Morgunblaðið - 28.01.1987, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1987
Á næsta fundi deildarinnar 16.
janúar 1957 voru 23 sjómenn skráð-
ir í deildina og varð hún strax ðflug
og samstillt.
Þettasama ár var Sjómannasam-
band íslands stofnað og var
Grindavíkurdeildin eitt af stofnfé-
lögum sambandsins og Ragnar
Magnússon formaður deildarinnar
kosinn í fyrstu stjóm þess.
Á fyrstu árum deildarinnar fóru
kraftar hennar að mestu í kjaramál-
in því verkfoll voru tíð í byijun
vetrarvertíðar. Rætt var um línu-
lengd og þorskanetaijölda á
fundum, en seinna komu umræður
um aðgerðir vegna bráðabirgða-
laga, mánaðaruppgjörs og aðildar
bátasjómanna að lífeyrissjóði sjó-
manna. Þá voru hátíðarhöld
sjómannadagsins í Grindavík end-
urvakin og hafa verið í höndum
félagsins síðan.
Á fundi deildarinnar 29. apríl
1970 var nafni og lögum hennar
breytt og vélstjórar teknir inn en
þeir höfðu verið virkir félagar.
Nafnið varð því Sjómanna- og vél-
stjóradeild Verkalýðsfélags
Grindavíkur.
Á aðalfundi sem haldinn var 9.
janúar 1975 urðu miklar umræður
um aðskilnað deildarinnar og
Verkalýðsfélagsins. Kosin var
nefnd til að undirbúa það mál. End-
anlega var gengið frá aðskilnaðar-
málum á fundi sem haldinn var 29.
desember 1976 og voru þar lesin
upp lög fyrir Sjómanna- og vél-
stjórafélag Grindavíkur. Voru þau
samþykkt.
Þar með var félagið orðið sjálf-
stætt og er þetta eitt af stærri
skrefum sem stigin hafa verið frá
því það var stofnað. Á þessum tíma-
mótum var ákveðið að færa björg-
unarsveitinni Þorbimi fullbúinn
Zodiak-gúmmíbát að gjöf, end-
umýja kappróðrarbátana og færa
Tónlistarskóla Grindavíkur 50 þús-
und krónur að gjöf til kaupa á
blásturshljóðfærum.
Félagið réðst í það stórvirki 1977
að byggja Sjómannastofuna Vör og
var húsið formlega vígt tveim árum
seinna."
Félagið hefur látið til sín taka í
mörgum málum í byggðarlaginu og
stutt við bakið á fjölmörgum mál-
efnum sem hefur aukið á hróður
þess langt út fyrir bæjarfélagið.
Svavar Árnason óskaði hinni
nýstofnuðu deild allra heilla og
sagði að þyrfti hjálpar við skriftir
eða þess háttar þá yrði sú hjálp
veitt eftir bestu getu. Þá vék Svav-
ar orðum sínum til meðlima nýkjör-
innar samninganefndar og benti
þeim á að fara ávallt vel undirbún-
ir til viðræðna við viðsemjendur
sína.
Þannig hljóðar fyrsta fundargerð
sjómannadeildar Verkalýðsfélags-
ins í aðalatriðum.
Formenn félagsins frá upphafí
em eftirfarandi: Ragnar Magnús-
son 1956—1961, Vilmundur Ingi-
marsson 1962—1965, Kjartan
Kristófersson 1966—1967 og
1976—1983, Sverrir Vilbergsson
1968—1969, Sverrir Jóhannsson
1970—1974, Guðmundur Finnsson
1974—1976. Núverandi formaður
er Sævar Gunnarsson en hann tók
við 1983.
KR. Ben.
Formenn Sjómanna- og vélstjórafélags Gríndavikur frá upphafi að
einum undanskildum, Vilmundi Ingimarssyni, sem er látinn. Á mynd-
inni eru frá vinstri: Sverrir Jóhannsson, Svavar Árnason sem var
formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur þegar sjómannadeildin var
stofnuð, Valgerður Þorvaldsdóttir ekkja Vilmundar Ingimarssonar,
Ragnar Magnússon fyrsti formaðurinn, Sverrir Vilbergsson, Guð-
mundur Finnsson, Kjartan Kristófersson og Sævar Gunnarsson
núverandi formaður.
Morgunblaðið/Kr. Ben.
Margft g’óðra gesta heiðraði félagið með nærveru sinni.
Bæjarstjórinn í Grindavík, Jón Gunnar Stefánsson, færði félaginu
stóra litmynd af Grindavíkurbæ.
Sjómanna- og vélsljóra-
félag Grindavíkur 30 ára
Gríndavik.
FYRIR nokkru hélt Sjómanna-
og vélstjórafélag Grindavíkur
hóf á Sjómannastofunni Vör í
tilefni af því að 30 ár voru liðin
frá því félagið var stofnað.
Margt var um manninn í afmælis-
hófinu og fluttar margar ræður
og færðar margar gjafir eins og
vera ber á slíkum tímamótum.
Meðal þess sem þar var flutt var
ágrip af sögu félagsins sem Hinrik
Bergsson vélstjóri hafði tekið sam-
an og flutti.
„Sunnudaginn 21. október 1956
boðaði Verkalýðsfélag Grindavíkur
til fundar í Kvenfélagshúsinu
klukkan 14.00. Til fundarins var
boðað sérstaklega til að framfylgja
tillögu sem fram kom á aðalfundi
félagsins 7. október þess efnis að
stjómin hefði forgöngu um stofnun
sjómannadeildar innan Verkalýðs-
félagsins. Á fundinn mættu auk
stjómarinnar 28 menn sem unnið
höfðu við bátaflotann að undan-
fömu og höfðu í hyggju að gera
það áfram.
Formaður Verkalýðsfélagsins,
Svavar Ámason, las upp reglugerð
fyrir Sjómannadeildina og bar upp
hveija grein fyrir sig til samþykktar
og síðan allar í einu. Var reglugerð-
in samþykkt samhljóða. Þá fór fram
stjómarkjör og vom eftirtaldir
menn kosnir í fyrstu stjómina:
Ragnar Magnússon formaður,
Guðmundur Kristjápsson varafor-
maður, Þórarinn Ólafsson ritari,
Bjami Þórarinsson vararitari og
Guðmundur Þorsteinsson með-
stjómandi.
í fyrstu samninganefnd voru
kosnir Ragnar Magnússon, Þórar-
inn Ólafsson, Guðmundur Þor-
steinsson, Ingólfur Karlsson og
Haukur Guðjónsson.
Morgunblaðið/Kr. Ben.
Formaður útvegsbænda í Grindavík, Guðmundur Guðmundsson,
færði félaginu veglega gjöf og þakkar Sævar Gunnarsson fyrir.
RYMINGAR
15-50% AFSLÁTTUR
OPIÐ LAUGARDAG
VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLI 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVÍK
SÍMAR: VERSLUN 686455, SKRIFSTOFA 685966