Morgunblaðið - 27.03.1987, Page 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ
fclk í
fréttum
— Nei, ég á engar eldspýtur, en maðurinn minn er með kveikjara.
COSPER
Frá vinstri:
Marís Gíslason
og Pálmi Guð-
mundsson sem
fengu viður-
kenningu fyrir
30 ára öruggan
akstur, yfirmað-
ur flotastöðvar-
innar Peter C.
Baxter, Theodór
Þorvaldsson sem
fékk viðurkenn-
ingu fyrir 20 ára
stjórnun og Ingim-
ar Þórðarson sem
fékk viðurkenningu
fyrir 20 ára örugg-
an akstur.
Meðlimir slökkviliðsins sópuðu
til sin viðurkenningum að
venju, en flestir voru að sinna
skyldustörfum og því tóku yfir-
menn þeirra það hlutverk að
sér. A myndinni er Haraldur
Stefánsson slökkviliðsstjóri
lengst til vinstri með sína menn.
Peter C. Baxter yfirmaður
flotastöð varinnar er lengst til
hægri.
Keflavíkurflug-
völlur:
Rúmlega 300
Islendingum
var veitt við-
urkenning
Keflavík.
RÚMLEGA 300 íslenskum
starfsmönnum hjá varnarlið-
inu á Keflavíkurflugvelli var veitt
viðurkenning fyrir árvekni í starfi
fyrir nokkru. Peter C. Baxter,
yfirmaður flotastöðvarinnar, af-
henti viðurkenningamar. Tveir
bifreiðastjórar, Maríus Gíslason
og Pálmi Guðmundsson, eru búnir
að aka í 30 ár án þess að þá
hafí hent nokkurt óhapp.
Magnús Guðmundsson, hjá
vinnu- og heilbrigðiseftirliti vam-
arliðsins, sagði að menn virtust
almennt standa mjög vel að ör-
yggismálum á Keflavíkurflugvelli.
Skýrslur sýndu að starfsmenn
sem störfuðu í atvinnugreinum
þar sem búast mætti við hárri
slysatíðni yrðu ekki jafnoft fyrir
óhöppum og við mætti búast.
Aldrei væri of varlega farið í þess-
um efnum og því væri gaman að
geta veitt þeim aðilum, sem sýndu
árvekni í starfí sínu, viðurkenn-
ingu.
- BB
Fill fyrir ráðherrann
Aöllu má maður nú eiga von“,
gæti Hans Dietrich Genscher,
utanríkisráðherra
Vestur-Þýskalands, verið að hugsa
á því augnabliki sem þessi mynd
var tekin. Hann var þá staddur í
eigin afmælisveislu, en hann varð
60 ára sl. laugardag og fékk þá
fjölda gjafa þar á meðal þennan
uppstoppaða fíl. Reuter
C0SPER
©Pl*