Morgunblaðið - 25.01.1987, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1987
35
Nýttu tækifærið!
Notaðu afsláttarávísunina.
Radíóbúðin gefur þér
4000, -kr. hlutdeild í
hagstæðum innkaupum á
20" GoldStar sjónvarpi,
sem náðust vegna
vinsælda GoldStar
hérlendis og geysimikillar
sölu undanfarið.
Klipptu út 4000 kr.
ávísunina og notaðu hana
þegar þú kaupir
GoldStar CBZ-9222E 20"
litasjónvarpið með
þráðlausri fjartýringu, 16
stöðvavali, sérrás fyrir
kabalsjónvarp og sérstök
Audio / Video tenging.
Verðið á GoldStar
CBZ-9222E er 37.980,-
kr. með greiðslukjörum
eða 35.980,-kr,staðgreitts
P.S Aðeins er hægt aö nota eina ávísun fyrir hvert 20"GoldStar CBZ-9222E sjónvarp.
Handhafa
Radióbúðin hf.
Skipholti 19 sími 29800
4.000,-
Greiðiögegn
tékka þessum
Krónur Fiögur búsund krónur til greiðslu upp í 20" GoldStar CBZ-9222E
litasjónvarp.
Reykjavík--------Jan.Uai,.,
= ýmislegt
Tókkanr.
== Banki
= Reikn.nr. = Upphaað =
Ávísun þessi gildirtil 3. febrúar
til kaupa á 20" GoldStar CBZ-9222E litasjónvarpi
AMINS
BTT
SÍIMITAI
691140
691141
Með einu símtali er hægt að
breyta innheimtuaðferðinni.
Eftir það verða áskriftargjöld-
in skuldfærð á viðkomandi
greiðslukortareikning mánað-
arlega.
VERIÐ VELKOMIN í
GREIÐSLUKORTA-
VIÐSKIPTI.
Sovétríkin:
Aðeins hætt
að trufla
útsencling-
arBBC
Moskvu. AP, Reuter.
SOVÉSK yfirvöld hafa ákveðið
að hætta að trufla útsendingar'
bresku útvarpsstöðvarinnar BBC
á rússnesku, að því er tilkynnt
var i Moskvu i gær, en haldið
verður áfram að trufla útsend-
ingar annarra stöðva.
Talsmaður sovéska utanríkis-
ráðuneytisins, Gennady Gerasimov,
lýsti þessu yfír á blaðamannafundi
og sagði þetta í samræmi við hina
nýju stefnu er leyfði meira frelsi í
skoðanaskiptum. Hvað aðrar stöðv-
ar varðaði sagði Gerasimov að
margar þeirra sendu út efni sem
skoðast gæti sem afskipti af innan-
landsmálum Sovétríkjanna og þó
að ríkisstjómin væri hlynnt miðlun
upplýsinga væri hún á móti hlut-
drægum upplýsingum er gæfu
ranga mynd af ástandinu í landinu.
Aðspurður kvaðst Gerasimov telja
að útsendingar stöðvarinnar „Fijáls
Evrópa“ ættu það skilið að vera
tmflaðar og stöðvar er hefðu í sinni
þjónustu „svikara" gætu ekki hald-
ið á lofti ákvæðum Helsinki-sam--,
komulagsins, þar sem kveðið er &
um miðlun upplýsinga. Við ýmsar
þeirra stöðva er útvarpa til Austur-
Evrópu á tungumálum viðkomandi
þjóða, starfa flóttamenn frá komm-
únistalöndunum og mun talsmaður-
inn hafa átt við þá.
Eftir leiðtogafundinn í Reykjavík
sagði Gorbachev í sjónvarpsræðu
er heim kom, að hann hefði boðið
Reagan, Bandaríkjaforseta, að hætt
yrði að trufla útsendingar stöðvar-
innar „Rödd Ameríku", ef,
bandarísk stjómvöld sæu til þess,
að útvarpsstöðvar þar í landi sendu
út efni frá Moskvuútvarpinu. Var
það í fyrsta sinn sem sovéskur ráða-
maður viðurkenndi að stjórnvöld
trufluðu útsendingar erlendra
stöðva til landsins, því fram til þess
tíma hafði slíku verið staðfastlega
neitað.
Fornleifaf undur
á Grænlandi:
Hófu sigl-
ingar löngu *
fyrr en
haldið var
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
fréttaritara Morgnnblaðsins.
ÍBÚAR norðurheimskautsins
hófu siglingar löngu fyrr en
haldið hefur verið hingað til.
Fornleifafundur við Christians-
háb á Norðvestur-Grænlandi er
til vitnis um það.
Arið 1983 fundust mannvistarleifar
í Christiansháb og síðan hefur fom-
leifagröftur farið þar fram á hveiju.
sumri. Fomleifafræðingar hafa
komist að raun um, að viðarbútur,
sem fannst við uppgröftinn, hafí
verið þverband í bát, að því er Tor-
ben Simonsen, forstöðumaður
minjasafnsins í Christianháb, sagði
í viðtali við Grænlenska útvarpið.
Hann telur, að þverbandið sé úr
lítilli flatbytnu eða húðkeip.
Bandið hefur nú verið aldurs-
greint og er sagt frá því um 2000
fýrir Krists burð. Fyrir þennan fom-
leifafund var talið, að bátsleifar,
sem fundust í Norður-Ameríku og
eru taldar frá því um 500 eftir
Krist, væru elstu minjar um sigling-
ar í þessum heimshluta. Græn-
lenska þverbandið er sem sé 2500
árum eldra.
Fornleifafræðingar hafa fram að
þessu álitið, að bátar hafí fyrst
komið til sögunnar á norðurheim-
skautssvæðinu um Krists burð. .