Morgunblaðið - 20.09.1986, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.09.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1986 19 Islensk þátttaka í norrænum menningar- dögum í Diisseldorf íslensk þátttaka í norrænum menningar- dögum í Dusseldorf Norrænir menningardagar standa nú yfir í Dusseldorf í Þýskalandi og eru nokkrir íslendingar þar meðal þátttakenda. Koma þeir fram sem fulltrúar nokkurra listgreina, m.a. tónlistar og bókmennta. Borgaryfirvöld í Dusseldorf hafa skipulagt svokallaða “Nordische Wochen" og standa straum af kostnaði við heimsókn listamanna frá Norðurlöndunum ásamt stofnunum í hinum einstöku löndum. stundum að komast upp með að halda að þeir séu okkur æðri,“ sagði Bafé. „Ritari þarf fyrst og fremst að hafa mikla aðlögunarhæfni og ég held að yfírmaðurinn leiti mikið eftir því, þegar ritari er ráðinn. Hún verður einnig að geta axlað þá ábyrgð, sem hann felur henni og gæta þess sífellt að fyrirtækið komi vel fyrir út á við. Hún er jafn mik- ið andlit fyrirtækisins eins og yfírmaðurinn." „í EAPS erum við að beijast fyrir aukinni viðurkenningu á störf- um okkar og reynum því að fremsta megni að efla veg EAPS. Það er svo mikils krafist af riturum að starfíð ætti að njóta meiri virðingar ogbetri launa. Við þurfum að kunna á bæði viðskiptavinina, yfirmenn- ina, við þurfum að kunna nokkur tungumál, við þurfum að kunna að koma vel fyrir okkur orði, í viðbót við annað sem fylgir hefðibundnu ritarastarfí. Þetta lærir enginn á einu ári. Til að vera allt þetta þarf margra ára reynslu," sagði Helen Bafé. Samtök ritara einnig mikilvæg fyrir yfir- mennina Margaretha Didrichsen, út- breiðslustjóri EAPS og fulltrúi samtakanna í Svíþjóð, sagði að starfsemi þeirra kæmi sér ekki ein- ungis vel fyrir ritarana, heldur einnig fyrir yfirmennina. „Það kemur oft fyrir að forstjór- inn þarf að ná í yfirmann fyrirtækis einhvers staðar í Evrópu, en hefur ekki tök á því að ná í hann beint. Þá kemur sér vel fyrir hann að hafa ritara sem þekkir kollega sína hjá viðkomandi fyrirtæki og getur náð sambandi við yfirmanninn á augabragði," sagði Didrichsen og bætti því við að yfirmaður hennar kallaði gjarnan EAPS samtökin í gríni „alþjóðlegu mafíuna," þar sem tengslin á milli ritaranna í EAPS eru mjög sterk. Didrichsen vinnur hjá Sambandi sænskra iðnrekenda og sagði hún að yfirmaðurinn sinn væri ákaflega samvinnuþýður hvað varðaði þátt- töku hennar í starfsemi EAPS. „Það er þekkt staðreynd að kon- ur njóta ekki jafnréttis á við karla í launamálum og er starf ritara undirborgað, sem önnur kvenna- störf. Við erum að beijast fyrir því að störf okkar séu metin að verð- leikum og við gerum það í gegnum þessi sámtök, en beitum ekki tækni verkalýðsfélaga. Ef okkur tekst að auka veg starfsstéttarinnar, þá munu launin einnig batna.“ Allir kannast við ímynd einkarit- arans, sem hefur alla merkisdaga á hreinu og sér um að kaupa gjafir handa eiginkonu forstjórans, þegar hann gleymir afmælisdegi hennar. Allar konurnar á ráðstefnunni, sem Morgunblaðið ræddi við, voru sam- mála um að slíkir einkaritarar væru enn til, en með næstu kynslóð yrðu þess háttar aukastörf úr sögunni. „Það ætti að lumbra á ritara sem lætur bjóða sér slíkt,“ sagði Marg- aretha hlægjandi. „Það eru vissu- lega ennþá sumir ritarar sem láta það viðgangast að hella upp á te- bolla fyrir yfirmanninn og sjá um persónulega hluti fyrir hann,“ sagði hún, „en á næstu árum verða slíkir einkaþjónar yfirmanna úr sögunni." Mikil framför á