Morgunblaðið - 26.07.1986, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986
47
«11
• Anton Hermannsson markvöröur Selfoss var ávallt réttur maður á réttum stað f leiknum gagn Vfldngum
í gærkvöldi.
2. deild:
Sanngjarnt jaf ntef li
í Laugardalnum
— Hart
a foppnum
1. deild kvenna:
Valur
með fullt
hús
VALUR heldur sínu striki í 1.
deild kvenna. í gærkvöldi unnu
Valsstúlkurnar ÍBK á mölinni
í Keflavík 6:0 og voru yfir-
burðir Vals algjörir.
Ingibjörg Jonsdóttir skoraði
fyrsta markið í upphafi leiks
beint úr hornspyrnu og Kristín
Arnþórsdóttir bætti við tveimur
mörkum fyrir Val um miðjan
hálfleikinn og þannig var stað-
an í hálfleik.
Valur hélt áfram að sækja í
seinni hálfleik, en ÍBK átti bit-
iausar sóknir inn á milli. Þeirra
hættulegasta marktækifæri
var, þegar Inga Birna Hákonar-
dóttir tók aukaspyrnu rétt fyrir
utan vítateig á 60. mínútu, en
Erna Lúðvíksdóttir, markvörður
Vals, varði mjög vel.
Valsstúlkurnar skoruöu 3
mörk á síðustu 10 mínútunum.
Fyrst skoraði Ingibjörg tvö
mörk, og Kristín skoraði síðasta
mark leiksins.
Yfirburðir Vals voru miklir og
líklegt er að stúlkurnar vinni
mótið með fullu húsi stiga. Ingi-
björg og Kristín áttu góðan leik,
en allt Valsliðið var sterkt.
Hjá ÍBK voru bestar Guðný
Magnúsdóttir, Helga og Katrín
Eiríksdætur og Inga Birna Há-
konardóttir.
KMJ
Bláskóga-
skokk um
helgina
HIÐ árlega Bláskógaskokk á
vegum HSK fer fram nk.
sunnudag (27.7.) og hefst kl.
15. Auk hinnar hefðbundnu
leiðar milli Gjábakká og Laug-
arvatns verður nú boðið upp
á styttri leið (5,3 km) fyrir ungl-
inga 16 ára og yngri, og eins
þá sem vilja skokka, en
treysta sér ekki lengrí leiðina.
Skráning fer fram við Gjá-
bakka samdægurs milli kl.
14.20 og 14.40. Þátttökugjald
er 100 kr.
Samveldis-
leikarnir
KEPPNI á Samveldisleikunum
i Edinborg hófst f gær og verð-
ur fram haldið út næstu viku.
Þetta er í 13. skipti sem leik-
arnir eru haldnir og að þessu
sinni @ru á annað þúsund kepp-
endur frá 27 þjóðum, en 31
þjóð hætti við þátttöku.
Keppt er í ýmsum greinum,
en í gær bar afrek Victors Dav-
is frá Kanada hæst, en hann
synti 100 m bringusund á
1:02,56 mínútu, sem er Sam-
veldisleikjamet og besti tími á
þessari vegalengd, sem náðst
hefur í heiminum í ár.
VÍKINGUR og Selfoss gerðu 1:1-
jafntefli á Valbjarnarvelli í gær-
kvöldi að viðstöddum 500 áhorf-
endum og voru bæði mörkin gerð
í seinni hálfleik. Mikið var f húfi
fyrir bæði liðin og bar leikurinn
þess greinilega merki. Baráttan
var mest á miðjunni, varnarmenn
beggja liða hleyptu andstæðing-
unum helst ekki framhjá sér og
markverðimir gripu vel inn í þeg-
ar á þurfti að halda.
Fyrri háifleikur var frekar
tíðindalaus, mikið var um langar
og ónákvæmar sendingar og leik-
menn náðu ekki að skapa sér góð
marktækifæri. Víkingar voru
ákveðnari og sóknir þeirra beitt-
ari, en Selfyssingar vörðust vel.
Elías Guðmundsson skoraði úr
vítaspyrnu 1:0 fyrir Víking á 56.
mínútu. Vtkingar sóttu upp vinstri
kantinn, sending kom út í vítateig-
inn þar sem Elías kom aðvífandi
og skaut hörkuskoti að marki, en
knötturinn fór í hönd varnarmanns
og réttilega dæmd vítaspyrna.
Víkingar drógu sig frekar aftur
eftir markið og ætluðu greinilega
að hanga á þessu eina marki, en
við það urðu sóknir Selfyssinga
beittari. Tómas Pálsson fékk kjörið
tækifæri til að jafna leikinn á 68.
mínútu, þegar hann fékk stungu-
sendingu inn fyrir vörn Víkings, en
Kristinn Arnarson, markvörður,
bjargaði skoti hans glæsilega í
horn.
