Morgunblaðið - 22.01.1987, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987
23
veginn sjálfgefið að tómarúmið hjá
henni eigi að fylla upp með því að
láta hana yfirtaka það hlutverk,
sem SVFÍ hefur gegnt hingað til í
þessum málum. Félagið hefur með
starfi sínu sem miðstöðvaraðili
tengt saman störf sjálfboðaliða og
n'kisstofnana að þessum málum.
Eg leyfi mér einnig að fullyrða að
framkvæmd þessara mála hafi ver-
ið farsæl og skipulagning björgun-
araðgerða er ekki og hefur ekki
verið neinn höfuðvandi í sambandi
við sjóbjörgunarmál eins og skilja
hefur mátt á umræðum að undan-
förnu.
Frjáls félagasamtök
— ríkisstofnun
Ein aðalröksemdin gegn því að
SVFI reki sjóbjörgunarmiðstöð er
sú, að félagið er ekki ríkisstofnun
og því sé ekki unnt að fela því
ábyrgðarhlutverk í þessum málum.
Því er hér til að svara í fyrsta lagi,
að félagið hefur í reynd gegnt þessu
hlutverki í áratugi, svo sem hér var
áður rakið. í öðru lagi eru fordæmi
fyrir því að ríkið feli frjálsum fé-
lagasamtökum ákveðin verkefni
fyrir samfélagið og er hér að sjálf-
sögðu nærtækast að nefna, að
löggjafinn hefur falið SVFÍ umsjón
Tilkynningaskyldunnar. Fyrir því
eru einnig fordæmi í öðrum löndum,
að samtökum á borð við SVFÍ séu
falin þau verkefni, sem hér er um
rætt. Þannig hefur v-þýska sjó-
björgunarfélaginu, sem er frjálst
og óháð félag, verið falinn rekstur
sjóbjörgunarmiðstöðvar fyrir
Eystrasalt og Norðursjó með sér-
stökum samningi við ríkið og rekur
félagið höfuðstjórnstöð í Bremen.
Er félaginu með samningnum falið
að sjá til þess að v-þýska ríkið full-
nægi ákvæðum alþjóðasamþykktar-
innar að þessu leyti.
Öryggishagsmunir sjó-
manna ráði niðurstöðu
Hér hafa verið rakin nokkuð
þeirra sjónarmiða, sem lýst var fyr-
ir stjómvöldum í desember 1985,
þegar stjóm SVFÍ taldi rétt að
leggja þetta mál fyrir þau til úr-
lausnar. I umræðum hefur af hálfu
félagsins verið lögð höfuðáhersla
annars vegar á mikilvægi þess að
sem nánust tengsl séu milli sjó-
björgunarmiðstöðvar og Tilkynn-
ingaskyldu íslenskra skipa og hins
vegar á stórt hlutverk sjálfboðaliða
og samtaka þeirra í sjóbjörgunar-
málum, sem hafa verður í huga við
lausn þessara rhála.
Því miður hefur dregist um of
að niðurstaða fengist í þessu máli.
Hver sem hún verður, þegar hún
loks liggur fyrir, er vonandi að hún
feli í sér farsæla lausn, er stuðli
að auknu öryggi sjómanna.
Höfundur er forseti Slysavarnafé■
lags Islands.
kafinn og hefði hann notað höndina
óspart við að leggja saman tölur á
reiknivél. Annar maður segist hafa
þurft að punga út $ 500.00 í fóta-
sérfræðing til að fjarlægja líkþom
af fæti 14 ára sonar síns.
Eftir einn eða tvo matlystarauka
er gestum boðið í sjálft ármiðið. í
borðstofunni skartar hlaðið borð
með alls kyns morhádkræsingum í
svipuðum dúr og lýst var hér að
framan. Taka nú gestir við að troða
í vömbina á sér til að slökkva í
þeim litlu glæðum, sem þeir vom
búnir að kveikja með blóð-Maríum
eða öðru eldsneyti. Með matnum
er dmkkið kaffi í bollavís.
