Morgunblaðið - 08.11.1986, Blaðsíða 33
MQHfcWJBiuwMB, iMsmsmím 3. wfáfmamAm
. Sala á fullvirðis-
| rétti er skattskyld
Skattlagningunni má þó dreifa á 4 ár, eða færa á nýjar eignir
í myndinni „Frelsi" leikur Alan Alda (t.v.) rithöfund sem verður
fyrir því óláni að kvikmyndnhandritshöfundur, leikinn af Bob Hosk-
ins, misþyrmir söguþræði bókar hans.
Frelsi í Laugarásbíó
LAUGARÁSBÍÓ frumsýnir gam-
anmyndina „Sweet liberty", eða
„Frelsi", sem Alan Alda leikstýr-
ir. Sá skrífar einnig handrit, og
fer meða aðalhlutverkið.
Myndin segir frá Michael Burg-
ess sem er sðgukennari í rólegum
smábæ. Hann hefur skrifað hug-
ljúfa bók um borgarastyrjöldina í
Bandaríkjunum. Öllum að óvörum
verður hún metsölubók, og kvik-
myndaréttinn kaupa stórlaxar i
Hollywood. Þegar kvikmynda-
gerðamenn koma til heimabæjar
rithöfundarins umturnast allt á
einni nóttu. Hugmyndir leikstjórans
ganga þvert á viðteknar venjur í
bænum, og handrit myndarinnar á
lítt skylt við upprunalegu söguna.
margt óvænt hendir sögupersón-
urnar. Meðal leikenda eru Michelle
Pfeiffer og Michael Caine.
Reykhólakirkja fær
altarisdúk að gjöf
Við frágang eftirfarandi fréttar
hér í blaðinu síðastliðinn fimmtu-
dag misritaðist nafn Elinar
Sigríðar Benediktsdóttur á ein-
um stað, eins og reyndar mátti
ráða af framhaldinu. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á
þessum leiðinlegu mistökum og
birtir hér á eftir fréttina leið-
rétta.
Miðhúsum, Reykhólasveit.
VIÐ barnaguðsþjónustu í Reyk-
hólakirkju sunnudaginn 2.
nóvember færði Guðrún Valdim-
arsdóttir ljósmóðir, sem cr fædd
1897 að Strandseljum í Ögur-
hreppi, Reykhólakirkju og
söfnuði hennar, að gjöf fagran
altarisdúk. Altarisdúkurinn er
gefinn til minningar um frænku
hennar og systur sóknarprests-
ins, séra Braga Benediktssonar,
Elinu Sigríði Benediktsdóttur,
sem var fædd 20. október 1938
að Hvanná í Jökuldal.
Elín Sigríður dó 23. febrúar
1972, aðeins 33 ára gömul, frá eig-
inmanni sínum, Óla Stefánssyni í
Merki í Jökuldal og fimm börnum
þeirra.
Guðrún dvelur nú á heimili fyrir
aldraða að Dalbraut í Reykjavík og
afhenti hún dúkinn sjálf. Þessi alt-
arisdúkur er hinn þriðji sem hún
saumar. Einn gaf hún kapellu fr-ú-
arheimilisins að Dalbraut og annan
gaf hún Árbæjarkirkju í Reykjavík.
Guðrún var einn mánuð að sauma
þennan fallega altarisdúk með
Harðangurs- og Klaustursaumi.
Sóknarpresturinn, séra Bragi Ben-
ediktsson, þakkaði gefanda fyrir
hönd sóknarnefndar og safnaðar.
Sveinn.
RIKISSKATTSTJORI hefur gef-
ið út álit um skattalega meðferð
sölu fullvirðisréttar bænda og
aðrar greiðslur Framleiðnisjóðs
til þeirra vegna búháttabreyt-
inga. Telur ríkisskattstjóri að við
sölu fullvirðisréttar sé um. að
ræða sölu á réttindum og teljist
greiðslurnar þvi að fullu til skatt-
skyldra tekna á söluári.
