Morgunblaðið - 26.07.1986, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986
„Ég verð enn stundum klökk,
þegar ég sé fólk kveðjast á braut-
arstöðvum" segir Ruth, en sjálf
kvaddi hún móður sína, afa og
ömmu á þann hátt í síðasta sinn,
aðeins 10 ára að aldri.
af lífi. Dóttur þeirra var þó bjargað
ásamt hópi annarri gyðingabama.
Þegar hún barðist á móti sefaði
móðir hennar hana með því að ljúga
því að henni að for hennar myndi
auðvelda pabba hennar að fá leyfi
til að koma heim. Það var þannig,
sem 10 ára gömul stúlkan kvaddi
mömmu sína, afa og ömmu, í
síðasta sinn. Allt til þessa dags seg-
ist Ruth eiga erfitt með að halda
aftur af tárunum á brautarstöðvum
þegar hún sér fólk kveðjast.
En Ruth var send á munaðarleys-
ingjahæli í Sviss, þar sem hún
hjálpaði við að ala upp yngri böm-
in. „Þama var ég umkringd góðu
fólki," segir hún, „og það var mín
gæfa að hafa alltaf einhvem til að
ræða mín vandamá! við. Þetta olli
svo því að ég gat hjálpað þeim, sem
yngri voru. Það má því eiginlega
segja að ég hafi snemma komst í
þetta ráðgjafahlutverk," bætir hún
við og hlær. Sextán ára að aldri
flutti hún svo frá Sviss til ísrael.
„Það var fyrst þá sem ég raun-
verulega komst að því, hvað það
er að standa á eigin fótum,“ segir
hún. „Ég lærði líka að koma til
dyranna eins og ég er klædd, segja
það sem mér býr í bijósti umbúða-
laust." En æðsti draumurinn var
alltaf sá, að öðlast einhveija mennt-
un. Því hélt hún til Parísar og lagði
stund á sálarfræði við Sorbonne-
háskólann, auk þess sem hún
kenndi krökkum í forskóla. Það var
svo árið 1956, sem hún flutti til
Ameríku og skrifaði doktorsritgerð
sína í félagsfræði.
En Ruth á einnig viðburðaríkt
einkalíf að baki. Árið 1950 giftist
hún í fyrsta sinn og var maðurinn
ættaður frá ísrael. Það hjónaband
endaði með skilnaði, sem og hennar
annað hjónaband. Með þeim manni,
myndarlegum Frakka, átti hún
dótturina Miriam. 1961 gekk hún
í það heilaga þriðja sinni og er enn
hamingjusamlega gift. Sá maður
heitir FVed Westheimer og eiga þau
saman einn son. Alla sína tíð hefur
Ruth unnið utan heimilisins jafn-
hliða því sem_ hún hefur annast
flölskylduna. „Ég hef þó aldrei ver-
ið neitt kjamorkukvendi," viður-
kennir hún. „Ég hef megnustu
ópbeit á öllum þessum hrútleiðin-
legu heimilisstörfum og lét þau
alltaf sitja á hakanum. Bömin vom
alltaf númer eitt hjá mér,“ segir
hún og bætir því við, að sennilega
hafi bömin hennar bara haft gott
af því að eiga ekki „sótthreinsaða"
mömmu. Þau em nú bæði hið mesta
reglufólk og þola ekki að hafa drasl
í kringum sig.
En hvað gerir fræðingurinn svo
í sínum eigin frístundum? „Ég elska
freyðiböð," upplýsir hún hálf-vand-
ræðaleg. „Svo finnst mér gott að
narta í eitthvað góðgæti og jafnvel
tala svolítið í símann í leiðinni. Ég
get talað í síma tímunum saman
án þess að blikna. — En annars á
ég mér aðeins eitt alvöm takmark
í lífinu. Ég vil að mín verði minnst
sem konu sem færði fólki einu
skrefi nær sínum eigin tilfinningum
og hvötum. Takist það þá er ég
alsæl." — Og ætli hún sé nú ekki
á góðri leið með það?
Ástfangin upp fyrir haus hirða þau lítt um allan kjaftaganginn.
Marsha Mason og hinn 15 árum yngri Lewis Smith.
— Ég verð að gera játningu, ungfrú. Það var ekki satt þeg-
ar ég sagði að skipið væri að sökkva.
Skegg Alan
Alda skiptir
litum
Alan Alda er einn þeirra leikara
vestan hafs, sem ekki hafa
stundlegan frið fyrir aðgangshörð-
um aðdáendum og þá sér í lagi
þeim, sem kvenkyns em. Eins og
gefur að skilja getur það verið æði
þreytandi til lengdar að hlusta á lof
um sjálfan sig, leikhæfileika og Iag-
legt útlit. Því hefur Alda stundum
gripið til þess ráðs, þegar hann
þráir að fá að vera í friði, að ganga
um götumar' með gerviskegg. Er
þá síður hætta á að hann þekkist.
En þá koma bara upp önnur vanda-
mál. Til að mynda á Alan í mesta
basli með að borða þegar hann er
Orðheppinn maður og eftirsótt-
ur. Alan Alda, hér vel og vand-
lega rakaður.
í þessu dulargervi sínu, skeggið
þvælist fyrir honum, fer ýmist upp
í hann eða að maturinn festist í
því. Til að mynda brá hann sér inn
á kaffihús á dögunum uppáklæddur
og ömggur um að enginn myndi
þekkja hann. Hann pantaði sér
berlínarbollu, sem stráð var flór-
sykri. Þetta var kannske ekki
heppilegasti rétturinn á matseðlin-
um, en Alda hefur aldrei getað
staðist þessar bollur og lét sig því
hafa það. Eins og við mátti búast
var skegg hans fljótlega útatað í
flórsykri orðið hvítt í stað svarts.
