Morgunblaðið - 20.09.1986, Page 20

Morgunblaðið - 20.09.1986, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1986 Kaupmannahöf n: Spennan aftur vax- andi við Austurbrú Hústökumenn fá stuðning og hvatningu erlendis frá Kaupmannahöfn, frá fréttaritara Morgunblaðsins, Ib Björnbak. SPENNAN fór aftur vaxandi í gær milli hústökumanna og lög- reglu í Kaupmannahöfn. Lög- reglumenn standa nú vörð allt í kringum götuvígin við Austur- brú og stöðva alla, sem fara um þau. Einn maður var handtekinn fyrir að bera á sér vopn ólöglega og annar maður, sem er Þjóð- verji, var einnig handtekinn. Til eiginlegra átaka hafði þó ekki komið síðdegis í gær. Ljóst er, að hústökumenn fá stuðning og hvatningu frá erlendum aðstoðarmönnum. Þannig var ráðizt á dönsku ræðismannsskrifstofuna í Amsterdam í gær undir slagorðun- um: „Hústökumenn láta til sína taka á ný.“ Rúður voru brotnar í skrifstof- unni og sýru hellt þar inn. Var því borið við, að hollenzkum manni hafði verið vísað burt frá Danmörku. Hústökumenn á Ryes-götu við Austurbrú hafa hafnað tilboði um sjálfstæðan sjóð, sem ætti hús það, þar sem þeir hafa-búið ókeypis und- anfarin þrjú ár. Þeir krefjast þess að borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn taki við húsinu og fái þeim það svo aftur til umráða. Þeir vilja ekki greiða húsaleigu, aðeins fyrir ljós, hita og vatn, sem þeir hafa þó ekki viljað borga fyrir hingað til. Nú óttast margir að til alvarlegra átaka komi um helgina, sem sett geti allt hverfið í bál og brand. Miklu magni af bensíni hefur verið safnað saman við götuvirkin. Áður hafa hústökumenn sýnt, að þeir eru ekki hræddir við að gripa til svæsinna meðala gegn lögreglunni. Er átökin hópfust sl. sunnudag, köstuðu þeir t.d. bensínsprengjum (mólotov- kokkteilum) og gijóti í lögregluna. Deilan er því óleyst. Enn ríkir mikil spenna og með öllu óvíst, hvort komið verður í veg fyrir frekari átök næstu daga. Ráðstefnu Gatt-ríkja í Uruguay lokið: Deilan við hústökumenn við Austurbrú i Kaupmannahöfn fór aftur harðnandi í gær. Var talið, að allt gæti farið þar í bál og brand á ný um helgina. Mynd þessi er af þremur hústökumönnum, en þeir hafa gjarnan hettur yfir höfði sér, svo að ekki verði borin kennsl á þá. Niðurgreiðslur í landbúnaði verða á dagskránni í Genf Punta del Este, AP. SENDINEFNDIR þeirra 92 ríkja, sem aðild eiga að GATT-samkomu- laginu um tolla og viðskipti hafa orðið sammála um ályktun varðandi niðurgreiðslur í landbúnaði. Sú ályktun verður lögð til grundvallar samningaviðiæðum um alþjóðaviðskipti í Genf. Þær viðræður munu að öllum líkindum hefjast i október, að sögn Hannesar Hafstein, sendiherra íslands í Genf, sem situr fundinn í Punta del Este í Uru- guay. í gær var beiðni Sovétmanna um þátttöku í Genfar-ráðstefn- unni hafnað. Gengi gjaldmiðla London, AP. BANDARÍKJADALUR féll í gær gagnvart öllum helstu gjaldmiðl- um heims. Verð á gullúnsu rauk upp um rúma tíu dollara. Breska sterlingspundið vann á gagnvart dal og kostaði 1,4765 dali (1,4715) við lokun markaða. Gengi annarra helstu gjaldmiðla var á þann veg að dalurinn kost- aði: 1,9855 vestur-þýsk mörk (1,9975), 1,6020 svissneska franka (1,6155), 6,5025 franska franka (6,7600), 2,2470 hollensk gyllini (2,2555), 1.373,50 ítalskar lírur (1.386,25) og 1,3880 kanadíska dali (1,3870). í viðtali við Morgunblaðið sagði Hannes Hafstein að ráðstefnan í Uruguay væri fyrst og fremst hald- in til að undirbúa viðræðumar í Genf. Árangur þeirra viðræðna myndi hins vegar ekki verða ljós fyrr en eftir fjögur ár. Aðspurður sagði hann deilur um jöfnuð í við- skiptum og þjónustustarfsemi ekki fyllilega leystar en taldi líklegt að einhvers konar samkomuiag myndi liggja fyrir í lok ráðstefnunnar. Kvað hann sendinefndirnar í Uru- guay sammála um nauðsyn þess að tryggja viðskiptafrelsi og koma í veg fyrir innflutningshöft. Hinn hagstæði viðskiptajöfnuður Japana við útlönd hefur vakið deilur í Punta del Este en talið er að hagnaður þeirra af viðskiptum við útlönd muni nema 100 milljörðum Banda- ríkjadala á þessu ári. Sendinefnd Tékkóslóvakíu bar fram beiðni Sovétmanna um þátt- töku í Genfar-ráðstefnunni og var henni snarlega hafnað. Fulltrúar Bandaríkjanna og ríkja Vestur- Evrópu töldu að hið miðstýrða hagkerfí Sovétríkjanna myndi reyn- ast ósættanlegt við það grundvall- armarkmið GATT-samkomulagsins að tryggja frelsi í viðskiptum. I gær náðist samkomulag um orðalag ályktunar um niðurgreiðsl- ur í landbúnaði. Önnur ríki Evrópu- bandalagsins þrýstu mjög á Frakka að fallast á að sá málaflokkur yrði tekinn til umræðu í Genf. EB-ríkin hafa gagnrýnt Frakka vegna niður- greiðslna þeirra á útfluttum land- búnaðarafurðum. í ályktuninni segir að beinar og óbeinar niður- greiðslur í landbúnaði verði ræddar en ekki er minnst sérstaklega á útflutning. Ennfremur hafa nefndir nokk- urra ríkja samþykkt að taka þjónustustarfsemi svo sem banka- rekstur og fjarskipti til umræðu á vettvangi GATT. Þegar síðast frétt- ist var unnið að tillögum, sem gera myndu þróunarríkjum kleift að vemda eigin þjónustuiðnað gegn samkeppni frá iðnríkjum. Brasilíu- menn og Indveijar óttast að iðnríkin muni sölsa undir sig þjónustumark- aðinn í krafti auðs og þekkingar ef viðskipti á því sviði verða gefin algerlega fijáls. Hannes Hafstein, sendiherra íslands í Genf, telur líklegt að sérstakar umræður muni fara fram um þjónustuiðnað. Hann- es sagði ennfremur að núgildandi reglur GATT-samkomulagsins um tolla og viðskipti yrðu ekki látnar taka til þjónustuiðnaðar heldur myndu sérstakar reglur verða sett- ar um þessa grein viðskipta. GATT-ráðstefnunni í Uruguay lauk formlega í nótt en þess er vænst að fundir muni fara fram fyrir luktum dyrum allt fram á sunnudagskvöld. Ekki ber á öðru en að Gorbachev, leiðtogi Sovétríkjanna, sé við bestu heilsu. Mynd þessi var tekin af honum í gær er blómsveigur var lagður að minnismerki um Lenín í borginni Krasnodar skammt frá Svartahafi. Var Gorbachev sýnt banatilræði? ÞRÁLÁTUR orðrómur er á kreiki í Moskvuborg um að reynt hafi verið að ráða Mikhail Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna, af dögum. Þann 20. ágúst fór Gorbachev í frí til Svartahafsins og enn hefur hann ekki snúið aftur til Moskvu. Finnska dagblaðið Hufudstads- bladet skýrði nýlega frá því að sögur um tilræði við Gorbachev gengju manna á milli í Moskvu. Blaðið hafði þetta eftir ónafngreindum heimildar- mönnum og vestrænum kaupsýslu- mönnum, sem nýlega höfðu ferðast til Sovétríkjanna. Orðrómur sem þessi er ekki áður óþekkt fyrirbrigði en Hufudstads- bladet segir hann sérlega þrálátan í þetta skipti. Sagan segir að