-hersveita Nahibs
Berri, dómsmálaráðherra, er notið
hefur stuðnings Sýrlendinga, og
einnig Hezbollah-skæruliða, er hafa
tengsl við klerkastjómina í íran.
Orðrómur hefur lengi verið á
kreiki um, að flestir erlendu gíslam-
ir í Líbanon, en þeir eru taldir vera
17, séu í haldi í úthverfunum.
Hezbollah-skæraliðamir segja
aðgerðir stjómarhermannanna og
Sýrlendinganna ónauðsynlegar, en
leiðtogar þeirra hafa þó lýst því
yfir, að þeim verði ekki svarað með
vopnum.
Sýrlendingar hafa fyrir um 500
Saudi-Arabía:
Fyrsta
AWACS-
þotan afhent
Riyadh, Saudi-Arabíu, AP.
FYRSTA AWACS-þotan af fjór-
um, sem Saudl-Arabar hafa
pantað í Bandaríkjunum, var af-
hent þeim á miðvikudaginn.
Hinar þotumar verða afhentar
næstu mánuði, en fram til þess tíma
leigir ríkið samsvarandi þotur. Þot-
umar era fullkomnustu könnunar-
og fjarskiptaflugvélar í heimi og
gefa Saudi-Aröbum yfirburði á
þessu sviði gagnvart nágrannaríkj-
unum.
hermenn í vesturhluta Beirat. Vora
þeir sendu þangað í byijun júlí til
að reyna að binda endi á óstjómina
í borgarhlutanum, sem hijáður er
af morðum, mannránum og öðram
ofbeldisverkum.
batanum í heiminum gangandi
og draga úr þrýstingi á efna-
hagslíf Bandaríkjanna.
Volcker flutti Bandaríkjaþingi
skýrslu á fimmtudag um horfur
í efnahagsmálum. Þar var hann
mjög afdráttarlaus i orðum en
hvatti helztu viðskiptaríki
Bandaríkjanna til raunhæfra að-
gerða, sem haft gætu örvandi
áhrif á hagvöxt þeirra og forðað
heiminum frá því að lenda í enn
einni efnahagskreppu.
Volcker flutti skýrslu sína að-
eins einum degi eftir að birtar
höfðu verið hagtölur stjórnvalda
fyrir timabilið apríl - júní, en þar
kom fram, að hagvöxtur i Banda-
ríkjunum var aðeins 1,1% þessa
mánuði miðað við eins árs tíma-
bil.
2.000 manns þurftu að yfir-
gefa heimili sín í nágrenninu
vegna eldanna.
Um 2.500 slökkviliðsmenn
unnu að því að slökkva eldinn,
sem kom upp í ijalllendi norðan
og austan megin við borgina
Nizza. Eldarnir náðu svo í gær
að breiðast vestur allt að Cann-
es. Talið er að sums staðar hafi
verið um íkveikju að ræða.
Nokkur hús eyðilögðust í eldin-
um og símalínur utan við Nizza
urðu einnig illa úti. Loka varð
ölhim helstn hraðbrautum utan
við borgina svo og járnbrautum.
Verst úti varð jítið þorp. Eze,
þar sem allir íbúamir urðu að
yfirgefa heimili sín vegna reyks
og hita frá eldunum. Yfirvöld
sögðu að einn maður hefði látist
í eldsvoðanum, en ekki var ljóst
hvernig dauða hans bar að.
Nokkrir slökkviliðsmenn og íbúar
í héraðinu fengu reykeitran.
Hjálparsveitir hafa komið víða
að og m.a. vora sendar 12 flug-
vélar frá París til að hjálpa til
við björgunarstörf.
Hýðingar bannaðar
í breskum skólum
London, AP.
NEÐRI deild breska þingsins samþykkti á þriðjudaginn tillögu um
að banna líkamsrefsingar í breskum skólum og fylgdi þar fordæmi
annarra Vestur-Evrópuþjóða.
Christopher Patten, kennslu-
málaráðherra, var andvígur tillög-
unni.
„Afnám líkamsrefsinga gæti
valdið misskilningi. Þetta gæti orð-
ið til að veikja stöðu skólastjóra og
þá væri verr af stað farið en heima
setið," sagði ráðherrann.
Fleiri íhaldsmenn vora mjög á
móti tillögunni, en aðalritari kenn-
arasambands Bretlands sagði, að
skynsemin hefði unnið sigur í þessu
máli.
Yfirvöld í Úkraínu loka
7.000 geislavirkum brunnum
SOVÉSK yfirvöld er nú loks farin að viðurkenna hættuna á því,
að geislun frá Chernobyl geti skaðað vatnsból á stórum svæðum
í Úkraínu. í síðustu viku upplýsti Pravda, að sjö þúsund brunnum
í Bragin-héraði, um það bil 80 kílómetra norðan við Chernobyl,
hefði verið vandlega lokað.
