Morgunblaðið - 20.09.1986, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 20.09.1986, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1986 fclk í fréttum DÝR í FRÉTTUM * Oðinn og Þór eru öðru- vísi en önnur ljón Sá stóri sem náðist Þetta er hann Helgi Páll 9 árameð 17 pundarann úr Leifsstaðahylnum í Selá sem hann veiddi í ágúst sl. Enginn fullorðinn var nærstaddur og var þetta stærsti laxinn sem hollið fékk. Vinir Helga Páls, Jói og Jarri, hjálpuðu við að landa. Pað vakti talsverða athygli þeg- ar fjölgaði í ljónagryfjunni í dýragarðinum í Jóhannesarborg á dögunum. Litlir Ijónsungar eru reyndar allt- af athygli verðir, en þessir tveir líktust ekki foreldrum sínum nema að takmörkuðu leyti. Vaxtarlagið og eyrun voru reyndar í réttum hlut- föllum, en litlu hnoðramir voru mjallahvítir og svoleiðis Ijón fæðast ekki á hveiju degi, jafnvel ekki í Suður-Afríku, þar sem hvíti liturinn er í hávegum hafður á kostnað þess svarta. En albínóar hafa aldrei áður fæðst ófrjálsri ljónynju, svo vitað sé, og tóku dýrafræðingar því að rannsaka fyrirbærin af miklum móð. Þeir hafa nú kveðið upp úr um það, að ungamir verði hvítir það sem eftir er ævinnar og verður eflaust tilkomumikið að sjá til þeirra er þeim vex fiskur um hrygg. Móðirin kunni því miður ekki að meta þessa sérstæðu syni sína og varð að fjarlægja þá úr hennar umsjá svo hún færi þeim ekki að voða. Tók Qölskylda dýragarðseig- andans krílin að sér og nú em þeir bestu vinir dótturinnar á heimilinu, sem heitir Lynne og er ellefu ára. Ljónshvolpamir hafa hins vegar hlotið hin veglegu heiti VVotan og Thor, eða réttara sagt Óðinn og Þór samkvæmt goðafræði nor- rænna manna. Una þeiri Óðinn og Þór nú hag sínum hið besta þar suðurfrá, alsælir í Ijónaleikjum og öldungis ómeðvitaðir um að þeir em einir sinnar tegundar í heiminum. Litlu Ijónsungamir eru komnir í örugga umsjá Lynne, dóttur dýragarðseigandans, þar sem móðir þeirra hafði ekki smekk fyrir óljónslegu útliti sonanna. Öðrum þykja þeir ekkert síður sætir en annað ungviði og svo eru þeir einstakir í sinni röð. Herrey-fjölskyldan áður en brestir komu í samheldnina. Konan í miðjunni heitir Linda og er eiginkona elsta bróðurins. „Mótlætið hefur styrkt okkur,“ segir elsti . Herrey-bróðirinn, Per. Hér sést hann með Gerði móður sinni, sem nú hefur horf ið að ræstingastörfum í Bandaríkjunum. Svo bregðast krosstré... „Það er erfitt að trúa þessu upp á hann pabba, sem alltaf var svo góður,“ segja Herrey-bræður um framkomu föður síns, Willies, sem nú fer huldu höfði hjá vinafólki í Sundsvall og reynir að finna sjálfan sig í leiðinni. við tvítuga mormóna-stúlku hinum megin við sundið, í Svíþjóð, og hefur ekki sést síðan, frekar en sjóðirnir sem hann var settur yfir. Sú sænska yfírgaf hann reyndar fljótlega, en skaðinn var skeður. Móðirin, Gerður, hefur nú tekið til við barnfósturstörf hjá ríkri fjöl- skyldu vestur í Ameríku til þess að eiga fyrir salti í grautinn og munu það vera nokkur viðbrigði fyrir Gerði eftir Qörutíu ára far- sælt hjónaband, að fara út á vinnumarkaðinn með þessum hætti. Af bræðrunum er það að frétta að þeir hafa nú ráðið sér nýjan umboðsmann, tekið gildi föður- legrar forsjár til gagngerrar endurskoðunar og eru í þann mund að leggja upp í nokkurra mánaða hljómleikaferðalag um Suður-Pjón, þar sem þeir eiga enn fjölda aðdá- enda. vera umboðsmaður þeirra. í blaða- viðtölum var einmitt lögð mikil áhersla á það hver styrkur þeim bræðrum væri af foreldrum sínum, svo og af mormónatrúnni, sem fjöl- skyldan játar. En Adam var ekki lengi í Paradís. Fljótlega fór eftirspumin eftir Herrey-drengjunum að minnka og nú er svo komið að eina landið, sem þeir eiga einhveijum vinsældum að fagna í, er Danmörk. Þar eru þeir líka með afbrigðum vinsælir, svo að þeir mega vart fara út fyrir hússins dyr án þess að æpandi aðdáendur drífi að. Þeir ættu því að geta lifað þokka- lega á vinsældum sínum meðal Dana og síðast en ekki síst öllum milljónunum sem þeim söfnuðust í skammvinnu en ábatasömu góð- æri. En Willy, föður drengjanna, hafði einhvers staðar á leiðinni láðst að hafa í heiðri þau gildi sem hann henti hvað ákafast á lofti meðan hann baðaði sig í sviðsljósi sonanna. Sjóðirnir voru því hér um bil tómir þegar til átti að taka og til að kóróna allt saman, greip grái fiðringurinn þann gamla þvílíkum heljartökum að hann tók saman Eflaust muna fáir eftir hinum sætu sænsku Herrey-bræðr- um, sem unnu Evrópusöngva- keppnina árið 1984 með hinu mjög svo auðgleymanlega lagi „Diggi lo Diggi lei“. Bræður þessir voru afar snyrti- legir ungir menn og ekkert við það að athuga nema síður sé. Hins vegar voru menn ekki á eitt sáttir um tónlistarlegt gildi framlags þeirra, en slíkar vangaveltur hafa nú hingað til ekki vegið þungt þegar þessi keppni er annars veg- ar, eins og okkur Islendingum ætti að vera fullkunnugt. Eftir sigurinn í söngvakeppninni tóku tilboðin og jafnframt pening- arnir að streyma til bræðranna þriggja. Þar sem fjölskyldan var með eindæmum samhent tók faðir piltanna snemmendis að sér að

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.