Morgunblaðið - 22.01.1987, Síða 6

Morgunblaðið - 22.01.1987, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987 Lýðræðis- rásin Igrein er Ólafur Hauksson, blaðaút- gefandi og einn umsjónarmanna þáttarins í takt við tímann, ritar hér í blaðið í gær og fjallar um pelsasýn- inguna margfrægu í Bláfjöllum, má finna þessi fleygu orð: Sjónvarpið er búðargluggi þjóðarinnar. Persónu- lega finnst mér þessi setning segja meira um þá tíma er við lifum en lang- ar ræður stjórnmálamannanna. Hefði slík setning getað hrotið úr penna þeirrar kynslóðar er stofnsetti og mótaði ríkisútvarpið? Hér rifjast upp lýsing Jónasar frá Hriflu á einhveijum mesta eldhuga er Island hefir fóstrað, Sigurði Guðmundssyni málara: Sig- urður Guðmundsson sinnti ekki, svo að heitið gæti, þeim málum, sem gáfu arð í hönd, heldur eingöngu óarð- bærum hugsjónum. HólmgöngustaÖur En sjónvarpið getur ekki bara breyst í „búðarglugga þjóðarinnar", það getur og breyst í hólmgöngustað eins og áhorfendur sáu í fyrrakveld þá Sturlumálið bar á góma. Ónefndur maði'r hringdi í Pál á Bylgjunni í gær og vildi að oftar yrði sýnt frá Alþingi og bætti svo við: Til hvers eru svona margir á þingi og allir þessir auðu stólar? Ég er innilega sammála mann- inum um að fjarvistir þingmanna, spígspor um þingsalinn og kjaftagang- ur uppvið stól forseta var til hreinnar skammar fyrir Alþingi. Hér var tekist á um ákveðin grundvallaratriði lýð- ræðsins, en alþingismenn líktust sumir hverjir leikskólakrökkum er nenntu ekki að hlýða á fóstruna. Sá grunur læddist að aðákveðinn hópur al- þingismanna hefði hvorki skilning né áhuga á þessu mikilsverða máli. En því skyldu menn ekki gleyma að sjón- varpið er ágengur og miskunnarlaus miðill og fram hjá vökulu auga sjón- varpsvélanna sleppur maðurinn ekki, sé hann á annað borð innan sjónsviðs upþtökuvélanna. Múrar Jeríkó Hvað varðar þá hugmynd að sýna meira frá Alþingi í sjónvarpinu þá er ég því innilega sammála að sjónvarps- menn mættu vaka yfir umræðum á Alþingi. Lýðræðislega kjörnir umboðs- menn okkar er heima sitjum hafa ekki bara gott af auknu aðhaldi heldur hlýt- ur lýðræðið að verða virkara og lífrænna þá múrar hins háa Alþingis verða ósýnilegir á skerminum og kjós- endur þáttakendur í rás viðburðanna. Fyrrgreind útsending frá Sturlumálinu sýndi hið háa Alþingi sem lokaðan yfirstéttarklúbb er hafði rænt meiri- hluta þingmanna jarðsambandi. Þessu getur sjónvarpið breytt með því að sýna nánast daglega frá fundum á hinu háa Alþingi og það sem meira er — ég vil að sýnt sé frá þingfundum og fundum í nefndum. Kjósendur eiga fullan rétt á því að vita hvað þjónar alþýðunnar eru að bauka. Tími hins lokaða lýðræðis hlýtur að vera fyrir bí. Tími hins opna lýðræðis, þar sem öll þjóðin situr á Alþingi, er í sjónmáli. Ög ég vil ganga lengra. A fundum ríkisbankanna eru teknar mikilsverðar fjármálalegar ákvarðanir er snerta okkur kjósendur. Þangað skulu sjón- varpsvélamar. Og hvað um fundi borgarstjórnar Reykjavíkur, þar sem gjarnan er fjallað um daglega hagi höfuðborgarbúa? Hvernig stendur á því að sjónvarpsmenn rata ekki inná þá fundi? Og svo má ekki gleyma öll- um bæjarstjórnarfundunum úti á landi og sýslunefndarfundunum. Svo sann- arlega er af mörgu að taka. Hvernig lýst mönnum annars á þá hugmynd að ríkissjónvarpið hleypi af af stokkunum nýrri rás er við getum kallað Lýðræðisrásina, þar sem sjón- varpað verður daglangt frá fundum þeirra valdsmanna sem kosnir eru til að stjóma landinu? Við byggjum allt okkar líf á lýðræðshugsjóninni og það er aðeins einræðisöflunum í hag að hindra upplýsingaflæðið frá sölum þeirra stofnana er hýsa umboðsmenn lýðsins. