Morgunblaðið - 25.04.1987, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
59
DÓMIRKJAN: Laugardag:
Barnasamkoma kl. 10.30. Egill
og Ólafía. Sunnudag: Messa kl.
11. Sr. Hjalti Guðmundsson.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna-
samkoma á laugardag í Folda-
skóla í Grafarvogshverfi fellur
niður vegna kosninga til Alþingis
í skólanum. Barnasamkoma í
safnaðarheimili Árbæjarkirkju kl.
14. Ferming og altarisganga.
Organleikari Jón Mýrdal. Sr. Guð-
mundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Aðalfundur safnaðarins í safnað-
arheimili Áskirkju kl. 15. Venjuleg
aðalfundarstörf. Sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL:
Fermingarguðsþjónusta í Bú-
staðakirkju kl. 13.30. Altaris-
ganga. Organisti Daníel
Jónasson. Sr. Gísli Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Síðasta samkoma
vetrarstarfsins. Guðrún Ebba
Ólafsdóttir og Elín Anna Antons-
dóttir. Fermingarmessa Breið-
holtssóknar kl. 13.30. Félags-
starf aldraðra miðvikudagseftir-
miðdag. Sr. Ólafur Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL:
Fermingarguösþjónusta kl.
10.30 og 14.00 í Kópavogskirkju.
Sr. Þorbergur Kristjánsson.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðs-
þjónusta ki. 10. Sr. Anders
Jósefsson.
FELLA- og Hólakirkja: Laugar-
dag: Barnasamkoma í Hóla-
brekkuskóla kl. 14. Sunnudag:
Ferming og altarisganga kl. 14.
Fundur f æskulýðsfélaginu
mánudagskvöld 27. apríl kl.
20.30. Sr. Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl.
11.00. (Ath. breyttan mess-
utíma.) Jóhanna Möller og
Gunnar Guðbjörnsson syngja
dúett úr h-moll-messu eftir Bach.
Bernhard Wilkinson flautuleikari
og strengjasveit nemenda Nýja
tónlistarskólans aðstoða. Árni
Arinbjarnarson leikur á orgelið.
Sr. Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Barnasam-
koma og messa kl. 11. Skólaslit
sunnudagaskólans. Sr. Karl Sig-
urbjörnsson. Þriðjudag: Fyrir-
bænamessa kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum. Fimmtudag 30. apríl:
Opið hús fyrir aldraða kl. 14.30.
LANDSPÍTALINN: Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 14.
Organleikari Orthulf Prunner. Sr.
Arngrímur Jónsson.
LAUGARNESKIRKJA. Laugar-
dag 25. apríl: Guðsþjónusta í
Hátúni 10b 9. hæð kl. 11.00.
Sunnudag: Guösþjónusta kl. 14.
Aðalfundur safnaðarins verður í
safnaðarheimilinu strax aö lok-
inni guösþjónustu. Venjuleg
aðalfundarstörf. Þriöjudag:
Bænaguðsþjónusta kl. 18. Sókn-
arprestur.
NESKIRKJA: Laugardag: Kaffi-
sala og basar Kvenfélagsins í
safnaðarheimili Neskirkju hefst
kl. 14.00. Sunnudag: Barnasam-
koma kl. 11. Barnaleikhúsið
kemur í heimsókn. Munið kirkju-
bílinn. Sr. Guðmundur Óskar
Ólafsson. Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Frank M. Halldórsson. Þriðju-
dag og fimmtudag: Opið hús fyrir
aldraöa kl. 13—17. Miðvikudag:
Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr.
Frank M. Halldórsson.
SEUASÓKN: Guðsþjónusta
sunnudag fellur niður vegna
kosninga í Ölduselsskóla. Á kjör-
dag er merkjasala og basar
kvenfélags Seljasóknar. Sóknar-
prestur.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Laugardag: Barnaguðsþjónusta
kl. 11.00. Eirný og Solveig Lára
tala við börnin og stjórna söng.
Sunnudag: Fermingarguðsþjón-
usta kl. 10.30. Prestur Solveig
Lára Guömundsdóttir. Organisti
Sighvatur Jónasson. Opið hús
fyrir unglingana mánudagskvöld
kl. 20.30. Opið hús fyrir 10—12
ára þriðjudag kl. 17.30.
