Morgunblaðið - 20.09.1986, Side 37
LEIKLIST
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1986
37
Land míns föður
Nú fer að fækka sýningum á
striðsárasöngleik Kjartans Ragnars-
sonar og Atla Heimis Sveinssonar.
í fyrra voru yfir 140 sýningar á leikn-
um og í haust hófust sýningar þann
5. september. Nú um helgina verð-
ur verkið sýnt á laugardagskvöld kl.
20.30. Á fjórða tug leikara taka þátt
í sýningunni og verða þeir sömu og
í fyrra í öllum aðalhlutverkum en fjór-
ir nýir leikarar koma í stað þeirra
sem nú hverfa til annarra starfa.
Nýju leikararnir eru Valdimar Örn
Flygenring, Bryndís Petra Braga-
dóttir, Edda V. Guðmundsdóttir og
Þór H. Tulinius.
Hljómsveitarstjóri er Jóhann G.
Jóhannsson, leikmynd ereftirStein-
þór Sigurðsson, búninga gerir
Guðrún Erla Geirsdóttir og dansa-
höfundur er Ólafía Bjarnleifsdóttir.
Höfundurinn, Kjartan Ragnarsson,
erjafnframt leikstjóri.
IERD4LÖG
Útivist:
Haustlita- og
grillveisluferð
Nú um helgina fer Útivist [ sina
árlegu haustlita- og grillveisluferð i
Þórsmörk. Gist verður í Útivistar-
skálanum í Básum. Farið verður í
skipulagðargönguferðirum Mörk-
ina og á laugardagskvöldiö verður
grillveisla og kvöldvaka. Enn eru
nokkur sæti laus í ferðina.
Á sunnudaginn er um að ræða
breytingará ferðum frá því sem
stendur íferöaáætlun Útivistar.
Feröum á Skjaldbreið og Þingvelli
erfrestað um viku en í þeirra stað
verðurklukkann 10.30 ferðin Kaldi-
dalur-Hvalvatn-Botnsdalur. Þetta er
ný ferð við allra hæfi. Klukkan 13.00
verður svo Botnsdalur skoðaður í
haustlitunum og gengið með gljú-
frum Botnsár að Glym, hæsta fossi
landsins. Brottför í ferðirnar er frá
BSÍ, vestanveröri.
Nánari upplýsingar um ferðirnar
fást á skrifstofu Útivistar, Grófinni
1, Reykjavík, og í síma 14606 og
23732.
Hana nú:
Laugardagsganga
Vikuleg laugardagsganga
frístundahópsins Hana nú i Kópa-
vogi verður á morgun, laugardaginn
20. september. Lagt verður af stað
kl. 10 frá Digranesvegi 12.
Við göngum hvernig sem viðrar.
Markmið göngunnar er: samvera,
súrefni, hreyfing. Rölt er um bæinn
í klukkutíma. Búið ykkur eftir veðri.
Nýlagað molakaffi.
Ferðafélag íslands:
Landmannalaugar-
Jökulgil
Um helgina er boðiö upp á helg-
arferð í Landmannalaugarog inn í
Jökulgil. Jökulgilið er stórkostlegt og
litadýrð er þar í besta lagi. Þangað
er aðeins fært þegar hausta tekur
og þornað hefur um og vatnið í Jök-
ulgilskvíslinni hefurminnkað. Einnig
verður farið í Þórsmörk um helgina.
Haustlitir eru þar að taka völdin af
grænum lit sumarsins og að margra
áliti er Þórsmörkin aldrei fegurri en
á haustin.
í báðum þessum ferðum er gist
i upphituðum sæluhúsum, sem
Feröafélagið á og er aðstaða í þeim
mjög góð, sérstaklega i Þórsmörk-
inni.
Sunnudagsgöngur Ferðafélags-
ins eru tvær. Um morguninn klukkan
10 er lagt af stað í ferð sem ber
heitiö Konungsvegurinn — Brekku-
skógur. Ekið verður austur í
Laugardal og siðan gengin leiðin
sem farin var þegar konungurinn
kom 1907. FariðeryfirBrúaráá
göngubrú.
Klukkan 13 erfarin haustlitaferð
um Þingvelli, en þarerjafnan mikil
litadýrð á haustin.
Sveinn Þorgríms-
son — Minning
Fæddur 26. apríl 1931
Dáinn 13. september 1986
Það er ótrúlega erfitt að skrifa
fáein kveðjuorð um Svein frænda,
og trúa því að hann sé dáinn. Hann
er samofinn öllum björtu bemsku-
minningunum, barnfóstra sem
gætti manns og lék við, eða veitti
bróðurlegar skammir og áminning-
ar allt eftir efnum og ástæðum. I
stuttu máli stóri bróðir minn sem
engin systkin átti.
Sveinn fæddist í Rauðanesi í
Borgarhreppi 26. apríl 1931. Yngri
sonur Guðrúnar Guðmundsdóttur
og Þorgríms Einarssonar sem
bjuggu þar í tvíbýli með Jóhannesi
bróður Þorgríms og konu hans Evu
Jónsdóttur. Þeir bræður voru leigu-
liðar og árið 1934 fluttu þeir þaðan.
Jóhannes að Ferjubakka, en
Þorgrímur að Sleggjulæk í Staf-
holtstungum, þar sem hann bjó í
11 ár í sambýli við Sigurð Sveins-
son frænda sinn og mág og konu
hans Halldóru Gísladóttur.
Þar var paradís bemsku minnar,
því Þorgrímur tók að sér að hafa
litla systurdóttur úr Reykjavík öll
sumur hernámsára og lengur þó.