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP/SJÓNVARP Ingólfur Guðbrandsson með tónsprotann á lofti. Bylgjan: Fimmtudagsviðtal Jónínu Leósdóttur Spjallað við Ingólf Guðbrandsson ■i í kvöld mun 00 Jónína Leós- dóttir bjóða Ingólfi Guðbrandssyni til sín í hljóðnámu og ræða við hann um heima og geima. Ingólfur er fyrir löngu orðinn þjóðkunnur maður — bæði fyrir frumkvöðuls- störf sín í ferðamálum og tónlistarmálum. Hann setti á stofn Ferðaskrifstofuna Útsýn, sem brátt varð um- svifamesta ferðaskrifstofa landsins og hefur svo verið síðan. Ekki síður er hann þó þekktur fyrir tónlistarstörf sín, en Ingólfur er stjórn- andi Pólýfónkórsins og hefur staðið fyrir metnað- arfyllsta flutningi kórverka hér á landi. Jónína mun ræða við Ingólf um allt mannlegu viðkomandi, en þess á milli verður leikin tónlist, sem Ingólfur mun hjálpa við að velja. I UTVARP FIMMTUDAGUR 22.janúar 6.45 Veðurfregnir. Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunvaktin. — Jón Baldvin Halldórsson, Sturla Sigurjónsson og Guðmund- ur Benediktsson. Fréttir eru sagðar kl. 7.30 og 8.00 og veöurfregnir kl. 8.15. Til- kynningar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. Guðmundur Sæmundsson talar um daglegt mál kl. 7.20. 9.00 Fréttir. 9.03 Morgunstund barn- anna: „Hanna Dóra" eftir Stefán Jónsson. Ragnheiður Gyða Jónsdóttir les (14). 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. 9.35 Lesiðúrforustugreinum dagblaðanna. 9.45 Þingfréttir 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð. Her- mann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liönum árum. 11.00 Fréttir. 11.03 Morguntónleikar. a. „Föruljóð" eftir Felix Mendelssohn. Dietrich Fischer-Dieskau syngur. Wolfgang Sawallisch leikur á pianó. b. Fiðlusónata í A-dúr eftir Oesar Franck. Kaja Danczowska og Krystian Zimerman leika. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 I dagsins önn — Efri árin. Finnbogi Hermanns- son ræðir við hjónin Ás- laugu Jensdóttur og Valdimar Kristinsson að Núpi í Dýrafiröi. (Áður út- varpað í ágúst sl.) 14.00 Miðdegissagan: „Menningarvitarnir" eftir Fritz Leiter. Þorsteinn Ant- onsson les þýðingu sína (15). 14.30 Textasmiöjan. Lög við texta Ómars Ragnarssonar. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn. Frá svæðisútvarpi Reykjavikur og nágrennis. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónskáldatfmi. Leifur Þórarinsson kynnir. 17.40 Torgið — Menningar- mál. Umsjón: Þorgeir Ólafsson. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni sem Guð- mundur Sæmundsson flytur. 19.45 Að utan. Fréttaþáttur um erlend málefni. 19.55 Vetrardagar i Milanó. Anna Snorradóttir segir frá. (Áður útvarpað 9. október sl.) 20.30 Frá tónleikum Sinfóniu- hljómsveitar islands i Háskólabiói. Fyrri hluti. Ein- leikari: Anna Áslaug Ragnarsdóttir. a. „Le festin de l'araignée" eftir Albert Roussel. b. Pianókonsert í a-moll op. 54 eftir Robert Schumann. Kynnir: Jón Múli Árnason. 21.20 Bronsriddarinn fallinn. Illugi Jökulsson segir frá Puskjin, einkum dauða hans, en i þessum mánuði eru 150 ár siðan hann féll í einvigi. 