í þijár vikur hefur verið rætt um
mögulega heimsókn lítils hóps
vestrænna fréttamanna til
Chemobyl, en þær áætlanir hafa
nú verið lagðar á hiiluna um
„óákveðinn tíma“. í heimsókninni
átti að kynna glæsilegan árangur
sovéskra vísindamanna, er beijast
við afleiðingar slyssins.
Sovéskir §ölmiðlar keppast enn
við að finna dæmi um, hve vel
hreinsunarstarfið í Chernobyl
gangi, en það er eins og sérhver
sólskinsfrétt fæði af sér ný ótíð-
indi.
PravdassLgði nýlega frá því, að
íbúar sjö þorpa í Braginhéraði
gætu nú snúið aftur til heimila
sinna. Um leið var skýrt frá því,
að 41 þorp, norðan við það svæði
sem aliir íbúar voru fluttir af, sé
enn þá of hættulegt, þrátt fyrir
stanslausa vinnu í tvo mánuði við
að fjarlægja geislavirk efni.
Sagt var frá því, að landbúnað-
arstörf væra aftur hafin á
upphaflega hættusvæðinu. Jafn-
framt var því lýst, hvemig verkin
vora unnin með dráttarvélum,
sem með snöggsoðnum hætti
hafði verið breytt til að veija
stjómendur þeirra geislavirku
ryki.
í grein um öryggisráðstafanir
í matvælafyrirtækjum á Kiev-
svæðinu, um 150 kílómetra
sunnan við Chemobyl, er upplýst,
að öll slík fyrirtæki, allt frá brauð-
gerðum til mjólkurbúa, era nú
tengd neyðarbrannum, sem
grafnir hafa verið djúpt í jörðu.
Nú er unnið með miklum hraða
við að koma á laggimar geysimik-
illi, nýrri ferskvatnsveitu fyrir 3,5
milljónir íbúa Kievborgar. Tvær
átta kílómetra langar vatnslagnir
munu flytja vatn úr fljótinu
Desna, sem er langt frá geisla-
virkri Prijpat-ánni, er streymir í
vatnsból Kiev.
Desna-fljót á upptök sín í nánd
við Moskvu og rennur í átt til
Kiev úr austri, langt sunnan við
vatnsbólið, sem er geysistórt og
nefnist Kiev-hafið, en þangað
rennur Prijpat.
Gífurlegar byggingafram-
kvæmdir eiga sér nú stað
umhverfís Chemobyl-kjarnorku-
verið. Risavöxnum vamargörðum
úr jarðefnum hefur verið ýtt upp
meðfram Prijpat-ánni, til þess að
reyna að koma í veg fyrir, að
haustflóðin fleyti geislavirkum
efnum í fljótið. TASS-fréttastofan
átti viðtal við úkraínskan ráð-
herra, Vladimir Borisovsky, sem
sagði, að verið væri að leggja flók-
ið kerfi af borholum og öðrum
vamarbúnaði umhverfis orkuverið
til að hindra jarðvatn í að komast
inn á orkuverssvæðið, en þar
gætu komist í vatnið geislavirkar
agnir.
Nýja vatnsveitan í Kiev er stór-
kostlegt mannvirki. Af 58 svo-
nefndum sjálfrennandi borbrann-
um, 500 til 1.000 fet að dýpt, sem
áætlað er að grafa á borgarsvæð-
inu, er búið að ljúka við 52. í
brannana á að safnast hreint vatn
úr klöpp.
Nýju vatnslagnimar hafa verið
lagðar á mettíma yfir vegi, brýr,
jarðgöng og sums staðar undir
vatn. Takmarkið er að ljúka við
vatnsveituna fyrir haustið, en þá
gætu rigning og flóð orðið til þess,
að veigalitlar varnir umhverfis
geislavirka svæðið brystu.
TASS-fréttastofan heldur því
fram, að sovéskir vísindamenn
hafi nú fundið upp lyf, sem minnki
áhrif geislunar með því að vernda
ytri frumuhimnuna í lifandi fmm-
um. Fréttastofan segir, að tilraun-
ir á rannsóknastofum sýni, að
Dibunol, en svo nefnist lyfið,
minnki áhrif geislunar um þriðj-
ung.
Haft er eftir Yelenu Bukovu,
prófessor við sovésku vísindaaka-
demíuna, að í Dibunol séu líffræði-
leg efni, sem viniii gegn sýringu
og verndi framuhimnumar gagn-
vart „óæskilegum ytri áhrifum",
komi í veg fyrir stökkbreytingar
og mögulegan frumudauða. Lyfið
var framleitt með efnafræðilegum
aðferðum á rannsóknastofu.
Martin WaJker, The Guardian