Morgunblaðið - 20.09.1986, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1986.
ÚTVARP/SJÓNYARP
*
I slag-
Móðir hafði samband við Vel-
vakanda í gær og lýsti furðu
sinni á....ævintýrahöll ríkisút-
varpsins í nýja miðbænum .. . Það
er mér með öllu óskiljanlegt hvers
vegna þetta ferlíki var reist. Hafa
mennirnir fengið snert af mikil-
mennskubijálæði?" Og móðirin
heldur áfram: „Það er mikill löstur
á okkur íslendingum að vera
sínöldrandi undan dvínandi kaup-
mætti, of háum sköttum og
opinberum álögum en vera svo
manna fyrstir til að rjúka upp til
handa og fóta og veija byggingu
tugmilljónakastala eins og nýja
útvarpshússins, seðlabankahúss-
ins, að veija úrelt bankakerfi sem
tekur meira mark á kunningja- eða
ættartengslum en arðbærni þess
sem lána í. Dæmin eru óteljandi
um sóun á almannafé.“
Svo mörg voru þau orð og ég
get persónulega verið innilega
sammála konunni um að mikil-
mennskubijálæði íslenskra
embættismanna ríður stundum
ekki við einteyming þannig að
þessar tvöhundruðþúsund sálir er
hér hýrast eru hreint að drukkna
í erlendum skuldum. Að vísu er
nýja útvarpshöllin ekki klædd
graníti líkt og bankahallirnar í
London og New York en er ekki
hætt við að einkaaðilar í útvarps-
rekstri megi sín í raun lítils gegn
því embættismannavaldi er byggir
höllina efst á Fossvogshæðum?
Svarið er enn hulið móðu tímans.
Fréttir Bylgjunnar
Líkt og hjá rás 2 eru þriggja
mínútna fréttir á Bylgjunni nánast
á klukkustundar fresti. í fyrstu
voru fréttamenn Bylgjunnar nokk-
uð óöruggir fyrir framan hljóðnem-
ann og enn ber nokkuð á
tæknilegum hnökrum ef svo má
að orði komast en allt er þetta nú
á góðrí leið, fréttamennimir verða
sífellt skýrmæltari og tæknistjórn-
in markvissari. Þó tók ég nú eftir
því í fréttatíma Bylgjunnar í fyrra-
dag þar sem leikið var af bandi
viðtal við dr. Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, nýskipaðan rann-
sóknarlektor við sagnfræðideild
Háskóla íslands, að í fyrstu heyrð-
ist ekki bofs en að lokum heyrðist
þó í Hannesi. Slík mistök eru fyrir-
gefanleg svo fremi þeim fækki en
við skulum gá að því að Bylgjan
er enn í reifum í samkeppni við
ríflega hálfrar aldar gamalt gufu-
radíó.
HugmyndastríÖ
Hvað varðar viðtalið við Hannes
þá varð mér hugsað til þess að
seint hefði slíkt viðtal heyrst í
ríkisútvarpinu, í það minnsta hér
fyrr á árum. Astæðan er auðvitað
sú að Hannes er harðskeyttur
ftjálshyggjumaður og fetar máski
ekki alfaraleið inn í Háskóla Is-
lands. En hversu mikilvægt er ekki
að allir landsins þegnar fái án til-
lits til stjómmálaskoðana að tjá sig
í fjölmiðlunum. Eða eins og Hann-
es komst að orði í viðtalinu
„ . .. Ég mun stefna að fijálsari
samkeppni hugmynda."
Ekki veitir nú af í Háskóla ís-
lands þar sem æviráðning prófess-
ora, óhæfilegur fjöldí stundakenn-
ara og fjárskortur hefir máski
valdið því að háskólinn stendur
ekki í fararbroddi upplýsingabylt-
ingarinnar hér á landi. Synd og
skömm því við Háskóla Islands
starfa margir frábærir vísinda-
menn. En til allrar hamingju
stendur þetta nú allt til bóta og í
ljósvakafjölmiðlunum er þegar haf-
in hin „fijálsa samkeppni hug-
mynda“ er Hannes berst fyrir —
verst að hann skuli þurfa að beij-
ast fyrir hugmyndastríðinu á
ríkisjötunni.
Ólafur M.
