Morgunblaðið - 19.10.1986, Page 38
38 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1986
I
UE I1EIMI EVI'ÉMyND.ANNA
Hoskins í Mona Lisa.
Nýjasta myndin sem
Jeff Bridges leikur í heitir
8 milljón leiðir til að drep-
ast (8 Million Ways to Die)
og það er nýbyrjað að
sýna hana í Stjörnubíói.
Leikstjóri er sá gamal-
kunni Hal Ashby (Coming
Home) en handritið skrif-
aði Oliver Stone
(Scarface) ásamt David
Lee Henry en það er
byggt á metsölubók eftir
Lawrence Block. Með
hlutverk í myndinni fara
auk Bridges þau Rosanna
Arquette, Alexandra Paul
og Andy Garcia en hann
er frá Kúbu og leikur eitur-
lyfjasalann Angel í mynd-
inni, gersamlega snarbil-
aðan hrotta.
. Myndin segir frá Matt
Scudder (Bridges). Hann
er fráskilinn, hefur verið
rekinn úr löggunni og þeg-
ar myndin hefst er hann
að rífa sig upp úr drykkju-
skap með því að sækja
AA-fundi. Hann kynnist
mellunni Sunny (Alex-
andra Paul), sem biður
hann að bjarga sér úr
klónum á dópsalanum
Angel (Garcia) en þegar
Scudder er að koma henni
undan er henni rænt og
hún drepin. Eftir það ein-
setur Matt sér að ganga
í skrok á Angel.
. /eff Bridges hefur þrisv-
ar sinnum verið útnefndur
til Óskarsverðlaun en
Með Alan Alda f Sweet Liberty.
Gangsterarnir f 8 milljón leiðlr til að deyja á hlaupum
með Angel f fararbroddi.
hann kom fyrst fram á
hvíta tjaldinu fjögurra
mánaða gamall. Fjöl-
skylda hans er öll upptek-
in af leiklistinni. Faðir
hans er Lloyd Bridges og
bróðir hans er Beau
Bridges. En Jeff hefur náð
þeirra lengst í myndum
eins og The Last Picture
Show, Starman og Jagged
Edge.
Rosanna Arquette leik-
ur aðra mellu sem Angel
notar sem gísl til aö skipta
á fyrir smyglaðar kókaín-
birgðir. Arquette vakti á
sér verulega athygli með
þremur myndum í röð á
síðasta ári en þá iék hún
í Desperately Seeking
Susan með Madonnu, Sil-
verado og After Hours.
Eins og Bridges kemur
hún úr fjölskyldu leikara
og er núna ein af efnileg-
ustu leikkonum yngri
kynslóðarinnar í Banda-
ríkjunum.
Handritshöfundurinn,
Oliver Stone, er þekktur
fyrir ofbeldisfullar og blóð-
ugar myndir eins og
Midnight Express og
Scarface, sem hann skrif-
aði handritið að og Salva-
dor, sem var fyrsta
myndin sem hann leik-
stýrði, en hún var um
ástandið í El Salvador í
upphafi þessa áratugar
og var sérlega áhrifarík.
„Ég er enginn James
Bond. Ég er bara einn
af strákunum," segir
Bob Hoskins, nýjasta
stjarnan á himni breska
kvikmyndaiðnaðarins.
Hann hlaut verðlaun
sem besti leikari í karl-
hlutverki á Cannes sl.
vor fyrir túlkun sína á
smákrimmanum góð-
hjartaða, George, í
nýjustu mynd Neil Jor-
dans (Angel, The
Company of Wolves),
Mona Lisa. Hoskins lítur
ekki út eins og kvik-
myndastjörnur yfirleitt.
Sjálfur lýsir hann t.d.
hausnum á sér eins og
stórum kálhausi, hann
er kubbslegur í laginu
og talar með sterkum
cockney-framburði.
Hann var fyrsti Bret-
inn til aö hljóta Cannes-
verðlaunin í 20 ár og
þegar hann gekk upp á
sviöið til að taka á móti
verðlaununum stóðu
áhorfendur upp og hylltu
kappann. „Mér leið eins
og drottningarmóður-
inni," sagði hann seinna.
„Það var sérlega
skemmtilegt að leika í
Monu Lisu. Ég varð
skotinn í George frá upp-
1967 þegar hann sat
með vini sínum úr leik-
arastéttinni í Unity-leik-
húsinu í London og saup
á víni eftir góðan máls-
verð. Starfsmaður leik-
hússins gerði ráð fyrir
að Hoskins væri að bíða
eftir að vera prufaður
fyrir hlutverk og skipaði
honum inn á sviöið.
Hoskins dreif sig inn og
fékk hlutverkið og gerði
svolitla uppgötvun í leið-
inni. „Ég kann vel við að
vera í góðum félagsskap
og leikhúsið var besti
staðurinn til að vera í
skapandi félagsskap.
Allt í einu hafði maður
allt þetta fólk til að leika
sér við."
Hann hlaut aldrei
neina þjálfun í leiklist,
en lærði um leið og hann
lék þar til maöurinn með
ranga andlitið, röngu
röddina og röngu hæð-
ina fór að vekja eftírtekt.
„Það er dásamlegt að
leika. Ég mundi ekki vilja
skipta á því og neinu
öðru í lífinu. Það er gam-
an að lifa og vinna sér
inn mikla peninga. Ég
hef verið heppinn og lagt
hart að mér
Bob Hoskins
hafi. Hann hefur orðið
undir í lífinu og hann er
barnalegur og gengur
ekki alltof vel að fóta sig
í tilverunni þegar hann
kemur aftur úr fangelsi,"
sagði hann. „í fyrstu var
hlutverkið full Rambó-
legt fyrir minn smekk og
ég settist niður með
Jordan til að finna lausn
á því. Mánuði seinna
kom hann með handritið
aftur og þá var eins og
hlutverkið væri eins og
skrifað fyrir mig; kubbs-
legur náungi með hjart-
að á róttum stað.
