Morgunblaðið - 30.12.1986, Page 23
23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1986
hlut sterkju sem fæst úr kommat,
baunum og kartöflum og í minna
mæli úr öðmm garðávöxtum.
Kostir þess að auka hlut sterkju-
auðugra fæðutegunda em einkum
að þeim fylgja mikilvæg bætiefni
og fæðutrefjar. Kím og hýðishlutar
komtegundanna geyma megnið af
vítamínum, steinefnum og trefja-
efnum sem þar er að finna og auk
þess fituefni af bestu gerð. Því
þarf að leggja áherslu á að velja
korntegundir sem ekki hafa verið
sviftar þessum bætiefnum, svo sem
haframjöl, rúgmjöl og heilhveiti og
nota brauð gerð úr óskertum korn-
tegundum.
Kostir þess að skerða sykur-
neyslu em einkum að með því
dregur úr hættu á tannskemmdum,
einnig fá þá fjölþættari fæðuteg-
undir stærri hlutdeild í heildarneysl-
unni.
3. Fita.
Fituneysla fari ekki yfir 35% af
heildarorkunni og hlutfall fjöl-
ómettaðrar fitu verði aukið frá
því sem nú er í allt að 0,40. Til
þess að ná þessu marki má draga
úr neyslu kjötfitu, mjólkurfitu og
harðrar jurtafeiti en nota þess í
stað mjúka fitu. Gott er að auka
neyslu á fiski, fiskolíum og ann-
arri mjúkri fitu.
Mælt er með að skerða fitu-
neyslu að mun. Samkvæmt könnun
úr innlendum fæðutegundum: fiskij
kjöti, mjólkurmat og eggjum. I
neyslukönnun Manneldisráðs
1979—1980 fengust að meðaltali
16% af orku fæðisins úr hvítu. Þess
ber að gæta, að í fæðutegundum
auðugum af hvítu em mörg önnur
efni, líkamanum nauðsynleg, svo
sem jám í kjöti, kalk í mjólkurmat
og hollar fítusýmr í físki. Því má
ekki ganga of langt í að takmarka
neyslu þessara fæðutegunda.
5. Matarsalt.
Talið er að mikil saltneysla geti
átt þátt í að auka háþrýsting. Of
hár blóðþrýstingur, háþrýstingur,
er einn af áhættuþáttum hjarta- og
æðasjúkdóma. Því er mælt með að
takmarka saltneyslu með því að
sneiða hjá saltmeti og takmarka
salt í matreiðslu og við borðhald
að því marki að dagsneysla sé und-
ir 8 grömmum.
6. D-vítamín.
Samkvæmt neyslukönnun Mann-
eldisráðs 1979—1980 var að
meðaltali of lítið af D-vítamíni í
daglegu fæði landsmanna, miðað
við ráðlagða dagskammta.
Ráðlagt er að bæta úr því með
lýsisneyslu. í einni teskeið (5 ml)
af þroskalýsi fæst dagskammtur
af D-vítamíni og að auki fjölómett-
uð fita.
D-vítamín er nauðsynlegt til þess
að kalkið í fæðunni skili sér inn í
RÁÐLAGÐIR DAGSKAMMTAR: SKILGREINING
Ráðlagðir dagskammtar (RDS) eru það magn nauðsynlegra
næringarefna sem fullnægir næringarþörfum alls þorra heilbrigðs
fólks að mati Manneldisráðs íslands.
Þarfireinstaklinga eru breytilegar, og eru skammtarnirsettirmeð
tilliti til þessa, því eru RDS gildin hærri en þörf allflestra
einstaklinga. Þar af leiðir að ekki skyldi túlka RDS sem einstaklings-
bundna næringarþörf, heldurfremursem ráðleggingareða
viðmiðunargildi er meta skal næringu hópa fólks.
Skammtastærðirnar miðast við þarfir heilbrigðra. Fyrirburar,
sjúklingar með efnaskiptasjúkdóma, sýkingar eða langvarandi
sjúkdóma, svo og þeir sem taka lyf að staðaldri hafa oft aðrar
næringarþarfir.
Gert er ráð fyrir að næringarefnin komi úr blönduðu almennu fæði.