DÓMKIRKJA Krists Konungs,
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Hámessa kl. 10.30. Lágmessa
kl. 14. Fyrsta altarisganga barna.
Rúmheiga daga lágmessa kl. 18,
nema laugardaga kl. 14.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Há-
messa kl. 11.
KFUM & KFUK, Amtmannsstíg:
Almenn samkoma kl. 20.30. Líf
og gleði. Upphafsorð: Leifur Þor-
steinsson. Ræðumaður: Sr.
Ólafur Jóhannsson. Sönghópur
syngur. Bænastund er kl. 20.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Ffla-
delffa: Guösþjónusta kl. 20.
Guðni Einarsson segir frá fjöl-
miölafélaginu Ljósinu. Fórn til
Ijóssins.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóii kl. 14. Hjálpræöissam-
koma kl. 20.30.
GARÐASÓKN: Barnasamkoma í
Kirkjuhvoli kl. 11 í umsjá Halldóru
Ásgeirsdóttur. Sóknarprestur.
KAPELLA St. Jósepssystra,
Garðabæ: Hámessa kl. 14.
KAPELLA St. Jósefsspftala,
Hafnarflrði: Hámessa kl. 10.
Rúmhelga daga er lágmessa kl.
18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga messa
kl. 8.
H AFN ARFJ ARÐ ARKIRKJ A:
Fermingarmessur kl. 10.30 og
14.00. Gunnþór Ingason.
Stykkishólmur:
Bátur stækkaður í Skipavík
Stykkishólmi.
SKIPASMÍÐASTÖÐIN Skipavík
Morgunblaðið/Ámi
Báturinn er lengdur um 2,25 metra og hækkaður um hálfan metr
í skipasmíðastöðinni Skipavík hf.
Leikfélag Reykjavíkur:
Óánægjukórínn
Óánægjukórinn eftir Alan Ayck-
bourn verður sýndur í þriðja sinn
hjá Leikfélaginu á sunnudagskvöld
kí. 20. Óánægjukórinn er nýr bráð-
fyndinn gamanleikur sem fjallar um
leikflokk áhugaleikara sem er að
æfa Betlaraóperuna eftir John Gay.
Fjöldi söngva og fjörug tónlist er í
verkinu. Heldur uppurðarlítill og
feiminn skrifstofumaður gengur til
liðs við leikflokkinn og er hann til
að byrja með ósköp tvístígandi
bæði í listinni og öllum samskiptum
sínum við aðra úr hópnum. Ýmsir
óvæntir atburðir verða til þess að
áður en kemur að frumsýningu er
hann oröinn sá sem allt snýst um,
jafnt innan sviðs sem utan. Þýðandi
er Karl Ágúst Úlfsson, um tónlistar-
stjórn sér Jóhann G. Jóhannsson,
leikmynd gerði Steinþór Sigurðsson
en leikstjóri er Þorsteinn Gunnars-
son.
Dagurvonar
Leikrit Birgis Sigurðssonar, Dag-
urvonar, verðursýnt íkvöld,
laugardagskvöld, kl. 20. Leikstjóri
erStefán Baldursson.
Leikritið, sem gerist í Reykjavík á
sjötta áratugnum, er nokkurs konar
uppgjör milli einstaklinga og eiga
átökin sér stað innan fjölskyldu þar
sem væntingareinstaklinganna eru
ólíkarog hagsmunirskarast.
T ónlist er eftir Gunnar Reynir
Sveinsson og lýsingu annast Daniel
Williamsson. Leikendureru: Margr-
ét H. Jóhannsdóttir, Valdimar Örn
Flygenring, Sigurður Karlsson, Guð-
rún S. Gísladóttir, Sigríður Hagalín
og Þröstur Leó Gunnarsson.
Leikskemma Leikfé-
lagsins v/Meistaravelli:
Þar sem djöfla-
eyjan rís
Þar sem djöflaeyjan rís, verður
sýnt í hinni nýju Leikskemmu LR á
Meistaravöllum í kvöld, laugardags-
kvöld, kl. 20. Þetta fjöruga og
skemmtilega leikrit Kjartans Ragn-
arssonar (sem gert er eftir skáld-
sögu Einars Kárasonar) hefurfengið
afbragðs viðtökur, enda góð
skemmtun fyrir alla aldurshópa.
