Morgunblaðið - 28.01.1987, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 28.01.1987, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANLIAR 1987 Tími til kominn að starfsemi Þióðhag Útgefandi Framkvæmdastjóri Ftitstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgrei^sla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakið. Hópskoðun Krabba- meinsfélagsins Krabbameinsfélag íslands sendi á síðasta ári 6.000 Islendingum á aldrinum 45-70 ára boð um að taka þátt í leit að krabbameini í ristli. Aðeins þriðjungur, eða um 2.000 manns, sinnti kalli. 27 af 2.000 sýnum gáfu tilefni til ristilspegl- unar — og fjórir einstaklingar reyndust hafa illkynja æxli. Enginn þeirra hafði minnsta grun um að hann væri með for- stig krabbameins. Aður en lengra er haldið hug- leiðingu um þetta framtak Krabbameinsfélagsins er rétt að minna á þrjár staðreyndir. Hin fyrsta er sú að krabbamein í ristli er þriðja algengasta krabbameinið hjá fulltíða Is- lendingum. Önnur staðreyndin er sú að finnist ristilkrabbi á frumstigi er hægt að eyða hon- um með lítilli fyrirhöfn. Þriðja staðreyndin er, að hér hefur fyrirbyggjandi aðgerð, þ.e. hóp- skoðun Krabbameinsfélagsins, leitt til þess að fjórir einstakl- ingar með forstig krabbameins fá meðferð í tíma og fullan bata. Snorri Ingimarsson, forstjóri Krabbameinsfélagsins, sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær, þar sem fjallað var um þennan góða árangur: „En hinu má ekki gleyma að 4.000 einstaklingar, sem fengu boð um að taka þátt í könnun- inni, hafa ekki anzað bréfi okkar. Ef í þeim hópi leynast hlutfallslega jafn margir, sem eru með forstig ristilkrabba- meins, gætu verið átta sýktir einstaklingar í úrtakinu til við- bótar, sem hægt er að aðstoða." Hann bætir því við að þeir, sem fengið hafi bréf frá félaginu, geti ennþá sinnt kalli. Aðrir, sem hafi áhuga á að ganga undir rannsókn sem þessa, geti fengið „sams konar próf hjá heimilislæknum“. Fyrirbyggjandi heilsuvarnir eiga vaxandi fylgi að fagna. Þær forða fjölda einstaklinga frá biturri reynslu, sjúkdóms- stríði og jafnvel ótímabærum dauða. Það eitt gerir meira en að réttlæta útlagðan kostnað >eirra vegna. En þær spara og :amfélaginu mikla fjármuni, ; >egar grannt er gáð, í minni i íeildarkostnaði í meðferð sjúkra Kn ella, að ekki sé talað um eiri vinnudaga í þjóðarbú- skapnum, þar sem fyrirbyggj- andi aðgerðir gefa góða raun, og mannlega velferð yfirhöfuð. Krabbameinsfélag íslands hefur enn einu sinni fært sönnur á gildi sitt. Og Oddfellow-reglan, sem kostaði þessa könnun, á þakkir skyldar. Frumkvæði og framtak Krabbameinsfélagsins vekur spurningar um, hvort ekki sé hægt að nýta hliðstæðar for- varnir, þ.e. hópskoðanir, gegn fleiri vágestum. Þetta framtak er og hvati á ríkisvald, sveitar- stjórnir, fyrirtæki, félög og almenning um stuðning við Krabbameinsfélagið og önnur samtök, er fyrirbyggjandi heil- sugæzlu sinna. Astæða er og til að hvetja fólk til að sinna kalli samtaka eins og Krabba- meinsfélagsins. Það er allra hagur. Aukin tann- vernd * Islenzk 12 ára skólabörn eru með 6,6 tennur skemmdar að meðaltali, samkvæmt skoðun sem gerð var á liðnu ári, á móti 2,7 tönnum skemmdum í sama aldurshópi hjá grannþjóð- um. Tengsl er talin milli mikillar sykurneyzlu íslendinga og tann- skemmda. Heilbrigðisráðuneytið beitir sér fyrir átaki í tannverndar- málum með stofnun sérstaks tannvemdarráðs og fjárveitingu til fyrirbyggjandi aðgerða gegn tannskemmdum. Ragnhildur Helgadóttir, heil- brigðisráðherra, sagði m.a. á fundi með fréttamönnum, að með þessu átaki vilji heilbrigðis- yfirvöld „leggja áherzlu á heilar tennur og að hlutverk tann- lækna beinist meira að því að hjálpa okkur að halda tönnunum heilbrigðum. — Aukin áherzla verður lögð á tannvernd — en kostnaður við hana er ótrúlega lítill miðað við ávinning“. Tannverndarátak