Morgunblaðið - 22.01.1987, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 22.01.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987 25 Kaffibaunaviðskipt- in umboðsviðskipti eða samráðskaup? Morgnnblaðið/Tómas Helgason Loðnuflotinn er komin á miðin út a Austfjörðum. Myndin var tekin um 50 mílur austur af Berufirði í gær. Góð veiði er á loðnumiðunum MUNNLEGUR málflutningur í Kaffibaunamálinu hófst í Saka- dómi Reykjavíkur í gærmorgun. Aður komu í dóminn þeir Hjalti Pálsson og Sigurður Arni Sig- urðsson til samprófunar. Báðir héldu þeir þó fast við sinn fram- burð í einu og öllu. Jónatan Sveinsson, saksóknari, hóf málflutninginn kl. 9.30. Hann tók fram í upphafi að kaffiviðskipt- in hefðu verið umboðsviðskipti að áliti ákæruvalds og fjarri því að SIS hefði verið venjulegur heildsali. Á þessu grundvallaratriði byggði ákæran. Hann sagði þetta viðhorf einnig koma skýrt fram hjá ákærðu og vitnunum Þresti Sigurðssyni og Vali Arnþórssyni. Framburð Er- lendar Einarssonar hjá rannsóknar- lögreglu yrði að skilja þannig að um umboðsviðskipti hafi verið að ræða, þó Erlendur hafi sagt fyrir dómi að hann vildi ekki leggja mat á eðli viðskiptanna. Sama sagði hann um framburð Hjalta Pálssonar hjá RLR, en Hjalti nefndi viðskiptin samráðskaup fyrir dómi. Þá hafi tekjur af viðskiptunum verið færðar hjá SIS sem umboðslaun. Saksóknari kvaðst ekki geta trú- að því að Erlendur Einarsson hafi ekki vitað um framvindu kaffivið- skiptanna og sé framburður hans þar um ótrúverðugur. Erlendur hafi orð á sér sem röggsamur stjói’nandi og vegna skipulags fyrirtækisins hafi slíkar ákvarðanir hlotið að vera bornar undir hann. Það mætti því ætla að Erlendur hefði fyrir dómin- um nýtt sér heimild sakaðs manns til að tjá sig ekki. Þá vitnaði sak- sóknari í framburð Hjalta hjá RLR um að hann hafi ekki staðið einn að slíkri ákvarðanatöku sem í kaffi- viðskiptunum. Léti Hjalti að því liggja að eðli máls samkvæmt sé slíkt borið undir yfirmenn. Saksóknari benti á að fram hafi komið að Sigurður Árni og Hjalti hafi átt fund með Erlendi síðla árs 1980 og hafi Erlendur þá að sínu áliti verið upplýstur um þætti máls- ins. Þá hafi honum borið að leita upplýsinga um það hvernig tekjur vegna kaffiviðskiptanna mynduð- ust. Þá væri ljóst að Erlendur hafi tekið þá ákvörðun að SÍS héldi þess- um tekjum, en snemma árs 1981 hafi verið ákveðið að endurgreiða Kaffibrennslunni. Þá hafi verið látið að því liggja að afslættir væru að fullu endurgreiddir og launung í málinu við haldið. Því hafi verið haldið fram að Kaffibrennslunni hafi verið greitt án þess að SIS bæri skylda til þess, en í raun hafi féð verið óréttmætur fengur SÍS. Saksóknari sagði að óhjákvæmi- legt væri að fella refsiábyrgð á Erlend Einarsson vegna aðildar hans að málinu, svo og af sömu ástæðum á Hjalta Pálsson. Véfréttastíll Hjalta Jónatan Sveinsson vék þessu næst máli sínu að þætti Hjalta Páls- sonar í málinu og sagði framburð hans frá upphafi hafa verið í vé- fréttastíl. Hann hafi ekki kannast við að hafa séð samning NAF og IBC, en þó væri hans aflað úr hans fórum og tveir undirmenn hans borið að þeir hafi afhent honum samninginn. Allur framburður Hjalta sé með ólíkindum ótrúverð- ugur. Sigurður Árni hafi borið að hann hafi alltaf' haft náin samráð við Hjalta um kaffiviðskiptin og þegar Hjalti þræti fyrir það sé hann að skapa hættu á að Sigurður Árni beri þyngi-i bagga frá borði í þessu máli en efni standi til. Sáksóknari sagðist telja ljóst að Hjalti Pálsson hafi tekið grundvall- arákvarðanir og beri meginábyrgð á framkvæmd kaffiviðskiptanna og eigi því að bera þyngstu refsiábyrgð á þeim brotum sem framin voru. Af hlutdeildarmönnum Erlendar og Hjalta, Sigurði Árna, Arnóri og Gísla Theódórssyni, hljóti sá fyrst- nefndi að bera þyngsta ábyrgð, enda hafi hann tekið þátt í mótun þess kerfis sem var notað í kaffivið- skiptunum og starfað að þessum málum hér heima og í London. Arnór hafi hins