Jóhannesson
Sinna
■■■■I Þáttúrinn fjallar
1 050 um listir og
A menningu
líðandi stundar. Meðal efn-
is að þessu sinni verður
spjall við Heimi Pálsson um
nýja sýnisbók íslenskra
bókmennta, sem kemur út
innan skamms. Kynningu
á vetrarstarfi leikhúsanna,
sem hófst í síðasta þætti,
verður haldið áfram og nú
er röðin komin að Leik-
félagi Akureyrar og
Nemendaleikhúsinu. Kjart-
an Arnason velur sér bók
og kynnir. Þá ræðir Arthur
Björgvin Bollason, frétta-
ritari Ríkisútvarpsins í
Þýskalandi, við Viktor
Diesch, en hann var fylgd-
armaður Jóns Sveinssonar,
Nonna, á Alþingishátíðinni
árið 1930.
Ævilok
21-
í kvöld verður á
dagskrá sjón-
varpsins banda-
Nú er sumar
■■■■ í þættinum Nú
8 45 er sumar mun í
dag Sverrir
Guðjónsson segja sögu eft-
ir Kipling, sem fjallar um
það hvernig kokið á hvaln-
um varð þröngt. Það er
Hildur Hermóðsdóttir sem
hefur haft ofan af fyrir
ungum hlustendum með
þessum þáttum undanfarið
og hefur hún fjallað um
ýmislegt efni tengt sumr-
inu. Þetta er næstsíðasti
þátturinn í sumar.
ríska bíómyndin Ævilok
með þeim Burt Reynolds,
Dom de Luise, Sally Field
og Joanne Woodward í að-
alhlutverkunum. Myndin
fjallar um það, að brokk-
gengur piparsveinn fær að
vita að hann eigi skammt
eftir ólifað. Hann á um
þrennt að velja: Bæta ráð
sitt fyrir andlátið, sletta úr
klaufunum meðan færi
gefst eða stytta sér aldur.
Þetta vefst að vonum nokk- |
uð fyrir manngarminum. I
Bylgjan:
30
vinsælustu
lögin
■■■■ í dag kynnir
-| pTOO Helgi Rúnar
O — Óskarsson 30
vinsælustu lögin á vin-
sældalista Bylgjunnar.
Vinsældalisti Bylgjunnar
er valinn á þann hátt að
hlustendur senda inn póst-
kort til Bylgjunnar og er
síðan hringt í þá þegar list-
inn er valinn. Einnig er
byggt á úrtaki á listum
félagsmiðstöðva og
skemmtistaða.
VINSffLDALISTI BYLGJUNNAR
VIKUNA 16.-22. SEPT
LA ISLA BONITA................MADONNA
2. HOLIDAY RAP...................MC MIKER G L DEEJAY SVEN
3. DANCING ON THE CEILING.......LIONEL RICHIE
4. BRAGGABLÚS...................BUBBI MORTENS
5. MEÐ VAXANDI ÞRA..............GEIRM'JNDUR OG ERNA
HUMAN.........................HUMAN LEAGUE
7. THE LADY IN RED..............CHRIS DE BURGH
SO MACHO......................SINITTA
9. VENUS........................BANANARAMA
10. PAPA DON'T PREACH...........MADONNA
11. HESTURINN....................SKRI DJöKLAR
12. DON'T LEAVE ME THIS WAY.....COMMUNARDS
13. WE DON'T HAVE TO............JERMAINE STEWART
14. DREAMTIME...................DARYL HALL
15. I WANT TO WAKE UP WITH YOU..BORIS GARDENER
16. ASTAROÐUR...................PéTUR OG BJARTMAR
17. ÉG VIL Fó HANA STRAX........GREIFARNIR
18. SWEET FREEDOM...............MICHAEL MCDONALD
19. SHOUT.......................LULU
20. TRUE BLUE...................MADONNA
21. FIND THE TIME.........j.... FIVE STAR
22. GLORY OF LOVE...............PETER CETERA
23. DANCE WITH ME...............ALPHAV ILLE
24. MAN SIZE LOVE.................CLYMAXX
25. HUNTING HIGH AND LOW.......A-HA
26. FIGHT FQR OURSELVES.........SPANDAU BALLET
. IF YOU LEAVE................QMD
. EASY LADY...................SPAGNA
RAGE HARD....................FRANKIE GOES TO HOLLYWOOdI
. EDGE OF HEAVEN..............WHAM !
