Morgunblaðið - 25.03.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ
29
Andstæðingar
Brandts vildu
klekkja á honum
- segir Margarita Mathiopoulos
Bonn, Reuter, AP.
Fyrstu tölur úr kosningum á Indlandi:
Gandhi hafði ekki
erindi sem erfiði
Kalkútta. AP.
MARGARITA Mathiopoulos
sagði í gær í sjónvarpsviðtali, að
andstæðingar Willys Brandts,
fráfarandi formanns Jafnaðar-
mannaflokksins í Vestur-Þýzka-
landi (SPD), hefðu viljað notfæra
sér skipun hennar sem talsmanns
flokksins til að klekkja á Brandt
og véfengja hæfileika hans til
þess að vera í forystu fyrir
flokknum.
Margarita tilkynnti í fyrradag, að
hún væri hætt við að sækjast eftir
stöðu blaðafulltrúa SPD. Grískt
blað hafði það eftir henni í gær,
að hún hefði orðið að láta af stöð-
unni, sökum þess að hún var
útlendingur. Hún hygðist nú snúa
sér aftur að fyrra starfi sínu í
Stuttgart, þar sem hún hafði starf-
að við almennatengsl.
Hans-Jochen Vogel, sem nú hef-
ur tekið við formennsku í SPD,
sagði í gær, að gagnrýni sú, sem
Brandt hefði sætt vegna þessa
máls ætti engan rétt á sér. Brandt
hefði orðið fyrir árásum, sem væru
til skammar. Þeim hefði verið ætlað
að særa Brandt persónulega og
sýndu skort á samstöðu með honum
innan flokksins.
Norðmaðurinn Reiulf Steen, fyrr-
Margarita Mathiopoulos
um formaður Verkamannaflokksins
í Noregi og nú annar af tveimur
forsetum Stórþingsins, komst svo
að orði í gær, að það væri dapur-
legt, að einn mikilvægasti stjóm-
málamaður Vestur-Evrópu frá
stríðslokum hefði orðið að ljúka
stjómálaferli sínum vegna þessa
máls.
FYRSTU tölur úr kosningunum,
sem fram fóru í fyrradag í þrem-
ur ríkjum Indlands, bentu til, að
í tveimur ríkjanna hefði Kon-
gressflokkur Rajivs Gandhi,
forsætisráðherra, ekki haft er-
indi sem erfiði en vegnað betur
í því þriðja.
Kosningamar á mánudag í Vest-
ur-Bengal, Kerala og Kasmír vom
fyrsti prófsteinninn á vinsældir
Gandhis eftir að hann tók við emb-
ætti sem forsætisráðherra. Sam-
kvæmt fyrstu tölum frá Kerala
hafði kosningabandalag undir for-
ystu kommúnista fengið 58 sæti
af 107 töldum en Kongressflokkur-
inn 47 og stefnir því í ósigur fyrir
Gandhi þar sem flokkur hans hafði
þar áður 77 sæti af 140 alls.
í Vestur-Bengal þar sem Gandhi
beitti sér mjög til að reyna að fella
núverandi meirihluta undir forystu
kommúnista bentu tölur til, að það
myndi ekki takast. Í Kasmír leit
hins vegar út fyrir, að kosninga-
bandalag Kongressflokksins og
samtaka múhameðstrúarmanna
myndi vinna auðveldan sigur.
Þessar kosningar vom mjög mik-
ilvægar fyrir Rajiv Gandhi þótt
staða hans sjálfs sem forsætisráð-
herra hefði ekki verið að veði. Ef
úrslitin verða þau, sem líkur benda
til í ríkjunum þremur, hefur hann
beðið nokkurn hnekki og var ekki
á bætandi. Honum hefur ekki tekist
að kveða niður ólguna í Punjab og
annars staðar í landinu og vegna
þess hefur hann sett ofan í augu
landa sinna.
0
Italskir trúmenn:
Alnæmi er
hefnd Guðs
Italíu, Róm, frá Brynju Tomer.
HEIMURINN snýst fyrst og
fremst í kringum sjö helstu synd-
ir mannkynsins og Guð hefur
svarað með því að senda okkur
alnæmi." þetta fullyrðir ítalski
kardinálinn Giuseppe Siri í við-
tali við tímaritið II Sabato.
Fullyrðing þessi hefur valdið
töluverðu fjaðrafoki meðal ftala
þvi menn eru að vonum ekki all-
ir sammála trúmanninum.
