Morgunblaðið - 20.09.1986, Page 15

Morgunblaðið - 20.09.1986, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1986 15 sækja torsóttari staði hálendisins hafa hingað ti getað það og ekki talið eftir sér að vinna nokkuð til þess. Astæða er til að koma inn á enn eitt atriði varðandi framtíð íslenskra ferðmála og vara með því við aukinni tilhneigingu íslendinga til að búa ferðamönnum ofverndað umhverfi hér á landi. Tilfelli sem stundum hefur verið nefnt „amerískur túrismi". Kaðlar hér og grindverk þar, en vonandi verður okkur ljóst, áður en mismunandi frumstæð þjónustuskilti við þjóð- vegi landsis verða orðin fleiri en umferðarmerkin, að hér þarf einnig að fara hægt. Það er til mikils að vinna með því að varðveita íslensk einkenni og sérkenni, bæði hjá landi og þjóð. Framtíð íslenskra ferðmála byggist reyndar á því að hér sé staðið rétt að málum. Þá aukningu sem orðið hefur í komum erlendra ferða- manna hingað til lands á síðustu árum eigum við fyrst og fremst að þakka þessum sérkennum landsins og þjóðarinnar sem það byggir. Ef við viljum ekki glata því sem áunn- ist hefur, eða sitja uppi með eingöngu ofverndunarþurfi ferða- menn, þurfum við núna að hugsa svolítið okkar gang. Við ættum að fara okkur hægt í þeim efnum sem snúa eingöngu að auknu ferða- mannastreymi til landsins en leggja í stað þess ríkari áherslu á nýjung- ar í þjónustu við erlenda ferðamenn og aukin gæði hennar. Áskorun til ferðamálaráðs Af framansögðu má lesendum vei’a ljóst að við (undirr.) höfum vaxandi áhyggjur af mengun lands og þjóðar með vaxandi ferðamanna- iðnaði. Samkvæmt landslögum ber ríkissjóði af afhenda ferðamálaráði ákveðinn skerf af söluhagnaði fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli til íjármögnunar framkvæmda hvers árs. I þeirri von að nú í lok fengsæls ferðamannaárs verði í fyrsta sinn staðið við áðumefnd lagaákvæði leyfum við okkur að skora á ferða- málaráð að veija stórum hluta fjármögnunartekna næsta árs til þess að koma skipulagi á ferðamál innanlands. Brýnustu verkefnin þar em verndun lands og þjóðarein- kenna, aukið samstarf íslenskra ferðaskrifstofa og myndun heildar- stefnu í ferðamálum innanlands. Ennfremur þarf að hvetja ferða- skrifstofur til þess að koma fram með nýjar hugmyndir sem myndu stuðla að dreifingu meginstraums ferðamanna á lengra tímabil heldur en þessa tvo „ferðamannamánuði" sumars. í von um jákvæðar viðtökur hjá öllum þeim sem láta sig þessi mál einhveiju varða. Höfundar liafa undanfarin sumur starfað við leiðsögn erlendra ferðamanna um Island. NÝ VIÐHORF Myndlist Bragi Ásgeirsson Langur námsferill og miklir heimspekilegir þankar eru ein- kenni margra þeirra, er fást við myndlist á vorum dögum. Þannig var það að vísu einnig áður, að því slepptu að heimspekilegu þankarnir voru yfirleitt persónu- bundnir og ekki hluti náms. En á örfáum áratugum hefur þetta breytzt í þeim mæli, að á stundum má líkja því við kúvend- ingu. Fólk hugsar og skilgreinir, en minna fer fyrir verklegri at- hafnasemi og því að skynja viðfangsefnið í gegnum snerti- skynið eitt og þrotlausa vinnu. Þetta verður einna bezt