í áliti ríkisskattstjóra segir að í
þessu efni skipti ekki máli hve Iengi
skattaðili hafi átt þessi réttindi.
Bændum er þó heimilt að dreifa
skattlagningu hins selda fullvirðis-
réttar á 4 ár vegna þess að þeir fá
sölualdvirðið greitt að hluta með
skuldaviðurkenningum til þriggja
ára eða lengri tíma. Telji bændur
sér slíka dreifingu á skattlagningu
ekki hagfellda telur ríkisskattstjóri
að viðkomandi bændur geti farið
fram á frestun skattlagningar sölu-
hagnaðar um tvenn áramót frá
söludegi, enda afli þeir sér sams
• konar eignar eða íbúðarhúsnæðis
til eigin afnota innan þess tíma og
færist þá söluhagnaðurinn til lækk-
unar á stofnverði hinnar nýju
eignar. Allt er þetta ákveðnum skil-
yrðum háð, samkvæmt ákvæðum
skattalaganna.
Ef bændur vilja ekki fá fullvirðis-
réttarsöluna til tekna á söluári haf a
þeir samkvæmt þessu heimild til
þess að dreifa skattlagningunni á
fjögur ár eða.fresta henni með því
ið færa hana yfír á aðrar eignir
sem þeir kaupa í atvinnurekstrar-
skyni (t.d. loðdýrahús) eða íbúðar-
hús með því að fyrna þessar eignar
sérstaklega sem þessu nemur.
I þeim tilvikum sem Framleiðni-
sjóður leigir fullvirðisrétt eru
greiðslurnar skattskyldar að fullu á
þeim árum sem greiðslurnar koma
Yfirlýsing frá B J
MORGUNBL AÐINU hefur borist
yfirlýsing frá Bandalagi Jafnað-
armanna þar sem segir að
heimildarmenn fréttar um Stef-
án Benediktsson á StÖð 2 séu
ekki innan vébanda bandalags-
ins.
Orðrétt er yfirlýsingin á þessa
leið; „Almennur fundur haldinn í
Bandalagi Jafnaðarmanna fimmtu-
daginn 6. nóvember 1986 í Templ-
arasundi 3, lýsir því yfir að launárás
eins og fram kom á Stöð 2 á Stef-
án Benediktsson með dylgjum og
ónafngreindum heimildarmönnum
kom ekki frá Bandalagi Jafnaðar-
manna. í jafn viðkvæmum málum
og þessum er það siðferðileg krafa
að heimildarmanna sé getið."
Athugasemd frá Grönlandsfly
vegna fréttar um sjúkraflug
VEGNA fréttar á forsíðu Morg-
unblaðsins 7. nóvember af
sjúkraflugi 2. nóv. sl. frá Aasiaat
(Egedsminde) og Ilulissat (Jak-
obshavn) til Nuuk (Godthaab),
óskar Grönlandsfly eftir að birt-
ar verði eftirfarandi upplýsingar
um staðreyndir málsins:
„Sunnudaginn 2. nóvember kl.
um það bil 18.40 óskaði Landspítal-
inn í Nuuk eftir sjúkraflugi frá
Ilulissat til Nuuk með ungbarn, sem
þjáðist af heilahimnubólgu.
Skömmu seinna var flugdeild
Grönlandsfly búin að ná í flugmann
til flugsins, en vegna veðurs og
annarra ástæðna þurfti 2 flugmenn
í flugið til Ilulissat. Rétt eftir kl.
19.00 lenti áætlunarvélin frá
Reykjavík í Nuuk og flugstjóri
þeirrar vélar samþykkti að fara í
sjúkraflugið.
Þess skal getið að Grönlandsfly
hefur ekki menn á vakt til að sinna
sjúkraflugi sérstaklega og flugið
því að nokkru háð góðum skilningi
félagsins og flugmanna þess á erfið-
um aðstæðum í Grænlandi.
Þegar flugvélin var tilbúin til
brottfarar kl. 19.30 bárust fregnir
um, að einnig þyrfti sjúkraflug frá
Aasiaat.