það, sem að er unnið, byggist á fræðslu og áróðri, sem á að opna augu fólks, yngri sem eldri, fyrir mik- ilvægi tannheilbrigðis. Sá árangur, sem þcgar hefur náðst hjá grannþjóðum okkar í tann- verndarmálum, færir heim sanninn um, að til mikils er að vinna á þessum vettvangi. Framtak ráðuneytisins er gott spor til réttrar áttar. HUGMYNDIR eru uppi um, að breyta starfsemi Þjóðhagsstofn- unar eða jafnvel leggja stofnun- ina niður í núverandi mynd. Þórður Friðjónsson, settur for- stjóri Þjóðhagsstofnunar, sagði í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins, að eðlilegt væri að fara ofan í saumana á þeim sjónarmið- um, sem fram hafa komið í þessu efni, og taka afstöðu til þeirra að kosningum loknum, þegar ný ríkisstjórn hefur tekið við. „Því að sjálfsögðu ákveður ríkis- stjórnin og Alþingi skipan þessara mála,“ sagði hann. Þórður Friðjónsson, sem verið hefur efnahagsráðgjafi ríkisstjórn- arinnar s.l. sex ár, tók við starfi forstjóra Þjóðhagsstofnunar um áramótin og gegnir því tímabundið, þar sem skipaður forstjóri, Jón Sig- urðsson, er í framboði fyrir Al- þýðuflokkinn. Samkvæmt lögum um Þjóðhags- stofnun, sem eru frá árinu 1974, á hún, að „fylgjast með árferði og afkomu þjóðarbúsins, vinna að ha- grannsóknum og vera ríkisstjórn og Aiþingi til ráðuneytis í efnahags- málum.“ í lögunum eru verkefni hennar síðan nánar skilgreind. Þórður sagði, að þau væru einkum af þrennu tagi: 1) Efnahagsráðgjöf og sú vinna, sem hún byggist á og tengist. 2) Hagskýrslugerð, þ.e. þjóðhagsreikningar, atvinnuvega- skýrslur og ýmis önnur skýrslugerð. 3) Hagrannsóknir. Hann sagði, að þessi verkefni sköruðust að nokkru á við starfsemi Hagstofu íslands og Seðlabankans en minna við starfsemi annarra stofnana. Starfs- menn Þjóðhagsstofnunar eru nú 22 að tölu, flestir hagfræðingar. Rekstur stofnunarinnar kostaði á síðasta ári um 35 milljónir króna og greiða ríkissjóður og Seðlabank- inn í sameiningu kostnað af starf- seminni. „Það má segja, að í aldarfjórðung hafi skipulag hagskýrslugerðar og efnahagsráðgjafar á vegum hins opinbera verið að mestu í sama farvegi. Aður en Þjóðhagsstofnun Rætt við Þórð Friðjónsson, sett- an forsljóra stof nunarinnar kom til sögunnar árið 1974 störfuðu hér áþekkar stofnanir, fyrst Efna- hagsstofnunin og síðar Fram- kvæmdastofnunin. Eina breytingin er, að sérstakt embætti efnahagsr- áðgjafa ríkisstjórnarinnar var sett á laggirnar fyrir sex árum, en þar er aðeins um starf eins manns að ræða og getur því ekki talist róttæk umskipti,“ sagði Þórður. „Þó ekki væri nema af þessari ástæðu,“ hélt hann áfram, „er ljóst að tími er kominn til, að taka þessa starfsemi til endurmats og ef til vill stokka hana upp. Sú breyting, sem orðið hefur á yfírstjórn Þjóð- hagsstofnunar, er svo önnur ástæða, sem gefur tilefni til þess, að skoða þessi mál frá grunni.“ „En það hafa líka orðið breyting- ar utan stofnunarinnar, sem knýja á um endurskoðun á starfsemi hennar," sagði Þórður Friðjónsson. „Ég nefni fyrst, að hagfræðileg þekking hefur aukist gífurlega hér á landi á undanförnum árum. Hún er ekki aðeins til staðar hjá hinu opinbera, heldur er það orðið mjög algengt að hagsmunasamtök og fyrirtæki hafi hagfræðinga í sinni þjónustu. Þá hefur kennsla í þessum fræðum eflst í Háskóla íslands. I öðru lagi hafa, sem alkunna er, orðið miklar tækniframfarir á síðustu árum. Nú er bæði auðveld- ara að afla gagna um efnahagsmál og vinna skipulega úr þeim.“ í ljósi þessa taldi Þórður, að breytingar á skipan efnahagsráð- gjafar og hagskýrslugerðar kæmu vel til greina. „Að sjálfsögðu er eðlilegt að sníða þessa starfsemi að þörfum hvers tíma. Höfuðmark- mið slíkra breytinga er að mínu mati, að tryggja sem árangursrík- asta efnahagsráðgjöf og efla fagleg Morgunblaðið/Einar Falur Þórður Friðjónsson, forsljóri Þjóðhagsstof nunar vinnubrögð,“ sagði hann. Þórður sagði, að ef niðurstaðan yrði sú að rétt væri að ráðast í breytingar kæmu einkum þrjár leiðir til greina. 