skil- greint með því, að það tekur á annan áratug að verða góður kalligraf, — þ.e. fullfær í hinu forna japanska letri. Utanaðkom- andi vangaveltur komust þar hvergi að, og þó krefst listgreinin mikillar andlegrar íhugunar og einbeitni, — líkt og öll mikil og þróuð list. Fólki af ungu kynslóðinni væri oft hollt að hafa þetta í huga á tímum hraðans og allra möguleik- anna að láta tæknina vinna fyrir sig. Margir listaskólar nútímans virðast og gleyma hinu skynræna í viðleitni sinni til heimspekilegra skilgreininga mannlegra fyrir- bæra ásamt þjóðfélagslegri umræðu. Eg veit ekki, af hveiju þetta kemur upp í huga minn, er ég tek að skrifa um sýningu Astu Olafs- dóttur í Nýlistasafninu, sem hér skal fjallað um, því að þetta kem- ur ekki myndheimi hennar við, nema að vissu marki, en fram vildi það. Ásta Ólafsdóttir lauk námi við MHÍ og nam síðan við Jan van Eyek-listaháskólann í Hollandi, þar sem hún lagði sérstaklega stund á mynd- og hljóðbandalist auk hefðbundnari myndmiðla. Hún hefur verið búsett í Hollandi sl. 5 ár. Var henni m.a. veittur ársstyrkur til að vinna að mynd- list einvörðungu 1985, og var hér um að ræða viðurkenningu frá hollenzka ríkinu. Þá hefur Ásta gefið út tvær bækur með frumsömdum texta og hljóð- og myndbandaverk og sýnt verk sín heima sem erlendis. Áf þessari upptalningu má Ijós- lega ráða, að Ásta er mjög vel skóluð á nútímavísu og er að auki enginn nýgræðingur á sýninga- vettvangi. Á þessari sýningu Ástu Ólafs- dóttur eru allt í senn hefðbundin myndverk, hljóð- og myndband svo og hljóðinnsetning. Eg hef séð sitthvað eftir Ástu og a.m.k. eitt myndband og veit að hún leggur sig alla fram í listsköpun sinni. Áhugasvið hennar nær einkum til mynd- og hljóðbanda svo og hljóð- innsetninga og hér er ég ekki sérstaklega vel með á nótunum. Aðeins mjög fá myndbandaverk hafa hrifið mig að marki í sjón- rænu tilliti, en þeim mun fleiri hafa einungis haft tiuflandi og ertandi áhrif á sjóntaugar mínar. Þó viðurkenni ég að listgreinin býr yfir ótæmandi möguleikum, en hér verða sérfróðir menn að Ijalla um, svo að vel fari. Kallar það að sjálfsögðu á sérstaka um- íjöllun um mynd- og hljóðbanda- list hér í blaðinu svo og annað er þeirri tækni heyrir til. Sýning Ástu tekur yfir öll húsa- kynni Nýlistasafnsins, þótt verkin séu ekki ýkjamörg í sjálfu sér. Hefðbundnu verkin eru vel unn- in og hér þykir mér Ásta öllu meira sannfærandi í hinum mál- uðu verkum sínum en skúlptúrum og einfaldlega vegna þess, að í þeim er meiri og dýpri lifun. Að auki þykir mér þau formfastari og meira lagt í þau, þrátt fyrir að umfang þeirra sé í flestum til- vikum mun minna. Af framanskráðu má vera ljóst, að það eru ekki hefðbundin við- horf sem eru ríkjandi á sýningu Ástu Ólafsdóttur, jafnvel þótt hún vinni á stundum í hefðbundnum efniviði. Þannig ættu unnendur framúr- stefnulistar og nýrri viðhorfa í myndlist að fá sitthvað í sinn mal til að hafa heim með sér eftir inn- lit á sýningu þessarar framsæknu listakonu. nPRi KADETT ó ASCONA ó 1987-ÁRGERÐIN ER RÉTT ÓKOMIN. TÖKUM VIÐ PÖNTUNUM OPEL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.