Morgunblaðið - 25.01.1987, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1987
41
Notið því aðeins viðurkennda
varahluti í bílinn
-öryggisins vegna.
IHIHEKLAHF
I Laugavegi 170-172 Sfm
i 69 55 00
10 árum tók félagið umboð fyrir
alhliða tryggingar fyrir Trygginga-
miðstöðina. Hefur þessi umboðs-
starfsemi gengið vel og farið
vaxandi. Öll innheimt iðgjöld eru
ávöxtuð innanbæjar. Ekki hefur
félaginu enn tekist að fá húsatrygg-
ingar í bænum, sem það telur þó
mjög æskilegt, og þannig tryggja
að þeir miklu ijármunir sem þar er
um að ræða í tryggingargjöldum
haldist innanbæjar.
Á 125 ára starfsferli Báta-
ábyrgðarfélagsins hefur það átt
góðan þátt í ýmsum framfaramál-
um byggðarlagsins og lagt fram fé
til margra góðra mála. Má þar
nefna kaupin á björgunarskipinu
Þór, er varð upphaf landhelgis-
gæslunnar, veitt Björgunarfélaginu
fjárstuðning, lánað til hafnarfram-
kvæmda, átt þátt í kaupum á
dýpkunarskipinu og Lóðsinum,
byggingu sundlaugarinnar, svo
nokkuð sé nefnt. Þá hefur félagið
í áratugi lagt Ekknasjóði til fé og
stutt aldraða og einstæða, auk stór-
gjafa til ýmissa áhugamála bæj-
arbúa.
„Á spjöldum sögunnar gefur á
að líta, að oft hefur syrt í álinn hjá
Eyjabúum og mikil áföll dunið yfir.
Sá hluti er' metinn verður til fjár
hefur verið allverulegur fyrir Báta-
ábyrgðarfélagið. Á fyrstu 80 árum
vélbátaútgerðarinnar hafa 68 bátar
í tryggingu hjá félaginu farist og
með þeim 86 menn. Sex sinnum
Meðan Ási í Bæ gerði út voru
bátar hans tryggðir hjá Báta-
áhyrgðarfélaginu. Nokkru eftir
að samstarfið hófst við Trygg-
ingamiðstöðina og félagið gat
boðið allar tryggingar kom Asi
á skrifstofuna og lagði á borðið
þessa ágætu auglýsingu: Leitið
ekki langt yfir sundin / lausnin
er fundin. / Takmarkið er
traust og góð / trygging á
heimaslóð.
munu þrír bátar hafa farist á sama
árinu. Þetta er áminning um að
aldrei má slaka á í neinu sem lýtur
að árvekni og útsjónarsemi. Og
hvað sem öllum nauðsynlegum og
sjálfsögðum björgunar- og hjálpar-
búnaði áhrærir hlýtur viðkomandi
bátur alltaf að vera besta björgun-
artækið," segir Jóhann Friðfmns-
son, forstjóri Bátaábyrgðarfélags
Vestmannaeyja. — hkj.
Myndin er af vb. Ásdisi VE 144,
14 rúmlestir. Báturinn kom til
Eyja 1911, eigandi Gísli J. John-
sen. Báturinn var mest notaður'
til flutninga milli hafna fyrstu
árin.
Núverandi stjórn Bátaábyrgðarfélags Vestmannaeyja. F.v. Jóhann
Halldórsson útgerðarmaður, Jón I. Sigurðsson hafnsögumaður,
Eyjólfur Martinsson forstjóri, stjórnarformaður, Ingólfur Matthías-
son hafnarvörður, Kristján Oskarsson útgerðarmaður og Jóhann
Friðfinnsson forstjóri félagsins. Morgunbiaðið/Sigurgeir
Eftir 125 ára starfsemi:
Árið 1976 gerðist Bátaábyrgðarfélagið umboðsaðili í Eyjum fyrir
Tryggingamiðstöðina hf. Myndin var tekin er samningur þar um
var undirritaður. Frá vinstri talið eru á myndinni Hörður Felixson
skrifstofustjóri TM, Gísli Ólafsson forstjóri TM, Haraldur Hannes-
son, Jón I. Sigurðsson, Björn Guðmundsson, Eyjólfur Martinsson,
Ingólfur Matthíasson og Jóhann Friðfinnsson.
Flytur í eigið húsnæði
og lögin endurskoðuð
Vestmannaeyjum.
Á 124. aðalfundi Bátaábyrgð-
arfélags Vestmannaeyja í
nóvember síðastliðinn, sem hald-
inn var í nýjum, glæsilegum
húsakynnum er félagið, í sam-
vinnu við Tryggingamiðstöðina,
hefur reist, var samþykkt að
endurskoða lög félagsins. Hefur
verið samið við Arnljót Björns-
son, lagaprófessor, að hann vinni
verkið. Er stefnt að því að þau
verði afgreidd á aðalfundi fé-
lagsins á þessu ári, þá haldið
verður upp á 125 ára afmælið.
Félagið flutti í nýju húsakynnin
skömmu fyrir áramótin og þótti
mörgum tími til kominn að félagið
eignaðist sitt eigið húsnæði eftir
þetta langan starfsferil.
Á aðalfundinum fóru fram um-
ræður um skyldutryggingar báta
innan við 100 rúmlestir, sem verið
hafa í gildi um áratugaskeið. Hefur
löngum þótt ljóst, að skilmálar
trygginganna miðað við þær reglur
sem gilda fyrir skip yfir 100 rúm-
lestum, eru mjögtakmarkaðir. Voru
því samþykktar grundvallarbreyt-
ingar, sem eiga að stuðla að
hagsbótum fyrir félagsmenn, þann-
ig að sömu vátryggingaskilmálar
séu í gildi, burtséð frá bátastærð.
Svo og að útreikningar iðgjalda
verði miðaðir við tjónareynslu.
Núverandi stjórn félagsins skipa:
Eyjólfur Martinsson formaður, Jón
í. Sigurðsson, Ingólfur Matthías-
son, Kristján Öskarsson og Jóhann
Halldórsson. Forstjóri er Jóhann
Friðfinnsson.
Margir af kunnustu borgurum
Vestmannaeyja hafa setið í stjóm
Fyrir áramótin flutti Bátaábyrgðarfélagið starfsemi sína í nýtt eig-
ið húsnæði á horni Strandvegar og Heiðarvegar, upp af Básaskers-
bryggju. Húsið stendur þar sem áður fyrr var Skildingafjara og
húsið Sandur stóð í áratugi.
félagsins og hafa eftirtaldir menn
starfað þar í 10 ár eða lengur:
Bjarni E. Magnússon sýslumaður,
Þorsteinn Jónsson alþingismaður,
Gísli Stefánsson kaupmaður, Gísli
Engilbertsson verslunarstjóri, Þor-
steinn Jónsson læknir, Erlendur
Árnason trésmiður, Jón Ólafsson
útgerðarmaður, Guðmundur Ein-
arsson útgerðarmaður, Jóhann
Sigfússon forstjóri, Jón í. Sigurðs-
son hafnsögumaður, Jónas Jónsson
forstjóri, Karl Guðmundsson út-
gerðarmaður, Sighvatur Bjarnason
skipstjóri, Ársæll Sveinsson útgerð-
armaður, Martin Tómasson for-
stjóri, Haraldur Hannesson
útgerðarmaður, Björn Guðmunds-
son útgerðarmaður, Ingólfur
Matthíasson útgerðarmaður og Eyj-
ólfur Martinsson forstjóri.
— hkj.