Þar var að henni hlúð af mildum
og ástríkum höndum Guðrúnar og
Halldóru, leikið með systrunum
Kristínu og Amdísi dætrum Hall-
dóru og Sigurðar og gætt af
bræðrunum Guðmundi og Sveini.
Litla óþekktarfrænkan var. eitt
bamið á bænum, tilheyrði Qölskyld-
unni og átti þar heima.
Það var alltaf sólskin á Sleggju-
læk, segi ég, og fólkið mitt brosir.
Örlögin höguðu því svo að við
Sveinn settumst bæði að á Suður-
nesjum og ég hélt áfram að kvabba
á honum, glettast, nöldra, jafnvel
rífast á þann hátt sem maður gerir
aðeins við sína nánustu. Hann hélt
áfram að vera stóri bróðir.
Þorgrímur keypti Síðumúlaveggi
í Hvítársíðu 1945, þá voru þeir
bræður stálpaðir og bernskuleikir
að baki, en enn flaut litla frænkan
með á sumrin.
Sveinn kvæntist Svanbjörgu
Eiríksdóttur frá Norðfirði, og þau
fóru að búa í Keflavík. Þar fædd-
ust bömin þijú, Ása Sigríður, Pétur
Friðrik og Linda Óska.
Sveinn stundaði leigubílaakstur
og var vinsæll og lánsamur í sínu
starfi, því slysalaust komust allir
hans farþegar á áfangastað.
Síðustu 10 árin bjuggu þau
Svana í Sandgerði og áttu þar fal-
legt heimili.
Bamabörnin eru þrjú, Pétur,
Sveinn og lítil telpa sem fæddist
9. þessa mánaðar.
Glaður og reifur fór hann í lax-
veiði um helgina. Veiðifélagar héldu
heim í veiðihús um hádegisbil, þá
var hallað sér útaf að fá sér ofurlít-
inn blund, en Sveinn vaknaði ekki
aftur. Svona vildi ég fá að fara
segjum við gjaman, þetta er það
besta, en fýrir þá sem eftir lifa er
þetta óskaplegt. Það tekur langan
tíma að sætta sig við að hann er
horfinn úr hópnum.
t
Mófiir okkar,
VALGERÐUR SIGURÐARDÓTTIR,
Sörlaskjóli 58,
andaðist í Öldrunardeild Landspítalans, Hátúni 10 b., fimmtudag-
inn 18. september.
Fyrir hönd ættingja og annarra vandamanna
Sigrún S. Waage, Gunnar Reynir Antonsson.
t
Móðir okkar,
GUÐRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR
frá Krókvöllum, Garði,
Ásvallagötu 33,
lést fimmtudaginn 18. september í Landspítalanum.
Börn hinnar látnu.
t
HÓLMFRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR,
áður til helmilis í Breiðageröi 8,
lést á elliheimilinu Grund þann 19. september. Jaröarförin aug
lýst síöar.
Fyrir hönd aðstandenda
Magnús Júlíusson.
t
Sonur okkar,
ÞÓRIR BALDURSSON,
Rauðalæk 18,
lést þann 17. september.
Baldur Sveinsson,
Ingibjörg Torfadóttir.
t
Maöurinn minn, faöir, sonur og afi,
SVEINN ÞORGRÍMSSON,
bifreiðastjóri,
Hlíðargötu 28,
Sandgerði,
er lést 13. sept. síöastliöinn, veröur jarösunginn frá Hvalsnes-
kirkju laugardaginn 20. september kl. 15.00.
Fyrir hönd aöstandenda.
Svanbjörg Eirfksdóttir.
Elsku Grímur minn, Svana og
fjölskyldan, við frændfólkið í Vog-
unum sendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Sveini þakka ég
samfylgdina og bið Guð að blessa
hann í nýrri tilveru.
Litla frænka
Hótel Saga Siml 12013
Blóm og
skreytingar
við öll tœkifœri
Birting afmæl-
is- og minning-
argreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í
Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3
erindi og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er
birtur. Meginregla er sú, að
minningargreinar birtist undir
fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar eru
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og út-
för móður okkar, fósturmóöur, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SIGRÍÐAR Þ. ÞORLEIFSDÓTTUR
frá Veiðileysu.
Ingibjörn Hallbertsson,
Þorleifur Hallbertsson,
Karl Hallbertsson,
Lýður Hallbertsson,
Ármann Hallbertsson,
Sjöfn Inga Kristinsdóttir,
barnabörn og
Jóna Jónsdóttir,
Sigrfður Kristjánsdóttlr,
Anna Jónsdóttlr,
Guðbjörg Eirfksdóttlr,
Guðrún Steingrfmsdóttir,
Helgi Guömundsson,
barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug viö andlát og útför
CORU SOFIE BALDVINSON,
f. Paulsen,
Héraðshælinu á Blönduósi.
Jóhann Baldvinsson,
Gunda Jóhannsdóttir,
Paul Jóhannsson, Elfn Ellertsdóttir,
Sigmund Jóhannsson, Helga Ólafsdóttir,
Anne Jóhannsdóttir, Einar Evensen,
Krístine Jóhannsdóttir, Þorsteinn G. Húnfjörð,
Oddný Jóhannsdóttir,
Thorleif Jóhannsson, Kolbrún Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum öllum vinum og vandamönnum nær og fjær auðsýnda
samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför
PÁLS ÁGÚSTSSONAR
skólastjóra,
Fáskrúðsflrði.
Guð blessi ykkur öll.
Heba A. Ólafsson,
Atli Karl Pálsson,
Sigurður Ingi Pálsson,
Margrét, Þór og barnabörn.
Legsteinar
, llnnarbraut 19, Seltjarnarnesi
H- sími 91-620809
f'Umít
9