Morgunblaðið - 20.09.1986, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.09.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1986 27 Minning: Baldvin Magnússon málarameistari Útför föðurbróður míns, Baldvins Magnússonar, fór fram þann 15. september sl., en hann lést í Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 7. september, þá nýlega áttræður. Baldvin fæddist í Kringlu á Akra- nesi þann 29. júlí 1906. Foreldrar hans voru hjónin Oddrún Jónsdóttir og Magnús Guðjón Magnússon fyrr- um bóndi og síðar sjómaður á Akranesi. Baídvin var yngstur sex barna þerira hjóna. Tvö systkinanna létust í bernsku en þrír bræður, Júlíus, Magnús og Baldvin og syst- ir þeirra Jóhanna komust til fullorð- insára. Júlíus lést árið 1974 og Jóhanna lést fyrir tveimur árum. Magnús Oskar lifir nú einn þeirra systkinanna. í apríl árið 1912 drukknaði Magnús faðir þeirra þegar fiskiskip- ið Svanurinn sem hann var á lenti í ásiglingu við franska skonnortu, St. Yves frá Paimpol, í ofsaveðri og kafaldsbyl í Eyrarbakkabugt- inni. Tólf menn af Svaninum komust um borð í skonnortuna en 14 menn í áhöfninni fórust er Svan- urinn brotnaði og sökk. Tveimur árum síðar andaðist móðirin Oddrún á sóttarsæng. Vegna þessara þung- bæru örlaga tvístraðist systkina- hópurinn. Baldvin var þá aðeins átta ára þegar systir hans Jóhanna, sem sjálf var rétt af unglingsaldri, tók hann að sér. Skömmu síðar fluttust þau til Reykjavíkur. Var Baldvin hjá systur sinni næstu þijú árin en fór þá í sveit að Gilstreymi í Lundarreykjadal og dvaldist þar fram yfir fermingu. Júlíus ólst upp í Vík í Innri Akraneshreppi en Magnúsi var komið fyrir í sveit að Litla-Botni í Botnsdal, þar sem hann var í sex ár. Um 1920 flutt- ust bræðurnir til Reykjavíkur og náðu systkinin þá saman á ný og stofnuðu sameiginlegt heimili í Reykjavík. Þrátt fyrir margvíslega erfiðleika hófu bræðurnir allir iðnnám og luku því. Júlíus húsgagnasmíði, Magnús bókbandi og Baldvin málaraiðn hjá Kristni Andréssyni. Hann lauk prófi frá Iðnskólanum í Reykjavík og sveinsprófi vorið 1930. Sama ár hélt hann utan til Kaupmannahafn- ar og stundaði þar framhaldsnám við Det Tekniske Selskabs Skole til ársins 1931. Er Baldvin kom aftur heim til íslands gerðist hann virkur félagi í Málarasveinafélagi Reykjavíkur. Var hann brátt kjörinn til margvíslegra trúnaðarstarfa fyr- ir félag sitt. Hann sat í stjórn þess m.a. sem gjaldkeri og átti sæti í mörgum nefndum og var fulltrúi á þingum SSB og einnig endurskoð- andi um árabil. Baldvin fékk meistararéttindi árið 1940 og gerð- ist félagi í Málarameistarafélagi Reykjavíkur árið 1944. Hann vann síðan í mörg ár sem sjálfstæður málarameistari í Reykjavík og hafði sveina og nema í vinnu. Baldvin gat sér gott orð meðal samstarfs- manna sinna. Hann var með af- brigðum samviskusamur og vandvirkur málari og hafði næma tilfinningu fyrir vandaðri vinnu og naut þess að skila góðu verki. Árið 1935 kynntist Baldvin Þóru Siguijónsdóttur, hún hafði ná ný- lega misst mann sinn. Þau Baldvin hófu síðan sambúð sem stóð í 17 ár en þá skildu leiðir þeirra. Þau eignuðust ekki börn saman. Eftir að Baldvin hætti störfum sem málarameistari var hann um margra ára skeið starfsmaður tré- smiðjunnar Víðis. Seinustu árin dvaldi Baldvin á elliheimilinu Grund. Þar vann hann hálfan dag- inn við málningarvinnu og lagfær- ingar meðan heilsan entist. Vinnudagur hans var því orðinn langur áður en yfir lauk. Baldvin var dulur maður og flíkaði ekki tilfinningum sínum, en hann naut sín vel í góðra vina hópi. Hann var hjartahlýr og einlægur maður og einstaklega barngóður. Á kveðjustund reikar hugurinn gjarn- an til baka til bernskuáranna, þegar lítill drengur naut þess í ríkum mæli að vera í návist „Balla" frænda í leik að gulli og gersemum og gjöfum sem ekki gleymast. Blessuð sé minning frænda míns. Kjartan S. Júlíusson Kristín H. Sigurðar- dóttir — Minning Fædd 6. júní 1897 Dáin 10. september 1986 Þú komst í hlaðið á hvítum hesti þú komst með vor í augum þér. Eg söng og fagnaði góðum gesti, og gaf þér hjartað í bijósti mér. Ég heyri álengdar hófadyninn. Ég horfi langt á eftir þér. Og bjart er alltaf um besta vininn, og blítt er nafn hans á vörum mér. Þó líði dagar og líði nætur, má lengi relqa gömul spor, þó kuldinn næði um daiadætur, þær dreymir allar um sól og vor. (Davíð Stefánsson.) Hún elskulega amma okkar Kristín Helga Sigurðardóttir er dá- in. Hún kvaddi þennan heim að morgni 10. september sk, á elli- heimilinu Hornbrekku Ólafsfirði. Það kom okkur ekki á óvart, því hún var orðin þreytt og slitin, og eflaust fegin hvíldinni. En samt sem áður, erum við aldrei viðbúin vilja guðs. Við fyllumst sárum söknuði og minningarnar streyma fram. Amma okkar Kristín Helga Sig- urðardóttir fæddist að Vatnsenda í Héðinsfirði 6. júní 1897. Árið 1919 giftist hún afa okkar Gísla Gíslasyni frá Minnaholti í Fljótum, hann lést árið 1981. Þegar við hugsum til baka, og rifjum upp, hvernig það var að koma barn í sveitina hennar ömmu, finnst okkur að alltaf hafí verið sól og hlýja, því þannig var hún elsku- lpK og hlý. Hún annaðist heimili sitt með slíkum myndarskap að sérstakt var. Það var æfinlega mannmargt og gestagangur mikill. Við gleymum seint, hve notalegt það var að koma í eldhúsið og heyra tifið í pijónunum hennar, og ef eitthvað fór úrskeiðis hjá okkur krökkunum, var amma fljót að gera gott úr hlutunum. Sjálf hafði hún eignast 11 börn, og skildi manna best barnanna mál. Hún var einstök. Það er góður skóli fyrir böm og unglinga, að fá að umgangast slíka konu. Elsku ömmu þökkum yið fyrir allt. Góður guð varðveittu minningu hennar. Ingibjörg, Bjarni, Kristín og Freyja. Komið og skoðið mesta húsgagnaúrval landsins húsgagna höllin BÍLDSHÖFÐÁ 20-112 REYKJAVÍK - 91 -681199 og 681410 ÖóWioft 36645 Hraunberg ' 79988

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.