Þjóðleikhúsið:
En liten 0 i havet
(Atómstöðin)
Konunglega leikhúsið í Stokk-
hólmi (Dramaten) sýnir í kvöld,
laugardagskvöld.söngleikjaútgáfu
Hasse Alfredsens á Atómstöðinni
eftir Halldór Laxnes. Meðal leikenda
eru Lena Nyman, sem leikur Uglu,
Harriet Andersson, sem leikurfrú
Árland og Kleópötru, Sven Lind-
berg, sem leikur Búa Árland og
Organistann, en auk þess má nefna
Sif Ruud og Jonas Bergström. Auk
leikaranna koma fram dansarar og
söngvararog sjö manna hljómsveit
Jazzdoctors.
Margir kannast við Hans Alfred-
son hér á landi, enda er hann
þekkturog vinsæll skemmtikraftur,
leikari, leikskáld og kvikmyndahöf-
undur. Um árabil skemmti hann
með Tage Danielsson og gengu
þeir þá jafnan undir nafninu Hasse
ogTage.
Rympa á rusia-
haugnum
Barnaleikritið Rympa á rusla-
haugnum eftir Herdísi Egilsdóttur
veröur sýnt á stóra sviðinu á sunnu-
dag kl. 15.
Leikstjóri er Kristbjörg Kjeld,
hönnuður leikmyndar og búninga
er Messíana Tómasdóttir, dansa-
höfundur Lára Stefánsdóttir, Ijósa-
hönnuður Björn Bergsteinn
Guðmundssson, en Jóhann G. Jó-
hannsson útseturtónlistina og
stjórnar hljómsveit á sviðinu.
Tónlist og dans setja mikinn svip
á leikinn. Leikritið gerist á rusla-
haug, sem er iðandi af lífi og munu
rúmlega 20 ungir ballettdansarar
sjá til þess. Sigríður Þorvaldsdóttir
leikurskemmtilega skassið Rympu,
sem býr á ruslahaugnum með haus-
lausa tuskukarlinum Volta. Það
verður aldeilis búhnykkur fyrir hana
þegar tvö börn birtast á öskuhaug-
unum á flótta frá heimili og skóla.
Aurasálin
Gamanleikurinn Aurasálin eftir
franska skopsnillinginn Moliere
verður sýndur nk. fimmtudagskvöld
kl. 20.
Sveinn Einarsson þýddi og leik-
stýrir þessum 300 ára gamanleik
sem enn er með vinsælustu gaman-
leikjum allra tíma. Finnski listamað-
urinn Paul Suominen hannaði
leikmynd og Helga Björnsson, tísku-
teiknari hjá Louis Féraud í París
teiknaði búningana. Jón Þórarins-
son samdi tónlist við verkið og var
æfingastjóri tónlistar Agnes Löve.
Ljósahönnuður er Ásmundur Karls-
son, sýningarstjóri Jóhanna Norð-
fjörð og aðstoðarmaður leikstjóra
Þórunn Magnea Magnúsdóttir.
Bessi Bjarnason leikurburðar-
hlutverkið, aurasálina Harpagon, en
í öðrum hlutverkum eru Pálmi Gest-
son, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir,
Jóhann Sigurðarson, Guðlaug María
Bjarnadóttir, Gísli Alfreðsson,
Sigriður Þorvaldsdóttir, Sigurður
Sigurjónsson, Randver Þorláksson,
Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Jón
Simon Gunnarsson, Emil Gunnar
Guðmundsson, Flosi Ólafsson, Júlí-
us Hjörleifsson og Hákon Waage.
Hallæristenór
Gamanleikurinn Hallæristenór,
eftir bandaríska leikskáldið og lög-
fræðinginn Ken Ludwig, í þýðingu
Flosa Olafssonar, verður sýndur á
stóra sviði Þjóöleikhússins á sunnu-
dagskvöld kl. 20. Leikstjóri er
BenediktÁrnason.
Leikurinn gerist á hótelsvítu í
Ohioríki í Bandaríkjunum fyrir um
hálfri öld. (talskurhetjutenórá að
syngja hlutverk Othello á hátíöar-
sýningu Clevelandóperunnar. En
það gengur á ýmsu og virðist á
stundum að ekkert ætli að verða
úrsýningunni.
