Morgunblaðið - 22.01.1987, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987
17
Mogungblaðið/Úlfar
Minningarathöfn á Isafirði
Minningarathöfn um sjómenn-
ina, sem drukknuðu þegar
Tjaldur ÍS 116 sökk í Jökulfjörð-
um, fór fram í Isafjarðarkirkju
á laugardaginn. Sjómennirnir
hétu Hermann Sigurðsson, Guð-
mundur Víkingur Hermannsson
og Kolbeinn Sumarliði Gunnars-
son. Þessi mynd var tekin þegar
blómsveigur var, eftir athöfnina,
lagður að minnisvarða sjómanna
á Isafirði, og standa björgunar-
sveitarmenn frá Slysavarnafé-
lagi Islands og Hjálparsveit skáta
heiðursvörð.
Borgarnes:
20 ára afmæli Sjálfstæðis-
kvennafélags Borgarfjarðar
Borgarnesi.
NÝLEGA hélt Sjálfstæðiskvennafélag Borgarfjarðar upp á 20 ára
afmæli sitt í Sjálfstæðishúsinu við Brákarbraut í Borgarnesi. Félagar
og velunnarar fjölmenntu og þáðu veitingar í boði félagsins.
Formaður félagsins er Kristjana
Leifsdóttir á Brúarreykjum, Staf-
holtstungum. Sagði Kristjana að
margir góðir gestir hefðu komið í
afmælishófið, mætti þar nefna Þór-
unni Gestsdóttur formann Lands-
sambands Sjálfstæðiskvenna,
Friðjón Þórðarson alþingismann og
Guðnýju Jónsdóttur formann „Bár-
unnar“ sem er sjálfstæðiskvennafé-
lag Akraness. Sjálfstæðiskvennafé-
lag Borgarfjarðar var stofnað 19.
október 1966 í Borgarnesi. Aðal-
hvatamaður að stofnun þess var
Ásgeir Pétursson sem þá var sýslu-
maður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
og formaður fulltrúaráðs. Um hlut-
verk félagsins sagði Kristjana að
væri fjallað í þriðju grein laga félags-
ins, en þar sepr „hlutverk félagsins
er að vinna að heillavænlegri þróun
landsmála á grundvelli stefnuskrár
Sjálfstæðisflokksins svo og að sér-
stökum framfaramálum Borgar-
fjarðarhéraðs.“
Að sögn Kristjönu hefur félagið í
gegnum árin meðal annars beitt sér
fyrir ráðstefnum og félagsmálanám-
skeiðum. Þá hefðu fulltrúar félags-
ins sótt fundi víða um land.
- TKÞ
Morgunblaðið/Kr. Ben.
Minningararhöfn
í Hvalsneskirkju
Minningarathöfn um Jón Eð-
valdsson og Jóhannes Pálsson,
sem fórust með Arnari ÍS 125
frá Sandgerði, fór fram í
Hvalsneskirkju sl. laugardag.
Séra Hjörtur Magni Jóhanns-
son sóknarprestur þjónaði fyrir
altari og flutti minningarorð
og séra Sigurður Helgi Guð-
mundsson sóknarprestur í
Víðistaðasókn í Hafnarfirði las
bæn og ritningarorð. Eftir at-
höfnina, sem var fjölmenn, var
lagður blómsveigur á leiði
óþekkta sjómannsins í kirkju
garðinum þar sem minnisvarði
um drukknaða sjómenn stend
ur. Myndin var tekin í Hvalsnes
kirkju meðan minningarat-
höfnin stóð yfir.
Morgunblaðið/Theodór
Þessi mynd er tekin i 20 ára afmælishófi Sjálfstæðiskvennafélags
Borgarfjarðar, sem haldið var i Sjálfstæðishúsinu við Brákarbraut
í Borgarnesi. Á myndinni má meðal annarra sjá Kristjönu Leifs-
dóttur formann félagsins og Þórunni Gestsdóttur formann Lands-
sambands Sjálfstæðiskvenna, ásamt nokkrum af frumkvöðlum
félagsins.
Línur til Sverris
Hermannssonar
Ég get ekki setið á mér að
skrifa þér fáeinar línur, Sverrir,
í opnu bréfi. Vona ég, að þær
gleðji þig á erfiðum tímum.
Aldrei fyrr hef ég í hjarta mínu
verið jafn stoltur af einum af
„framkvæmdastjórum“ ríkis-
stjórnarinnar og verkum hans og
ég er nú, sem þegn hins íslenska
lýðveldis. Þú ert von um betri tíð,
Sverrir! Styrkur þinn og festa í
orðum og athöfnum svo og dreng-
skapur þinn við umbjóðendur þína
og starfsramma þinn, lögin, sanna
betur en nokkuð annað, að hér
er réttur maður á réttum stað.
Sumar ákvarðanir eru erfiðar
og hafa þungar afleiðingar í för
með sér. Ræðst það ekki síst af
ytri aðstæðum — þ.e. hvenær þær
koma til framkvæmda — hver
eftirleikurinn verður. í þessu til-
viki hefur þurft mikinn kjark til
þess að standa á sannfæringu
sinni og ert þú meiri fyrir vikið.
Við erum ábyrg gerða okkar og
til hvers setjum við lög nema til
þess að fara eftir þeim. Gagnvart
þessu stöndum við jöfn að vígi
og embættismenn eru engar heil-
agar kýr.
Haltu áfram á sömu braut. Það
færi betur ef fleiri tilheyrðu þínum
hópi, létu af meðalmennskunni og
atkvæðaskrekknum og þyrðu að
takast á við agnúa kerfisins,
óskiptir.
Kveðja,
Jakob P. Jóhannsson
f ramkvæmdastjóri
'ítíiian
almenn
enska
i
íT-ssarÆ
SíÍkrPi,manSPrófer
jhk '“k "amskeiðsins.
' auk.V. \°gð á: maffr*ði,
Mkmn orðaforða, skrifa eftir
upplestn, ritgerðir, iýsingar
°g bref.
ALÞJOÐLEG
PRÓFl
ENSKU
VERSLUNAR
ENSKAI
Pitman English For
business Communications
— elemantary. Kennt er
fjóra daga í viku, tvær
klukkustundir í senn í fjórtán
vikur. Pitmanspróf er tekið í
lok námskeiðsins. Áhersla
lögð á: samin verslunarbréf
eflir ítarlegum minnisatriðum
varðandi kaup og sölu,
kvartanir, fyrirspurnir o.fl.;
persónuleg bréf fyrir
vinnuveitenda varðandi
meðmæli, hamingjuóskir o.fl.;
móttaka og sending
skilaboða gegnum sima og
telex.
TIMI:
2. febrúar — 22. maí
kl. 13-15 eða 16-18
ENSK
VERSLUNARBRÉF
Skriflegar æflngar í enskum
verslunarbréfum. 10 vikna
námskeið. Kennt einu sinni í
viku tvær klukkustundir i
senn.
26. janúar — 3. apríl
kl. 13.30-15.30.
Vilt þú auka
möguleika þina á
vinnumarkaði?
Stöðugt fleirl störf
krefjast staðgóðrar
kunnáttu i erlendum
tungumálum.
Námskeiðin hjá Mimi
eru einhver
aðgengilegasta leiðin
til þess að bæta
þekkingu þína.
Leitaðu til Mímis —
og málið er leystl
Upplýsingar og innritun í síma 11109/10004/21655
■ANANAUSTUM 15