Hér var um ungbarn að ræða,
sem var haldið smitandi heila-
himnubólgu. Þurfti að flytja barnið
með þyrlu frá Aasiaat til Ilulissat
í veg fyrir flugvélina til Nuuk. Var
því um 2 sjúklinga að ræða frá Ilul-
issat til Nuuk.
Fyrir brottför frá Nuuk áttu flug-
mennirnir tal við lækninn, sem átti
að fara í sjúkraflugið, ásamt yfir-
lækni sjúkrahússins, um smithættu.
Hér var einungis um að ræða öflun
upplýsinga um smithættu og á eng-
an hátt mótbárur um að fram-
kvæma flugið. .
Skömmu eftir kl. 20.00 fór S61N
þurla frá Ilulissat til að sækja sjúkl-
til. Ríkisskattstjóri segir að skatt-
skylda greiðslna vegna niðurskurð-
ar vegna riðuveiki fari eftir eðli
samninganna, samanber það sem
fram kemur hér að ofan. Þar er
einnig vísað í áður útgefið álit ríkis-
skattstjóra vegna riðuveikiniður-
skurðar í Reykjafjarðarhreppi í
fyrrahaust þar sem segir að um-
ræddar bætur eigi að telja til tekna
á því ári sem greiðslurnar falla til.
Ríkisskattstjóri segir að greiðslur
Framleiðnisjóðs vegna þeirra af-
urða sem til falla við kaup á fullvirð-
isrétti, svokallaður förgunarkostn-
aður, eigi að færast til tekna á
landbúnaðarskýrslu á því ári sem
förgunin fer fram, en á móti er
gjaldfærð bússtofnsskerðing.
Að lokum er í áliti ríkisskatt-
stjóra fjallað um greiðslur Fram-
leiðnisjóðs vegna stofnkostnaðar
hjá þeim sem taka upp annan at-
vinnurekstur en mjólkur- og kjöt-
framleiðslu á lögbýlum. Framlög
þessi eiga bændur "að draga frá
kostnaðarverði viðkomandi bygg-
inga eða tækja og færast þau því
ekki beint til tekna en lækka fyrn-
ingargrunn eignarinnar.
Basar fyrir
Karlakór
Reykjavíkur
Kvenfélag Karlakórs Reykjavik-
ur heldur basar i félagsheimili
kórsins, Freyjugötu 12, annarri
hæð, í dag og hefst hann klukkan
tvö.
í fréttatilkynningu frá félaginu
segir, að á böðstólum verði ýmsar
vörur, sem félagskonur hafi prjónað
og saumað til styrktar kórnum, og
einnig úrval af ýmsu brauðmeti.
inginn í Aasiaat og kl. 20.48 fór
flugvélin frá Nuuk til að mæta þyrl-
unnni í Ilulissat, þegar hún kæmi
til baka.
Þyrlan lenti í Ilulissat kl. 21.51
og flugvélin frá Nuuk kl. 22.09.
Skömmu seinna var flugvélin tilbú-
in til að fljúga til baka til Nuuk.
Annar flugmaðurinn varð eftir í II-
ulissat, þar sem breyttar aðstæður
leyfðu einn flugmann.
Brottför til Nuuk tafðist í 1.18
mín. af ástæðum, sem Grðnlandsfly
gat ekki haft áhrif á. Flugvélin fór
frá Ilulissat kl. 23.27, aðeins með
sjúklinginn frá Aasiaat um borð.
Samkvæmt framangreindu telur
Grönlandsfly, að sjúkraflugið hafi
verið framkvæmt á þann hátt, að
umræður um öryggislega ábyrgð
vegna flutnings sjúklings með smit-
sjúkdóm, hafi ekki haft áhrif á
framkvæmd þess, enda mættust
þyrlan og flugvélin í Ilulissat svo
til samtímis."