1) Tilfærsla á verkefnum milli þriggja stofnana, Þjóðhagsstofnun- ar, Hagstofu og Seðlabanka. Í þessu sambandi hefur oftast verið nefnt, að flytja mætti þjóðhagsreikninga og atvinnuvegaskýrslur frá Þjóð- hagsstofnun til Hagstofu. Ennfrem- ur hefur verið bent á, að flytja mætti uppgjör greiðslujafnaðar frá Seðlabanka til Hagstofu. 2) Stofnun sérstaks efnahags- ráðuneytis, sem annaðhvort yrði sjálfstætt eða starfaði í tengslum við annað ráðuneyti, t.d. forsætis- ráðuneytið. Verkefnum Þjóðhags- stofnunar yrði þá skipt á milli þessa ráðuneytis og Hagstofunnar og sérstakrar hagrannsóknarstofnun- ar, sem sett yrði á legg, e.t.v. í Utlit fyrir spennandi lok á Skákþingí Reykjavíkur SKÁK Margeir Pétursson Að loknum sjö umferðum af ellefu á Skákþingi Reykjavíkur 1987 hafa allmargir skákmenn ennþá möguleika á að hreppa Reykjavíkurmeistaratitilinn. Efstir með sex vinninga eru reyndasti keppandinn, Björn Þorsteinsson, Þröstur Þórhalls- son, nýkominn frá Evrópumeist- aramóti unglinga í Hollandi og Jón Garðar Viðarsson frá Akur- eyri. Þrátt fyrir að þetta sé fyrsta mót Björns eftir langt frí frá taflmennsku, lagði hann sex fyrstu andstæðinga sína að velli, þeirra á meðal var Jón Garðar. Það var ekki fyrr en á sunnudag- inn var að Þröstur Þórhallsson náði að stöðva sigurgöngu Björns og vinna hann. Nokkrir skákmenn fylgja síðan fast á hæla þessara þriggja, svo það er ógerlegt að spá um úrslit á mótinu. 143 þátttakendur eru með á mótinu, 89 í opnum flokki og 54 í unglingaflokki. Teflt er eftir Monrad-kerfi í báðum flokkunum. A undanförnum mótum hjá Tafl- félagi Reykjavíkur hefur það heyrt til algjörra undantekninga ef þekkt- ir skákmenn af eldri kynslóðinni hafa att kappi við æskulýðinn, sem er jafnan í yfirgnæfandi meirihluta. Nú hafa hins vegar tveir þraut- reyndir skákmenn, þeir Björn Þorsteinsson og Jón Þorsteinsson, treyst sér í slaginn. Sem áður segir hefur Björn í fullu tré við ungling- ana, en Jón hefur átt undir högg að sækja vegna æfingaleysis og aðeins hlotið fjóra vinninga. í Tafl- félaginu vona menn að þátttaka þessara tveggja litríku meistara sé upphafið að endurkomu fleiri reyndra skákmanna til keppni. Staðan á mótinu: 1-3. Björn Þorsteinsson, TR, Þröst- ur Þórhallsson, TR og Jón Garðar Viðarsson, SA, 6 v. 4-6. Þorsteinn Þorsteinsson, TS, Jón Þorleifur Jónsson, TS og Gunn- ar Björnsson, TR, 5V2 7-8. Dan Hansson, TR og Benedikt Jónasson, TR, 5 v. og biðskák. 9-13. Bragi Halldórsson, Hannes Hlífar Stefánsson, TR, Arnaldur Loftsson, TR, Snorri G. Bergsson, TR og Axel Þorkelsson, TR, 5 v. Unglingaflokkur: 1. Hannes Hlífar Stefánsson, 6 v. af 6 mögulegum. 2-4. Sigurður Daði Sigfússon, Þröstur Árnason, og Ólafur V. Halldórsson, 5 v. 5-7. Ragnar Fjalar Sævarsson, Páll Árnason og Snorri Karlsson 4!A Dan Hansson gæti náð efstu mönnum ef hann vinnur biðskák sína við Benedikt Jónasson, en þar á Dan peði meira í endatafli og ein- hveija möguleika á sigri. Af yngstu meisturunum er það að segja að Hannes Hlífar lék af sér drottningunni gegn stigalausum andstæðingi í fyrstu umferð, Áma Thoroddsen og tapaði. Hann á þó einhveija möguleika með góðum endaspretti. Þröstur Ámason, jafn- aldri hans, sem varð Reykjavíkur- meistari í fyrra, aðeins þrettán ára gamall, er ekki með í opna flokkn- um nú. Við skulum nú líta á fjöruga skák úr annarri umferð, þar sem Björn Þorsteinsson er í essinu sínu. Hann fórnar manni strax í 13. leik fyrir sóknarfæri á kóngsvæng. Hvítt: Haraldur Baldursson Svart: Björn Þorsteinsson Italski leikurinn 1. e4— e5 2. Rf3 - Rf6 3. Bc4 - Bc5 4. c3 - Bb6 5. d4 - De7 6. 0-0 - d6 7. h3 - h6 8. Hel - Rf6 9. Dd3 - g5!? 10. dxe5 -

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.