Morgunblaðið - 22.01.1987, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 22.01.1987, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987 Kveðja: Þuríður Vigfús- dóttirfrá Isafirði Látin er í hárri elli vinkona okk- ar, Þuríður Vigfúsdóttir frá Isafirði. Ellin reynist á stundum grimm í fangbrögðum sínum og svo var um vinkonu okkar að hart var hún leik- inn á síðustu ævidögum og hvíldin eilífa því kærkomin. Þuríður Vigfúsdóttir fæddist í Hafnarfirði 23. nóvember árið 1900. Foreldrar hennar voru nafn- greint fólk á sinni tíð, sem á marga afkomendur í Hafnarfirði og víðar. Jón Gestur, bróðir Þuríðar, eignað- ist tólf böm með konu sinni, Sesselíu Magnúsdóttur, og er álit- legur hópur fólks út af þeim kominn. Hinn 30. apríl 1929 gekk Þuríður að eiga Einar Guðmundsson, klæð- skerameistara frá ísafírði. Einar var Reykvíkingur að ætt og upp- runa, einn systkinanna sem kennd voru við Skálholt en í þeim hópi var skáldið Vilhjálmur. Einar Guðmundsson hafði ungur að árum ráðizt til starfa hjá Þor- steini Guðmundssyni, klæðskera á ísafirði, þar sem hann nam iðnina og stundaði síðan alla ævi. Þar kynntist hann tengdaföður undirrit- aðs, Kristjáni Tryggvasyni frá Kirkjubóli í Skutulsfirði. Stofnuðu þeir félag með sér 1926 og hófu rekstur verkstæðis og síðar verzlun- ar einnig og ráku sem sameignarfé- lag til dánardægurs Einars, 18. febrúar 1961, en Kristján einn um tíu ára bil eftir það. Var samvinna þeirra með ágætum og einlæg vin- átta ríkjandi milli þeirra og fjöl- skyldna þeirra alla tíð. Mér hefir verið sagt að þau hjón hafi vakið mikla athygli um ísafjörð er þau stigu þar land hinn 1. maí 1929. Einar var glæsimenni í sjón og raun og hinn höfðinglegasti og Þuríður hans jafningi, fríð og fönguleg. Þau settu mikinn svip á ísafjörð um sína daga. Tóku enda framan af ævinni mikinn þátt í fé- lagsstarfi í bænum, bæði á leiksviði og Einar í kórum. Þeim Þuríði varð ekki barna auð- ið, en ólu upp sem sínar eigin dætur Sigrúnu, dóttur Jóns Gests og Sess- elíu, og Sigríði Guðmundsdóttur, bróðurdóttur Einars. Sigrún er gift Yngva Guðmundssyni, rafmagns- eftirlitsmanni hjá Orkubúi Vest- fjarða. Eignuðust þau fjögur börn, Þuríði, Guðmund Geir og tvíburana Auði og Einar, en urðu fyrir þeirri djúpu sorg að missa Geir úr ólækn- andi sjúkdómi um tvítugsaldur. Sigríður er gift Jónasi Helga- syni, vélstjóra, frá Isafirði, en þau hjón fluttust brott af landi fyrir margt löngu til Ameríku og hefir vegnað vel þar. Börn þeirra eru Einar, rafvirki, búsettur í Reykjavík, Sigríður og Sigurveig, sem eru giftar og húsfreyjur þar vestra. Heimili Þyrí og Einars var með höfðingjabrag og af eldri skólanum myndi það kallað nú, vandað og glæsilegt. Þau hjón voru einkar samhent um allan beina, gestrisni og elskusemi. Ég á margar ljúfar og góðar minningar frá kynnum af þessum framúrskarandi góða fólki. Ég minnist þeirrar stundar glöggt þegar glæsimennið Einar flutti ræðu til heiðurs okkur Grétu í brúðkaupi okkar. Þar talaði hann til Grétu sinnar eins og hún væri hans eigin dóttir, enda var sambýli þessa fólks með þeim hætti að ein fjölskylda rnátti kallast. Allur hugur þeirra systra, Grétu og Elísabetar, til Þuríðar var sem til annarar móður. Enda var væntumþykja hennar með sama móti sem móður til dætra. Og börnin okkar Grétu sem hennar eigin barnabörn. Það er sjaldhitt jafn elskurík kona og Þuríður Vigfúsdóttir var og glað- sinna alla tíð. Ekki þar fyrir að einörð var hún og einbeitt þegar það átti við, en hlý og góð mann- eskja svo af bar. Hvíldin var að vísu kærkomin því stríðið var orðið of strangt. Þó er sjónarsviptir mikill að þessari góðu konu