/Z
ÚTVARP
LAUGARDAGUR
20. september
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
7.30 Morgunglettur. Létt
tónlist.
8.00 Fréttir. Dagskrá.
8.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
8.35 Lesiö úr forystugreinum
dagblaðanna.
8.45 Nú er sumar. Hildur
Hermóðsdóttir hefur ofan
af fyrir ungum hlustendum.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.20 Óskalög sjúklinga.
Helga Þ. Stephensen kynn-
ir.
10.00 Fréttir.
10.10 Veöudregnir.
10.25 Morguntónleikar
a. Sónata í Es-dúr op. 167
eftir Camille Saint-Saéns.
Wilfreid Berk og Elisabeth
Seiz leika á klarinettu og
píanó.
b. Balletttónlist úr óperunni
„Faust" eftir Charles Go-
unod. Hjómsveit Konung-
legu óperunnar i Covent
Garden leikur; Alexander
Gibson stjórnar.
11.00 Frá útlöndum. Þáttur
um erlend málefni í umsjá
Páls Heiöars Jónssonar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Fréttir
12.45 Veöuriregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar. Af stað —
Siguröur T. Björgvinsson
sér um umferðarþátt.
13.50 Sinna. Listir og menn-
ingarmál líðandi stundar.
Umsjón: Þorgeir Ólafsson.
15.00 Miðdegistónleikar
a. Forleikur að „Meistara-
söngvurunum" eftir Richard
Wagner. Sinfóníuhljómsveit
Lundúna leikur; Sir John
Barbirolli stjórnar.
b. Fiðlukonsert nr. 3 í G-dúr
K.213 eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart. David Oi-
strakh leikur með og
stjórnar hljómsveitinni
Fílharmoníu.
c. Serenaða i d-moll op. 44
eftir Antonín Dvorák. Sin-
fóníuhljómsveit útvarpsins i
Hamborg leikur; Hans
Schmidt-lsserstedt stjórnar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Á hringveginum. Brot
úr þáttum sumarsins frá
Norðurlandi. Umsjón: Einar
Kristjánsson.
17.00 iþróttafréttir
17.03 Barnaútvarpiö. Umsjón:
Vernharður Linnet og Sigur-
laug M. Jónasdóttir.
17.40 Frá tónleikum i Nor-
ræna húsinu 29. apríl sl.
Marianne Eklöf syngur Sjö
sönglög eftir Þorkel Sigur-
björnsson og Fimm negra-
söngva eftir Xavier
Montsalvatge. Stefan Boj-
sten leikur á píanó. Umsjón:
Anna Ingólfsdóttir.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 „Hundamúllinn", gam-
ansaga eftir Heinrich
Spoerl. Guðmundur Ólafs-
son les þýðingu Ingibjargar
Bergþórsdóttur. Fyrsti lest-
ur.
20.00 Sagan: „Sonur elds og
ísa" eftir Johannes Hegg-
land. Gréta Sigfúsdóttir
þýddi. Baldvin Halldórs-
son les (10).
20.30 Harmonikkuþáttur. Um-
sjón: Bjarni Marteinsson.
21.00 Guðað á glugga
Pálmi Matthíasson ræðirvið
Gísla Konráösson fram-
kvæmdastjóra Útgerðarfé-
lags Akureyrar. (Frá
Akureyri).
21.40 fslensk einsöngslög.
Ólafur Magnússon frá Mos-
felli syngur lög eftir Árna
Björnsson, Árna Thor-
steinsson, Björgvin Guð-
mundsson, Sigvalda
Kaldalóns og Karl O. Run-
ólfsson. Jónas Ingimundar-
SJÓNVARP
17.30 (þróttir. Umsjónarmaö-
ur: Bjarni Felixson.
19.20 Ævintýri frá ýmsum
löndum. (Storybook Intern-
ational). 10. Uppsprettan á
heimsenda. Myndaflokkur
fyrir börn. Þýðandi: Jóhanna
Jóhannsdóttir. Sögumaður:
Edda Þórarinsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmali.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 Fyrirmyndarfaöir. (The
Cosby Show).