Lítinn dreng bar þama að og of-
bauð honum sóðaskapurinn. Hann
vatt sér því að leikaranum og sagði
með vanþóknun: „Fyrirgefðu, en
svarta skeggið þitt er nú orðið
snjóhvítt." „Já,“ svaraði hinn orð-
heppni Alda, „þjónustan hefur alltaf
verið afskaplega seinvirk hér.“ Og
að svo mæltu hvarf hann á braut.
Aldurs-
munurinn
umræðu-
efnið
Það stórstjömusamband sem
hvað mest er smjattað á þessa
dagana, er samband þeirra Lewis
Smith og Mörshu Mason. Lewis er
nefnilega töluvert yngri en heitkon-
an, aðeins 29 ára að aldri. Marsha
hélt hinsvegar nýlega upp á sinn
44. afmælisdag og er því, að margra
mati, allt of öldmð fyrir hinn unga
svein. Marsha var áður gift leikrita-
höfundinum Neil Simon, en dóttir
hans, Nancy, kynnti hana fyrir hin-
um unga efnilega herramanni, fyrir
réttu ári. Að sögn varð það ást við
fyrstu sýn og hafa þau skötuhjú
verið óaðskiljanleg allar götur
síðan. Þessi mynd var t.d. tekin af
þeim, er þau komu til hádegisverðar
sem efnt var til til heiðurs leikaran-
um Lewis. Þess má loks til gaman
geta, svona til að flækja málin enn
frekar, að Marsha er nú farin til
Kalifomíu, þar sem verið er að taka
upp myndina „Heartbreak Ridge",
en þar fer hún með hlutverk fyrr-
verandi konu Clints Eastwood.
Afskaplega skemmtileg hringavit-
leysa, ekki satt?
Eldhúskrókurinn
Tómatar
Nú hefúr verð á tómötum enn verið lækkað og upplagt að nota sér
það. Tómatar em ekki fitandi og þess vegna upplögð fæða fyrir þá
sem em í megmnarhugleiðingum. Svo em þeir jafnframt mjög vítamín-
ríkir.
Hér koma nokkrir tómataréttir sem vonandi einhver hefur gaman
af að reyna.
Kryddað nautahakk með tómötum - Fyrir 4-5
1 stór laukur, smátt saxaður
1-2 hvítlauksrif, pressuð
3 matsk. olía
2 tsk. karrí
V2 kg nautahakk
1 dl kjötsoð (teningur)
4 tómatar
salt + svartur pipar
4 matsk. rifínn ostur
Hitið olíuna í þykkbotna potti, bætið lauknum og hvítlauknum út í
og látið krauma. Bætið svo karríi út í ásamt hakkinu og hrærið í þar
til það brúnast létt. Hellið sterku tenginssoði yfir, hrærið í og látið
malla í um 5 mínútur. Kryddið eftir smekk með salti og pipar. Sett
í ofnfast fat. Tómatamir skomir í sneiðar og raðað yfír. Tómatamir
saltaðir og rifna ostinum dreift yfir. Parmesan ostur er sérlega góð-
ur. Látið í 250° heitan ofn eða undir grill þar til osturinn er vel
bráðnaður.
Borið fram með grófu brauði eða laussoðnum hrísgijónum og ein-
földu hrásalati.
Tómatsalat með kotasælu
Fyrir þá sem hugsa um línumar
6-8 vel þroskaðir tómatar
V2 agúrka
1 laukur, salt + pipar
5-6 matsk. olía
2 matsk. vínedik
100 gr svartar ólífur
1 salathöfuð
um 200 gr kotasæla
örlítill sítrónusafi
Skerið tómata og gúrku í sneiðar og stráið salti og pipar yfir. Þvo-
ið salatið og látið renna vel af því. Bragðbætið kotasæluna með salti
og pipar.
Hristið saman edik, salt + pipar, saxaðan laukinn og olíuna. Látið
salatblöð á fat, jafnið tómötum, agúrku og ólífum yfir. Hellið kryddleg-
inum yfir, og að síðustu kotasæluna í miðju. Borið stax fram með
snittubrauði.
„Pínu“ litlar pizzur
Smyijið þunnar franskbrauðs-
sneiðar og skerið þær undan glasi.
Leggið tómatsneið á hveija,
kryddið með salti, pipar, basilik-
um og oregano. Látið 2 ansjósur
í kross yfír hveija „pizzu“ og
dreifið vænum skammti af rifnum,
sterkum osti yfir. Óðalsostur er
góður. Setjið í 225o heitan ofn í
4-5 mínútur, eða þar tii osturinn
er vel bráðnaður. Borið fram
strax.
Fylltir tómatar - Fyrir 4
4 meðal-stórir tómatar
salt
125 gr litlar grænar baunir
1 dl sýrður ijómi
2 tsk. fersk pipariót
(pepparrot - fæst í SS, Glæsibæ)
Skerið lok af tómötunum og
skafið kjötið úr með teskeið. Salt-
ið innaní og hvolið á blað úr
eldhúsrúllu. Hrærið sýrða ijóm-
ann með piparrótinni og bætið
baununum saman við. Jafnið
blöndunni í tómatana. Látið
standa á kvöldum stað þar til
borið er fram. Sérlega gott með
soðnum laxi.