Tómasi brást ekki bogalistin 8
mínútum síðar. Þá fékk hann góða
sendingu frá Páli Guðmundssyni
og í þetta skiptið lyfti Tómas yfir
Loks tap
hjá Aftur-
eldingu
Hveragerði kom mjög á óvart
í B-riðli 4. deildarinnar f knatt-
spymu f gærkvöldi er liðið batt
enda á sigurgöngu Aftureldingar.
Leik liðanna lyktaði með sigri
heimamanna.
Það var Kristján Theodórsson
sem skoraði bæði mörk leiksins í
sitthvorum hálfleiknum. Þrátt fyrir
sigur heimamanna er Afturelding
þegar öruggt í úrslitakeppni 4.
deildarinnar.
Kristinn, sem kom út á móti, og
jafnaði leikinn 1:1.
Skömmu síðar komst Páll í gott
færi við Víkingsmarkið, en skot
hans fór í varnarmann og í horn.
Rétt á eftir skapaðist mikil hætta
við mark Selfoss þegar Elías gaf
fyrir markið, en Halldór Gíslason,
sem var nýkominn inn á sem vara-
maður, hitti knöttinn illa í opnu
færi og skaut framhjá.
Mörkin urðu ekki fleiri og verða
úrslitin aö teljast sanngjörn. Sei-
foss er enn í 2. sæti, en Víkingur
í 4. sæti eftir leikinn.
í liði Vikings stóð Kristinn sig
vel í markinu, Björn Bjartmarz var
sterkur í vörninni og spilið var f
kringum Elías Guðmundsson, Ein-
ar Einarsson og Andra Marteins-
son.
Anton Hermannsson var góður
í marki Selfoss, Daníel Gunnars-
VÖLSUNGUR náði að leggja topp-
lið KA í 2. deild að velli í
skemmtilegum og fjörugum leik
er liðin mættust á Húsavík í gær-
kvöldi. Það var Kristján Olgeirs-
son sem skoraði eina mark
leiksins þegar tíu mfnútur voru
til leiksloka og tryggði Völsungi
þar með sigurinn.
KA hafði mikla yfirburði í fyrri
hálfleik og það var einungis stór-
kostleg markvarsla Þorfinns
Hjaltasonar sem hélt heimamönn-
um á floti. Hann bjargaði þrívegis
snilldarlega í hálfleiknum. Á 10.
mínútu varði hann skalla frá Erlingi
Kristjánssyni og tíu mínútum síðar
þrumuskot Haraldar Haraldsson-
ar. Á 33. mínútu munaði minnstu
að KA næði forystunni er Tryggvi
Gunnarsson komst í upplagt mark-
tækifæri en Þorfinnur varði fast
skot hans af stuttu færi á hreint
ótrúlegan hátt. Fimm mínútum fyr-
ir leikhlé björguðu Völsungar á línu
eftir skalla Erlings Kristjánssonar
og það voru fegnir heimamenn
son var sem klettur í vörninni og
Gylfi Sigurjónsson og Páll Guð-
mundsson voru einnig góðir.
SG
Hola í
hoggi
LEIFUR Ársælsson fór holu í
höggi f forgjafarkeppni Golf-
klúbbs Vestmannaeyja f
vikunni.
Leifur, sem er einn af elstu
og reyndustu golfurum í Eyjum,
vann afrekið á 2. braut í grenj-
andi rigningu og þoku. Þetta
er í annað skiptið, sem hann
fer holu í höggi.
sem gengu til búningsherbergj-
anna í leikhléi.
Völsungar komu meira inn í leik-
inn í síðari hálfleiknum en án þess
þó að skapa sér marktækifæri.
Flest leit út fyrir markalaust jafn-
tefli þegar tíu mínútur voru til
leiksloka. Þá fengu Völsungar eina
færi sitt í leiknum. Birgir Skúlason
skailaði trá markinu eftir horn-
spyrnu. Birgir náði boltanum aftur,
vann einvígi og lék að miðlínu þar
sem hann gaf langa sendingu yfir
á hinn kantinn þar sem Kristján
Olgeirsson kom aðvífandi og skaut
föstu skoti í markhornið.
Liö KA lék mjög skemmtilega
knattspyrnu, sérstaklega í fyrri
hálfleiknum. Friðfinnur Hermanns-
son bakvörður og Erlingur Krist-
jánsson voru báðir mjög traustir í
vörninni.
Þorfinnur Hjaltason stóð upp
úr í liði Húsvtkinga. Hann átti frá-
bæran dag. Þá stóðu Sigurgeir
Stefánsson, Sveinn Freysson og
Birgir Skúlason einnig fyrir sínu.
— Fréttaritari.
2. deild:
Þorfinnur var
hetja Völsungs
- sem lagði topplið KA í 2. deild 1 —0
SACHS
Högg
deyfar
V-þýsk
g æðavara
pgyNStÁ
pjÓN'
USTA
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
SÍMI 84670 ^