Átjándi þáttur. Bandarískur
LAUGARDAGUR
20. september
gamanmyndaflokkur. Þýö-
andi: Guðni Kolbeinsson.
21.05 Sveitasæla. (The Winn-
ing Hand).
Bresk-bandarískur tónlistar-
þáttur með fimm af helstu
stjörnum sveitasöngvanna:
Willie Nelson, Dolly Parton,
Kris Kristófferson, Brendu
Lee og Johnny Cash. Þýð-
andi: Reynir Harðarson.
21.50 Ævilok. (The End).
Bandarísk bíómynd frá
1978. Leikstjóri: Burt Reyn-
olds. Aðalhlutverk: Burt
Reynolds, Dom de Luise,
Sally Field og Joanne Wood-
ward. Brokkgengur pipar-
sveinn fær að vita að hann
eigi skammt ólifað. Mann-
garmurinn á um þrennt að
velja: bæta ráð sitt fyrir
andlátið, sletta úr klaufun-
um meöan færi gest eða
stytta sér aldur. Þetta vefst
nokkuð fyrir honum og vin-
um hans og vandamönnum
sýnist sitt hverjum. Þýð-
andi: Gunnar Þorsteinsson.
23.25 Dagskrárlok.
son leikur á píanó.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Laugardagsvaka. Þáttur
í umsjá Sigmars B. Hauks-
sonar.
LAUGARDAGUR
20. september
10.00 Morgunþáttur
í umsjá Kristjáns Sigurjóns-
sonar.
12.00 Hlé.
14.00 Við rásmarkiö
Þáttur um tónlist, íþróttir og
sitthvað fleira. Umsjón: Sig-
urður Sverrisson ásamt íþrótt-
afréttamönnunum Ingólfi
Hannessyni og Samúel Erni
BYL GJAN
LAUGARDAGUR
20. september
8.00—9.00 FréUir og tónlist
i morgunsárið.
9.00—12.00 Bjarni Ólafur og
helgin framundan. Bjarni
Ólafur Guðmundsson stýrir
tónlistarflutningi til hádegis,
lítur yfir viðburöi helgarinnar
og spjallar við gesti.
Fréttir kl. 10.00 og 12.00.
12.00—15.00 Jón Axel á Ijúf-
um laugardegi. Jón Axel
Ólafsson fer á kostum i
stúdíói með uppáhaldslög-
in.
Fréttir kl. 14.00.
15.00—17.00 Vinsældalisti
23.30 Danslög
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar. Um-
sjón: Jón Örn Marinósson.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til kl.
3.00.
Erlingssyni.
16.00 Listapopp
í umsjá Gunnars Salvarsson
ar.
17.00 iþróttafréttir.
17.03 Nýræktin
Snorri Már Skúlason og Skúli
Helgason stjórna þætti um
nýja rokktónlist, innlenda og
erlenda.
18.00 Hlé
20.00 FM.
Þáttur um þungarokk i umsjá
Finnboga Marinóssonar.
21.00 Milli stríða
Jón Gröndal kynnir dægurlög
frá árunum 1920—1940.
22.00 Svifflugur
Stjórnandi: Hákon Sigurjóns
son.
24.00 Á næturvakt
með Ásgeiri Tómassyni.
03.00 Dagskrárlok.
Bylgjunnar. Helgi Rúnar
Iskarsson leikur 30 vinsæl-
ustu lög vikunnar.
Fréttir kl. 16.00.
17.00—19.00 Sigrún Þorvarö
ardóttir með dagskrá fyrir
ungt fólk. Þeirra eigin flóa-
markaður, viðtöl, spurn
ingaleikur og tónlist með
kveðjum.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—21.00 Rósa Guö
bjartsdóttir og hin hliðin.
Fréttirnar og fólkið sem
kemur við sögu.
21.00-23.00 Anna Þorláks-
dóttir í laugardagsskapi.
Anna trekkir upp fyrir kvöld
ið og tónlistin ætti engan
að svíkja.
23.00-03.00 Nátthrafnar
Bylgjunnar, Þorsteinn Ás-
geirsson og Gunnar
Gunnarsson halda uppi
stanslausu fjöri.