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Fimmtudagsumræðan. Stjórnandi: Þórir Jökull Þor- steinsson. 23.10 Kvöldtónleikar a. Sónatina i F-dúr K.547 SJÓNVARP FÖSTUDAGUR 23. janúar 18.00 Litlu Prúðuleikararnir (Muppet Babies) 26. þáttur. Teiknimyndaflokkur eftir Jim Henson. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 18.25 Stundin okkar — Endur- sýning. Endursýndur þáttur frá 18. janúar. 19.00 Á döfinni 19.10 Þingsjá 19.25 Fréttaágrip á táknmáli 19.30 Spítalalíf (M*A*S*H) Sextándi þáttur. Bandarískur gamanmynda- flokkur sem gerist á neyðar- sjúkrastöð bandaríska hersins í Kóreustríðinu. Að- alhlutverk: Alan Alda. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingarogdagskrá 20.35 í þorrabyrjun Haukur Morthens og hljóm- sveit flytja lög af ýmsu tagi. Sum tengjast frosti og fönn- um, önnur hækkandi sól og sumri og mörg ástinni. Sveinn Guöjónsson ræðir vð Hauk milli atriða. Stjórn upptöku: Gunnlaugur Jón- asson. 21.25 Fröken Marple Fingurinn — Síðari hluti. (The Moving Finger). Breskur sakamálamynda- flokkur um eina vinsælustu söguhetju Agöthu Christie. Aðalhlutverk Joan Hickson. Þýðandí Veturliði Guðna- son. 22.20 Kastljós Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður Hallur Hallsson. 22.50 Seinni fréttir 22.55 Gripiö þjófinn (To Catch a Thief) Bandarisk biómynd frá árinu 1955. Leikstjóri Alfred Hitchcocx. Aðalhlutverk Grace Kelly og Cary Grant. Alræmdur innbrotsþjófur hefur sest í helgan stein. Hann veröur þess þá visari að einhver hefur tileinkað sér vinnubrögð hans og ákveður að finna skálk þann í fjöru. Þýðandi Þorsteinn Þórhallsson. no.45 Dagskrárlok. STODTVO FIMMTUDAGUR 22. janúar § 17.00 Myndrokk. § 18.00 (þróttir. Umsjónar- maður er Heimir Karlsson. 19.00 Teiknimynd. Glaefra- músin (Dangermouse). 19.30 Fréttir. 19.55 Ljósbrot. Kynntir eru ýmsir dagskrárliöir á Stöð 2 ásamt því að stiklað er á þvi helsta sem er að gerast i menningarlífinu hverju sinni. Umsjón annast Val- gerður Matthíasdóttir. 20.15 Morðgáta (Murder She Wrote). Bandarískur framhaldsn.yndaflokkur með Angela Lansbury i að- alhlutverkum. § 21.00 Hugleysinginn (Cow- ard Of The County). Bandarísk kvikmynd með Kenny Rogers i aðalhlut- verki. Viö andlát föður sins, sem dó í fangelsi, gaf Tommy Spencer loforð um að hann myndi aldrei gera neinum mein. Verður þetta þess valdandi að hann verð- ur kallaöur hugleysingi af mörgum, sérstaklega þegar seinni heimsstyrjöldin hefst og hann kemst undan her- skyldu. Leikstjori er Dick Lowry. § 22.35 Hinir ósigruðu (The Undefeated). Bandarísk kvikmynd með John Wayne, Rock Hudson, Bruce Cabot í aðalhlutverk- um. Myndin segir frá forn- um fjendum sem taka höndum saman að þræl- astriðinu loknu um að fara til Mexíkó. Á leiðinni lenda þeir í ýmsum hrakningum en þeir deyja ekki ráðalaus- ir. 00.25 Dagskrárlok. Þeir dagskrárliðir Stöðv- ar tvö, sem sendir eru út læstir, eru auðkenndir með tákninu §. eftir Wolfgang Amadeus Mozart. György Pauk og Peter Frankl leika. b. Strengjakvartett nr. 8 i e-moll op. 59 nr. 2 eftir Ludwig van Beethoven. Budapest-kvartettinn leikur. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. FIMMTUDAGUR 22. janúar 9.00 Morgunþáttur i umsjá Kristjáns Sigurjónssonar og Sigurðar Þórs Salvarssonar. Meöal efnis: Tónleikar helg- arinnar, tvennir tímar á vinsældalistum, verðlauna- getraun og ferðastund með Sigmari B. Haukssyni. 