Morgunblaðið - 20.09.1986, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1986
Aukin samkeppni á sviái útvarps og sjónvarps
Starfsmenn sjónvarpsins héldu fund siðdegis í gær þar sem tilkynnt var um fyrirhugaðar breytingar
og rætt um þá samkeppni sem framundan er á sjónvarpsmarkaðinum.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi i g»r: Skammt út af Vestfjörðum er 997 milli-
bara lægð sem þokast í noröaustur og grynnist, en um 600 km
suðsuðaustur af Hvarfi er 992 millibara kröpp lægð sem fer allhratt
í nqrðaustur.
SPÁ: Fremur hæg suðaustanátt á suður- og austurlandi en nánast
logn i öðrum landshlutum. Skýjað verður sunnan- og austanlands
en víðast annars staðar léttskýjað.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
SUNNUDAGUR: Fremur hæg suðvestanátt, smá skúrir sunnan-
og vestanlands en að mestu úrkomulaust annars staðar.
Hiti 7—9 stig.
MÁNUDAGUR: Vestan og norðvestanátt, líklega ekki mjög hvöss,
viða skúrir vestan- og norðanlands en þurrt á suðaustur- og aust-
urlandi. Hiti 6—10 stig.
TÁKN:
O
Heiðskírt
•ö
■ö
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýja*
Alskýjað
a Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V E'
E= Þoka
= Þokumóða
’ , » Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
|~^ Þrumuveður
VEÐURVÍÐA UMHEIM
kl. 12.00 ígær að ísl. tíma
hhl veóur
Akureyri 1Ó skýjaó
Reykjavik 10 þokumóóa
Bergen 10 alskýjað
Helsinki 10 skýjað
Kaupmannah. 13 skýjað
Narssarssuaq 4 léttskýjað
Nuuk 4 skýjað
Osló 15 skýjað
Stokkhólmur 15 skýjað
Þórshöfn 11 rigning
Algarve 24 skýjað
Amsterdam 14 hálfskýjað
Aþena vantar
Barcelona 24 skýjað
Berlfn 14 skýjað
Chicago 17 þokumóða
Glasgow 12 skýjað
Feneyjar 20 alskýjað
Frankfurt 15 hilfskýjað
Hamborg 12 skýjað
Jan Mayen 6 súld
Las Palmas vantar
London 15 skýjað
Los Angeles 16 skýjað
Lúxemborg 13 léttskýjað
Madrfd 24 skýjað
Malaga 27 skýjað
Mallorca 32 léttskýjað
Miami 26 léttskýjað
Montreal 14 alskýjað
Nice 26 skýjað
NewYork 17 alskýjað
Parfs 15 skýjað
Róm 27 hálfskýjað
Vín 14 léttskýjað
Washington 18 þokumóða
Winnipeg 3 alskýjað
Aðalfréttatími Sjónvarps færist
fram um hálftíma:
„Viðbrögð Ríkisút-
varpsins við auk-
inni samkeppni“
— segir Markús Á. Einarsson varaformaður útvarpsráðs
Á FUNDI útvarpsráðs í gær
var ákveðið að færa aðal-
fréttatíma Sjónvarpsins fram
um hálftíma og hefst hann
þá kl. 19.30 frá og með nk.
mánaðamótum.
Þá samþykkti útvarpsráð drög
að nýjum ramma fyrir Sjón-
varpið sem miðar að því að það
hefjist samfelld dagskrá kl.
18.00 í stað 20.00 eins og verið
hefur til þessa. Dagskráin hefst
með fréttaágripi á táknmáli laust
fyrir kl. 18.00. Síðan hefst út-
sending með bamaefni og verður
dagskrá send út samfellt til kl.
23.00. Kl. 19.00 verður létt efni
við hæfí allrar fjölskyldunnar
fram að fréttum kl. 19.30. Á
eftir fréttum verða léttir mynda-
flokkar eða stakt innlent efni í
dagskrá. Fram að vetrarbyijun
em ekki aðrar verulegar breyt-
ingar frá ramma sumardag-
skrárinnar. Þó bætist við á
mánudagskvöldum kl. 20.10
léttur myndaflokkur og íþrótta-
þáttur mánudags flyst til
sunnudags kl. 19.00. Vetrardag-
skrá hefst síðan 25. október.
Ramminn verður svipaður þá
nema útsending hefst fyrr um
helgar eða kl. 16.00. Innlent
efni mun þá aukast vemlega.