og kæra vini, en minningin um Þuríði Vigfúsdóttur mun lifa með okkur vinum hennar óbrot- gjöm meðan lífsanda drögum. Ofar söknuði ríkir þakklætið fyrir líf hennar og göfugt ævistarf. Sverrir Hermannsson Námskeið um sam- skipti foreldra o g barna NÝLEGA hóf starfsemi sína fyrirtækið Samskipti — fræðsla og ráðgjöf sf. Mark- mið fyrirtækisins er m.a. að halda námskeið fyrir foreldra í samskiptum foreldra og barna. Þegar hafa verið haldin tvö námskeið við góðar undir- tektir þátttakenda. A námskeiðinu er fjallað um það, á hvem hátt foreldrar geta komist hjá valdbeitingu í sam- skiptum sínum við börn sín og hvernig þeir geta alið upp og þroskað þau til að takast á við vandamál daglegs lífs. Námskeiðin byggja á hug- myndum dr. Thomas Gordons sálfræðings, og hafa verið haldin í Bandaríkjunum fyrir mörg hundruð þúsund foreldra. Einnig hafa þessi námskeið verið haldin í 20 öðrum löndum, þar á meðal öllum hinum Norðurlöndunum. Námskeiðin eru byggð upp með það í huga að þátttakendur til- einki sér þær hugmyndir sem byggt er á og eru kennslu- aðferðirnar í samræmi við það. Lítið er um beina fyrirlestra en þeim mun meir um verkefni sem þátttakendur vinna sjálfir. Næsta námskeið byrjar fimmtudaginn 22. janúar. 40% 40% ÚTSALA á sýningarmunum vegna breytinga á versluninni. Við bjóðum eftirfarandi með 40% afslætti. □ 3 eldhúsinnréttingar □ 1 baðinnréttingu úr beyki □ 1 fataskáp, Ijós eik, 120 sm □ 2viftuhjálma Auk þess bjóðum við 15% afslátt af öllum þeim innréttingum sem kaup- andi vill versla til viðbótar. Nýbýlavegi 12 200 Kópavogur Sími 44011. Pósthólf 167. Útsala Útsala Við flytjum og höfum því útsölu. Mikill afsláttur. Allt á að seljast. Lítið við og gerið góð kaup. /o of London _Í7C9C3ŒjDGlIíjQ^7 Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði. S: 53900. raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar Sumarhús Traustur aðili óskar að kaupa sumarhús. Æskilegast er að það sé á Suður- eða Vest- urlandi en aðrir landshlutar koma til greina. Æskilegt er að veiðihlunnindi eða aðstaða fylgi en þó ekkert skilyrði. Einnig kæmi til greina að kaupa eyðibýli eða jafnvel lítið hús í einhverju kauptúni á falleg- um stað á landinu. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 1. febrúar næstkomandi merkt: „Sumarhús — 1514“. Til sölu verslun og erlend innflutningssambönd að hluta eða | öllu. Um er að ræða nýjung í verslunar- rekstri. Kjörið tækifæri fyrir aðila sem áhuga hefur fyrir að fara erlendis og gera innkaup. Upplýsingar í síma 44448, heimasíma 12927. Borgarbúar! Úrvals kartöflur beint frá bóndanum, rauðar | eða gullauga. Ath. heimsendingarþjónustuna, hún er ókeypis. Verð aðeins kr. 32 per. kg. Eyfirska kartöflusalan, \/esturvör 10, Kópavogi. Sími: 641344. I húsnæöi í boöi_________________j Hnjúkasel Einbýlishús um 220 fm. til sölu milliliðalaust. Húsið er íbúðarhæft en þarfnast endurbóta að innan. Húsið verður laust til afhendingar 1. febrúar 1987. | Upplýsingar í síma 42677 í hádeginu og á I kvöldin. Verslunarhúsnæði til leigu Um það bil 150 fm verslunarhúsnæði til leigu á góðum stað við miðbæinn. Skrifstofuhúsnæði Til leigu glæsilegt skrifstofuhúsnæði ca 100 fm í hjarta borgarinnar. Mjög fallegt útsýni. Leigist frá og með 1. febrúar. Fyrirspurnir leggist inn á auglýsingadeild Mbl. merktar: „T — 2658“. | fundir — mannfagnaðir | Sólarkaffi ísfirðinga Sólarkaffi ísfirðingafélagsins verður í Súlna- sal Hótel Sögu sunnudaginn 25. janúar kl. 20.30. Miðasala laugardag kl. 16.00-18.00 og sunnudag kl. 16.00-17.00. Fjölbreytt skemmtiskrá. Stjórnin. óskast keypt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.