Morgunblaðið - 28.01.1987, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐip,; MIÐVJUUDACUR 28; JAtyÚAS'.1987
s:£53
Reuter
• Austurríki átti tvo fyrstu menn f svigi, sem er liður í alpatvíkeppni bruni og svigi, á fyrsta keppnis-
degi heimsmeistaramótsins f Crans-Montana í Sviss í gœr. Frá vinstri: Gunther Mader, sem varð annar,
og Bernhard Gstrein, sem sigraði. Þeir keppa sfðan f bruni á morgun og þá ráðast úrslit.
HM á skíðum:
Austurríkis-
menn byria vel
BERNHARD Gstrein frá Aust-
urrfki sigraði í svigi, sem er liður
í tvíkeppninni (svig og brun), í
fyrstu keppnisgrein heimsmeist-
aramótsins í Crans-Montana í
gœr. Hann hafði besta brautar-
tímann f báðum umferðum og var
tveimur sekúndum á undan landa
sínum, Gúnther Mader, sem varð
í öðru sæti.
Þetta var í fyrsta sinn í vetur
sem Austurríksmenn eiga tvo
fyrstu menn í stórmóti. Á heims-
meistaramótinu er keppt í sérs-
takri alpatvíkeppni, þ.e.a.s bruni
og svigi. Þar sigrar sá sem hefur
besta árangurinn út úr báðum
þessum greinum. Á morgun verð-
ur keppt í sviginu og þá kemur í
Ijós hver stendur uppi sem sigur-
vegari.
Felix McGrath, Bandaríkjunum,
varð óvænt þriðji, Josef Schick frá
Vestur-Þýskalandi varð í fjórða
sæti og Norðmaðurinn, Finn
Jaqge, í fimmta sæti.
í þessari fyrstu grein heims-
meistaramótsins var fyrrum
heimsbikarhafi, Marc Girardelli frá
Luxemborg, í sjöunda sæti. Pirmin
Zurbriggen, Sviss, sem talinn var
sigurstranglegastur í tvíkeppninni
varð níundi og Vestur-Þjóðverjinn,
Markus Wasmeier, í 10. sæti.
Þessir þrír síðasttöldu verða þó
að teljast sigurstranglegir í keppn-
inni þar sem þeir eru mjög góðir
brunmenn. Austurríksimennirnir,
Gstrein og Mader, eru svigmenn
og hefur þeim ekki gegnið vel í
bruni í vetur.
Júdómenn æfa
heima og heiman
í BYRJUN janúar héldu fjórir
íslenskir júdómenn til Frakk-
lands. Bjarni Friðriksson keppti á
Opna franska meistaramótinu.
Þangað er einungis boðið júdó-
mönnum í fremstu röð. Bjarna var
áður boðið 1985 en kaus þá held-
ur að þekkjast samskonar boð
Japana. Frakkar ítrekuðu nú boð
sitt fyrir atbeina Hákons Hall-
dórssonar, formanns Júdósam-
bands íslands.
í fyrstu viðureign sigraði Bjarni
silfurverðlaunahafann frá Olympíu-
leikunum í Moskvu, Kúbumanninn
Olivia. Bjarni sigraði í Ippon, fulln-
aðarsigur með fastataki í gólf-
glímu. Annarri viðureign sinni
tapaði Bjarni naumlega eftir langa
og strembna viðureign í gólfinu.
Andstæðingur hans tapaði svo fyr-
ir keppendanum sem lenti í öðru
sæti og við það féll Bjarni úr
keppninni. Þeir Arnar Marteins-
son, Halldór Hafsteinsson og
Rúnar Guðjónsson tóku þátt í æf-
ingabúðum Evrópujúdósambands-
ins.
En hér heima sátu menn ekki
auðum höndum. Júdómenn víða
að af landinu fjölmenntu á helgar-
æfingabúðir, undir stjórn lands-
liðsþjálfarans, Reino Fagerlund.
Auk venjulegra æfinga var farið
yfir stöðuna í æfingaáætlun vetrar-
ins og stjórn og tækniráð Júdó-
sambands íslands sat líflegan fund
með júdómönnum um málefni
Júdóíþróttarinnar. Helsta keppn-
istímabil júdómanna gengur nú
senn í garð. Verður spennandi að
fylgjast með árangrinum jafnt inn-
anlands sem utan. Akureyringar
hafa nú upp á síðkastið verið
næsta einráðir á verðlaunapöllun-
um í yngri aldursflokkunum. Áhugi
þeirra og dugnaður er eftirbreytni
verður og árangurinn eftir því.
N.H.
Ljósmyndir/Níels Hermannsson
• Ungur og efnilegur júdómaður prýddur merki júdódeildar KA.
Akureyringar hafa nú upp á síðkastið verið næsta einráðir á verð-
launapöllunum í yngri aldursflokkunum.
• Landsliðsþjálfarínn, Reino Fagerlund, útskýrir stöðuna í æfingaá-
ætlun vetrarins.
• Landsliðsþjálfarinn og aðstoðarmaður hans láta reyna á hvort að
takið virki. Lengst til vinstri er Hákon Örn Halldórsson, formaður JSÍ.
1X2 jO ■o «0 JQ c 3 O> c o 5 > Q C c 1 »- c c *5 s n. Dagur «o 8- CD Í « s 0c Rylgjan Sunday Mirror Sunday People News of the World Sunday Express Sunday Telegraph SAMTALS
1 2 4
Arsenal — Plymouth 1 1 1 1 1 1 1 — — — — — 7 0 0
Man. United — Coventry 1 1 1 1 1 1 1 — — — — — 7 0 0
Bradford — Everton 2 2 2 2 2 X 2 — — — — — 0 1 6
Swindon — Leeds X X 2 X 2 2 2 — — — — — 0 3 4
Tottenham - C. Palace 1 1 1 1 1 1 1 — — — — — 7 0 0
Walsall — Birmingham 2 X X X X 2 X — — - - - 0 5 2
Wimbledon — Portsmouth i 2 1 2 1 X X — — - - — 3 2 2
Blackpool — Doncaster 1 1 1 1 1 1 1 — - - - — 7 0 0
Bolton — Bournemouth 1 2 1 X 1 2 1 — - - - — 4 1 2
Mansfield — Brlstol Rovers X 1 X 2 2 1 2 — — — — — 2 2 3
Rotherham — Bury 1 1 1 X 1 1 1 — — — — 6 1 0
York — Port Vale X 1 1 1 2 1 1 - - - - - 5 1 1
’T