ítalski kardinálinn Giuseppe Siri
er þess fullviss að Guð hafi sent
mannkyninu hinn ógurlega sjúk-
dóm. Hann segir sjúkdóminn „beina
hefnd Guðs gegn syndum manns-
ins, sérstaklega þeim sem bijóta
gegn sjötta boðorðinu“. Er talið
berst að fómarlömbum sjúkdómsins
sem ekki hafa endilega brotið gegn
boðorðunum, til dæmis bömum
fíkniefnaneytenda, segir kardinál-
inn: „Því miður breiðir sjúkdómur-
inn úr sér og nær einnig til saklauss
fólks, þannig hafa syndarar einnig
líf saklausra á samviskunni.“
Fleiri trúmenn hafa látið í ljós
álit sitt á alnæmi. Erkibiskupinn í
Genova segist til dæmis efins um
að lækning finnist á næstu ámm.
„En sjúkdómurinn er refsing Guðs,
á því er enginn vafí.“ Guðfræðingar
em þó ekki allir sammála þessu og
helsta deiluefnið er að sjálfsögðu
sú fullyrðing að alnæmi sé refsing
Guðs. Séra Giuseppe Mattai, guð-
fræðingur og siðfræðingur, er ekki
sammála kardinálanum og erkibisk-
upnum. Hann bendir réttilega á að
í gamla testamentinu er mjög oft
talað um hefnd Guðs. „í hvert sinn
sem boðorð Guðs vom brotin, var
kallað á refsingu af Hans hálfu.
Þessi trú var bein afleiðing ríkjandi
hugsunarháttar. í Nýja testament-
inu er hins vegar stigið afar mikil-
vægt skref,“ segir séra Mattai og
vitnar í Lúkasarguðspjall þar sem
Jesú bámst boð um að Pílatus hefði
blandað blóði Galíleumanna í fómir
þeirra og Jesús segir: „Eða þeir
átján sem tuminn féll yfir í Sílóam
og varð að bana, haldið þér, að
þeir hafí verið sekari en allir þeir
menn, sem í Jerúsalem búa?“ Séra
Mattai segir að ekki sé hægt að
fullyrða að sjúkdómar eða náttúm-
hamfarir séu refsing Guðs. „Hugs-
unarháttur sá sem ríkti til forna
og kemur fram í Gamla testament-
inu, kemur alltaf fram öðm hvom
meðal nútímamanna."
Þetta deilumál verður líklega
aldrei leyst, þrátt fyrir miklar um-
ræður. Flestir em þó sammála um
að mikilvægast sé að fínna mótefni
gegn sjúkdómnum, sem guðfræð-
ingurinn Gerald O’Collins segir
einfaldlega hluta af nútímanum.
„Það er virðingarleysi við hina sjúku
að segja að alnæmi sé refsing Guðs.
Hinir ýmsu sjúkdómar em oft af-
leiðing rangra ákvarðana sem við
tökum.“
ísrael:
Árangri náð í glím-
unni við alnæmi
Tel Aviv, Reuter.
ÍSRAELSKUR vísindamaður
segist hafa náð góðum árangri i
meðhöndlun alnæmissjúklinga
með efni, sem hann unnið er úr
eggjarauðu.
Dr. Yehuda Skornick, aðstoðar-
yfirlæknir Rokach-sjúkrahússins í
Tel Aviv sagðist myndu gera grein
fyrir niðurstöðum meðferðar á 14
alnæmissjúklingum, lO Bandaríkja-
mönnum og fjórum Israelum, á
ráðstefnu um krabbameinsrann-
sóknir í Nizza í Frakklandi í næstu
viku.
Dr. Skornick sagði að sjúkling-
arnir hefðu sýnt bata og sjúk-
dómseinkenni hjá sumum þeirra
horfið. Efnið, sem þeim var gefið,
er kallað AL721 og líkist margaríni
og er mjög ódýrt í framleiðslu, að
sögn Dr. Skornick.
UPP MEÐ SAUMAVÉLINA
í tilefni af saumadögum 23.-31.
mars bjóðum við 10% afslöff af öllum
vörum í verslunum okkar.
Einnig býðst viðskiptavinum
SNÍÐAAÐSTOÐ í verslun okkar
Þarabakka3 íMjóddinni.
Þar verður leiðbeint um snið og
sníðar effir kl.3daglega 23.-31.mars.
Notfœrið ykkur 10% afslöffinn
saumadagana og kaupið sumar-
efnin nýkomnu.
Mjög mikið úrval bœði í fatadeild og
gardfnu- og heimilisdeild.
búðimar