Morgunblaðið - 25.04.1987, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 25.04.1987, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987 TF-KEM varð bensínlaus Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti hana til Vopnafjarðar ALLT bendir til að TF-KEM, flugvélin sem nauðlenti í Smjörfjöllum á miðvikudags- kvöldið, hafi orðið eldsneytis- laus og þess vegna hafi drepist á hreyfli hennar. Þyrla Land- helgisgæslunnar, TF-SIF, flutti flugvélina til Vopnafjarðar i fyrradag, eftir að flugslysa- nefnd hafði skoðað aðstæður á lendingarstaðnum. Flugslysanefnd skoðaði vélina aftur á Vopnafírði, þegar hún hafði verið flutt þangað, og fór mótor vélarinnar þá strax í gang þegar bensín var sett á vélina. Átján einstaklingar á Austurlandi hafa nýlega keypt vélina og var hún í einni af fyrstu ferðum sínum fyrir þá. Eru það talin mistök flug- mannsins að ekki skyldi vera nóg eldsneyti á flugvélinni. TF-KEM er mikið skemmd. Hún var tekin í sundur á Vopnaf- irði f fyrradag og er geymd þannig. Búist er við að reynt verði að selja einstaka hluta hennar í varahluti. Strax eftir að flugvélin nauð- lenti á miðvikudagskvöldið tókst áhöfn flugvélar Flugmálastjómar að staðsetja neyðarsendi hennar. Tók vélin strax stefnuna á staðinn og fann TF-KEM strax og hún kom á svæðið. Þá höfðu flugvélar leitað á svæðinu um tíma án þess að finna flugvélina og mennina, Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, lendir með Egilsstaðaflugvélina, TF-KEM á Vopnafirði. sem sluppu ómeiddir úr nauðlend- unnar, TF-SIF, flutti mennina ^om á svæðið, eins og fram hefur ingunni. Þyrla Landhelgisgæsl- síðan til Egilsstaða þegar hún komið. Keppt um Morgunblaðsskeifuna á Hvanneyri: Þrjátíu ár frá afhend- ingu fyrstu skeifunnar Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson Að undangenginni hópreið hestamanna á Hvanneyri hefst skeifu- keppnin kl. 14.00 á sunnudag og fer hún nú fram á nýjum velli. KEPPNIN um Morgunblaðs- skeifuna verður haldin á Bændaskólanum á Hvanneyri á morgun, sunnudag. Afhending skeifunnar að þessu sinni er tímamótaviðburður því þrjátíu ár eru liðin frá því skeifan var veitt í fyrsta sinni. Það var Gunn- ar Bjarnason sem þá var kennari við skólann sem átti hugmyndina að skeifunni en hann hafði kennt tamningar og reiðmennsku við skólann um sex ára bil þegar skeifan var fyrst afhent. Dagskráin á sunnudag hefst klukkan 10 með gæðingakeppni en sjálf Skeifukeppnin hest klukkan 14 og fer keppnin fram á nýjum velli sem byggður var nú síðustu dagana. Öllum þeim sem hlotið hafa Morgunblaðsskeifuna gegnum tíðina hefur verið boðið til samkom- unnar og einnig upphafsmanninum Gunnari Bjamasyni. Eins og venja hefur verið til verð- ur gefíð út blað í tengslum við- keppnina sem auk þess að innihalda ýmsar gagnmerkar greinar og við- töl, er jafnframt mótskrá. Verður blaðið selt og rennur allur ágóði af sölunni til vallargerðarinnar. Einnig verða nemendur með happ- drætti þar sem verðlaun eru reið- tygi, folatollar og ýmislegt fleira. Ágóðinn af happdrættinu rennur einnig í vallargerðina. í mótskrá frá fyrstu skeifukeppn- inni er skrá yfír keppendur og hesta þeirra og fýlgir með Iýsing á því hvemig hrossin vom þegar þau komu ótamin til tamningar og kenn- ir þar ýmissa grasa. Þar á meðal taldi Leifur Jóhannesson, sem er nú formaður Landssambands hesta- mannafélega, hryssu sem hét Létta-Skjóna og var hún frá Krossi í Lundarreykjadal. Lýsingin á henni hljóðaði á þessa leið: „Tamin í sex vikur. Kom mjög mannhrædd, stygg og hrekkjótt, sló með öllum Iöppum og beit.“ Af þessu má ráða að á ýmsu hefur gengið í tamning- um á Hvanneyri í gegnum tíðina þegar ungir og efnilegir tamninga- menn hafa verið að stíga sín fyrstu skref í tamningum. Merkjasala og köku- basar í Seljasókn I SELJAHVERFINU er gróska í safnaðarstarfinu. Fyrir fáum árum var liafist handa um bygg- ingu kirkjumiðstöðvarinnar. íbúar hverfisins vænta sér mikils af þeirri góðu aðstöðu, sem þar mun skapast til fjölþættrar safn- aðar- og félagsstarfsemi í hverfinu. Kirkjumiðstöðin er þannig hönnuð, að þar eru fjögur hús, tengd með einni byggingu. Nú er eitt hinna ijögurra húsa að verða tilbúið og verður tekið í notkun innan fárra vikna. Þar mun að vísu ekki skapast aðstaða fyrir guðsþjónustuhald, en skrifstofa safnaðarins mun flytja þangað og önnur starfsemi, sem verið hefur í safnaðarsalnum í Tindaseli 3. í sumar er áformað að vinna að frek- ari byggingg rframkvæmdum og taka fleiri hns í notkun þegar á árinu. Við byggingarframkvæmdimar hafa íbúar hverfisins staðið vel sam- an. Þar hefur Kvenfélag Seljasókn- ar lagt mikið á sig til þess að betur megi ganga. Á kjördag munu kven- félagskonur enn vera á ferðinni og gefa íbúum hverfisins tækifæri til að stuðla á framgangi þessa mikil- væga máls. Við kjörstað í Öldusels- skólanum verða boðin merki. Sú merkjasala verður frá opnun kjör- staðar. En kl. 14 munu þær kvenfélagskonur opna kökubasar í Tindaseli 3. Það er einmitt í leið- inni, þegar farið er frá kjörstað og auðvelt að koma þangað og taka með sér kökur. Allur ágóði af þess- ari fjáröflun mun renna óskertur til þess að hraða byggingu kirkju- miðstöðvarinnar. Þær kvenfélagskonur vænta stuðnings hverfísbúa við starfíð. Þar munum við, sem viljum fram- gang góðra mála í Seljahverfínu, leggja okkar af mörkum og styðja það málefni, sem verður okkur öll- um til góða. Valgeir Ástráðsson ínýja Seðlabankanum Starfsemi Seðlabankans flutti í vikunni í hið nýja hús bankans við Arnarhól. Starfsmenn bankans hafa verið að koma sér fyrir og voru þessr myndir teknar í hinum nýju og björtu húsakynnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.