Morgunblaðið - 25.04.1987, Blaðsíða 43
7861 JÍOTA gg ÍTTIOAnHAOTIAJ GIHAJRVnTOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
Frakkland:
Reuter.
KONUR UNDIR VOPNUM
Það eru ekki aðeins karimenn, sem berast á banaspjót í Líbanon, heldur láta konumar ekki sitt eftir liggja.
Þessar palestínsku stúlkur beijast með skæruliðum Yassers Arafat, leiðtoga PLO, og halda til í hæðunum
upp af hafnarborginni Sídon.
Hert viðurlög til
að stemma stigu
við ölvunarakstri
40% umferðarslysa rakin til áfengisdrykkj u
París. Reuter.
FRÖNSK stjórnvöld tilkynntu í gær ráðstafanir, sem gripið
verður til í þvi skyni að stemma stigu við ölvunarakstri. Þar
á meðal er algert bann á áfengisauglýsingar í sjónvarpi.
77 manns létu lífið í umferðarslysum í Frakklandi yfir páska-
helgina.
Franska þingið samþykkti í
gær samhljóða lagafrumvarp
Albin Chalandon dómsmálaráð-
herra um hert viðurlög við
ölvunarakstri. Samkvæmt lög-
unum tvöfaldast fangelsisdómar
dmkkinna ökumanna, sem valdir
em að dauðaslysum.
Fangelsisdómar vegna ölvun-
araksturs verða frá tveimur
Afvopnunarviðræður risaveldanna:
Stj órnin hyggst ekki
hrapa að samningum
- segir utanríkisráðherra Bandaríkjanna
Washington, Genf, Reuter.
GEORGE Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, vísaði í gær á
bug ásökunum þess efnis að Bandaríkjastjóm legði ofurkapp á að
ná samkomulagi við Sovétríkin um upprætingu meðaldrægra kjarn-
orkuflauga í Evrópu. Minnti hann á að Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti hefði fyrst sett þessa hugmynd fram árið 1981 og því væri
tæpast unnt að saka stjómina um fljótfærni.
Með þessum orðum var Shultz
að svara ásökunum Bemard Rog-
ers, yfirmanns herafla Atlantshafs-
bandalagsins í Evrópu, en hann
sagði nýlega að hugmyndir Banda-
ríkjastjómar varðandi kjamorku-
vopn í Evrópu væru hættulegar og
að fljótfæmislegt samkomulag um
upprætingu meðaldrægra flauga
myndi auka hættuna á kjamorku-
Flugvél
skotin
niður
í Angóla
Lissabon, Reuter.
ANGÓLSKAR orrustuþotur skutu
i vikunni niður litla flugvél yfir
Suður-Angóla. Er flugmaðurinn
bandariskur að sögn og grunaður
um að hafa verið að njósna fyrir
stjómina í Suður-Afríkumenn.
í fréttum Angop-fréttastofunnar
angólsku sagði, að flugvélin hefði
verið skotin niður skammt frá landa-
mærum Angóla og Namibíu, sem
Suður-Afríkumenn ráða, og að flug-
maðurínn hefði haft bandarískt
vegabréf undir höndum. Telja yfir-
völd í Angóla, að hann hafi verið í
njósnaferð.
Þessi atburður verður á sama tíma
og sambúð Angólastjómar og
Bandaríkjastjómar hefur nokkuð
verið að lagast og til marks um það
má nefna, að fyrr í þessum mánuði
ræddust fulltrúar stjómanna við í
Brazzaville í Kongó.
styijöld. Rogers sagði einnig að
brottflutningur meðaldrægra kjam-
orkuflauga myndi hafa þá hættu í
för með sér að átök milli hins hefð-
bundna herafla stórveldanna leiddu
til þess að langdrægum kjamorku-
eldflaugum yrði beitt með hinum
óhugnanlegustu afleiðingum.
„Þrátt fyrír að samið yrði um
útrýmingu meðaldrægra flauga í
Evrópu, myndu þúsundir kjam-
orkuvopna standa eftir til varnar
Evrópu,“ sagði George Shultz í
sjónvarpsviðtali í gær. Með þessum
orðum var bandaríski utanríkisráð-
herrann að vísa til kjamorkuflauga
um borð í flugvélum, skipum og
kafbátum. Kvað hann samkomulag
um Evrópuflaugamar ekki veikja
stefnu Atlantshafsbandalagsins í
vígbúnaðarmálum.
Reagan Bandaríkjaforseti sagði
á fimmtudag að hann væri í senn
raunsær og vongóður um að samn-
ingar næðust. Þennan sama dag
var haft eftir Shultz að hugsanlegt
væri að leiðtogar stórveldanna
kæmu saman til fundar í Was-
hington í haust svo framarlega sem
samið yrði um Evrópuflaugamar.