í aðalhlutverkum eru örn Árna-
son, Aðalsteinn Bergdal, Tinna
Gunnlaugsdóttirog ErlingurGísla-
son. Brot úrýmsum þekktum
óperum eru sungin í leiknum. Æf-
ingastjóri tónlistar var Agnes Löve,
hönnuður leikmyndar og búninga
Karl Aspelund og Ijósahönnuður
Sveinn Benediktsson.
Alþýðuleikhúsið:
„Eru tígrisdýr í
Kongo“
Alþðuleikhúsið sýni nú leikverkiö
„Eru tígrisdýr í Kongo" í veitingahús-
inu í Kvosinni. Leikstjóri er Inga
Bjarnason en rithöfundana tvo leika
þeirViðar Eggertsson og Harald
G. Haraldsson. Næstu sýningar
verða þriðjudaginn 28. apríl kl. 12,
miðvikudaginn 29. apríl kl. 12 og
fimmtudaginn 30. apríl kl. 13. Miða-
verð er kr. 750 og í því er innifaliö:
leiksýningin, léttur hádegisverður
og kaffi.
er nu að ljúka við breytingar á
mb. Hrímni SH 55 frá Stykkis-
hólmi. Er báturinn lengdur um
2,25 metra og hækkaður um hálf-
an metra. Þá hafa verið yfirfarin
öll tæki og eins allt rafkerfið og
ýmislegar aðrar lagfæringar
hafa átt sér stað. Þetta allt gerir
skipinu meiri möguleika til frek-
ari veiða, auk þess sem aUt
verður þægilegra og betra. Skip-
stjóri á bátnum er Sigurður
Hreiðarsson, sem lengi hefir ver-
ið hér farsæll skipstjóri.
Fréttaritari hitti að máli Ólaf
Kristjánsson, framkvæmdastjóra
og ræddi einnig við starfsmenn.
Ólafur sagði að fram að þessu hefðu
verkefni verið næg fyrir þann
mannafla sem nú starfar hjá fyrir-
tækinu, en ýmis teikn eru á lofti
Fyrirlestur
um sérkennslu
á Islandi
ÞÓREY Eyþórsdóttir talkennari
flytur þriðjudaginn 28. aprU nk.
fyrirlestur á vegum Rannsókna-
stofnunar uppeldismála er
nefnist: „Skipulagning og stjórn-
un á sérkennslu á Islandi
1983-1984.“
Fyrirlesturinn verður haldinn í
kennaraskólahúsinu við Laufásveg
og hefst kl. 16.30.
Öllum er heimill aðgangur.
um framhald verkefna, m.a. vegna
þess að stærri verkefni eru ekki
nein í sjónmáli, þau fara meðal
annars utan og má þar um kenna
stefnuleysi stjómvalda og skilnings-
leysi útgerðarmanna á þörf skipa-
smíðastöðva á eflingu atvinnu í
landinu. Hagkvæmni við erlenda
smiði liggur í niðurgreiðslu kostn-
aðar frá stjómvöldum viðkomandi
lands. Þá var bent á að erfitt væri
að fá reynda starfsmenn til að vinna
í þessari grein, þar sem fáir fara í
iðnnám í skipasmíði og einnig vegna
uppgripatekna í allskonar veiðum
sem gerir það að verkum að iðnað-
urinn getur ekki keppt í launakjör-
um nema sérstök hagræðing og
úrbót komi þar til greina.
Eins og áður er sagt verður
skipasmíðaiðnaðurinn að keppa við
niðurgreidd tilboð stærri verkefna
og svo munu aðrar iðngreinar hafa
fundið fyrir. Þetta gerir að ekki er
hægt að bæta launin t.d. með yfír-
borgunum eins og sumar atvinnu-
greinar hafa orðið að grípa til. Þess
vegna verður það vinnuaflsskortur-
inn sem mestum áhyggjum veldur
sagði Ólafur. Hann benti á að hér
hafí menn getað þreytt iðnnám
áður, en nú verði að sækja það
suður á bóginn og þá ráði stundum
hending hvort nemendur komi til
baka eftir nám. Oft bjóðist þeim
þar meiri laun í öðrum atvinnu-
greinum.
Skipavík er nú að byggja 9,9
tonna bát sem eru vinsælastir í
dag. Einnig er fyrirtækið að byggja
flotbryœjur fyrir Stykkishólms-
hrepp. I sumar verður svo hugað
að viðhaldi báta, en það er sá tími
sem þau verkefni eru mest.
— Árni