Morgunblaðið - 22.01.1987, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.01.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987 29 Frank Förster (til vinstri) fagnar niðurstöðu dómsins ásamt lögfræð- ingi sínum og vestur-þýskum embættismanni í gær. Malasía: Þjóðverji sýknað- ur á síðustu stundu Penang, Malasíu, Reuter. DÓMSTÓLL í Penang í Malasíu sýknaði í gær 24 ára gamlan Vestur- Þjóðverja af ákæru um fíkniefnasölu. Maðurinn átti dauðadóm yfir höfði sér. Niðurstaða dómsins kom nokkuð á óvart því búist hafði verið við að maðurinn, sem heitir Frank Först- er, yrði tekinn af lífi. í niðurstöðu dómsins sagði að málsvörn væri óyggjandi og því væri Förster sýkn- aður af öllum ákæruatriðum. Viðurlög við sölu fíkniefna eru afdráttarlaus í Malasíu. Þeir sem handteknir eru með 200 grömm eða rrteira af slíkum efnum eru undan- tekningarlítið hengdir. Förster var ákærður um að hafa ætlað að selja 239 grömm af kannabisefnum sem fundust í hótelherbergi hans. í nið- urstöðu dómsins sagði að allt benti til þess að Förster hefði verið ókunnugt um að fíkniefnin væru geymd þar. Hann var handtekinn í nóvember árið 1983 ásamt tveimur félögum sínum , sem síðar var sleppt. Félagar hans neituðu að bera vitni en lýstu því jafnframt yfir að eiturlyfin hefðu verið þeirra eign og að Förster væri því sak- laus. Búist er við að Frank Förster haldi til Vestur-Þýskalnds í dag. ; . . ■ Electrolux eldavélar xx ryksugur 100 w. . v kr: 8.925,- lektronik, Fimmtudagsverð kr: 12.600,- Það hefur alltaf borgað sig að versla í Vörumarkaðinum. * tilboóin gilda aóeins ofangreindan dag. Vörumarkaðurinn hf. Nýjabæ—Eiðistorgi Sími 622-200 ÞAÐ ER LEIKUR AÐ LÆRA ... Nýr ríkissljóri í Alabama: Fyrsti repúblikan- inn í rúm hundrað ár Montgomery, Alabama. AP, Reuter. í ALABAMA í Bandaríkjunum hefur nýr ríkisstjóri svarið embættiseið og er hann sá fyrsti úr röðum repúblikana allt frá árinu 1874. Heitir hann Guy Hunt og tekur við að George Wallace, sem gegnt hefur emb- ættinu i fjögur kjörtímabil. „Aðskilnaður að eilífu“ voru einkunnarorð Wallace framan af en síðar venti hann sínu kvæði í kross. Hunt sagði í ræðu sinni við emb- ættistökuna, sem var á mánudag, að nú, þegar 126 ár væru liðin frá upp- hafi borgarastyijaldarinnar, gætu Alabama-búar með sanni sagt, að þeir væru eitt samfélag þar sem allir væru jafnir fyrir guði og mönnum. Sór hann embættiseiðinn á tröppum þinghússins í Montgomery þar sem Jefferson Davis sór sinn eið sem for- seti Suðurríkjanna árið 1861 og þar sem Wallaee lýsti yfir hinum „eilífa aðskilnaði" árið 1963. Bar embætti- stökuna upp á afmæli tveggja merkismanna, þeirra Roberts E. Lee, hershöfðingja í liði Suðurríkjamanna, og mannréttindafrömuðarins Martins Luther King. Hunt sagði, að King, Lee og Wallace hefðu verið miklir leiðtogar og farið með sögulegt hlutverk í þeim átökum, sem htjáð hefðu þjóðina alla og Alabama-ríki. „Allir urðu þeir og þúsundir annarra manna að gjalda baráttu sína dýru verði,“ sagði Hunt en Wallace var sýnt banatilræði árið 1972 og er nú lamaður fyrir neðan mitti. King var skotinn til bana árið 1968 og Lee gafst upp fyrir Norð- urríkjahernum árið 1865. Guy Hunt, sem er 53 ára gamall kjúklingabóndi, er þriðji ríkisstjórinn úr flokki repúblikana frá upphafí og sá fyrsti síðan David P. Lewis gegndi embættinu á árunum 1872-74. „Lit- blind ríkisstjórn“ eru einkunnarorð Hunts og hefur hann skipað 20 ráð- herra og ráðuneytisstjóra sér til aðstoðar. Af þeim er þó aðeins einn svartur á hörund en voru þrír á síðasta kjörtímabili George Wallace. KÓRSKÓLI PÓLÝFÓNKÓRSINS ÓDÝRT SÖNGNÁM Nýtt 10 vikna námskeiÖ hefst mánudaginn 26.janúar. Kennt á mánudagskvöldum kl. 20—22 í 10 vikur. Staður: Vörðuskóli, Skólavörðuholt. Námsefni: Heyrnarþjálfun, nótnalestur, öndun og raddbeiting. Kennarar: Jón Karl Einarsson, tónlistarkennari og söngstjóri Ingólfur Guðbrandsson, söngstjóri Pólýfónkórsins. Þátttökugjald: Kr. 2.000,- Innritun: Sími 26611 (Steina), sími 72797 (Kristján Már), sími 656799 (Ólöf). MuniÖ: Fagur söngur — Heilbrigt tómstunda- starf og gleöigjafi. Pólýfónkórinn SPÆNSKLI! Með útsendingum Sjónvarpsins á spænskukennsluefninu HABLAMOS ESPANOL gefst þeim fjölmörgu ís- lendingum sem hafa ætlað sér að læra spænsku tækifæri til þess á ein- faldan og þægilegan hátt. Kennslubókin sem þiö þurfió er kom- in út hjá Vöku-Helgafelli og fæst i bókaverslunum um allt land. Þetta er nútímaleg kennslubók sem hentar fólki á öllum aldri. HABLAMOS ESPANOL hefur hvarvetna hlotið miklar vinsældir og er eitt kunn- asta sjónvarpskennsluefni í spænsku sem fram hefur komið. Tengja menn vin- sældirnar því að kennslan er sniðin við hæfi ferðamanna sem koma til Spánar og annarra spænskumælandi landa. LÆRIÐ SPÆNSKU Á EINEALDAN OG ÞÆGILEGAN HÁTT! VAKCA Síöumúla 29, 108 Reykjavík, sími 688300 Ijrigafdl ÖRKIN/SlA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.