Upp úr eitt heldur svo hver til
síns heima með bros á vör. Það er
búið að fara í gleðskapinn, en samt
er meirihluti sólríks sunnudags
ónotaður. Ekki veit ég, hvort þetta
menningarfyrirbæri á erindi til ís-
lands. Vel get ég trúað, að margir
landar myndu gjarnan vilja taka
daginn svona snemma, en vandinn
verður bara að slútta. . .
Höfundur er ræðismaður Islands
íSuður-Flórída og framkvæmda-
stjóri hjá fisksölufyrirtæki í
Miami.
Sjálfstæðiskonur:
Fuiidur um málefni
aldraðra á Selfossi
LANDSSAMBAND sjálfstæðis-
kvenna heldur ráðstefnu um
málefni aldraðra á Selfossi nk.
laugardag 24. janúar. Ráðstefn-
an verður haldin að Hótel
Selfossi og sett af formanni
Sjálfstæðisflokksins, Þorsteini
Pálssyni, kl. 10.00. Ragnhildur
Helgadóttir, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra mun
siðan slíta ráðstefnunni um kl.
17.00.
Málefni aldraðra vom valin sem
sérstakt ráðstefnuefni vegna þess
að mikið hefur verið unnið að und-
anförnu að stefnumörkun í málefn-
um aldraðra um allt land.
Markmiðið er að fá sem besta heild-
arsýn yfir þessi mál frá sjónarhóli
opinberra aðila og einstaklinga.
Frummælendur á ráðstefnunni
verða: Árni Sigfússon, formaður
félagsmálaráðs Reykjavíkur og
borgarfulltrúi, Brynleifur Stein-
grímsson, yfirlæknir og bæjarfull-
trúi á Selfossi, Inga Jóna
Þórðardóttir, aðstoðarmaður heil-
brigðisráðherra, Ingibjörg J.
Rafnar, lögfræðingur og fyrrver-
andi borgarfulltrúi, Ingibjörg R.
Guðmundsdóttir, formaður bygg-
ingarnefndar VR-hússins við
Hvassaleiti og séra Sigurður Helgi
Guðmundsson einn af aðstandend-
um Skjóls, nýbyggingar við Hrafn-
istu. Ráðstefnustjóri verður Arndís
Jónsdóttir, frambjóðandi á lista
sjálfstæðismanna á Suðurlandi.
. IBM SVSTEM/36
Oskatök á atvinnurekstrinuin
Tölva atvinnumanna.
Það er engin tilviljun hve mikið kveður að
IBM SYSTEM/36 í atvinnulífinu. Af fjöl-
mörgum notendum má nefna:
Iðnfyrirtæki, bæjarfélög, kaupfélög,
banka, heildsölur, smásölur, vél-
smiðjur og fyrirtæki i sjávarútvegi.
Að duga i samkeppninni.
Þegar fyrirtækið er vaxið upp úr einmenn-
ingstölvunni er ekki hyggilegt að leita
bráðabirgðalausnar. Sjálfsagt er að hefja
strax alvörutölvuvæðingu með IBM
SYSTEM/36. Þar tekur reynslan af öll
tvímæli.
Alvörutölvuvæðing eða tölvuvæðing
til málamynda?
Ljóst er að í mjög náinni framtíð stóreykst
notkun á tölvum. Þróun hugbúnaðar
verður enn stórkostlegri en áður. Nauðsyn-
legt er að fyrirtæki séu viðbúin fram-
þróuninni og komi sér upp réttum vélbún-
aði í tæka tíð. Allt hálfkák er til óþurftar,
það getur reynst dýrkeypt síðar meir að
sitja uppi með óhentugan vélbúnað.
IBM SYSTEM/36, árgerð 1987, er ný
fjölnotendavél með geysilega öflugum
örgjafa. Hún er tæknilega fullkomin,
auðveld í notkunog hagkvæm í rekstri
enda sérhönnuð til að veita þér óskatök á
atvinnurekstrinum.
Hringdu eða littu inn hjá okkur.
Þú ert aufúsugestur lijá IBM.
VANDVIRKNI í HVÍVETNA
Skaftahlið 24 105 Reykjavik Simi 27700
ARGUS/SÍA