Á fundi með blaðamönnum í
gær sagði Markús Öm Antons-
son útvarpsstjóri að umræður
hefðu verið í gangi um alllangt
skeið innan stofnunarinnar um
breytingar á tilhögun dagskrár-
innar. „Þessar breytingar þýða
ekki vemlega lengingu á útsend-
ingartíma, heldur er gert ráð
fyrir markvissari tímamörkum
en verið hefur á dagskránni til
þessa.“ Þá er í ráði að gera
meira úr seinni fréttatíma Sjón-
varpsins og hafa hann í dag-
skránni fyrr en verið hefur, eða
laust eftir 22.00.
Markús Á. Einarsson, vara-
formaður utvarpsráðs, sagði í
samtali við Morgunblaðið að til-
færsla aðalfréttatímans væri
m.a. viðbrögð Ríkisútvarpsins
við aukinni samkeppni og eins
hefði verið þiýstingur á að
bamaefni yrði fært fram. „Ég
vona að samkeppni verði bæði
Ríkisútvarpinu og einkafram-
takinu til góða og að allt þetta
geti fallið í góðan jarðveg sem
fyrst og fremst verði hlustendum
til góða,“ sagði Markús.
Á virkum dögum kl. 19.00
verður á dagskrá Sjónvarps létt
fjölskylduefni fram að fréttum.
Á mánudögum eftir fréttir verð-
ur léttur erlendur myndaflokkur
á dagskrá, þá Poppkom og loks
leikrit - 50 til 120 mínútur. Á
þriðjudögum eftir fréttir verður
sakamálamyndaflokkur í Sjón-
varpinu, þá heimildamynda-
flokkur, fréttir og Kastljós. Á
miðvikudagskvöldum verður
leikinn erlendur myndaflokkur á
dagskrá, þá stakir innlendir
þættir og Nýjasta tækni og
vísindi, þá fréttir og erlent eða
innlent efni af ýmsu tagi. Ekk-
ert sjónvarp verður á fimmtu-
dögum, en eftir fréttir á
föstudögum er fyrirhugaður
sakamálamyndaflokkur, þá inn-
lendur unglingaþáttur, Kastljós,
fréttir, Á döfínni og loks bíó-
mynd. Á laugardagskvöldum
verða Glettur eða Kvöldstund
með listamanni á dagskrá Sjón-
varps, þá erlendur gaman-
myndaflokkur, síðan stakir
innlendir eða erlendir þættir af
léttara taginu og bíómynd í iok
dagskrár. Eftir fréttir á sunnu-
dögum verður dagskrá næstu
viku kynnt, þá verða á dag-
skránni stakir innlendir þættir,
30 til 50 mínútur í senn og síðan
leikritamyndaflokkur, 50 til 90
mínútur. Eftir seinni fréttir á
sunnudagskvöldum verður ýmis-
legt erlent eða innlent efni.
Breytingar á svæðisútvarpinu frá 1. október;
Sent út sex daga
í viku kl. 18—19
ÞÆR breytingar á starfsemi svæðisútvarpsins á Akureyri
voru samþykktar á fundi útvarpsráðs í gær að í stað þess
að alla virka daga sé útvarpað frá kl. 17.00 tii kl. 18.30
verður útvarpað sex daga vikunnar frá kl. 18.00 til 19.00
og er það laugardagurinn sem bætist við.
Ema Indriðadóttir, deildar-
stjóri Ríkisútvarpsins á Akur-
eyri, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að efni
svæðisútvarpsins yrði í meginat-
riðum eins upp byggt, auglýs-
ingar, fréttir og rabbað við fólk
á svæðinu. „Sú breyting verður
hins vegar að í stað þess að
tveir menn sjái um svæðisút-
varpið á hveijum degi verður
einn umsjónarmaður með hvem
þátt, einu sinni til tvisvar í viku.“
Það verða Pálmi Matthíasson,
Finnur Magnús Gunnlaugsson,
Ema Indriðadóttir, Gísli Sigur-
geirsson og Inga Eydal sem
skipta því með sér að sjá um
þáttinn.
Eftir þessa breytingu geta
Norðlendingar hlustað á Rás 2
milli kl. 17.00 og 18.00 en hing-
að til hefur útsending svæðisút-
varpsins verið á sömu tíðni og
Norðlendingar því ekki heyrt í
Rásinni meðan svæðisútvarpið
hefur sent út.