Morgunblaðið - 26.07.1986, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986
37
Fimleikasýning' var meðal skemmtiatriða á útiskemmtuninni.
Vinabæjamót í Siglufirði:
Við heimsskautsbaug
í 20 gráðu hita
ÞAÐ VORU ánægjulegir sól-
skinsdagarnir í Siglufirði 26.—
30. júní þegar um 250 útlending-
ar gistu Siglufjörð. Þegar vinir
og kunningjar töluðust við, skipt-
ust á gjöfum og auðsýndu hvorir
öðrum vináttu með lijartnæmu
brosi og hlýju handtaki, sem allir
skiidu þótt þjóðtungurnar væru
6.
Þetta er í 5. sinn sem Siglfirðing-
ar halda vinabæjamót, en þeir héldu
fyrsta vinabæjamótið er haldið var
á íslandi 1951.
Norræna félagið er sá um fram-
kvæmd vinabæjamótsins, leysti
vandasamt hlutverk með ágætum.
Bæjarstjómin veitti dyggilegan
stuðning til þess er gera þurfti og
fjöldi bæjarbúa tók virkan þátt í
framkvæmdum og móttöku gest-
anna. Öllum er þama áttu hlut að
máli ber heiður og þökk.
Gestgjafamir tóku á móti gestum
sínum um 5-leytið 26. júní. Um
kvöldið var vinabæjamótið sett í
kirkjunni af forseta bæjarstjómar.
Mættir vom fulltníar frá Kangasala
í Finnlandi, frá Alandseyjum, Ván-
ersborg í Svíþjóð, Heming í
Danmörku, Husby í Suðurslesvík,
en sá bær er sérstakur vinabær
Heming og því boðin þátttaka,
Holmestrand í Noregi og Eide í
Færeyjum. Það voru kærkomnir
gestir frá 7 bæjum er heimsóttu
Sigluíjörð þessa sólríku sumardaga.
Kveðjur voru fluttar frá vinabæjun-
um, en kirkjukór Siglufjarðar söng
þjóðsöngva Norðurlandanna við
undirleik lúðrasveitarinnar af mik-
Frá Siglufirði
illi smekkvísi undir stjóm kirkjuorg-
anistans Anthony Raley meðan
fulltrúi hvers lands í þjóðbúningi
heilsaði með þjóðfána sínum.
Föstudaginn 27. vom heimsótt
atvinnufyrirtæki bæjarins. Stjórn-
arfundur allra Norrænufélaganna
haldinn. Þá vom í fyrsta sinn hér
á landi gróðursett birkitré frá öllum
vinabæjunum, sem varanlegt tákn
um ágæta samvinnu og vináttu, en
þjóðfánar allra Norðurlandanna
vom dregnir að húni og hylltir með
þjóðsöngvunum við undirleik
Lúðrasveitar Siglufjarðar.
Þá var opnuð listaverkasýning
kvenna í vinabæjunum og það er
einnig í fyrsta sinn hér á landi sem
slík sýning er haldin. Þama vom
listaverk fögur og mörg. Leirmunir,
silfurmunir, listvefnaður, málverk,
klippimyndir og teikningar. Marga
fysti að eiga þessa fögm listmuni
og margir þeirra seldust.
Um kvöldið var hátíðardagskrá
í Nýja Bíói, þar sem fram komu
fulltrúar frá öllum vinabæjunum
með allskonar skemmtiatriði:
Lúðrasveit Sigluíjarðar, Kirkjukór
Siglufjarðar undir stjórn Anthony
Raley, fjöldasöngur, einsöngur,
þjóðlagasöngur, leikfimi, kvæða-
flutningur, framsögn og upplestur.
Nú var upp mnninn laugardagur-
inn 28. júní. Þessi sumarhlýi og
sólbjarti dagur var notaður til lengri
ferðalaga. Farið var til Siglufjarð-
ar, að Hólum, Glaumbæ, Sauðár-
króki og að Skeiðsfossvirkjun.
Sögustaðir skoðaðir og atburðir
löngu liðinna ára rifjaðir upp, en
veitingar boðnar af mikilli rausn
Minning:
Jón Björnsson
Fæddur 19. júní 1903
Dáinn20.júlí 1986
Útför afa míns, Jóns Bjömsson-
ar, fer fram í dag, 26. júlí, frá
Egilsstaðakirkju. í hugann koma
margar minningar um afa á þess-
ari kveðjustund.
Afi var sonur Bjöms Þorkelsson-
ar bónda í Hnefilsdal, Jökuldal og
Guðríðar Jónsdóttur konu hans.
Árið 1930 kvæntist hann eftirlif-
andi konu sinni, Önnu Grímsdóttur
frá Galtastöðum í Tungu, ömmu
minni og nöfnu. Afi og amma
bjuggu á Skeggjastöðum uns þau
bmgðu búi og fluttust f Egilsstaði
árið 1966. Dætur þeirra em sex,
þær em: Áslaug býr á Höfn á
Homafirði, Guðríður býr á Vopnaf-
irði, Auður býr á Egilsstöðum,
Guðný Erla býr á Egilsstöðum,
Sigríður býr í Reykjavík og Ásdís
býr á Finnstöðum II í Eiðaþinghá.
