Morgunblaðið - 26.07.1986, Síða 48
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Þórir Oddsson rann-
sóknarlögreglustjóri:
Hafskips-
rannsókn-
in verður
í biðstöðu
í ágúst
Ástæður sumarleyf i
rannsóknarlög-
reglumanna. Stefnt
að því að ljúka rann-
sókn í september
ÞÓRIR Oddsson settur rann-
sóknarlögTeglustjóri ríkisins
telur að rannsókn Hafskips-
málsins ljúki ekki fyrr en í
septembermánuði. Hann seg-
ir höfuðástæðu þess að
rannsóknin dregst á langinn
þá að þeir rannsóknarlög-
relgumenn sem einkum hafa
unnið að rannsókn þessa
máls, muni að mestu leyti
, verða í sumarfríum í ágúst-
mánuði.
„Ég geri ráð fyrir að rannsókn
Hafskipsmálsins verði að mestu
leyti í biðstöðu í ágústmánuði,"
sagði Þórir Oddsson í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Ástæður
þessa eru þær að þeir sem unnið
hafa að rannsókn málsins eru nú
að fara í sumarfrí, og það liggur
ljóst fyrir að rannsókninni verður
ekki lokið áður en þeir fara í frí,“
sagði Þórir.
Þórir sagði að rannsókninni yrði
haldið áfram í ágústmánuði, en
af minna krafti en hingað til, þar
sem þrír fjögurra rannsóknar-
manna væru þegar famir í
sumarfrí. Sá fjórði færi nú um
helgina í frí, en eftir helgi kæmi
einn rannsóknarlögreglumann-
anna til baka úr fríi.
„Það er ákveðinn þáttur rann-
sóknarinnar sem við látum bíða
þar til ágústmánuði er lokið, enda
vantar okkur talsvert af gögnum
til þess að hægt sé að rannsaka
þann þátt til hlítar," sagði Þórir.
Þórir sagði að rannsóknin yrði
aftur á fullum hraða í september-
mánuði, „enda miðum við við að
skila af okkur þessari rannsókn í
september," sagði Þórir.
Unnið að lagningu strengsins skammt frá Ölfusborgum.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Ljósleiðarastrengnr lagður til Hvolsvallar
VINNUFLOKKUR á vegum
Pósts og síma er um þessar
mundir að leggja ljósleiðara-
streng á milli Reykjavíkur og
Hvolsvallar. Verkið hófst
mánudaginn 14. júlí og var
stefnt að því að vera á Sel-
fossi á laugardeginum.
Við verkið er notaður sérstak-
lega hannaður plógur, sem
leggur strenginn ofan í jarðveg-
inn um leið og plægt er. Að sögn
Alexanders Guðmundssonar
verkstjóra hjá Pósti og síma hafa
aðeins átta dagar farið í plæg-
ingu á leiðinni frá Geithálsi að
Hveragerði, en hins vegar fór
mestur tími í lagningu strengsins
í Hveragerði.
Á hverju kefli, sem vegur þrjú
tonn, er sex kílómetra strengur
og hafa rúmlega fimm kefli farið
í verkið fram að þessu.
Verkið hefur gengið áfalla-
laust fram að þessu samkvæmt
áætlun, en samkvæmt henni er
ætlað að um 24-25 dagar fari í
að leggja strenginn.
Hvalveiðum frestað gegn því að ekkert verði af viðskiptabanni Bandaríkjanna:
Stefnt aðþví að leysa
málið fynr 20. ágúst
RÍKISSTJÓRNIR íslands og Bandaríkjanna hjuggu í gærdag á þann
hnút sem kominn var á samskipti landanna vegna hvalveiða íslend-
inga í vísindaskyni. Steirgrímur Hermannsson forsætisráðherra og
Matthías Á. Mathiesen utanríkisráðherra kölluðu James Connelly,
sendifulltrúa Bandaríkjanna á íslandi, á fund sinn skömmu eftir
hádegi í gær og lögðu fyrir hann hugmynd um bráðabirgðalausn á
hvalveiðimálinu til að bera fyrir Bandaríkjastjórn.
Hétu þeir að beita sér fyrir því
að Hvalur hf. hætti hvalveiðum í
bili frá og með næstkomandi mánu-
degi, gegn því að bandaríska
viðskiptaráðuneytið léti ekki verða
af því að leggja fyrir forseta Banda-
ríkjanna beiðni um viðskiptabann
gagnvart íslandi. Tímann þar til
^Tannlæknar o g Tryggingastofnun:
Samningaviðræður
að sierla í strand?