Skammtastærðir eru því settar með hliðsjón af breytilegri nýtingu
(frásogi) næringarefna. Ekki eru sett RDS gildi fyrir öll nauðsynleg
næringarefni, og er það yfirleitt vegna skorts á heimildum. Þó skal
sérstaklega tekið fram, að ráðleggingar varðandi hvítu (prótein) svo
og önnur orkuefni er að finna í manneldismarkmiðum
Manneldisráðs.
RDS byggjast á þekkingu og rannsóknum í næringarfræðum og
krefjast því stöðugrar endurskoðunar. Þessi útgáfa af RDS
Manneldisráðs íslands tók gildi í apríl 1986 og þar með fóll úr gildi
fyrri útgáfa af RDS frá árinu 1979.
Manneldisráðs 1979—1980 gaf fíta
að meðaltali 41% af orkumagni
fæðisins, en æskilegt hlutfall er
innan við 35%. Því markmiði skal
ná með því að draga úr notkun
feitra kjöt- og mjólkurafurða, spara
feitt viðbit og takmarka fitunotkun
við daglega matreiðslu. Jafnframt
er ráðlagt að auka fískolíur í fæði
og nota jurtaolíur í matreiðslu, fitu
sem storknar ekki í kæliskáp, en
takmarka hlut harðrar fitu svo sem
kostur er.
Kostir þess að minnka heildar-
magn fitu í fæði eru einkum að
með því er mögulegt að auka hlut
fæðutegunda sem auðugri eru af
bætiefnum en gefa minni orku,
færri kaloríur, fæðið verður með
því fullkomnara og leiðir síður til
ofeldis.
Kostir þess að nota mjúka fitu
en sniðganga harða, felast í mis-
munandi eiginleikum fitutegunda.
Olíur ríkar af fjölómettuðum fitu-
sýrum lækka fremur kólesteról í
blóði en í harðri fítu eru fitusýrur
sem hafa gagnstæð áhrif, auka
kólesteról í blóði og þar með hættu
á hjarta- og æðasjúkdómum.
4. Hvíta (prótein).
Hæfilegt er að hvíta veiti að
minnsta kosti 10% orkunnar.
Nægileg og fullkomin hvíta fæst
efnaskipti líkamans (frásogist) og
nýtist við myndun og viðhald bein-
vefs, þar á meðal tanna. Fleiri
efnaferlar eru háðir D-vítamíni og
kalkbúskap líkamans.
Af ufsaíýsi þarf aðeins hálfa te-
skeið til þess að fá dagskammt af
D-vítamíni, en sé það notað skerð-
ast fiskolíurnar að sama skapi.
í lýsispillum er D-vítamín en lítið
af fiskolíum.
Þess ber að gæta að óhófneysla
A- og D-vítamína getur veríð skað-
leg, t.d. ef margra vítamínauðugra
meðala er neytt samtímis að stað-
aldri.
7. Fæðuval.
Stefnt skal að sem fjölbreyttustu
fæðuvali úr eftirfarandi fæðuflokk-
um í þeim hlutföllum orkuefna sem
að framan greinir:
1. Kornmat
2. Mjólkurmat
3. Grænmeti og ávöxtum
4. Kjöti, fiski, eggjum.
Engin ein fæðutegund, hversu
holl sem hún er talin, inniheldur í
hæfilegum hlutföllum öll þau nær-
ingarefni sem nauðsynleg eru. Því
getur einhæft fæði aukið líkur á
að einhver næringarefni skorti.
Með fjölþættu vali fæðutegunda
er unnt að gera fæðisáætlanir sem
uppfylla kröfur um alhliða næringu.
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
845IE
LASER
LYKILLINN AD VANDADRI LITPRENTUN
MYNDAMÓTHF
HATUNI 6A SlMI (91)24420
ASEA Cylinda
þvottavélar ★sænskar og sérstakar
Fá hæstu neytendaeinkunnir fyrir þvott, skolun,
vindingu, taumeðferð og orkusparnað. Efnis-
gæði og öryggi einkenna ASEA. Þú færð ekki
betri vélar!
/FQ nix
Otrúlegt úrval
af ávöxtum og^ggíú^grænmeti.
Gleðilegt nýtt ár,
þökkum viðskiptin
á liðnu árí!
** w e-si!,Kjötborðið
er allt út
Opið til kl. 19.
Opið á
amlársdag
til kl. 12.