Morgunblaðið - 30.12.1986, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1986
ffclk í
fréttum
Samantha Fox:
Díana með Ieð-
urjakkana
góðu, en Annie
Lennox stendur
brosandi hjá.
Mun ekki fækka
fötum vestanhafs
Allt löðrandi
Sem sjá má þarf
Samantha Fox
ekki að fækka
mörgum fötum til
þess að Playboy
gerði sig- ánægt,
en hún gefur sig
samt ekki.
í leðri
Leðurfatnaður hefur verið í tísku svo
langt sem elstu menn muna, en í mis-
miklum mæli þó. Síðastliðin ár hefur vegur
leðursins verið meiri en oft áður og er svo
komið að menn geta ekki haett sér niður í
Austurstræti án þess að sjá heilu herfylkin
af fólki í leðurstökkum og er þá sama hvort
um er að ræða blaðsölubörn eða alþingis-
menn.
Sama er upp á teningnum út í hinum
stóra heimi og sama hvort um er að ræða
háa eða lága. Nú síðast fréttist af áhuga
kóngafólksins á leðurfatnaði og eiga þær
stöllur Díana og Stephanía í hlut, þó með
ólíkum hætti sé.
Helmingur dúettsins Eurythmics, Annie
Lennox, hitti Díönu prinsessu af Wales fyr-
ir skömmu. Hafði hún frétt að prinsarnir
William og Harry væru sérlegir aðdáendur
hennar. Sérstaklega var þó hermt að þeir
hrifust að klæðaburði Lennox, en hún er
nær sífellt leðurklædd. Vegna þessa hafði
hún gert viðeigandi ráðstafanir og var með
sérsaumaða leðutjakka handa prinsunum í
farteskinu. Díana prinsessa þakkaði fyrir
hönd sinna og bætti við að reyndar væri
hún sjálf ákafur aðdáandi Lennox, en dreng-
irnir hrifust aðallega að útliti hennar eins
og skiljanlegt er.
Af öðrum vígstöðvum er það að frétta
að Stephanía Mónakóprinsessa hefur hann-
að nýja leðuijakkalínu, sem kennd er við
hana. Stephanía hefur þótt hinn ájgætasti
fatahönnuður og selur grimmt. Odýrasti
jakkinn í þessari „línu“ mun kosta um
14.000 íslenskar krónur ótollaður.
Joan Collins
laus höndin?
Aður hefur verið fjallað um
söngkonuna bresku og barm-
fögru, Samönthu Fox, á þessum
síðum og hennar getið að góðu einu,
en áður en hún lagði út á popp-
brautina var hún fatafella.
Nú fréttum við að bandaríska
tímaritið Playboy hafi boðið henni
að leggja miðopnu þess undir sig.
Það boð var þó gert með því skil-
yrði að myndimar yrðu í beröglara
lagi, en ein mynd getur sagt meira
en þúsund orð sem kunnugt er.
Bar nú svo við, og þótti sæta
tíðindum, að stúlkan sem hingað
til hefur verið ófeimin við að fletta
sig klæðum afþakkaði gott boð og
sagði að hún vildi frekar að Banda-
ríkjamenn kynntust sér af söngi
sínum en kynþokkanum einum. Rit-
stjóramir bentu á að ekki væri langt
- Bleik brugöiö
síðan að hún hefði birst nakin á
síðum breskra dagblaða og auk
þess hétu lög hennar nöfnum eins
og „Touch Me“, eða „Snertu mig“,
eins og það útleggst væntanlega á
íslensku. Sú stutta svaraði því til
að bandarískur almenningur væri
mun siðprúðari en sá breski, en auk
þess væri hann með mun meira
ímyndunarafl. Og við það situr.
Ekki alls fyrir löngu bárust
fregnir af því að leikkonan
Joan Collins hefði sótt um skilnað
frá hinum sænska eiginmanni
sínum, Peter Holm, og var haft
fyrir satt að ekki væri allt með
felldu. M.a. voru á kreiki sögusagn-
ir um að Holm hefði gengið í skrokk
á konu sinni, en hann þvertók fyrir
það. Nú hefur hann gengið lengra
og staðhæfir að Joan hafi hins veg-
ar iðulega rétt sér kinnhest til
áréttingar orðum sínum. í rætnari
rifrildum hafi hún hins vegar veitt
honum einn á lúðurinn, en hann
hafí heiðurs síns vegna að sjálf-
sögðu ekki svarað því.
Þessar upplýsingar komu fram
við skilnaðarréttarhöldin, sem fram
fara í Hollywood. „Joan er ótrúlega
skapbráð. Fyrir einum mánuði
ræddum við breytingar á húsinu og
ég Ieyfði mér þann glæp gegn
mannkyninu að vera henni ósam-
mála. Þá var fjandinn laus. Hún
reifst og skammaðist, gargaði á
mig, þeytti blómavösum og öðru
lauslegu í gólfið, kýldi mig þannig
að ég snýtti rauðu og kallaði mig
að lokum skíthæl! Þetta var þó alls
ekki í fyrsta skiptið sem hún sló
til mín. Þrátt fyrir það hef ég fyrir-
gefið henni í hvert skipti og vonað
að hjónaband okkar myndi batna“,
Stephanía
Mónakóprins-
essa að vísu
ekki í leður-
jakka, en eigi
að síður í sjálf-
hönnuðum
fötum.
sagði Peter hryggur í bragði í rétt-
arsalnum.
Peter vonar ennþá að ekki komi
til skilnaðar. „Ég elska Joan og
vildi gefa allt til þess að fá hana
aftur til mín. Ekkert af því sem hún
hefur sagt um að ég hafi hlunnfar-
ið hana um milljónir dala er satt.
Við höfðum ekki einu sinni sameig-
inlegan fjárhag. Ég var með minn
eigin reikning fyrir launin mín“, en
Holm var umboðsmaður og bók-
haldari Joan.
Þrátt fyrir að Holm vonist til
þess að þau nái saman á ný er
Marvin Mitchelson, lögfræðingur
Joan, ekki jafnbjartsýnn. „Joan
Collins vill skilja og það gerir hún.
Með eigin skilyrðum."