SVO VIRÐIST sem samningaviðræður Tryggingastofnunar ríkisins
og Tannlæknafélags íslands séu að sigla í strand. Samkvæmt heimild-
um Morgfunblaðsins mun ástæðan vera sú að tannlæknar telja sig
ekki geta samþykkt ákveðna liði í nýrri gjaldskrá, sem Tryggingastofn-
unin hefur lagt fram.
Tryggingastofnunin sagði upp
samningum við tannlækna fyrir
nokkrum árum vegna ágreinings um
frágang kvittana. Síðan hefur verið
unnið slitrótt að gerð nýs samnings,
sem felur í sér gjörbyltingu á gjald-
skrá tannlækna og sundurliðun
hennar. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins mun ágreiningurinn
nú einkum vera um aukinn kostnað
við rekstur tannlæknastofa, það er
ágreiningur um hversu mikið sá
kostnaður hafi aukist.
Birgir J. Jóhannsson, formaður
Tannlæknafélags íslands, kvaðst
ekkert vilja segja um málið á þessu
stigi annað en að sér virtist samn-
ingaviðræður hafa farið út um þúfur,
í bili að minnsta kosti. Hann sagði
að stjórn Tannlæknafélagsins myndi
funda um málið á mánudag. Ekki
náðist í Helga V. Jónsson, formann
samninganefndar Tryggingastofn-
unar ríkisins, í gær.
hvalveiðar Hvals hf. hæfust aftur
skyldu fulltrúar stjómanna nota til
að fínna lausn á þessu deilumáli.
Connelly bar boðin á milli og lá
svar Bandaríkjastjómar fyrir um
klukkan 14.30. Það var jákvætt.
Ákvörðun um þessa lausn á mál-
inu var tekin eftir fund ráðherranna
með utanríkismálanefnd Alþingis
og fulltrúum stjómarandstöðunnar
í gæmiorgun. Að sögn Eyjólfs Kon-
ráðs Jónssonar formanns utanríkis-
málanefndar var fullkomin
samstaða um það á fundinum að
láta reyna á þessa lausn málsins.
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi að ákveð-
ið hefði verið að fara þessa leið að
því tilskildu að Kristján Loftsson
forstjóri Hvals hf. teldi sig geta flýtt
sumarleyfístíma starfsfólks síns, og
þannig hætt hvalveiðum um stund-
arsakir. „Kristján taldi sig geta það
og því gerðum við Matthías Á.
Mathiesen boð eftir sendifulltrúa
Bandaríkjanna til að bera á milli
þessa tillögu," sagði Steingrímur.
Kristján Loftsson sagði í gær-
kvöldi að hann hefði fallist á að
flýta fyrirhuguðum sumarleyfum,
sem áttu að hefjast 10. ágúst. „Þess
í stað hættum við veiðum á sunnu-
dagskvöld og vinnslu eitthvað síðar.
Svo reiknum við með að hefja veið-
ar aftur þann 20. ágúst,“ sagði
Kristján. Hann sagði að framundan
væru viðræður við stjómvöld í
Bandaríkjunum um hvalveiðamar,
„og þar sem þarlend stjómvöld
leggja ofurkapp á að hvalur verði
ekki veiddur meðan á þeim viðræð-
um stendur féllumst við á að taka
sumarleyfin snemma," sagði hann.
Hvalur hf. hafði í gær veitt 59
langreyðar af 80, sem fyrirhugað
er að veiða, og 16 sandreyðar af
40. Kristján taldi enga ástæðu til
að ætla annað en að Japanir væm
áfram tilbúnir til að kaupa hval-
kjöt, hvað svo sem yrði eftir þrjár
vikur.
Steingrímur Hermannsson sagði
aðspurður að hann teldi sig eða
ríkisstjómina ekki hafa breytt um
stefnu í þessu máli. Steingrímur
hafði áður lýst því opinberlega yfir
að hann myndi ekki líða þessa af-
skiptasemi bandarískra stjómvalda
af hvalveiðum Islendinga og hann
myndi leggja til að ríkisstjórnin
svaraði engu hótunum hennar um
viðskiptabann næstkomandi mánu-
dag. „Ég lít ekki svo á að um
stefnubreytingu sé að ræða. Ríkis-
stjómin hefur ekki sent frá sér
neinn boðskap um málið. Það var
ákveðið að hittast ekki fyrr en á
ríkisstjómarfundi á þriðjudag, þeg-
ar Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra er aftur kominn til
starfa, og þá fyrst verður farið að
undirbúa viðræður við Bandaríkja-
stjóm," sagði hann.