Morgunblaðið - 20.09.1986, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 20.09.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1986 45 LJÓTT EF SATT ER Halldór Kristjánsson skrifar: í Lesbók Morgunblaðsins 13. september er sagt frá bók sem er nýlega komin út í Danmörku. Boð- skapur hennar er ætlaður til að hvetja menn til víndrykkju. Þar mun átt við hin léttari vín. Höfundur segir að með víninu einu getum við fúllnægt næringar- þörf okkar að einum áttunda hluta og „sjö áttundu af vellíðan okkar". Nú er það svo með okkur flest að þó ekki sé gott að vera svangur eða þyrstur þarf fieira en mat og drykk til þess að okkur líði vel. Venjulega teljum við nánast sjálf- gefíð að við höfum mat og drykk eftir þörfum. En okkur getur liðið illa fyrir því. Okkur líður ekki vel nema við séum sæmilega ánægð með okkur sjálf — höfum staðið okkur sæmilega að því er okkur fínnst, og þolanlega gangi hjá þeim sem við finnum einkum til með. Sé það rétt hjá þeim danska, að vínið fullnægi vellíðunarþörf manns að sjö áttundu, þá hlýtur það að vera af því að honum fatast dóm- greind og velsæmi svo að hann skeytir hvorki um skömm né heiður og lætur sig einu gilda um flest það sem siðuðu fólki er annt um. Þessi fullnæging, sem vínið veitir, er þá tilkomin vegna þess að maðurinn færist á það stig sem kennt er við skepnuskap og tapar mannlegu stolti og heilbrigðum metnaði. Hafí hann fengið að drekka er vellíðun- arþörf hans fullnægt að sjö áttundu hlutum. Hér skal enginn dómur lagður á réttmæti þessara dönsku ummæla en aðeins vitnað til alkunnra um- mæla. Ljótt ef satt er. Það er ekki til fyrirmyndar þegar bílstjórar, sem keyrt hafa yfir ketti, aka á brott án þess að láta eigendur dýranna vita um afdrif þeirra Ingibjörg vill þakka bílstjóra sem lét vita. Takk fyrir að láta vita hvað kom fyrir kisa Ingibjörg Kristjánsdóttir hafði samband: Kötturinn okkar, fímm mánaða gamall, vai-ð fyrir bíl á Miklubraut- inni aðfaranótt miðvikudagsins 17. september. Sá sem varð fýrir því óhappi að keyra á hann sýndi þá hugulsemi að leggja hann á tröpp- urnar okkar. Ég vil koma á framfæri þakk- læti til viðkomandi bílstjóra fyrir að gera það og láta okkur þannig vita að kisi væri dáinn. Ef fleiri tækju sér þetta til fyrirmyndar mundi það spara mörgum fjölskyld- um margra daga leit að týndum kisum, því oft hafa þær orðið fyrir bílum og bílstjórarnir ekki hirt um að láta fólk vita. Það er illa gert. Ég hef tvívegis orðið fyrir því og þá er ég að sjálfsögðu að tala um merkta ketti. Takið ykkur þennan bílstjóra til fyrirmyndar því okkur, sem eigum kisur, finnst miklu betra að vita strax hvað komið hefur fyrir dýrið en að þurfa að leita og vona að óþörfu í marga daga. Þessir hringdu . . . Hver fann upp orðið starfskraftur? Guðrún K. hringdi: Er einhver sem getur sagt mér hver það var sem fann upp orðið „starfskraftur"? Ef svo er, er hann vinsamlegast beðinn að hafa sam- band við Velvakanda. Birtið vinnings- númerin í happdrætti Samtakaum byggingu tón- listarhúss Hanna Sigurðardóttir hringdi: Ég hafði samband fyrr í sumar og og bað um símanúmer þar, sem hægt væri að fá uppgefin vinn- ingsnúmer í happdrætti samtaka um byggingu tónlistarhúss. Mér var svarað og ég fékk uppgefið símanúmer. Gallinn er bara sá að það svarar aldrei í þessu númeri. Væri ekki mögulegt að þeir birtu vinningsnúmerin í ijölmiðlum? Miðinn rennur út 12. október 1986 og því ekki langur tími til stefnu. Takk fyrir að brjóta ekki rúð- urnar í bílnum Friðleifur