Þorbjörn Broddason
sendir félagsmála-
ráðherra kærubréf
OSSUR Skarphéðinsson (Abl)
skýrði á fundi borgarstjórnar á
fimmtudag frá þvi að Þorbjörn
Broddason, fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins i skólamála- og
fræðsluráði hefði sent félags-
málaráðherra kærubréf þar sem
hann fer fram á að ráðherra
hlutist til um að farið verði að
lögum við framkvæmd fræðslu-
mála í Reykjavík.
Einnig skýrði hann frá því að
Þorbjörn myndi ekki sitja fundi
skólamála- og fræðsluráðs meðan
beðið væri eftir úrskurði og vara-
maður kæmi ekki í hans stað.
Össur sagði að í bréfi síhu hefði
Þorbjörn farið fram á að formaður
fræðslunefndar, Ragnar Júlíusson,
yrði „knúinn" til að halda fundi í
samræmi við lög og að skorið verði
úr um rétt kennara og fræðslu-
stjóra til setu í skólamálaráði. Sagði
Össur að verið væri að svipta
fræðslustjóra og kennarafulltrúa
völdum þar sem þeir hefðu stundum
haft aðrar skoðanir á málum en
meirihluti borgarstjórnar.
Sigurjón Fjeldsted sagði fundi
vera haldna í fræðsluráði og fundar-
gerðir til vitnis um það. Það væri
líka „bull" að verið væri að bola
kennarafulltrúum út úr skólamála-
ráði. Þeim hefði verið boðið að skipa
tvo fulltrúa en þráast við að skipa
þá. Auk þess hefðu skólastjórar og
SAMFÖK, Samtök foreldra og
kennara, sitt hvorn fulltrúann.
Fræðslustjóri aftur á móti væri
embættismaður ríkisins og því
óeðlilegt ef hann fengi að sitja alla
fundi þar sem verið væri að ræða
málefni sveitarfélagsins. Einnig
sagði Sigurjón að í umsögn borgar-
lögmanns og lögmanns Kennarafé-
lags Reykavíkur um Skólamálaráð
hefði komið fram að stofnun þess
væri fyllilega í samræmi við lög.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sagði Þorbjörn vera með „furðulega
tilburði" í þessu máli. Það væri
ekki á valdssviði félagsmálaráð-
herra að úrskurða um þetta heldur
menntamálaráðherra þó málinu
hefði verið vísað til félagsmálaráð-
herra af einhverjum „undarlegum
ástæðum".
Sigrún Magnúsdóttir (F) sagðist
eindregið styðja ákvörðun Þor-
björns Broddasonar. „Við þetta
ófremdarástand er ekki hægt að
búa".
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (Kv)
lýsti einnig yfir stuðningi við ák-
vörðun Þorbjörns um að fá úrskurð
félagsmálaráðherra. Ágreiningur-
inn snérist um það hver væri
yfirmaður skólamála f Reykjavík
og menn vildu vita hvort þeir væru
að taka þátt í löglegri stjórnvaldsað-
gerð, stofnun skólamálaráðs, eða
ekki.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sagði Þorbjörn ekki 'biðja um úr-
skurð um lögmæti stofnun skóla-
málaráðs í brefi sínu heldur
áðurnefnd þrjú atriði.
Tónabær:
Tónver fyrir bíl-
skúr shlj óms veitir
ÞEIM sem iðka tónlist i sk.
„bílskúrshljómsveitum" er boðið
að taka þátt í námskeiði sem
fram fer i Tónabæ, segir í frétt-
atilkynningu sem blaðinu hefur
borist. Þar hefur verið komið
fyrir sérstöku tónveri með full-
komnuni lújóðfærum. Leiðbein-
andi, sem er tónlistarmaður, mun
leiðsegja um undirstöðuatriði i
popptónlist, þar á meðal hvernig
gera megi frumsamin lög.
Á fyrsta námskeiðið komast fjór-
ar híjómsveitir. Á fimm vikna
tímabili fá þær 30 klukkustunda
tilsögn. Fyrsta námskeiðið hefst 10.
nóvember og stendur til 15. des-
ember. Innritun fer fram f Tónabæ
hjá Ólafi eða Konráði.