Morgunblaðið - 08.11.1986, Blaðsíða 4
MORGUNBLABHV LAUCAÆtDAGUR & iNÓVEMBER 1986?1
4n
Góð sala á
gámafiski
GOTT verð fékkst fyrir gáma-
fisk í Englandi nú í vikunni, en
samtals seldust 427.3 tonn fyrir
75,42 krónur að meðalverði kíló-
ið, sem er mjög gott verð. Þar
af voru 159 tonn þorskur og fen-
gust fyrir hann 80,52 krónur að
meðalverði.
Tvö skip seldu í Englandi á
fímmtudag. Erlingur SF seldi 42,8
tonn í Hull fyrir samtals tæpar 2,8
milljónir króna eða 65,02 krónur
að meðalverði. Otto Wathne NS
seldi 129,3 tonn í Grimsby fyrir
rúmar 8,5 milljónir króna að meðal-
verði 66,18 krónur. Þá seldi
Hólmatindur í Bremenhaven á
fímmtudag og föstudag 167,7 tonn
fyrir tæpar 9 milljónir króna. Aflinn
var að mestu leyti karfí og fengust
fyrir hann 53,56 krónur að meðal-
verði, sem er mjög gott verð.
INNLENT
VEÐUR
Morgunblaðið/Ól. K. M.
Sr. Jakob Roland les hinstu kveðju yfir Dr. Hinrik Frehen Reykjavíkurbiskup. Á bak við Sr. Jakob
stendur Sr. Augustin Georg, skólastjóri Landakotsskóla, sem er yfirmaður kaþólsku kirkjunnar þar til
nýr biskup tekur við embætti. Við hlið Sr. Jakobs stendur Crees Klebel, og Caroline Frehen, systur
hins látna.
Biskup kaþólskra jarðsunginn
Keflavík:
Gæzluvarðhald
framlengt
Gæsluvarðhald yfir manninum
sem handtekinn var af fikniefna-
lögreglunni í Keflavík með 100
grömm af amfetamíni við elli-
heimili á Suðurnesjum 28.
október sl. hefur nú verið fram-
lengt um viku.
Einn maður hefur verið hand-
tekinn og yfírheyrður í tengslum
við málið og hafður í haldi í sólar-
hring. Óskar Þórmundsson fulltrúi
fíkniefnalögreglunnar sagðist búast
við að fleiri yrðu handteknir og
yfirheyrðir á næstunni, en vildi ekki
upplýsa frekar gang málsins.
- BB
DR. Hinrik Frehen, biskup ka-
þólsku kirkjunnar á íslandi, var
jarðsunginn í gær í grafreit
Landakotskirkju. Viðstaddir at-
höfnina voru m.a. sextán prestar,
Hr. Henri Lemaitre fulltrúi páfa-
ÍDAGkl. 12.00:
Heímild: Veóurstofs islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG:
YFIRLIT á hádegi í gær: Skammt vestur af Reykjanesi er 963 milli-
bara djúp lægð sem mun hreyfast austur. Við Langanes er önnur
lægð, vaxandi 968 millibara djúp, sem hreyfast mun norðaustur.
SPÁ: Norðaustanátt ríkjandi um allt land, víða 5 til 7 vindstig.
Snjókoma eða éljagangur á norðanverðu landinu, fraá Vestfjörðum
til Austfjarða, en þurrt og v(ða léttskýjað fyrir sunnan. Hiti á bilinu
-3 til 2 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
SUNNUDAGUR og MÁNUDAGUR: Hvöss norðaustanátt með ólja-
gangi um allt noröanvert landið, en þurrt syðra. Vægt frost víðast
hvar.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
•(^ Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.
{jL Léttskýjað / / / / / / / Rigning
Hálfskýjað / / / * / #
Sl^iað / * / * Slydda / * /
^ Alskýjað * * * * * * * Snjókoma * * *
-j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
XJ Skurir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
■f í m w
*
V' -V
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri -2 léttskýjað
Reykjavík 2 slydduél
Bergen 7 rigning
Helsinki 1 skýjað
Jan Mayen 1 alskýjað
Kaupmannah. 8 skýjað
Narssarssuaq -14 iéttskýjað
Nuuk -B skýjað
Osló 3 skýjað
Stokkhólmur 3 léttskýjað
Þórshöfn vantar
Algarve 20 skýjað
Amsterdam 8 þokumóða
Aþena 16 akýjað
Barcelona vantar
Berlín 9 skýjað
Chicago 9 þokumóða
Gtasgow 13 rígning
Feneyjar 12 þokumóða
Frankfurt 3 þokumóða
Hamborg 8 skýjað
LasPalmas 24 rykmistur
London 14 súld
LosAngeles 12 léttskýjað
Lúxemborg 5 þokumóða
Madríd vantar
Malaga vantar
Mallorca vantar
Miaml vantar
Montreal 2 þokumóða
Nice 18 léttskýjað
NewYork 8 alskýjað
Parfs 11 skýjað
Róm 17 iéttskýjað
Vín 9 háffskýjað
Washington 8 þokumóða
stóls á Norðurlöndum, Hubertus
Brandenburg biskup kaþólsku
kirkjunar í Svíþjóð, Hr. Van Eck
yfirmaður Montefort reglunnar
sem Frehen tilheyrði, biskup
íslensku þjóðkirkjunnar, sr. Pét-
ur Sigurgeirsson og eiginkona
hans.