Kristjánsson hringdi: Ég vildi þakka þeim einstakl- ingum, sem hentu hjóli upp á bílinn minn eina nóttina í síðustu viku, fyrir að bijóta ekki rúðum- ar, láta útvarpsloftnetið vera og að bíllinn er á fjórum dekkjum ennþá. Grárri Toyota- bifreið stolið Guðrún Kristjánsdóttir hringdi: Grárri Toyota Corolla Mark II bifreið, árgerð 1974 með skrá- setningamúmerinu R-28843, var stolið á bílastæði á homi Vestur- götu og Bakkastígs aðfaranótt sunnudags. Ef einhver hefur orðið bílsins var er hann vinsamlegast beðinn að hafa samband við Guð- rúnu í síma 84827, Oddrúnu Elfu, s. 10404, eða lögregluna. Greiðabílstjórar verða að hafa meirapróf Unnur Svava hringdi: Talsvert hefur verið skrifað um greiðabíla og farþegaflutninga þeirra. Það er þó eitt sem oft vill gleymast í umræðunni, nefnilega að bílstjórar þessara bíla verða að hafa meirapróf til að geta feng- ið að stunda farþegaflutninga gegn gjaldtöku. Þessir menn em að fara illilega inn á starfssvið annarra og stela frá þeim lifí- brauðinu. Leigubílstjórar hafa það ekki svo gott að þeir þoli það að hver sem er ryðjist inn á þeirra starfssvið og taki frá þeim vinn- una. Mikið til af gjör- samlega óhæfu afgreiðslufólki Erna Halldórsdóttir skrifar: Ég þurfti að fara í matvöm- verslunina Sunnukjör í Hlíðunum nú fyrir skömmu. Ég verð nú að segja eins og er, að mér blöskraði alveg þjónustan sem ég fékk þar. Það var bara ein stúlka að af- greiða og hún var önnum kafin við að tala við vinkonu sína. Ég tók mér þó körfu og fór að velja í matinn. Þegar ég þurfti að spyija hana að einhveiju mátti hún ekki vera að því að svara mér og þegar ég kom með körf- una að afgreiðsluborðinu rétt leit hún á mig en hélt síðan áfram að tala við vinkonuna. Það var ekki fyrr en sú hin sama kvaddi að byijað var að afgreiða mig. Ég hef líka fengið lélega þjón- ustu í Miklagarði við Sund. Þegar ég fór í fisksöluna þar um daginn og sagðist ætla að fá 300 grömm af físki spurði afgreiðslustúlkan mig hvort ég ætlaði að fá 300 grömm eða fyrir 300 krónur. Ég endurtók að ég vildi fá 300 grömm og hún byijaði að skófla í ílát og tók síðan annað stærra sem hún hellti í. Þá fyrst sá ég að þegar var komið miklu meira en 300 grömm og sagði henni að hafa það ekki meira. Stúlkan var þá búin að vigta 700 grömm. Ég var hreint'ekki ánægð þótt ég gerði ekkert veður út af þessu þá. Það er annars merkilegt hvað það er til mikið af gjörsamlega óhæfu afgreiðslufólki. i/2 s vínkt Napoleon Minni fita Betra eldi Lægra verð gæðí 235 kr. kg. Tilbúið í kistuna. KJOTMIÐSTOÐIN Sími 686511 Norrænn styrkur til bókmennta nágrannalandanna Önnurúthlutun norrænu ráðherranefndarinnar(mennta- og menningarmálaráðherrarnir) 1986 — á styrkjum til út- gáfu á norrænum bókmenntum í þýðingu á Norðurlöndun- um — fer fram í nóvember. Frestur til að skila umsóknum er: 1. október 1986. Eyðublöð ásamt leiðbeiningum fást hjá Menntamálaráðu- neytinu í Reykjavík. Umsóknir sendist til: Nordlsk Ministerrád Sekretariatet Store Strandstræde 18 1255 Kebenhavn K Danmark Sími: DK 01 -11 47 11 og þar má einnig fá allar nánari upplýsingar. Eigum eftirfarandi tegundir krana fyrir- liggjandi: HMF: A 50 - A 60 - A 80 - A 90 HIAB: 550 - 950 - 1165 LYKA: 9 t/m — 10 t/m — 11 t/m — 12 t/m SKB: 6 t/m — 7 t/m — 9 t/m — 12 t/m og fjölmargar aðrar tegundir Eigum eftirfarandi vökvalyftur: HMF og Z-lyftu ásamt Nummi 1000— 1500 kg STAALING Sími: 0045 6 625300 — 0045 6 638277 Telex: 66 264 Exdyt DK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.