vegar tekið við full- mótuðu kerfi eftir Sigurð Árna og hlutur hans sýnu minni. Gísli hafi verið fjan-i vettvangi og virtist lítið hafa getað spornað við framvindu mála. Saksóknari sagði í lokin að það hlyti að vera til þyngingar refsingar að trúnaðarbrot hafi verið framið gagnvart Kaffibrennslunni, sem hafi treyst í blindni á SÍS. Á það bæri hins vegar að líta að sakaskrá ákærðu allra væri flekklaus og að brotið hafi ekki verið framið í eigin auðgunarskyni. Erlendur átti eng-an hlut að máli Veijandi Erlendar Einarssonar, Jón Finnsson hrl., flutti þessu næst varnarræðu sína. Hann sagði Er- lend hafa skýrt hreinskilnislega frá og það væri ljóst af gögnum máls- ins að hann hafi ekki átt neinn hlut að þessu máli. Framkvæmdastjórar hverrar deildar SÍS væru mjög sjálf- stæðir í starfi, enda vonlaust fyrir forstjórann að hafa hönd í bagga með öllu sem fram færi. Lögmaðurinn sagði að komið hafi fram í málinu að Erlendur hafi ekki þekkt samninga NAF og IBC, enda hafi þeir verið í skjala- safni innflutningsdeildar. Hann hafi ekki vitað um avisos fyrr en í maí 1981. Hann hafi ekki vitað um skjalalega meðferð innflutnings- deildar vegna viðskiptanna, enda ekki í hans verkahring. Hann hafi ekki verið í sambandi við Kaffi- brennsluna og því ekki vitað um neina launung. Hann hafi ekki vitað um tvöfalda vörureikninga. Þá styðji ekkert þá fullyrðingu í ákæ- runni að hann hafi sammælst við Hjalta og aðra um meðferð máls- ins. Því beri að sýkna Erlend. Jón Finnsson sagði að í fyrstu hafi verið litið á viðskiptin sem umboðsviðskipti, en síðar hafi kom- ið í ljós að málið var ekki svo einfalt. Þessi viðskipti hafi verið mjög sérstök vegna viðskiptahátta Brasilíumanna. Þegar Jón Finnsson hafði lokið máli sínu tók veijandi Hjalta Páls- sonar, Guðmundur Ingvi Sigurðs- son hrl., til máls. Hann lauk ekki máli sínu í gær og heldur því ræðu sinni áfram í dag. Því næst taka við verjendur ákærðu Sigurðar Árna Sigurðssonar, Arnórs Val- geirssonar og Gísla Theódórssonar, sem eru hæstaréttarlögmennirnir Eiríkur Tómasson, Ragnar Aðal- steinsson og Örn Clausen. Góð veiði var á loðnumiðunuin á þriðjudag og miðvikudag eft- ir undangengna brælu. Allur flotinn hélt sig á miðunum út af Berufirði og héldu skipin til hafna á svæðinu frá Grindavík austur um til Krossaness. þrjú skip fóru til Færeyja. Þungur sjór á miðunum og þurftu nokkrir bátar að snúa til hafnar með slitnar nætur. Um fjörutíu skip eiga nú eftir loðnu- kvóta, alls nimlega 374.300 tonn. Eftirtalin skip voru með afla á þriðjudag: Albert GK 600 lestir, Guðmundur Ólafur ÓF 150, Svan- ur RE 710, Ljósfari RE 570, Húnaröst ÁR 620, Eskfirðingur SU 620, Gígja VE 720, Örn. KE 580, Guðmundur RE 580, Þórður Jónasson EA 700, Hrafn GK 600 og Rauðsey AK 200 lestir. Síðdegis á þriðjudag höfðu eft- irtalin skip tilkynnt um afla: Keflvíkingur KE 560 lestir, Harpa RE 620, Guðrún Þorkelsdóttir SU 600, Magnús NK 530, Víkurberg GK 540, Börkur NK 1.300, Hákon ÞH 800, Bergur VE 530, Dagfari ÞH 530, Kap 11 VE 710, Höfrung- ur AK 930, Gullberg VE 620, Helga 11 RE 450, Sighvatur Bjarnason VE 630, Pétur Jónsson RE 800, Sigurður RE 1.330, Grindvíkingur GK 1.040, Hilmir 11 SU 590 og Súlan EA 800 lestir. husgagn&höllin BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - 91 -681199 og 681410 Étll • • Ossur semur lagafrumvarp fyrir forsætisráðherra ÖSSUR Skarphéðinsson, ritstjóri Þjóðviljans og doktor i fiskeldi, er nú i tímabundnu leyfi frá rit- stjórastarfi sínu, þar sem hann hefur tekið að sér að semja laga- frumvarp fyrir Steingrím Herniannsson forsætisráðherra um fiskeldi. Ossur sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að hann myndi hverfa til ritstjórastarfs síns á Þjóðviljan- um á nýjan leik í bytjun febrúar- mánaðar, þegar hann og Árni Mathiesen, fisksjúkdómafræðingur, sem ynni með honum að frumvarps- gel'ðinni hefðu lokið því starfi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.