Ég ætla mér ekki að rekja ævifer-
il afa míns heldur skrifa nokkur
kveðjuorð og þakka honum allar
þær góðu stundir sem ég átti með
honum. Mér veittist sú gæfa að
þekkja afa vel og umgangast hann
mikið. Fyrstu sjö ár ævi minnar bjó
ég ásamt foreldmm mínum hjá afa
og ömmu á Skeggjastöðum og var
eftir það í sveit hjá þeim öll sumur
þar til þau fluttust í íbúð f húsi
foreldra minna á Egilsstöðum.
Margar fallegar og ljúfar minn-
ingar á ég um afa, t.d. er hann var
við dagleg störf sín í sveitinni og
ég stelpuhnokki skokkaði við hlið
hans eða þegar hann lagði sig f
rökkrinu; hvað gaman var að lúra
hjá honum og hlusta á sögur og
ævintýri sem hann sagði mér. Afí
var mikill bókamaður og þrátt fyrir
takmörkuð fjárráð kom hann sér
upp góðu bókasafni. Hann hafði
áhuga á allskyns þjóðlegum froðleik
en fleira fann ég f bókahillum hans
því afi átti bækur sem sögðu frá
ókunnum löndum og framandi sið-
um. Slíkum frásögum hafði hann
gaman af þó ekki gerði hann
víðreist um sína daga. Þær bækur
sem afi tók úr bókasafni sínu og
gaf mér eru þær dýrmætustu sem
ég á. Sumar hafði hann bundið inn
sjálfur enda var hann ágætis bók-
bindari. Á sínum efrí árum var
hann oftast með bók í hönd þegar
ég hitti hann og þegar við höfðum
heilsast leið ekki á löngu þar til við
fórum að tala um bækur, enda afí
fróður og skemmtilegur. Ég veit
að ég tala fyrir munn allra bama-
bama hans þegar ég segi að gott
var að eiga slíkan afa.
Bömin mín tóku líka ástfóstri við
langafa og langömmu á Egilsstöð-
um og minningin um afa og langafa
mun ætíð lifa með mér og §öl-
skyldu minni.
Með innilegu þakklæti fyrir allt.
AnnaOsk
Lagið tekið á útiskemmtuninni
hjá Rafveitu Siglufjarðar við
Skeiðsfoss og síðan haldið heim.
Stór hópur, á annað hundrað fóru
til Grímseyjar á bárulausum sjó, við
hlýjan sunnan andvara og glaða
sólskin í yfir 20 gráðu hita við norð-
urheimskautsbaug. Var það mál
varðskipsmannanna er fluttu okkur
þessa ógleymanlegu ferð, að fáir
væru slíkir dásemdar dagar sem
þessi. Landsýn til alls Norðurlands-
ins frá Grímsey var heillandi.
Móttökur eyjaskeggja og fyrir-
greiðsla með ágætum. Þá var lipurð
skipstjórans Birgis Jónssonar og
skipshafnar hans af öllum rómuð
og minnst með sérstöku þakklæti,
enda fyllilega verðskulduð.
Enn var sama veðurblíðan langt
fram á kvöld, er notuð var eftir
heimkomuna úr báðum ferðunum,
til útiskemmtunar við íþróttamið-
stöðina á Hóli, með varðeldi,
fimleikum, þjóðdansi, þjóðlagasöng,
upplestri og ávörpum.
Ekki má láta ógetinna knatt-
spymumannanna ungu frá Færeyj-
um, Ólafsfirði og Sauðárkróki, er
sýndu leikni sína og KS-inganna
og Víkinganna er kepptu í 2. deild,
áhorfendum til mikillar ánægju.
Svo kom sunnudagurinn 29. júní.
Það var gott, að hvílast til kl. 14
að hátíðarguðsþjónustan hófst. Þar
komu fram leikmenn frá öllum vina-
bæjunum, Lúðrasveit Siglufjarðar
og kirkjukórinn, en sóknarprestur-
inn sr. Vigfús Þór Árnason predik-
aði. Eftir messu var öllum
kirkjugestum boðið til veglegrar
kaffiveislu í Safnaðarheimilinu.
Klukkan 19 hófst svo lokahófið í
tveim samkomuhúsum. Hótel Höfn,
með um 250 matargesti og f Al-
þýðuhúsinu með húsfylli af ungu
og glöðu fólki, er skemmti sér af
hjartans lyst, við mat og drykk og
dans á eftir. Mörg skemmtiatriði
voru flutt, en að lokum stiginn dans
langt fram á nótt. Ánægðir og
þreyttir lögðu allir sig til hvíldar
fyrir brottför næsta dag.
Ákveðinn var brottfarartími kl.
8.30 og kl. 9, sem stóðst eins og
allt annað er fyrirhugað hafði ver-
ið. Mánudagsmorguninn kvöddust
allir með trega, bæði þeir er sátu
heima og sáu á bak góðum gestum
og vinum og þeir er brott fóru, en
vildu gjaman vera lengur í góðum
vinahóp og veðurblíðu.
Þannig lauk þessu glæsilega,
fjölmenna vinabæjamóti á Siglu-
firði, sem lengi mun í minnum haft.
(Fréttatilkynning.)
Mótsgestir stíga um borð í varðskipið Óðin, sem flutti þá til
Grímseyjar.
Norðurlandafólk og fánar við íþróttamiðstöðina á Hóli.
Legsteinar
'tevnti i.f.
Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi,
símar 91-620809.