Svolítið eins og ég sjálf-
ur.“
Michael Caine fer
einnig meö hlutverk í
Mona Lisa og þetta er í
þriðja skiptið sem þeir
Hoskins leika á móti
hvor öðrum. Skömmu
áður en þeir léku í Mona
Lisa léku þeir saman í
nýjustu myndinni hans
Alan Alda (MASH), Swe-
et Liberty. „Það var allt
annar handleggur," seg-
ir Hoskins. „Hún var
gerð í afar fallegu um-
hverfi og við höfðum öll
okkar lúxus-
íbúðir og eiginkonur okk-
ar eyddu öllum deginum
við sundlaugarbakkann.
Myndin er einskonar
kómedía um sagnfræð-
ing sem skrifar sagn-
fræðiverk sem kvikmynd
er gerð eftir." í myndinni
leikur Hoskins handrits-
höfund, sem snýr hinu
virðulega sagnfræði-
verki í gamanmynd. Alan
Alda skrifar handritið að
myndinni og leikstýrir
henni en aðrir leikarar i
henni eru m.a. Michelle
Pfeiffer og hin aldna
drottning þöglu mynd-
anna, Lillian Gish.
Hoskins hataði að
vera í skóla en beindi
orku sinni frekar að því
að skrifa, mála og vinna
höggmyndir. Hann starf-
aði sem vörubílstjóri og
gluggahreinsunarmaður
svo eitthvað sé nefnt og
þvældist um Evrópu og
til Israels. „Ég lét mig
dreyma um að gera alla
mögulega hluti en það
varð aldrei neitt úr
neinu."
Það breyttist árið
8 milljón íeið
til að deyja
Kurt Russel og leikstjórinn Carpenter.
Vondir Kfnverjar f undirhelmum Kínahverfisins.
Verstur allra er Lo Pan. Hann er 2000 ára gam
all þó að það sjálst ekkl á honum.
Stórvandræði í Litlu-Kína
nýjasta mynd John Carpenters
Bandaríski leikstjórinn
John Carpenter kallar ný-
justu mynd sína Stórvand-
ræði í Litlu-Kína (Big
Trouble in Little-China)
hvorki meira né minna en
dulúðuga hasar-ævintýra-
gaman-kung-fu-skrímsla-
-drauga-mynd um
ímyndaða undirheima Kína-
hverfis. Hann hefur greini-
lega ætlað að koma víöa við
og hvernig til tekst hjá hon-
um fáum við að sjá í næstu
viku þegar Bíóhöllin tekur
myndina til sýninga.
Stórvandræði í Litlu-Kína
er fjórða myndin sem leikar-
inn Kurt Russel og Carpent-
er vinna saman við. Fyrst
gerðu þeir sjónvarpsmynd-
ina „Elvis" um rokkkónginn
Elvis Presley, svo framtíð-
arsýnina „Flóttinn frá New
York", loks vísindahrollvekj-
una „Hluturinn" (The Thing)
og nú hafa þeir gert „Stór-
vandræði".
Sagan í myndinni er eitt-
hvað á þessa leiö: Þeir Jack
Burton (Russell) og Wang
Chi (Dennis Dun) eru miklir
mátar, búsettir í San Fran-
cisco. Wang á von á stúlku
frá Peking, sem hann ætlar
að kvænast en hann hefur
sparað árum saman til þess
að geta greitt fyrir hana far-
gjaldið til Bandaríkjanna.
Wang getur þess að
stúlkan sín sé með heldur
sérkennileg augu, nefnilega
græn. Og það er vegna
þessara grænu augna sem
henni er rænt. í Ijós kemur
að velefnaður kaupsýslu-
maður, Lo Pan (James
Hong) að nafni, rændi henni
og þeir Jack og Wang
ákveða að taka málið strax
föstum tökum. Það er hins
vegar enginn smávandi að
ná fundi Lo Pan því hann
hefur ekki sóst á almanna-
færi árum saman.
Þeir félagar hitta hann
um síðir en þá fara fornar
kínverskar sagnir að spinn-
ast í málið. Pan upplýsir að
það hafi verið lögð á hann
þau örlög fyrir meira en
2000 árum að hann skyldi
vera óholdgaður þar til hann
fyndi stúlku með græn augu
og gæti dælt úr henni blóði
og tekið það inn til að örlög-
in leystust af honum. Það
kemur líka í Ijós að Pan býr
yfir kynngimögnuðum
göldrum og nýtur stuðnings
anda og forynja.
Russell lýsir hetjunni Jack
Burton á eftirfarandi hátt:
„Hann er klaufalegur ná-
ungi, fullur af sjálfstrausti
án þess að hafa efni á því.
Mér finnst hann skemmti-
legur vegna þess að hann
er sífellt að koma sér í
klandur en losar sig úr þeim,
þó á annan hátt ’en hann
ætlaöi sér. Þetta er líka ná-
ungi sem er sífellt að segja
ævintýralegar sögur af sjáíf-
um sór og svo gerist það
allt í einu að eitthvað kemur
fyrir hann sem er virkilega
þess virði að segja frá.“
Handritið gerðu þeir Gary
Goldman og David Z. Wein-
stein og þeir spöruðu víst
ekki sprengingarnar og
byssubardagana, eldingarn-
ar og þokur og lík og hluti,
sem fljúga um loftin, elda
og óteljandi töfrabrögð.
Carpenter gerði sjálfur tón-
listina við myndina og er
hann vanur því alveg frá því
hann gerði tóniistina við
Halloween-myndina sem
gerði hann frægan.