Hingað til lands komu til að
fylgja Hr. Frehen til grafar tvær
systur hans, Caroline Frehen og
Crees Klebel, og fjöldi vina hans
frá Frakklandi, Austurriki og Hol-
landi. Af Keflavíkurflugvelli komu
kaþólskir prestar.
Senda ber jóla-
póst í tæka tíð
PÓSTUR og Sími vekur athygli
á því að þeir sem hyggjast senda
jólaböggla með skipi til Banda-
ríkjanna verða að póstleggja þá
í síðasta lagi 12. nóvember nk.
Skip fer til Bandaríkjanna 14.
nóvember og þurfa bögglamir að
ná með því. Ekki er víst að böggla-
póstur sem fer til Bandaríkjanna
eftir 5. desember berist til viðtak-
enda fyrir hátíðamar.
Jafnframt er öllum bent á að
vera snemma á ferðinni með jóla-
póstinn.
Kaffibaunamál:
Endurskoðandi SÍS
vissi ekki um tvö-
falt reikningskerfi
ENDURSKOÐANDI SÍS, Geir
Geirsson, bar í gær vitni fyrir
Sakadómi Reykjavíkur í „kaffi-
baunamálinu." Valur Arnþórsson
gat ekki mætt eins og fyrirhugað
var þar sem hann er erlendis.
Geir var fyrst inntur eftir því
hvenær hann hefði fyrst vitað um
svokallaðar avisos-greiðslur, eða
bónusgreiðslur, sem SÍS fékk
greiddar frá seljendum kaffís í
Brasilíu. Runnu greiðslumar til SÍS
en ekki Kaffibrennslu Akureyrar,
sem keypti kaffíð. Geir sagði það
hafa verið fyrri hluta árs 1981 er
hann fór yfír bókhaldsgögn við end-
urskoðun reikninga SIS fyrir árið
1980. Hann sagðist hafa vitað að
SÍS hefði tekjur af kaffíinnflutn-
ingnum, en það hafí vakið athygli
sína hvað tekjumar af þessum við-
skiptum jukust árið 1980. Hann
sagðist hafa snúið sér til Amórs
Valgeirssonar, deildarstjóra fóður-
vörudeildar, Sigurðar Gils Björg-
vinssonar, aðstoðarframkvæmda-
stjóra innflutningsdeildar og Hjalta
Pálssonar, framkvæmdastjóra
deildarinnar til að leita skýringa.
Amór hefði vísað á hina tvo þar
sem hann var þá nýtekinn við starfí
sínu og Hjalti og Sigurður Gils
hafí útskýrt fyrir sér hvemig avisos
virkaði. Geir kvaðst á sama tfma
hafa komist að raun um tilvist verð-
fallsbóta í kaffíviðskiptunum.
Tvöfalt kerfí vörureikninga í við-
skiptum þessum hefur ekki síður
en avisos verið tilefni margra spum-
inga í Sakadómi. Erlendur Einars-
son, fyrrum forstjóri SÍS og Hjalti
Pálsson hafa borið að þeir hafí ekki
vitað um þetta kerfí fyrr en farið
var að rannsaka skattframtöl SÍS
fyrir gjaldárin 1980 og 1981. Geir
kvaðst ekki hafa vitað um þetta
fyrr en í ársbyrjun 1984 þegar hann
hafí heimsótt skrifstofu SIS í Lon-
don. Hann kvaðst engin svör hafa
fengið hjá forstöðumanni skrifstof-
unnar, Sigurði Áma Sigurðssyni,
um það hvemig kerfíð væri til kom-
ið, hver bæri ábyrgð á því, eða
hver tilgangurinn með því væri. Sér
hefði dottið í hug að tilgangurinn
væri sá að halda tekjunum af kaffí-
innflutningnum hjá SÍS, en hefði
heyrt þá tilgátu að kerfíð væri frá
Brasilíumönnum komið.
Um ástæður þess að Geir hafði
ekki fyrr rekist á tvöföldu vöru-
reikningana við endurskoðun hjá
skrifstofu SÍS í London sagðist
hann hafa frétt að fyrrum forstöðu-
maður skrifstofunnar, Gísli Theód-
órsson, hefði haldið þessum
gögnum aðskildum frá þeim bók-
haldsgögnum sem verið var að
endurskoða. Sagði Geir þetta hafa
verið um vorið 1981, þegar hann
kannaði sérstaklega kaffíviðskiptin,
en endurskoðun þessa hafi hann
framkvæmt vegna forstöðumanns-
skiptanna, þ.e. þegar Sigurður Ámi
tók við af Gísla. Hann sagði að
bókhaldsgögn og bókhaldsfærslur
hafí sýnt það hvemig tekjumar
voru til komnar og hvemig þeim
var ráðstafað og það breytt litlu
þótt nettóreikningur væri ekki til
staðar.
Sigurður Gils Björgvinsson var
þessu næst kallaður aftur fyrir
dóminn þar sem ekki tókst að ljúka
yfirheyrslum yfir honum þann 18.
september sl. Fátt nýtt kom fram
í yfírheyrslum yfír honum enda
stóðu þær stutt.
Á mánudag er reiknað með að
Valur Amþórsson, stjómarformað-
ur SÍS og Kaffibrennslunnar beri
aftur vitni og einnig þeir Geir
Magnússon, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs SÍS,
Snorri Egilsson, eftirmaður Sigurð-
ar Gils og fleiri.