Morgunblaðið - 26.07.1986, Page 27
MORGÚNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986
„Cirkus Arena“ á
leið til íslands
DANSKI fjölleikahópurinn með Norrænu og verða haldnar
„Cirkus Arena“ er væntanlegur sýningar bæði á Akureyri og í
hingað til lands nk. fimmtudag Reykjavík.
Varar við skerð-
ingn verkfallsréttar
STJÓRN BSRB samþykkti samhljóða á fundi sínum fimmtudaginn
24. þ.m. að beina þeim tilmælum til allra félagsmanna að vera vel
á verði gegn skerðingu réttinda starfshópa og stétta, s.s. lífeyrisrétt-
inda, og samningsréttar þeirra sem að öryggis- og heilbrigðismálum
starfa.
Samþykktin er svohljóðandi:
Stjóm BSRB vill að gefnum tilefn-
um beina því til allra félagsmanna
að vera vel á verði gegn því að
réttindi starfshópa og stétta verði
skert.
I þessu sambandi er sérstaklega
vakin athygli á því að framundan
er hörð varnarbarátta gegn skerð-
ingu lífeyrisréttinda opinberra
starfsmanna, en í samkomulagi
Vinnuveitendasambandsins og ASÍ
frá sl. vetri felst krafa um verulega
skerðingu lífeyrisréttinda opinberra
starfsmanna.
Þá fer ekki fram hjá neinum að
ríkisvaldið gerir nú tilraunir til að
skerða eða afnema samningsrétt
þeirra sem starfa að öryggis- og
heilbrigðismálum. Þessi afstaða
ríkisins kom skýrt fram í samninga-
viðræðum við BSRB á sl. vetri.
Ef ríkisvaldinu tekst að ijúfa
samstöðu obinberra starfsmanna í
varðstöðu um áunnin réttindi er
hætta á ferðum, sem öllum opin-
berum starfsmönnum ber að snúast
gegn.
Listafólkið, sem telur 50 manns,
kemur frá tíu þjóðlöndum, en sýn-
ingum stýrir Benny Berdino. Meðal
listamannanna er Tóti trúður, sem
vann Evrópugull trúða í Frakklandi
í fyrra, Darix fímleikabræðumir,
töfrabragðaparið Ron Marvin og
Helena, Los Huesca línudansaram-
ir, fjöllistakonan Line Caroll og
fleiri.
„Circus Arena" sýnir á íþrótta-
svæði Þórs á Akureyri 2. og 3.
ágúst og verður forsala aðgöngu-
miða þar í Kompunni, Skipagötu 2.
I Reykjavík verða sýningar í Laug-
ardal við hliðina á TBR 6. til 11.
ágúst. Miðasalan verður opnuð á
sýningarstað tveimur tímum fyrir
sýningu alla sýningardagana. í
Reykjavík verða sýningar alla dag-
ana kl. 20.00 og einnig kl. 16.00,
8. 9. og 10. ágúst. Miðaverð er 450
krónur fyrir stóla og 350 krónur
ef setið er á bekkjum. Fjölleikahús-
ið rúmar 2.000 manns í sæti
Að undanfömu hefur flölleika-
hópurinn verið á ferðalagi um
Svíþjóð og Danmörku og hefur nú
tveggja daga viðdvöl í Færeyjum.
Morgunbladið/Böricur
Trúðurinn Jacob Kagan og sonur hans, sem líka heitir Jacob, komu
fyrr til landsins og voru að spóka sig í Austurstræti í gær.
Aðalsteinn Davíðsson hafði í
nógu að snúast, en hann var
annar tveggja sem sáu um
smíði tveggja göngubrúa yfir
skurði í Fossvogsdalnum og
viðgerð þriggja til viðbótar,
sem famar voru að láta á sjá
vegna elli og fúa.
... ,
Á fjórða hundrað manna, aðallega unglingar úr vinnuskóla Kópavogs, en líka allmargir fullorðnir, með bæjarstórnina
í Kópavogi í broddi fylkingar, lögðu hönd á plóginn við gerð gangstíga í Fossvogsdalnum á miðvikudaginn.
Gang'stígur lagður í Fossvogi
VINNUSKÓLI Kópavogs, ásamt allmörgum fullorðnum, lagði
göngustíg í Fossvogsdalnum síðasta miðvikudag. Auk vinnuskól-
ans stóð foreldrafélag Snælandsskóla fyrir framtakinu.
Um 300 unglingar úr vinnu- hafi verið orðnar hættulega fún-
skólanum unnu að lagningunni
ásamt nokkrum tugum fullorð-
inna, þ. á m. bæjarstjórn Kópa-
vogs. Göngustígurinn er um 360
metrar á lengd og liggur frá
Birkihlíð að Daltúni. Vinnan hófst
kl. 14 og var haldið áfram uns
verkinu lauk. í stíginn fóru um
100 teningsmetrar efnis, eða 1000
til Í200 hjólbörufarmar, giskaði
Þórður Guðmundsson, annar yfír-
verkstjóra vinnuskólans, á. Við
verkið voru notaðar 40 hjólbörur
og á annað hundrað skóflur.
Einnig voru smíðaðar tvær
gangbrýr og þrjár aðrar gerðar
upp. Fyrir voru fimm gangstígar
sem lágu þvert yfír Fossvogsdal-
inn og einnig er gangstígur
langsum eftir dalnum Reykjavík-
urmeginn. Þessum stígum er
ætlað að auka gildi Fossvogs-
dalsins sem útivistarsvæðis, sem
hann þykir kjörinn til vegna nátt-
úrufegurðar og veðursældar.
Unglingum, sem blaðamaður
spjallaði við, þótti stígurinn góð
viðbót, en mest gagn þótti þeim
þó að viðgerðinni á brúnum. Þær
ar. Þau létu vel af veru sinni í
vinnuskólanum í sumar, en þetta
var síðasta verkefni vinnuskólans
í ár. Nú er bara eftir að ganga
frá áhöldum og svo er skemmti-
ferð í Þrastarlund.
Þó létu nokkur þeirra í ljós
óánægju með tilhögun launa-
greiðslna. Nú í sumar var í fyrsta
sinn greitt eftir aldri þannig að
miðað var við afmælisdaga en
unglingum sem rætt var við þótti
eðlilegra að miðað væri við bekk,
þannig að öll í sama bekk fái sömu
laun. Sigurður Þorsteinsson, for-
stöðumaður vinnuskólans, sagði
að þetta hefði verið gert með það
í huga að um helmingur ungling-
anna myndi hækka í launum á
þennan hátt, en hann væri í vafa
hvort hann myndi ekki mæla með
að þetta form yrði haft á áfram.
Foreldrar í Snælandsskóla-
hverfí stóðu að framkvæmdinni
með vinnuskóianum og dreifðu
þau bréfí í hvert .hús í hverfinu
þar sem fólk var kvatt til að koma
og taka þátt í verkinu.