12.00 Hádegisútvarp með fréttum og léttri tónlist i umsjá Margrétar Blöndal. 13.00 Hingað og þangaö um dægurheima með Inger Önnu Aikman. 15.00 Djass og blús. Vern- haröur Linnet kynnir. 16.00 Tilbrigði. Þáttur i umsjá Hönnu G. Siguröardóttur. 17.00 Tekið á rás. Samúel Örn Erlingsson lýsir leik íslend- inga og Vestur-Þjóðverja f Rostcok á Eystrasaltsmót- inu i handknattleik. 18.00 Hlé. 20.00 Vinsældalisti rásar tvö. Gunnlaugur Helgason kynn- ir tiu vinsælustu lög vikunn- ar. 21.00 Gestagangur hjá Ragn- heiði Davíösdóttur. 22.00 Rökkurtónar. I þessum þætti veröur rætt um söngv- arana Natalie Cole og Johnny Mathis og ennfrem- ur um King Cole-tríóiö. Stjórnandi: Svavar Gests. 23.00 Svifflugur. Hákon Sigur- jónsson kynnir Ijúfa tónlist úr ýmsum áttum. 24.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar kl. 9.00, 10.00, 11.00, 12.20, 15.00, 16.00 og 17.00. SVÆÐISÚTVARP AKUREYRI SVÆÐISÚTVARP VIRKA DAGA VIKUNNAR 17.30-18.30 Svæðisútvarp fyrir Reykjavik og nágrenni - FM 90,1 18.00-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni - FM 96,5 Má ég spyrja? Umsjón: Finnur Magnús Gunnlaugs- son. M.a. er leitað svara við spurningum hlustenda og efnt til markaöar á Markaðs- torgi svæöisútvarpsins. 989 'BYLGJANi W FIMMTUDAGUR 22. janúar 07.00—09.00 Á fætur með Sigurði G. Tómassyni. Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður litur yfir blöðin og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00. 09.00—12.00 Páll Þorsteins- son á léttum nótum. Palli leikur uppáhaldslögin ykkar, gömul og ný. Tapað — fund- ið, opin lína, mataruppskrift- ir og sitthvað fleira. Fréttir kl. 10.00, 11.00 og 12.00. 12.00—14.00 Á hádegismark- aði með Jóhönnu Haröar- dóttur. Fréttapakkinn. Jóhanna og fréttamenn Bylgjunnar fylgj- ast með þvi sem helst er i fréttum, segja frá og spjalla við fólk. Flóamarkaöurinn erá dagskrá eftirkl. 13.00. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00—17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd. Pétur spil- ar siðdegispoppið og spjall- ar við hlustendur og tónlistarmenn. Tónlistar- gagnrýnendur segja álit sitt á nýútkomnum plötum. Fréttir kl. 15.00, 16.00 og 17.00. 17.00—19.00 Hallgrimur Thorsteinsson í Reykjavík síðdegis. Þægileg tónlist hjá Hallgrimi, hann litur yfir fréttirnar og spjallar við fólk- ið sem kemur við sögu. Fréttir kl. 18.00. 19.00—20.00 Tónlist með léttum takti. 20.00—21.30 Jónína Leós- dóttir á fimmtudegi. Jónína tekur á móti kaffigestum og spilar tónlist að þeirra smekk. 21.30—23.00 Spurningaleikur Bylgjunnar. Jón Gústafsson stýrir verðlaunagetraun um popptónlist. 23.00—24.00 Vökulok. Frétta- tengt efni og þægileg tónlist i umsjá fréttamanna Bylgj- unnar. 24.00—07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Tónlist og upp- lýsingar um veöur. ALFA . Kristlleg átvarpsstM. FM 102,9 FIMMTUDAGUR 22. janúar 13.00—16.00 Hitt og þetta i umsjón Hafsteins Guð- mundssonar. 20.00—24.00 Blandaður þátt- ur i umsjón Magnúsar Gunnarssonar og Óla Jóns Ásgeirssonar Alfa FM 102,9 er kristileg útvarpsstöð og er styrkt af kristnu fólki á íslandi og færum við öllum stuönings- aðilum okkar þestu þakkir og óskir um gæfuríkt ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.