Morgunblaðið - 30.12.1986, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1986
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 500 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakiö.
Grimmdarverk
í Afganistan
Alaugardaginn voru sjö ár
liðin frá því að Sovétmenn
hófu innrásarstríð í Afganistan.
Enn er barist í landinu. Her-
menn hinnar sovésku lepp-
stjómar betjast við hlið um
115.000 sovéskra hermanna
gegn illa vopnuðum og lítt
skipulögðum sveitum frelsis-
hermanna. A árinu 1985 féllu
37.000 almennir borgarar í Afg-
anistan vegna innrásarstríðsins;
fram tii ágústloka í ár hafa
12.000 til 15.000 borgarar fall-
ið í valinn. Fimm milljónir
flóttamanna hafa yfírgefíð Afg-
anistan og um ein milljón
manna hefur flúið heimili sín
innan Iandamæra Afganistan.
Stríðið hefur verið til umræðu
á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna ár hvert síðan það hófst.
Átta sinnum hefur meirihluti
aðildarríkja Sameinuðu þjóð-
anna hvatt Sovétmenn til að
kalla herafla sinn á brott frá
Afganistan. Sérstakur erindreki
Sameinuðu þjóðanna, dr. Felix
Ermacora, lagaprófessor frá
Vínarborg, hefur fjórum sinnum
lagt fram skýrslur um mann-
réttindabrot og ódæðisverk
innrásarhersins og sovésku
leppanna. Þrátt fyrir allt þetta
halda Sovétmenn stríðsrekstrin-
um áfram. í lýðræðisríkjunum
verður ekki vart við neina skipu-
lagða hópa, er halda málstað
frjálsra Áfgana á loft af þeim
þrótti og með þeim fordæming-
armætti, sem hann verðskuldar.
Eða eins og dr. Felix Ermacora
orðar það í nýlegu viðtali við
bandaríska vikuritið Newsweek:
„Þeir, sem standa fyrir mót-
mælum, virðast leggja sérstakt
pólitískt mat á ástandið og kom-
ast að þeirri niðurstöðu, að
annað risaveldið hafí ávallt
rangt fyrir sér en hitt geti ekki
haft rangt fyrir sér. . . Frá
mannúðarsjónarmiði er ekkert
jafn hroðalegt að gerast í ver-
öldinni og stríðið í Afganistan.“
Síðasta skýrsla Felix Ermac-
ora til Sameinuðu þjóðanna er
dagsett 31. október síðastliðinn.
Sérstaka athygli hefur vakið,
að skýrslunni var ekki dreift í
heild til fjölmiðla og almenn-
ings; því var lýst yfír, að fjórtán
blaðsíður í henni væru ekki op-
inbert skjal; var sú skýringgefín
af aðalskrifstofu Sameinuðu
þjóðanna, að þetta væri gert af
spamaðarástæðum!
I þein) hluta skýrslu Ermac-
ora, sem aðeins var dreift til
fastaneftida aðildarþjóða Sam-
einuðu þjóðanna, eru rakin
einstök dæmi um þau grimmd-
arverk, sem sovéski innrásar-
herinn og leppar hans vinna á
almennum afgönskum borgur-
um. Meðal annars tekur sovéski
herinn afgönsk böm í sína
vörslu og sendir þau síðan í inn-
rætingar-skóla í Sovétríkjunum.
Sum þeirra em send á heima-
slóðir sínar innan tiltölulega
skamms tíma sem njósnarar.
Öðmm er ætlað það hlutverk
að verða hin nýja stétt í Afgan-
istan. I Newsweek segir
Ermacora: „Ef til vill verða þau
fullþjálfuð, þegar þau hafa náð
19 ára aldri 1990 og þá gætu
þau snúið aftur til að taka við
stjóm landsins. Sovéski herinn
kann að hafa verið kallaður
heim 1990 en eftir situr öflug
pólitísk fylking Afgana, sem
stjómar landinu."
Erindreki Sameinuðu þjóð-
anna segist hafa fengið stað-
fest, að kommúnistar noti
eiturgas gegn andstæðingum
sínum í Afganistan. Þá segist
hann hafa heyrt fjögur dæmi
um að efnavopnum hafí verið
beitt og önnur fjögur um beit-
ingu á napalm og fosfórsprengj-
um. Ermacora segist hafa
upplýsingar um að hermenn
hafi ráðist inn í þorp í hefndar-
skyni eftir átök við frelsissveitir,
drepið 30 manns, rist konu á
hol. með byssusting og skorið
af henni brjóstin og lamið nokk-
ur böm til bana. Loks hefur
trúnaðarmaður Sameinuðu
þjóðanna sagt frá því, að sárir,
gamlir menn hafí verið settir í
handjám og bundið hafí verið
fyrir augun á þeim, áður en
þeir em dregnir um borð í þyrl-
ur, sem hefja sig upp í 10 til
15 metra hæð, þaðan er hjálpar-
lausum mönnunum kastað niður
til hermanna, sem drepa þá með
byssum sínum.