undanf- örnum árum Eyvor Bohm er sænsk að uppr- una, en hefur undanfarin fimm ár rekið fyrirtæki í London. Hún byrj- aði feril sinn sem einkaritari, en hefur sl. 18 verið framkvæmdar- stjóri ráðgjafafyrirtækis. Hún hefur rekið skóla fyrir einkaritara og haldið nokkur námskeið fyrir einka- ritara hér á vegum Stjórnunarfé- lags Islands. „Við hvetjum ritara til að taka meiri þátt í starfsemi fyrirtækisins og reynum að efla sjálfstraust þeirra. Ritari á að taka meiri þátt í stjórnun fyrirtækisins; hún á að hafa traust yfirmannsins jafnt við aðra meðstjórnendur. Ef yfirmaður- inn gefir henni nógu greinargóðar upplýsingar um starfsemina, þá á hún að geta tekið ákvarðanir þegar mikið liggur við og yfirmaðurinn er ekki við. Þetta er eins og hvert annað samband milli samstarfsfólks - það þarf bæði að gefa og þiggja. Mér finnst hafa orðið mikil breyt- ing til batnaðar á undanförnum árum og ég hef t.d. orðið vitni að miklum framförum hér á Islandi," sagði Bohm. Hún sagði að þótt enginn karl- maður væri meðlimur í EAPS, þá hefðu nokkrir sótt einkaritararná- mskeiðin hennar í gegnum árin. „Yfirmenn tveggja þeirra voru líka konur, svo þetta er kannski allt að breytast," sagði Bohm. Ekki var mikið um karlmenn í Súlnasal Hótel Sögu á fimmtudags- kvöldið, en fyrir utan þjóna, ljós- myndara Morgunblaðsins og annan fréttamann, var samt einn karlmað- ur viðstaddur. Claudio Rubino er ítalskur og var hann til íslands kominn ásamt eiginkonu sinni, Dora Zacchetti, sem sat ráðstefnu EAPS. „Ég kom nú reyndar aðeins til að sjá landið, en ekki til að fylgjast með ráðstefnunni," viðurkenndi Claudio. „En ég verð að segja að þetta er þarft framtak ritaranna og þessar ráðstefnur eru mikilvæg- ar fyrir þær til að skiptast á skoðunum og reyna að efla stöðu sína,“ sagði Claudio. „En á morgun læðist ég í burtu og fer í skoðunar- ferð um Reykjavík," sagði hann að lokum. Ráðstefnan heldur áfram í dag, en þá fara fram pallborðsumræður og um kvöldið verður árlegt lokahóf EAPS haldið á Hótel Sögu. Ráð- stefnugestirnir halda svo flestir heim á sunnudag. Þrennir orgeltónleikar eru meðal annars á dagskrá menningarvi- kunnar og fara þeir allir fram í Neanderkirkjunni í miðborg Dus- seldorf. Annast þá orgelleikarar frá Danmörku, Noregi og frá íslandi Hörður Áskelsson organisti Hallgrí- mskirkju. Tónleikar hans verða miðvikudag 24. september. Hörður leikur verk eftir Pál ísólfsson, Jón Kópavogur: SKÁTAFÉLAGIÐ Kópar i Kópa- vogi hefur vetrarstarfið með innritun laugardaginn 20. sept- ember kl. 14—18. Innritað verður í Skátaheimilinu Borgarholtsbraut 7 í ljósálfa, ylf- inga- og skátastarf. Þrautabrautir verða á staðnum og boðið upp á kakó. Allir krakkar eru velkomnir til starfa. í vetur er áætlað að starfa á tveimur stöðum í bænum, Skátaheimilinu, Borgarholtsbraut 7 og kjallara bamaheimilisins Efsta- hjalla. (Fréitatilkynning) Nordal, Atla Heimi Sveinsson, Áskel Másson og J.S. Bach. Verk Páls er Introduetion og passacaglia í f-moll, sálmforleikir eru fluttir eftir Jón Nordal og Atla Heimi og verk Áskels Mássonar heitir Elegía. Eftir Bach spilar Hörður konsert í a-moll eftir Bach-Vivaldi, og G-dúr fantasíuna. Skátafélagið Kópar að hefja vetrarstarf / UTSALA Einstakt tilboð! Seljum útlitsgallaða skápa á stórlækkuðu verði. Komið að Smiðjuvegi 9 í Kópavogi og gerið hagstæð kaup. SÍÐASTI DAGUR Fataskáparnir frá AXIS henta allstaðar! K k ASKAFUM AXIS SMIÐJUVEGI 9, 200 KÓPAVOGI SÍMI 91 43500

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.