Robert Byrd, þingmaður Demó-
krataflokksins í öldungadeild
Bandaríkjaþings, sagði fréttamönn-
um að hann væri bjartsýnni en
nokkru sinni áður um að samninga-
menn stórveldanna í Genf næðu
árangri f þessari lotu viðræðnanna.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
samþykkti í gær frumvarp sem
meinar Bandaríkjastjóm að veita
fjármunum til smíði vopnakerfa,
sem era óheimil samkvæmt SALT
II samkomulaginu frá árinu 1979.
FYumvarpið verður brátt tekið fyrir
í öldungadeildinni og er búist við
að Reagan forseti beiti neitunar-
valdi verði það samþykkt þar.
Reuter
Samningamenn risaveldanna hófu nýja lotu afvopnunarviðræðna í
Genf á fimmtudag. Lögreglumenn fjarlægðu búddamunk, sem tekið
hafði sér stöðu við sovéka sendiráðið. Munkurinn kvaðst einungis
vera að biðja fyrir friði í heiminum og tæpast væri það ólöglegt.
Lögreglumennirnir létu sér ekki segjast og báru hann á braut.
mánuðum upp í tvö ár og sektir
frá 2-30.000 frankar (13-195.
000 fsl. kr.).
Chalandon tilkynnti, að
frönsku sjónvarpsstöðvunum
þremur, sem eru í einkaeign,
hefði verið bannað að auglýsa
áfengi og yrði bannið í gildi fram
yfír sumarönn þingsins.
Mikið er um hvers kyns
vínauglýsingar í frönskum blöð-
um og tímaritum, svo og á
skiltum á almannafæri. í neðan-
jarðarlestinni í París eru t.d.
flennistór auglýsingaskilti, þar
sem lesa má m.a., að máltíð án
víns sé eins og blómlaus völlur
eða vor án lóunnar.
Heimildir í franska þinginu
herma, að sú þverpólitíska sam-
staða, sem tókst um fyrrnefnda
lagasetningu, eigi fyrst og
fremst rætur að rekja til dauða-
slysanna um páskana. Þá létust
77 manns af völdum umferðar-
slysa og um 2500 manns slösuð-
ust.
Nærri 11.000 manns létust í
umferðarslysum á árinu 1985
og voru um 40% slysanna rakin
til ölvunaraksturs.
Læknar, sem rætt var við í
franska ríkissjónvarpinu í fyrra-
kvöld, kváðu dæmigerð viðbrögð
móður 26 ára gamals ökumanns,
sem handtekinn var um helgina,
eftir að bfll hans hafði rekist á
tré með þeim afleiðingum, að
þrír samferðarmanna hans fór-
ust: „Hann var alls ekki drukk-
inn undir stýri,“ sagði móðirin
við blaðamenn, „hann fékk sér
bara fímm aníslíkjöra í fordrykk
fyrir kvöldmatinn, drakk rauðvín
og rósavín með matnum og tvö
glös af rauðvíni með eftirréttin-
um.“ Okumaðurinn slapp lítið
meiddur, en í blóði hans mæld-
ust l,57%o af vínanda, næstum
tvöfalt það magn, sem leyfílegt
er samkvæmt frönskum lögum.
Samkvæmt upplýsingum
franska umferðarráðsins eru
dauðaslys í umferðinni tiltölu-
lega flest í Frakklandi, eða 228
á hveija milljón íbúa. Þar á eftir
kemur Belgía með 192 á hveija
milljón.
Finnland:
* á stjórn Hægri
flokksins og jafnaðarmanna
Helsinki, Reuter.
HARRI Holkeri, sem falið hefur
verið að kanna grundvöll fyrir
myndun samsteypsutjórnar i
Finnlandi, gaf sterklega til
kynna í gær að Jafnaðarmanna-
flokkurinn og Hægri flokkurinn
hefðu náð samkomulagi um
myndun ríkisstjórnar.
Holkeri sagði á fundi með frétta-
mönnum að enn væri nokkur
ágreiningsefni óleyst en gaf jafn-
framt í skyn að þau myndu ekki
standa í vegi fyrir myndun ríkis-
stjórnar. Hann kvaðst ekki vilja
láta meira uppi að svo stöddu og
minnti á að Mauno Koivisto forseti
væri væntanlegur í dag, laugardag,
heim til Finnlands frá Tékkóslóv-
akíu. Koivisto fól Holkeri, sem
gegnir stöðu Seðlabankastjóra, að
kanna grandvöll fyrir myndun
stjómar Jafnaðarmanna og hægri
manna en Holkeri var í eina tíð
formaður Hægri flokksins.
Jafnaðarmenn töpuðu einum
þingmanni í síðustu kosningum og
hefur flokkur þeirra nú 56 fulltrúa
á þingi. Hægri flokkurinn vann hins
vegar níu þingsæti og hefur 53
menn á þingi. Þessir flokkar gætu
því myndað meirihlutastjóm þar eð
200 fulltrúar sitja á þinginu.
Hægri flokkurinn hefur verið í
stjómarandstöðu í 20 ár en Jafnað-
armenn og Miðflokkurinn hafa
haldið um stjómartaumana auk
Kommúnistaflokksins en vinsældir
hans hafa dvínað ört á undanföm-
um áram.