Þetta em hroðalegar lýsingar
á villimannslegu atferli. Þeir,
sem vaða blóðið í axlir á vegum
Kremlverja í Afganistan, vita,
að þeir verða aldrei kallaðir fyr-
ir dómstóla til að standa ábyrgir
gerða sinna, þótt þær stangist
á við alþjóðlegar samþykktir um
framgöngu í hemaði og bijóti
í bága við siðferðiskennd sið-
menntaðra manna. í Sovétríkj-
unum er ekki heldur unnt að
virkja neitt almenningsálit í
þágu friðsamlegrar Iausnar á
hörmungum Afgana. Við, sem
njótum friðar og frelsis, megum
ekki láta okkar hlut eftir liggja
í stuðningi okkar við frjálshuga
Afgani. Grimmdarverkin í Afg-
anistan em mesta svívirða
samtímans.
eftír Eric Schwartz
Skemmdarverkamenn úr hópi
sömu manna og sökktu hvalbát-
unum í Reykjavíkurhöfn héldu
til Síberíu í ágúst 1981 að eigin
sögn og hrelldu Sovétmenn. Paul
Watson, foringi Sea Shepherd,
stjórnaði Síberíuferðinni. Á
heimaslóðum hans á vestur-
strönd Kanada þykir Watson
bæði montinn og ósannsögull.
Hann hlaut lítinn sem engan
stuðning í borgarstjórnarkosn-
ingum í Vancouver skömmu eftir
skemmdarverkin á íslandi. Höf-
undur þeirrar greinar, sem hér
birtist, Eric Schwartz er kynntur
sem blaðamaður. Morgunblaðið
fékk þessa grein til birtingar
eftir aðgerðir Sea Shepherd-
manna hér. Hún gefur vísbend-
ingu um, hve langt þeir eru
reiðubúnir til að ganga fyrir
málstaðinn á sama tima og hún
dregur fram sjálfumgleði þeirra.
Klukkan er fjögur að morgni og
einhver ýtir við hlýjum svefnpokan-
um mínum. „Við verðum komnir inn
í rússneska landhelgi eftir 15
mínútur," segir kappklædd mann-
vera. „Við sjáum brátt til lands í
Síberíu."
Við erum um borð í gömlum
brezkum togara á siglingu í nístandi
kulda norðurslóða á leið inn í
sovézka landhelgi samkvæmt áætl-
un eftir 14.000 mílna, þriggja
mánaða siglingu frá Skotlandi til
Bandaríkjanna, um Panamaskurð-
inn og norður til Alaska.
I áhöfn Sea Shepherd eru ein-
göngu sjálfboðaliðar, 28 karlar og
konur — frá Bandaríkjunum, Ástr-
alíu, Kanada og einn frá Vestur-
Þýzkalandi. Þeir eru nú að búa sig
undir að bjóða mætti Sovétríkjanna
byrginn í þeim tilgangi að forða
Kyrrahafs-gráhvalnum frá gjöreyð-
ingu. Og leiðangursmenn vita ekki
hvort Rússamir taki á móti þeim
með skothríð.
Mikið veltur á kanadíska leiðang-
ursstjóranum, Paul Watson, sem er
(þegar þetta gerðist) þrítugur, ill-
ræmdasta umhverfísvemdarmanni
heims — sem sjálfur segist vera
„góðviljaði" ofbeldissinninn, óvel-
kominn gestur í mörgum löndum.
Watson hefur siglt á og sökkt
hvalveiðibát, sem stundaði ólögleg-
ar veiðar út af Portúgal, og er
sakaður um að hafa sprengt upp
tvo aðra í höfn á Spáni. Hann hef-
ur barizt gegn svartamarkaðsverzl-
un með fílabein í Afríku, og átt í
höggi við riddaralögreglu Kanada
á ísbreiðunni út af Nýfundnalandi.
Watson hefur hlotið Iof fyrir að
stöðva ólöglegar hvalveiðar á Atl-
antshafí og fyrir að binda enda á
selveiðar sums staðar í Kanada.
En þetta er í fyrsta sinn sem hann
lætur til skarar skríða innan rússn-
eskrar landhelgi, gegn Sovétrílgun-
um.
Er hann ekki með öllum mjalla?
Við fáum brátt úr því skorið. Við
rætur ísiþaktra fíalla Síberíu getum
við greint ómáluð húsin í rússneka
hvalveiðibænum Loren.
Vélar Sea Shepherd em stöðvað-
ar þegar við erum tvær mflur ffá
landi. Þrír úr áhöfninni halda áleið-
is til lands í uppblásnum gúmmíbáti.
Watson skipstjóri, Bob Osbome,
vélstjóri, og undirritaður blaðamað-
ur.
Við erum í björgunarbúningum
sem gerðir eru fyrir flugmenn
bandaríska flughersins við störf á
norðurskautssvæðinu. Þeir geta
haldið okkur á floti ef báturinn
sekkur. En við misstum örugglega
meðvitund í ísköldu Beringshafínu,
sem er við frostmark. Og það sem
verra er — við erum aðeins bæjar-
leið frá sovésku Gúlag-fangabúðun-
um.
„Tveir vopnaðir rússneskir her-
menn,“ kallar Osbome upp yfir
hávaðann frá vélinni. „Ég sé þá,“
svarar Watson stuttur í spuna. „En
ég kom ekki hingað til einskis."
Hann bendir á langa timbur-
skála, sem standa á stólpum uppi
á lágum hamri. „Þetta hlýtur að
vera minkabúið — hvalvinnslustöðin
er þar fyrir neðan.“
Gúmmíbátnum er siglt meðfram
ströndinni og tveir forvitnir her-
menn Rauða hersins fylgjast með.
Við eram tíu metra frá landi þegar
við tökum upp ljósmyndavélamar
Ljósmyndir frá Ron Laytner Inc.
Áhöfnin á Sea Shepherd tók þessa mynd af hxjóstrugri byggðinni í rússneska hvalveiðibænum Loren
vitandi að þeir voru aðeins bæjarleið frá sovésku Gúlag-fangabúðunum.