Morgunblaðið - 22.01.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987
3
Kísilryk til Bretlands:
Fyrsta sendingin
bíður útskipunar
„Frekari afgreiðslutöf gæti skaðað við-
skiptin“ segir Jón Sigurðsson forstjóri
járnblendifélagsins
ÍSLENSKA járnblendifélagið
h.f. á Grundartang’a hefur
gert samning við sements-
verksmiðju í Bretlandi um
sölu á kísilryki en vegna verk-
falls farmanna hefur ekki
Iðnaðarráð-
herra Kenýa
hingað í opin-
bera heimsókn
IÐNAÐARRÁÐHERRA Kenýa er
væntanlegur í opinbera heimsókn
til Islands í næsta mánuði, í boði
Alberts Guðmundssonar, iðnaðar-
ráðherra. Albert sagði í samtali
við Morgunblaðið að ráðherrann
hefði óskað eftir þvi að koma
hingað til lands annað hvort 18.
eða 25. febrúar næstkomandi.
„Kenýumenn hafa sýnt áhuga á
því að kynna sér hvað við erum að
gera varðandi jarðhitaleit og ráð-
herrann óskaði eftir því að koma
hingað í eigin persónu og kynna sér
þau mál,“ sagði Albert. Albert sagði
að ráðherrann vildi hitta vísindamenn
okkar á þessu sviði og ræða við þá.
„Kenýamenn eru með talsvert stórt
verkefni framundan og hafa augastað
á okkar vísindamönnum til þess að
vinna verkið og skipuleggja," sagði
Albert, „og þessi opinbera heimsókn
ráðherrans er ætluð til þess að kynna
honum frekar okkar þekkingu og
getu jafnframt því sem við viljum fá
upplýsingar um það hvaða verkefni
hann er með í huga.“
Albert sagði að það væri alveg ljóst
af því skeyti sem ráðherrann hefði
sent sér, að hann ætlaðist til þess
að einhveijir samningar yrðu undir-
ritaðir á meðan hann væri staddur
hér.
Þá sagði Albert að síðar á þessu
ári, eða líklega síðsumars, myndi við-
skiptaráðherra Kínveija koma hingað
og kynna sér á sama hátt hvað Islend-
ingar eru að gera á sviði jarðvarma-
nýtingar, með það í huga að
samningar næðust um frekara sam-
starf þessara þjóða á þessu sviði.
orðið af útskipun fyrsta
farmsins, sem fyrirhugað var
að flytja með Urriðafossi til
Bretlands. Að sögn Jóns Sig-
urðssonar forstjóra gæti
frekari afgreiðslutöf skaðað
áframhaldandi viðskipti járn-
blendifélagsins og bresku
sementsverksmiðjunnar, en
gert var ráð fyrir að sala á
kísliryki gæti numið allt að
3.000 til 4.000 tonnum á ári.
Jón Sigurðsson sagði að unnið
hefði verið að því talsvert lengi
að finna markað fyrir kísilryk er-
lendis og hefði sú markaðskönnun
leitt til samninga við sementsverk-
smiðjuna í Bretlandi. Fyrsti
farmurinn, 500 tonn, átti að fara
til Bretlands nú í vikunni, en verk-
fall farmanna setti þar strik í
reikninginn, eins og áður segir.
„Við erum auðvitað uggandi
vegna þessa, enda er svona af-
greiðslutöf ekki góð byijun á
viðskiptum, sem við erum búnir
að hafa mikið fyrir að ná í,“ sagði
Jón. „Hvað úr þessu verður get
ég ekki sagt á þessu stigi, en
okkur þykir þetta mjög slæmt.
Það er nógu slæmt, að vegna
þessa verkfalls gætum við einnig
misst af okkar útskipunarrétti í
sambandi við kíslijárnið sem átti
að fara í sama skip, en þetta er
jafnvel enn verra.“
Kísilrykið fæst úr reykhreinsi-
virkjum jámblendiverksmiðjunnar
og hefur að tveimur þriðju hlutum
verið selt til Sementsverksmiðj-
unnar á Akranesi. Afgangnum
hefur verið hent þar til nú, að
samningar tókust um sölu þess
til bresku sementsverksmiðjunn-
ar. Jón sagði að gert hefði verið
ráð fyrir að ef saman gengi með
þessi viðskipti myndi breska se-
mentsverksmiðjan kaupa á milli
3.000 til 4.000 tonn af kísilryki á
ári. Jon kvaðst ekki telja rétt að
skýra frá hve miklar upphæðir
hér væri um að ræða, en þær
skiptu verulegu máli fyrir járn-
blendifélagið.
Lestun freðfisks getur
hafizt um næstu helgi
Fiskvinnsla í eðlilegt horf í lok mánaðarins
BÚIZT er við því, að lestun freðfisks fyrir Bandaríkjamarkað geti
hafizt um og upp úr næstu helgi og fyrstu farmarnir verið komnir
vestur um haf fyrri hluta febrúarmánaðar. Það byggist þó á því,
að undanþága fáist hjá farmönnum til fiskflutninga, standi verkfall
enn, þegar þar að kemur. Stjórnendur SH og Sjávarafurðadeildar
Sambandsins telja báðir víst að undanþágu verði leitað, verði henn-
ar þörf, enda hafi farmenn sagzt verða við slíkri bciðni. Vinnsla
hefst í einhverjum frystihúsum í þessari viku, en verður tæplega
komin í eðlilegt horf fyrr en undir mánaðamót.
Olafur Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri hjá SH, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að ein-
hveijir togarar, sem lönduðu hjá
frystihúsum SH, myndu koma með
fisk að landi í þessari viku og
vinpsla gæti því hafizt fyrir helgi.
Lestun í Hofsjökul, frystiskip SH,
gæti þá hafizt um helgina og yrði
þá allt skrapað upp, sem til væri
hringinn í kringum landið. Með því
móti gæti skipið verið komið vestur
fyrri hluta febrúarmánaðar. Hann
sagði, að birgðastaðan vestra væri
vægast sagt tæp, en með boði far-
manna um undanþágu fyrir flutn-
inga á frystum fiski, lagaðist dæmið
verulega, færi svo að verkfall þeirra
drægist á langinn. Hann sagði stöð-
una hjá Icelandic Freezing Plants
í Grimsby vera betri en vestra og
það færi allt eftir lengd verkfallsins
hvort þörf yrði á undanþágu vegna
flutninga þangað.
Sigurður Markússon, fram-
kvæmdastjóri Sjávarafurðadeildar
Sambandsins, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að líklega tæki um
þijár vikur að koma fiskinum vestur
og um tvær að koma vinnslu í eðli-
legt horf. Framleiðsla gæti hins
vegar hafizt í næstu viku. Lestun
gæti því byijað um eða upp .úr
næstu helgi og fiskurinn verið kom-
inn vestur um haf um miðjan
febrúar. Þá yrði farið að kreppa
verulega að, en það bætti vissulega
stöðuna, að verkfall sjómanna væri
úr sögfunni. Tilboð farmanna um
undanþágu fyrir freðfiskflutninga
væri mikils vert og eftir undanþágu
yrði leitað, yrði hennar þörf.
svo
FYRIR S VO
Uri^
VETRARÚTSALAN STENDUR SEM HÆST
vöruúrval
6yS*U*
0
Bun
Bonaparte
l Austurslræh 22
KARNABÆR
LAUGAVEGI 66 - LAUGAVEGI 30 -
AUSTURSTRÆTI 22 - GLÆSIBÆ