reynt hafí verið að ráða Sovétleiðtogann af dögum fyrir tæpum þremur vikum en menn eru ekki samhljóða um hvort tilræð- ismanninum tókst, qð framkvæma ætlunarverk sitt. í einni útgáfu sög- unnar er sagt að eiginkona Gorbach- evs hafi særst í árásinni. Blaðið segir bandarískan blaða- mann hafa reynt að fá stjómvöld eystra til að tjá sig um orðróminn en fátt hafí orðið um svör. Á miðvikudag skýrði breska út- varpið BBC frá sögusögnunum í Moskvuborg. Parísarbúar reið- ir og óttaslegnir vegna hryðjuverka París, eftir Thomas Campbell, fréttaritara AP. HRYÐJUVERKAHERFERÐIN gegn Frökkum, sem nær frá vinstri bökkum Signu til Beirút, hefur vakið bæði ótta og reiði í París. Parísarbúar eiga það sammerkt með frönskum yfirvöldum að þeir tala um lítið annað en hvaða aðgerða skuli gripið til gegn hryðju- verkamönnum. Frakkar eru nú helstu fóm- arlömb hryðjuverkamanna frá Miðausturlöndum. Sprengjur springa í verslunum í París, í Beirút eru framin morð, franskar friðar- gæslusveitir í suðurhluta Líbanon verða fyrir stöðugum árásum og ekki virðist sjá fyrir endann á máli franskra gísla þar í landi. Mælirinn er fullur „Ég hygg að flestir Frakkar hugsi eins og ég. Mælirinn er full- ur,“ segir Bruno Lehegarat vínsölu- maður. „Fólk er hrætt, það óttast innflytjendur og fyllist smátt og smátt kynþáttafordómum. Að minni hyggju ætti stjómin að loka landa- mærunum og reka útlendingana úr landi." Morðárásir á franska hermenn og frönsku gíslamir í Líbanon hafa verið í forsíðufréttum dagblaðanna. En miklar sprengingar í miðborg Parísar - átta hafa látið lífíð og 150 særst síðan 8. september - færðu átökin inn fyrir bæjardyrnar. Á fimmtudag var franskur her- málafulltrúi myrtur fyrir utan franska sendiráðið í austurhluta Beirút. Lítt þekkt og skuggaleg samtök hóta grimmilegri árásum ef Frakk- ar sleppa ekki dæmdum hryðju- verkamönnum úr haldi og breyta stefnu sinni í málefnum Miðaustur- landa. Ekki eru nema tveir mánuðir liðnir síðan fréttaskýrendur töldu að Jacques Chirac forsætisráðherra væri þeirrar hyggju að leysa ætti hryðjuverkamanninn Georges Ibra- him Abdallah úr haldi til að koma í veg fyrir að stuðningsmenn hans gerðu alvöru úr hótunum sínum um að hrinda af stað öldu hryðjuverka í september. Eftir sprengingar undanfarinna daga eru menn sammála um að Chirac hefði ekki átt að láta Abd- allah lausan og forsætisráðherrann segir að Frakkar eigi ekki að láta þvinga sig. „Eg vill láta má þessi tvö lönd, Líbýu og írak, af hnettinum," segir Michele Voge, þar sem hann bíður eftir viðskiptavinum í loðfeldaversl- un skammt frá Champs Elysées. „Hver er tilgangurinn með því að búa yfír miklum herstyrk þegar má ekki nota hann.“ í könnun, sem birtist í dagblaðinu France-Soir í gær kveðast 83 af hveijum hundrað Frökkum vera hlynntir hertum aðgerðum gegn hryðjuverkastarfsemi og 77 af hundraði vilja að dauðarefsing verði tekin upp að nýju. Hún var afnum- in 1982. Aftur á móti voru 32 af hundr- aði þeirrar hyggju að grípa ætti til hemaðarlegra aðgerða gegn ríkjum, sem styðja hryðjuverkasam- tök. Lögregluþjónar standa nú á hveiju götuhomi í París og verðir leita í töskum og á fólki fyrir utan leikhús, kvikmyndahús, veitinga- staði og stórmarkaði. Og viðskipta- vinum hefur fækkað mikið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.